Tíminn - 23.03.1966, Síða 11
MIÐVIKUDAGUR 23. marz 1966
TBMINN
Indiana og rofið skilorð eftir að hann var látinn laus til
reynslu úr fylkisfangelsinu í Sillwater í Minnesota.
f annað skipti var maður sendur í fylkisfangelsi Wisconsin
til að taka út tvo eins til fimm ára dóma fyrir fals, stakk
fangavörðurinn upp á því við F.B.I að fingraför hans yrðu
send til Englands, Frakklands, Austurríkis og Belgíu. Við
það kom í ljós, að hann hafði áður tekið út dóm í Róm
fyrir svik og franska lögreglan hafði í sórum sínum hand-
tökuskipun á hendur honum fyrir skjalafals.
Árið 1961 sneru lögreglustjórnirnar í London og París
sér til Hoovers með tilmælum um að hann gengi í Alþjóða-
lögregluna á ný, en ekkert bendir til að hann skiptd um
skoðun, þótt hann sendi áheyrnarfulltrúa á aðalfundinn í
Kaupmannahöfn það ár. Engu að síður hefur F.B.I. látið
málum á liðnum árum.
Sú löggæzlustofnun Bandaríkjanna, sem langmest hefur
saman við Alþjóðalögregluna að sælda, er Eiturlyfjaskrif-
stofa fjármálaráðuneytisins, en henni veitti til skamms tíma
forstöðu Harry Jacob Anslinger, einstakur maður, sem tekur
öllum fram í dugnaði við að elta uppi eiturlyfjaprangara.
Erindrekar skrifstofunnar hafa aðsetur víða um heim og
þeir hafa stöðugt samband við Alþjóðalögregluna, láta vitn-
eskju í té og skýra frá ferðum smyglara.
Anslinger varð fyrir löngu ljóst, að land hans er umsetið
af eiturlyfjasölum, og hann hefur barizt gegn eiturlyfjanautn
með öllum tiltækum ráðum. Svo mikil er þekking hans á
þessum málum, að 1938, þegar hann sá fyrir að styrjöld
var í aðsigi og ekkert opinbert fé var fáanlegt, tókst honum
að fá lyfjaframleiðendur Bandaríkjanna til að leggja fram
peninga til kaupa á ópíumbirgðum, sem reyndust ómetan-
legar þegar flutningaleiðir lokuðust og þörfin á lyfjum til
að lina þjáningar særðra hermanna var meiri en nokkru
sinni fyrr.
Hann kom einnig á leynilegum samtökum milli yfirmanna
eiturlyfjadeilda í London, Kairó, Ottawa, Basel, Rotterdam,
Berlín og París. í sameiningu tókst þeim að sprengja þó
nokkra smyglhringa, sem teygðu anga sína út um allar heims
álfur og helltu eiturlyfjum í tonnatali á markaðinn á ári
hverju.
Bandaríkin eru nú tvímælalaust gósenland eiturlvf.iaprang-
ara, en eiturlyf voru farin að slæðast þangað fyrir frelsis-
stríðið. Þegar á 19. öldina leið varð straumurinn stríðari, og
rétt fyrir þrælastríðið kom lyfjasprautan til sögunnar. Um
skeið voru sjálklingar hvattir til að útvega sér slík verk-
færi ög sprauta sig sjálfir. í lok þrælastríðsins 1865 var
fjöldi hermanna, sem fengið höfðu sprautur til að lina þján-
ingar, orðinn að forföllnum eiturlyfjaneytendum. Læknum
og fleirum varð fljótt ljóst hver hætta var á ferðum, og
nú tók eiturlyfjanautn að breiðast út meðal kvenna. Um
aldamótin tók svo heróínneyzla að leggja undir sig unglinga-
skarann í stórborgunum. Á árum heimstyrjaldarinnar fyrri
fjölgaði bandarískum eiturlyfjaneytendum enn, bæði meðal
hermanna og óbreyttra borgara, og samkvæmt skýrslum
voru þá að minnsta kosti 200.000 manns forfallnir. Nú er
gizkað á að þeir séu um 60.000, en á skrám eru 45.000.
