Tíminn - 16.04.1966, Side 2
TtMINN
LAUGARDAGUR 16. apríl 1966
ERU ÓÁNÆGDIR MEÐ
VARAHLUTAÞJÓNUSTU
EJ-Reykjavík, föstudag.
Ftmdi Ræktunarsambandanna
lauk í, gærkvöldi og hafði fund-
urinn samþykkt ýmsar ályktanir
um sameiginleg hagsmunamál.
Meðal þeirra mála, sem mikið var
rætt um á fundinum, var sending
varahluta út á land, en fulltrú-
arnir voru óánægðir með þá þjón-
ustu. FuIItrúar innflytjenda sátu
fundinn í gærmorgun og gáfu
þar ýmsar skýringar á þeim vand-
kvæðum, seim þeir, og flutningsað-
ilar, ættu við að etja í þessu sam-
bandi.
Fundurinn samþykkti um þetta
mál ályktun, þar sem stjórn Bún-
aðarfélags íslands og Vélanefnd
er falið að taka til rækilegrar at-
hugunar á hvern hátt sé hentug-
ast að skipuleggja sendingu vara-
hluta til ræktunarsambandanna,
og hvernig gera megi árlegt yfir-
lit yfir varahlutaþjónustu hinna
einstöku innflutningsfyrirtækja og
annast birtingu þess.
Ræktunarsiamböndin kusu einn
fulltrúa til þess að starfa með
Vélanefnd og stjórn Búmðarfé-
lagsins að framkvæmd þessara til-
lagna, Aðalbjörn Benediktsson,
Laugarbakka.
Ákveðið var, að þessi nefnd ætti
fund með innflytjendum og reyndi
að fá viðhlítandi skýringar, og fá
að gefa einhverjar leiðbeiningar,
ef það þætti mögulegt.
Einnig voru samþykktar tillög-
ur um mörg önnur mál, m.a. varð-
andi tollaeftirgjöf, lánamál,
greiðslugjalddaga stofnlánadeilda-
anna, og ýmislegt fleira. Þá
voru einnig samin erindi til hinna
ýmsu ráðherra um hagsmunamál
sambandanna. Einnig var ákveðið
að reyna að fá hagstæð kjör við
vélakaup, gegnum einhvern sam-
eiginlegan aðila.
Útsaumuð mynd eftlr Mary Crookes, 11 ára.
Ljósm.—BB
66 myndir á upp-
boði á Hótei Sögu
GtB-Reykjavík, fimmtiudag.
Kristján Fr. Guðmundsson
málverkasali heldur 13. mál-
verkauppboð sitt að Hótel Sögu
n.k. þriðjudag og býður þá upp
66 myndir, en höfundar þeirra
eru ýfir 40 talsins, innlendir
og erlendir.
Flestar myndir einstakra
listamanna eru eftir Nínu Sæ-
mundsen, fimm pastelmyndir
og fimm teikningar. Þrjár
teikningar af miðbænum í
Reykjavík árið 1875 eftir Bene
dikt skáld Gröndal. Aðrir höf-
undar myndanna eru m.a.: Júlí
ana Sveinsdóttir, Barbara og
Magnús Á. Árnason, Höskuldur
Björnsson, Guðmundur Einars-
son frá Miðdal, Ferró, Jóhann-
es Geir, Hafsteinn Austmann,
Veturliði Gunnarsson, Eggert
E. Laxdal, Ásgeir Bjarn'þórs-
son, Eggert Guðmundsson,
Hreinn Elíasson, Sólveig Egg-
erts, Þoríákur Haldórse’n, Helgi
M.S. Bergmann, Bjarni Guð-
mundsson frá Hornafirði, Arre
boe Clausen, Valdimar Lárus-
son leikari, Sigurður Kristjáns-
son. Af útlendum myndum
nefna tvær stórar útsaumaðar,
nærri hundrað ára gamlar, eft-
ir tvær systur kornungar, Mary
Crookes 11 ára og Sarah Ann
12 ára.
Myndirnar verða til sýnis að
Hótel Sögu á mánudag kl. 1—6
e.h. og uppboðsdaginn kl. 1—4.
FLUGAÆTLUN Fl ALDREI
VFRIÐ YFIRGRIPSMEIRI
KT-Reykjavík, föstudag.
Sumaráætlun Flugfélags ís-
lands 1966 er nýlega komin út,
en hún gekk í gildi um síðustu
mánaðamót. Er áætlunin hin yfir-
gripsmesta í sögu félagsins, að
því er segir í fréttabréfi frá fé-
laginu. Verða í sumar 17 ferðir
á viku milli íslands og útlanda
og frá Reykjavik verða 73 ferð-
ir í viku til hinna ýmsu viðkomu-
staða Flugfélagsins auk ferða milli
staða úti á landi.
