Tíminn - 16.04.1966, Blaðsíða 1
Auglýsing 1 Timanum
kesmur dagiega fyrir augu
80—100 þásund lesenda
Gerizt áskriíendur aö
Tímanum.
Hringið í síma 12323.
85. tbl. — Laugardagur 16. apríl 1966 — 50. árg.
Bóluefni er
gerir geisla-
virkt úrfelli
ósaknæmt?
NTB-Atlantic City, föstudag.
Tveir bandarískir vísinda-
menn tilkynntu í dag, að þeir
befðu búið til meðal, sem þýtt
gæti, að einhvern tíma í fram
tíðinni væri hægt að bólusetja
fólk gegn áhrifum geislavirks
úrfellis eftir kjarnorkuspreng-
ingu. Vísindamönnunum hefur
tekizt að gera mýs að hluta til
ónæmar gegn skaðlegum áhrif
um geislunarii!»ar, á svipað
an hátt og fólk er bólusótt gegn
sjúkdómum.'
Þetta igetur leitt til þess, að
hægt verði að vernda fólk gegn
lífsihættulegu magni geislunar,
segja vísindamennirnir í skýrslu
sinni. Þeir segja, að einungis
30% þeirra músa, sem fenigu
innsprautað efni þetta, hafi lát
izt af völdum gamma-geislunar,
en 80% þeirra, sem ekki voru
látin hafa efnið. Hafa vísinda-
mennimir stundað þessar tfl-
raunir sín í mörg ár.
Framhald á bls. 15.
STORHÆKKUNA SteJORLIKI 0G
FISKI ■ NIÐURSREIDSLUM HÆTT
AÐ UNDANFÖRNU hafa
víða um lönd verið mótmæla
aðgerðir gegn stefnu Banda
ríkjanna í Víetnam, en þó
hvað harðastar í Suður-
Víetnam og Bandaríkjunum
sjálfiun. Þessi mynd er frá
Berkley í Kaliforníu og sést
lögreglumaður að þjarma að ein
um þeirra, sem fóru þar í mót-
mælagöngu, sem endaði í óeirð
um göngumanna og lögreglunnar,
eftir að göngumenn höfðu hengt
dúkku, sem tákna átti Lyndon
Johnson, forseta Bandaríkjanna.
AK—Reykjavík, föstudag. — í dag eða næstu daga mun koma til
framkvæmda mikil verðhækkun á nokkrum brýnustu neyzluvörum
almennings, og nemur sú verðhækkun 3—4 vísitölustigum, þar sem
ríldsstjórnin mun nú hætta niðurgreiðslum á saltfiski, nýjum fiski og
smjörlíki. Gengið mun liafa verið frá þessum málum í verðlagsnefnd
í gær.
Eins og blaðið sagði frá fyrir
rúmum mánuði, hafði ríkisstjórn
in samþyikkt að láta þessa verð
hækkun koma til framkvæmda 15.
marz. Samþykkt hafði þá verið
í ríkisstjóminni að láta þetta þeg
ar koma til framikvæmda, en þá
brá svo við, að hinn gamalreyndi
verkalýðsforingi Alþýðuflokksins,
Jón Sigurðsson, neitaði algerlega
að samþykkja þetta, og kvað það
hiklaust brot á samkomulaginu við
verkalýðsfélögin. Heyktist Gylfi
og aðrir Alþýðuflokksráðherrar þá
um sinn, og var málið lagt í
handraða. Þegar ríkisstjórnin lagði
svo fram frumvarp sitt um sér-
stakar ráðstafanir vegna sjávarút-
vegsins vegna páskanna en þáð fól
í sér um 80 millj. kr. útgjöld úr
ríkissjóði, án þess að nokkuð væri
ætlað á móti í fjárlögum, þá lýsti
stjórnin yfir í greinargerð, að hún
hefði í hyggju að minnka niður-
greiðslur á neyzluvörum sem þessu
Framhald á 14. síðu.
Eðvarð Sigurðsson, form. Dagsbrúnar:
VERKALÝÐSHREYF-
INGIN SAMDIAF SÉR!
TK—Reykjavík, föstudag.
Eðvarð Sigurðsson, alþm., for-
maður Verkamannafélagsins Dags
brúnar, og aðal samningamaður
verkalýðshreyfingarinnar, er svo
Starfshæfni Sexmanna-
nefndarinnar er tryggð
TK—Reykjavík, föstudag.
Ríkisstjórnin lagði fram á Al-
þingi í dag frumvarp um breyt-
ingu á lögum um framleiðsluráð
landbúnaðarins o. fl. Með frum-
varpi þessu verður tryggt, að verð
lagningarkerfið er ekki unnt að
gera óvirkt vegna synjunar þátt-
töku eins eða fleiri aðila að verð
lagningunni, og í því sambandi er
neitunarvald afnumið í sex manna
nefnd og þarf aðeins einfaldan
meirihluta i nefndinni til ákvörð
unar verðlagsins.
Frumvarp þetta er að mestu
samið af nefnd, sem landbúnaðar
ráðherra skipaði í nóv. s.l. til að
leita eftir samkomulagsgrundvelli
milli framleiðenda og neytenda,
en eins og kunnugt er neitaði ASÍ
að tilnefna í sex manna nefnd á
s.l. ári. Landbúnaðarráðherra
skipaði eftirtalda menn í nefnd-
ina: Ólaf Björnsson, prófesor, for
mann, Vilhjálm Hjálmarsson, fyrr
verandi alþm., Gunnar Guðbjarts
son, formann Stéttarsambands
bænda, Einar Ólafsson, bónda,
Sæmund Ólafsson, framkvæmda-
stjóra, Ottó Schopka, viðskipta-
fræðing og Hannibal Valdimars-
son, alþm.