Árið 1930 var stofnuð_ Eiturlyfjaskrifstofa í fjármálaráðu-
neytinu í Washington. í verkahring skrifstofunnar er að
framfylgja eiturlyfjalöggjöf, og hún setur reglur um verzl-
un með þessi lyf í Bandarikjunum, sér um að þær séu
haldnar og hefur samstarf við hliðstæðar stofnanir i öðrum
löndum. Skrifstofan rannsakar mál sem varða brot á eitur-
lyfjalöggjöfinni, handtekur lögbrjóta og vinnur með tollgæzJ-
unni að því að hafa hendur i hári smyglara. Báðar þessar
stofnanir hafa erindreka víða utan Bandaríkjanna, sem
vinna saman að því að hindra ólöglegan innflutning til
Bandaríkjanna. Þessir erindrekar eru einvalalið og hafa
einkum aðsetur í Evrópu og Austur-Asíu.
Ár hvert eru eiturlyfjasalar handteknir, og oftast hefur
Alþjóðalögreglan þar hönd í bagga. Árið 1951 tókst banda-
rísku eiturlyfjalögreglunni að ná taki á Irving nokkrum Wexl-
er, sem kunnari er undir nafninu Waxey Gordon. Hann var
í hópi alræmdustu glæpamanna New Ýork og glæpaferill
hans náði hámarki á fjórða tug aldarinnar, þegar hann var
talinn haettulegastur allra bófaforingja í New York. Hann
byrjaði í smáum stíl á vasaþjófnaði, en komst í feitt eftir
að bannlögin voru sett. Þá varð hann voldugasti maðurinn
í leynisölu á áfengum bjór í austanverðum Bandaríkjunum
UNG STULKAIRIGNINGU
GEORGES SIMENON
ef þú gætir leitað upplýsinga um
konuna hans, hún bjó undanfarið
á Hótel Washingto. Ég þarf að
vita, hvaðan hún kemur, hvað
hún hefur haft fyrir stafni áður
en hún kynntist honum, og hyerj
ir voru vinir hennar og kunningj
ar.
— Er það allt og sumt? Er það
vegna morðsins á Place Vinti-
mille?
Maigret kinkaði kolli.
— Er nokkuð í spjaldskránni
um Louise Laboine
Eftir nokkra stund kom í ljós,
að svo var ekki.
— Því miður. kæri vinur, ég
skal strax afla mér upplýsinga um
frú Santoni. Sennilega verður erf
itt um vik að yfirheyra hana
í bráð. því mér skilst, að hún sé á
Ítalíu rneð manni sínum
— Ég óska ekki eftir, að hún
verði yfirheyrð í bráð.
Maigret kvaddi og vissi akki,
hvað hann skyldi taka sér fyrir
hendur. Hann var að hugsa um,
að fá sér glas en hætti við það.
þess i stað rölti hann um gang-
ana. gægðist inn i biðsalinn, þar
sem biðu nokkrir „gestir“ og ráf-
aði því næst upp á efnarannsókn
arstofuna, þar sem Moers sat álút-
ur yfir smásjá.
— Hefurðu rannsakað undir-
fötin, sem ég sendi þér?
Hér ríkti friður og kyrrð, menn
í gráum kyrtlum voru uppteknir
yfir margbrotnum vélum og
hvergi fum né fát.
— Svarti kjóllinn hefur aldrei
verið hreinsaður, en oft verið
blettaþveginn með bensíni og
líka burstaður. Þó var dálítið ryk,
sem hafði sezt í efnið. Ég fann
Iíka leifar eftir græna málningu.
— Var það allt og sumt?
— Næstum því. Og nokkur sand
korn.
— Af árbakka?
— Nei, úr fjörusandi eins og
tíðkast á Normandi.
Er það öðruvísi en sandur
inn við Miðjarðarhaf?
— Já. Og öðruvísi en sandur-
inn við Kyrrahaf.
Maigret sló ösku úr pípu sinni
og kvaddi. Svo fór hann að hitta
Lucas, sem hafði áríðandi skila
boð til hans frá Feret viðvíkjandi
ungu stúlkunni, sem hafði verið
myrt.