Þegar sumaráætlunin hefur að
fullu gengið í gildi, verða átta
ferðir í viku til Glasgow, og fjór-
ar beinar ferðir til London. Til
Kaupmannahafnar verða þrettán
ferðir í viku, þar af þrjár beinar
ferðir frá Reykjavík. Til Osló
verða tvær ferðir í viku, á mánu-
dögum og fimmtudögum og til
Færeyja, Bergen og Kaupimanna
hafnar á þirðjudögum.
Áætlunarferðum innanlands
fjölgar einnig að mun. Frá Reykj-
vík til Akureyrar verða þrjár ferð-
ir á dag, nema á miðvikudögum,
þá verða tvær ferðir. í þessum
ferðum verður að mestu leyti flog-
ið beint.
Til Vestmannaeyja verða 18
ferðir í viku, til Egilsstaða verða
11 ferðir í viku, en auk þess
ferðir um Akureyri, ísafjörð og
Höfn í Hornafirði. Til ísafjarðar
verða ferðir alla daga vikunnar.
Til Hafnar í Hornafirði verða
fjórar ferðir í viku og jaínoft
verður flogið til Sauðárkróks og
verða hinar síðarnefndu án við-
komu annars staðar.
Til Húsavíkur verða þrjár ferð-
ir í viku og sama er að segja
um ferðir til Patreksfjarðar. Til
Þórshafnar ög Kópaskers verður
flogið þrisvar sinnum í viku og
á miðvikudögum verður flogið til
Fagurhólsmýrar.
í sambandi við sunnudagsferð-
ina frá Reykjavík til ísafjarðar
skal þess getið, að flugvélin held-
ur áfram frá ísafirði til Akur-
eyrar, Egilsstaða og Hafnar í
Hornafirði, snýr þar við og hefur
viðkomu á sömu stöðum. Fyrir þá,
‘sem vilja skoða landið úr lofti er
hægt að fljúga með þessum ferð-
um kl. 10.00 á sunnudagsmorgni
frá Reykjavík, fara alla leið til
Hornafjarðar og aftur til Egils-
MESTU AFKOST ABURDARVERK
SMIDJUNNAR FRÁ UPPHAFI
staða, en taka þar flug beint til
Reykjavíkur.
í sambandi við flugferðir inn-
anlands verða í samráði við um-
ferðadeild póstþjónustunnar og
sérleyfishafa, skipulagðar áætlun-
arbílferðir til byggðarlaga í ná-
grenni flugvallanna.
EJ-Reykjavík, föstudag.
f dag var haldinn aðalfundur
Áburðarverksmiðjunnar h.f. og
sátu fundinn hluthafar og um-
boðsmenn þeirra fyrir 91% hluta-
fjárins. Stjómarformaður, Pétur
Gunnarsson, flutti skýrslu stjórn-
arinnar um starfsemina á árinu
1965, og kom þar fram, að heild-
arafköst urðu þau mestu sem
náðst hafa frá upphafi. Ársfram-
leiðslan var 24.412 smálestir
Kjarna, en það er 3.559 smálest-
um eða 17% minna en árið áður.
Aftur á móti varð eigin fram-
leiðsla ammóníaks sú minnsta sem
orðið hefur frá upphafi, eða að-
eins 93,6 millj. kwst. á árinu, sem
er 38.7 millj. kwst. minna en
næsta ár á undan.
Þá einkenndist reksturinn 1965
af þeirri nýbreytni, af hafinn var
innflutnigur á fljótadi ammóní-
aki, að þvi marki sem á skorti
eigin framleiðslu þessa efnis, til
að Kjarni væri framleiddur með
íullum afköstum Þannig voru 45.4
% heildarframleiðslu Kjarna eða;
11.062 smálestir framleiddar úr j
innfluttu ammóníaki, en 54.6% j
eða 13.350 smálestir úr eigin amm- ;
óníakframleiðslu.
Sú ráðstöfun sem gerð var ár-
ið 1964 um byggingu ammóníak-!
geymis í Gufunesi er gerði inn- •
flutning ammóníaks mögulegan, i
hefur bjargað rekstri verksmiðj-
unnar, þegar á fyrsta ári inn-
flutningsins.
Seldar voru á árinu 19.758 smá
lestir Kjarna og nam söluandvirði
hans ásamt söluandvirði ammóní-
aks, sýru o. fl. samtals 75,45 milj
króna.
Afkoma ársins samkvæmt upp-
gjöri reyndist slík að tekjuafgang-
ur nam 567 þús. kr. eftir að af-
skrifað hafði verið og lögskilið
framlag lagt í varasjóð.