í febrúar sendi nefndin land-
búnaðarráðuneytinu tillögur sín-
ar. Hannibal Valdimarsson stóð
ekki að þeim tillögum og skilaði
séráliti. Eftir að nefndin sendi
ráðherra tillögurnar náðist endan
legt samkomulag með nefndar-
mönnum, öðrum en Hannibal, um
5. gr. frumvarpsins, sem fjallar
um viðmiðun við útreikninga á
kaupi bóndans. Er greinin svo-
hljóðandi í frumvarpinu:
„í verðlagsgrundvelli skal, sbr.
6. gr. tilfæra ársvinnutíma bónd-
ans, skylduliðs hans og hjúa á
búi af þeirri stærð, sem miðað
er við hverju sinni, og virða |
vinnutíma til samræmis við kaup |
gjald verkamanna, sjómanna ogj
iðnaðarmanna, eins og það er við j
upphaf hvers verðlagstímabils.
Eigi skal þó taka til viðmiðunar
ákvæðisvinnu verkamanna og iðn
aðarmanna né aflahlut sjómanna.
Til kaupgjalds teljast hvers kon
ar samningsbundin fríðindi.“
Engar athugasemdir um þessa
grein er að finna í athugasemdum
frumvarpsins, en þessi ákvæði
skýrast væntanlega, er ráðherr-;
ann mælir fyrir frumvarpinu.
í frumvarpinu segir, að noti
einhver aðili ekki rétt sinn til til
nefningar í sexmannanefnd fyrir
15. júlí ár hvert skuli landbúnaðar
ráðherra tilefna í stað þeirra sam
taka framleiðenda, sem ekki nota
rétt sinn, en félagsmálaráðherra
á sama hátt í stað samtaka neyt-
enda.
Þá þarf aðeins einfaldan meiri-
hluta í sexmannanefnd til ákvörð-
unar verðlagsgrundvallar, en fá-
ist ekki meirihluti skal sáttasemj
ari leitast við að finna málamiðl-
un í ágreiningsatriðum og leggja
fram tillögur til úrlausnar. Beri
sáttaumleitanir ekki árangur,
skal skipa 3 manna nefnd, er felli
fullnaðarúrskurð. Hvor nefndar-
hluti sexmannanefndar hefur rétt
Framhald a 14. síðu
NÝJAR LÁNTÖKUR RÍKISSJÓÐS Á ÞESSU ÁRI
landshafna 18 milljónir, til ,’ega
30.8 milljónir, flugmála, 26,3
milljónir, skóla, 14,9 milljónir og
TK—Reykjavík, 15. apríl. ■ valla- og vegagerða á Vestfjórðum
i frá Flóttamannasjóði Evróparáðs
Ríkisstjórnin iagði í dag fram | ins, 318 þús. dollara til sanddælu
á Alþingi frumvarp um heimild tækja til handa hafnarmálastjórn, til sjúkrahúsa 10 milljónir. 100
til samtals 178.7 milljón króna lán 6 milljónir til öryggistækja 'lug milljónum króna af þessu lánsfé
töku til ýmissa framkvæmda á þjónustunnai, 45,5 milljónir *il raf verður aflað með sölu á ríkis-
þessu ári. 13.5 milljónir til flug-1 orku- og jarðhitaframkvæmda, til skuldabréfum eða spariskírteinum.
nefnt júní-samkomulag var gert
árið 1964, sagði á Alþingj j dag,
í umræðum um frumvarp ríkis-
stjórnarinnar um vísitölubindingu
útlána, að verkalýðshreyfingin
hefði samið af sér varðandi verð
tryggingu Iána frá húsnæðis-
málastjórn í júní-samkomulaginu,
Eðvarð Sigurðsson sagðist hafa
tekið eftir því i Tímanum í dag,
að því væri haldið fram, að verka
lýðshreyfingin hefði samið af sér
er hún hefði samþykkt verðtrygg
ingu húsnæðislána ríkisins í júní
samkomulaginu. Sagði Eðvarð, að
það mætti til sanns vegar færa,
að verkalýðshreyfingin hefði sam
ið af sér, hvað verðtryggingu lán-
anna snerti, en framhjá hinu
l mætti þó ekki ganga, að ýmislegt
j annað jákvætt hefði náðst fram.
j Segja mætti, að verkalýðshreyf-
i ingin hefði samið af sér, vegna
þess að ríkisstjórnin hefur ekki
staðið við þau loforð, sem voru
forsenda þessara samninga, þ.e.
hömlur á verðlagi og stöðvun verð
vaxtarins.
Gylfi Þ. Gíslason, viðskiptamála
ráðherra. sagði, að vísitöluhækk-
anrinar á afborgunum lánanna
rynnu til þess að efla húsnæðis-
málasjóð og kæmi húsbyggjend-
um framtíðarinnar til góða, og
væri það fyllsta réttlætismál og
ennfremur yrði að hafa í huga,
að allir launþegar fengju vísitölu-
uppbætur á laun.
Einar Ágústsson benti á, að
húsnæðiskostnaðurinn væri ekki
talinn nema tæp 13 þús. á ári í
útreikningum á vísitölunni og
vissu allir, hve fjarri lagi það
væri. Hækkun vísitölu á laun væri
því ekki í neinu samræmi við
hækkun húsnæðiskostnaðarins,
Framhald á 14. sfðu.