Maigret fór inn á skrifstofuna
og hringdi til Ferets Það leið
nokkur stund áður en hann fékk
samband við Niee. Aldrei hafði
verið svo rýr árangur af þvi að
lýsa eftir fólki með ljósmynd í
blöðunum, fram að þessu hafði
aðeins verið hringt einu sinni, þar
var Rósa, vinnukonupíslin í Rue
de Clichy.
Þó hlutu tugir manna. • jafnvel
hundruð að hafa vitað einhver
deili á hinni myrtu stúlku.
— Halló er það Feret?
— Já, er það Maigret?
Feret hafði unnið hjá Maigret,
áður en hann flutti til Nice, af
heilsufarsástæðum konu sinnar.
— Það var hringt til mín
snemma í morgun vegna ungu
stúlkunnar, sem var myrt.
— Já, hún heitir víst Louise
Laboine.
— Hárrétt. Viðjið þér vita
meira? Það er ekki mikið. sem
ég veit. Eg skal þó framkvæma
gaumgæfilega rannsókn, ef þér
viljið. Það var sem sagt hringt
til mín snemma í morgun, það var
fisksölukerling. sem heitir Alice
Feynerou . .halló? . .
— Já, ég er hér.
— Hún segist hafa þekk+ stúlk
una á myndinni. En það er langt
síðan. Fjögur eða fimm ár. Unga
stúlkan var þá telougála sem bjó
ásamt mömmu sinni við hliðina
á fiskbúðinni.
— Vissi hún eitthvað?
— Mamman hefur sýnilega ekki
staðið i skilum. því að fisksólu
kerlingin kvaðst muna. að hún
væri ein þeirra. sem nættuiegt
er að skrifa hjá.
— Hvað gat hún sagt frekar?
— Mæðgurnar bjuggv. i fremur
góðri íbúð nálægt Avenue Clem-
enceau. Móðirin var víst glæsi-
leg stúlka. á sinni tíð. Hún var
heldur eldri en mæður fimmtán
ára stúlkna eru venjulega, hún
var þó nokkuð á sextugsaldri.
— Á hverju lifðu þær
— Það er það furðulega. Móðir
in var sundurgerðarmaður í klæða
burði, fór aldrei út fyrr en eftir
hádegi og kom ekki fyrr en áliðið
var nætur.
— Og annars ekkert? Engir
karlmenn?
— Nei, ef svo hefði verið, hefði
fisksölukerlingin ekki dregið dul
á það.
— Fluttust þær burtu sam-
tímis?
— Svo virðist vera. Þær hurfu
einn góðan veðurdag og skuld-
uðu þá enn.
— Eru þær á spjaldskrá hjá
þér?
— Nei, ég hef gengið úr skugga
um það. Einn starfsbræðra minna
hér rámaði í nafnið Laboine en
vissi ekki frekari deili á þeim
— Viltu rannsaka málið?
— Ég skal gera mitt bezta.
Hvað viltu vita fyrst og fremst?
— Allt. Hvenær fór stúlkan frá
Nice? Hvað er orðið af
móðurinnj? Á hverju lifðu þær?
Hvaða fólk umgengust þær? Ef
stúlkan var ekki nema 15 eða 16
ára, hlýtur hún að hafa gengið f
skóla i Nice.
— Já Ég hringi um leið og
eitthvað kemur í ljós.
— Heimsæktu spilavíti? líka
— veena moðurinnar.
— Ég hafði einmitt hugsaö mér
að gera það
Enn bættust við fáeinir drættir
í mynd hinnar myrtu stúlku.
Maigret tók frakka sinn og hatt
________________________________11
og gekk niður tröppurnar. Það
var nýlega stytt upp, sólin skein
á nýjam leik og göturnar voru að
þorna. Maigret hætti við að ná
í leigubíl en gekk inn á bar, og
fékk sér einn lítinn. Hann stóð við
barinn og gat ekki ákveðið.
hvað hann vildi. Tveir starfsbræð
ur hans stóðu skammt frá og
ræddu eftirlaunaaldurinn.