Þá skýrði formaður frá því að
ekki hefði náðst viðunandi árang-
ur í komum Kjarna með þeim
aðferðum og tækjum sem fengin
voru fyrr frá amerísku fyrirtæki,
og væri tilraunum til að fá tæki
þessi til að skila tilætluðum ár-
angri hætt, en gerðar hefðu verið
ráðstafanir til þess að hið amer-
íska fyrirtæki bætti skaðann.
Kornastækkun Kjarna verður
framkvæmd eftir þrautreyndum
leiðum og tengd þeim framkvæmd
um sem fyrirhugaðar eru um
stækkun verksmiðjunnar.
Þá upplýsti formaður ennfrem-
ur að i framhaldi af stækkunar-
athugunum verkfræðinga verk-
smiðjunnar og annarra íslenzkra
verkfræðinga hefði, á síðastliðnu
ári, verið leitað til hins reynda
og heimsþekkta áburðarfram-
leiðslufyrirtækis Norsk Hydro um
ráðleggingar og áætlanagerð varð-
andi stækkun verksmiðjunnar.
Á grundvelli þessara athugana
taldi stjórnin hagkvæmast að tvö-
földun á framleiðslugetu verk-
smiðjunnar yrði framkvæmd stig
af stigi. Endanlegar ákvarðanir
um stækkun yrðu þó ekki teknar
fyrr en síðar og eftir að Norsk
I Hydro hefði gengið að fullu frá at-
j hugunum sínum og tillögum
j Þá ræddi formaður rekstur
i Áburðarsölu ríkisins á árinu, sem
I var hið fjórða í röðinni frá því
j Áburðarverksmiðjan tók við
, rekstri þess ríkisfyrirtækis.
Áburðarinnflutningur nam alls
j á árinu 31.781 smálest eða 3260
i smálestum meira en árið áður
Inn var fluttur sekkjaður og
ósekkjaður áburður sem fyrr, og
voru sekkjaðar 11.626 smálestir í
Gufunesi.
Söluverðmæti innflutts áburðar
nam 98.11 miljónum króna eða
1.8 millj. krónum meir en árið
áður Aukning i söluverðmæti staf
aði af auknu magni og hækkuðu
verðlagi áburðar og flutningafjöld
um.
Ófyrirsjáanlegur aukakostnað-
ur við flutninga áburðar, lenti á
stofnunni, 700 þús. krónur, vegna
siglingatruflana af völdum hafísa
við norður- og austurland.
Framkvæmdastjóri, Hjálmar
Nemendur aðstoða
SJ-Reykjavík, föstudag.
Á fimmtudaginn kom togarinn
Maí til Hafnarfjarðar með mjög
góðan karfaafla, 350 tonn, sem
voru veidd á Nýfundnalandsmið-
um. Þar sem skortur var á verka-
fólki fengu nokkrir nemendur frí
í Flensborgarskólanum til að að-
stoða við löndun.
Ólafur Kristjánsson, skólastjóri
Flensborgarskólans, sagði í viðtali
við Tímann í gær, að unglingum
væri stundum gefið frí úr skúla
til að hlaupa undir bagga með
útgerðinni, þó að það þyki ekki
æskilegt, sérstaklega þegar líða
tekur að prófum.
Infúensufaraldurinn hefur ekki
komið tiltakanlega hart niður á
nemendum skólans — fjarvisir
nemenda hafa ekki náð 10 prósent
fram til þessa a.m.k. Inflúenzan
hefur aftur á móti komið all hart
niður á eldra fólki í bænum.
Finnsson las því næst upp árs-
rei'kninga ársins 1965 skýrði ein-
staka liði og gaf ýmsar upplýs-
ingar eftir því sem tilefni gafst
til.
Reikningar voru síðan samþykkt
ir. Þá samþykkti aðalfundurinn
að hluthöfum skyldu greidd 6%
af hlutafjáreign sinni fyrir árið
1965.
I stjórn verksmiðjunnar voru
kjömir þeir Halldór H. Jónsson,
arkitekt og Hjörtur Hjartar, fram-
kvæmdastjóri, og varamenn
þeirra: Grímur Thorarensen fram
kvæmdastjóri og Hjalti Pálsson
framkvæmdastj óri.
Halldór Kjartansson stórkaup-
maður var endurkjörinn endur-
skoðandi.
Stjórn Áburðarverksmiðjunnar
h.f. skipa nú:
Pétur Gunnarsson framkvæmda
stjóri, formaður — Halldór H.
Jónsson arkitekt — Hjörtur Hjart
ar framkvæmdastjóri — Steingrím
ur Hermannsson framkvæmda-
stjóri og Tómas Vigfússon bygg-
ingameistari.