Hvað viljið þér. Maigret?
spurði þjónninn.
Maður skyldi aétla, að hann væd
í vondu skapi. En þeir, sem
þékktu til hans, vissu þó að sú
var ekkl raunin. Hugur hans reib
aði víða, í íbúð ekkjunnar í ftue
de Douai, á torgið fyrir framan
Þrenningarkirkjuna, í kjólabúð
ina í Rue de Douai, og nú f Níce,
þar sem hann sá fyrir sér uhga
stúlku inni í fiskbúð.
Allar þessar sundurleitu mynd-
ir runnu saman í eina og sterkust
var þó mynd ungu stúlkunnar, þar
sem hún lá liðið lík og dr. Paul
stóð yfir henni í hvítum kyrtli.
— Éinn pernod. sagði hann
ósjálfrátt.
Hafði Paul ekki sagt að stúlk
an myndi hafa fallið á kné
skömmu áður en hún hlaut bana
höggið?
Skömmu áður hafði hún verife
í Romeo í Rue Caumartin þar
sem leigubflstjóri hafði veítt velkt
um kjól hennar athygli. Hún hafðj
talað við brúðina, og að því búnu
hafði hún farið út í rigninguna
Hvað bjó f huga hennar þessa
stund? Hvert var hún að fara?
Hvers vænti hún’
ÚTVARPIÐ
Miðvlkudagur 23. marz
7.00 Morgunútvarp 12.00 Hádsgis
útv 13.15 Fræðsluþáttur bænda
vikunnar. 14.15 Við vinnuna
14.40 Viö, sem heima sftfum.
115.00 Miðdegis
útvarp. 16.00
Síðdegtsút-
varp 17.20 Framburðarkennsla í
esperanto og spænsku. 17.40
Þingfréttir 18.00 Útvarossaga
barnanna: „Tamar og Tóta' 18
20 Veðurfregnir. 18.30 Tónleik
ar 19.30 Fréttir 20.00 Dtgiegt
mál Arni Böðvarsson flytur þatt
mn 20.05 Efst á baugi Bjórgvin
Guðmundsson og Björn Jóhauns
son tala um erlend málefni 20.
35 Alþinglskosningar og alþing
tsmenn t Arnessýslu. Jón G>sla
son póstfulltrúi flytur annað
erindi sitt. 21.00 Lög unga fólks
Ins Bergur Guðnason kynmr. 22.
00 réúlr og veðurtregnlr. 22.20
„Galdragull". smásaga eftir 'ohti
Collier Helgi Skúlason leikari >es
22.50 Kammertónleikar: 23.30
Dagskrárlok
fimmtudagui 24. marr,
7.00 Morgunútvarp 12.00 Hádegis
útvarp 13.15 Erindi bændavik
unnar. 14.15 Við vinnuna. 14.40
Við sem heima sitjum. Margréi
IBjarnason
[6egir frá
1 bandariska
stríðsfréttamannipum og ljós-
myndaranum Dickey ChaoeL 15.
00 Miðdegisútvarp 16.00 Síðdegis
útvarp 17.40 Þingfrétttr. 18.00
Segðu mér sögu. Þáttur vngstu
hlustendanna. 18.20 Veðurfregnir
18.30 Tónleilcar. 19.30 Fréttir 20
00 Daglegt mál. Arni Böðvarsson
flytur þáttinn. 20.05 Pianótónteik
ar. 20.30 „Hirð þú sauði mina''
Föstuþáttur um preststarfið. St
Sveinbjörn Sveinbjamarson
Hruna stj. 21.00 Sinfóniuriljóm
sveit tslands heldur hljómieika i
Háskólabíói. 22.00 Fréttir ag v'eð
urfregnir. 22.20 „Heljarelóöar-
orusta“ Lárus Pálsson leókari i*s
í4) 22.40 Diassþátror Ólafnr
Stephensen kynnir. 23.10 tíialti
Elíasson og Stefán Guðjoims6®
ræðast við. 23.35 Dagskráriok.