Tíminn - 16.04.1966, Side 3
LAUGARDAGUR 16. apríl 1966
TÍMINN___________
lausleg áætlun um virkjun Eyjabakka
- vatnasvæðis Jökulsár í Fljótsdal
Svæði þetta takmarkast að norð
an frá mótum Keldna-Fola-kvísl-
ar vestur í Snæfellsnes. Að vest-
an Snæfellsháls suður að Marteins
tungurn. Að sunnan þaðan um
Eyjabakkajökul austur að Geld-
ingafelli. Að austan Eyjabakkar,
eða öllu heldur heiðardrög austur
að Háuklettum.
Lægstu mæld drög svæðisins
eru á Snæfellsnesi við Jökulsá í
Fljótsdal, 621 m yfir sjávarmáli.
þaðan suður eru vatnaflákar með
leirhólum grasivöxnum suður að
Eyjabakkaskriðjökli að flatarmáli
á að gizka 10x5 = 50 flatar-kíló-
metrar, skriðjökullinn virðist vera
svipaður að flatarmáli.
Allt er því þetta vatnasvæði um
100 flatarkílómetrar. Um vatna-
svæði jökulsins er erfitt að dæma
en vafalaust er það víðáttumikið,
þar sem Jökulsá í Fljótsdal er
stórfljót sem mætti áætla % af
meðalvatnsárrennsli Lagarfljóts,
eða segjum 60 kl/sek (m3/sek).
Loftlína frá Snæfellshálsi er um
20 km að lengd, ef línan er dregin
frá Snæfellsnesi að Víðidalsvarpi,
þar sem hæð yfir sjávarmáli er
mæld 642 m, eða 21 m hærri en
við Snæfellsnes.
Frá Eyjabökkum að Víðidals
varpi eru heiðardrög um 7—80(
m yfir sjávarmáli. Gegnum þess
heiðardrög verður að grafa jarð
göng að svipaðri hæð yfir sjávar
máli og Snæfellsness-hæðapunkt
urinn þ.e. 621 m. yfir sjávarmáli
eða segjum í 600 m hæð við Víði
dalsvarp.
Hæðarpunktur sunnan við Esk
fellshlíðar er 76 m yfir sjávarmál
en botn Jökulsár í Lóni er v&f*
laust lægri.
Efnið úr þessum jarðgöngum
hlýtur að vera hagstætt að nota
til stíflugerðar frá Snæfellshálsi
móts við Eyjabakkaflös austur að
mótum Folakvíslar og Kelduár,
sem hljdur að verða mikið mann-
virki, ekki síður en jarðgöngin.
Sé nú gert ráð fyrir, að þessir
áður greindir 60 kl/sek renni nið
ur Viðidalinn úr um það bil 600
m hæð niður í allt að 100 m hæð
yfir sjávarmál eða fallhæð 500 m
eftir 10—15 lengdarkílómetra lofi
línu eða ofanvarpi (projection),
hljóta virkjunarskilyrðin að vera
hér ágæt, alveg sambærileg við
hinar víðfrægu Rjúkanvirkjanir.
sem eru taldar sérstaklega hag-
stæðar vegna hins mikla' falls,
sem er svipað eins og hér er um
að ræða í þessari virkjunaráætl-
un.
Til skýringar um Rjúkan-v)rkj-
unina skal þetta tekið fram: Ofan
við Rjúkan-foss er stífla hlaðin úr
j tiihöggnum granítsteinum, þaðau
I er vatnið leitt í lokaðri leiðslu
nokkurn veginn lárétt, eða með
i litlum halla eftir hægri fjallshlíð
inni, þar til hæfilegu falli er n’að
(300 m). Þá er vatnið látig steyp
ast hornrétt niður fjallshlíðina í
1 vatnshjólið (túrbínuna). — Þetta
j endurtekur sig aftur með sama
! vatnsmagni.
i Fullgerðar voru 2 „tröppur" ár
ið 1927, er ég var staddur þar,
vafaiaust hafa fleiri bætzt við
síðan, þótt mér sé það ekki full-
kunnugt.
Rjúkan-fossasvæðið mun hafa
verið um eða yfir 1000 m yfir
sjávarmáli, svo að fleiri „tröppur”
hafa rúmazt, því að landslagið var
sérstaklega brattlent.
Eg geri ráð fyrir, að svipuð
virkjunartilhögun verði við þessa
virkjun hér. „Tröppur” verða ef
til vill 2 til 3 eftir ástæðum og læt
um það útrætt.
Ef áður greindar tölur 60 kl/
sek og 500 m fall standast mun
vatnsaflið nálgast 300.000 hestöfl.
Með nútíma tækni tel ég kleift
að hlaða vandaðan stíflugarð, sem
stenzt tímans tönn og brjóta jarð
göng gegn um heiðina, sem hvoru
tveggja verða varanleg mannvirki.
Benda mætti hins vegar á veil-
ur:
1. Vatnasvæðið er í 700 m næð
yfir sjávarfleti. Frost að vetrar-
lagi getur valdið truflunum og
vatnsþurrð.
2. Jökulskrið getur valdið
skemmdum og truflunum, ennfrem
ur mikill leirburður. Þetta gildir
yfirleitt um allar jökulsárvirkjan
ir.
Fleira mætti vafalaust telja, en
læt hér staðar numið.
Það skal að lokum tekið fram,
að ég hef notað uppdrátt íslands,
blað 8 — Miðausturland — til
hliðsjónar við þessa áætlun, sem
ég eftir föngum hef reynt að gera
sem nákvæmasta.
Vigfús Helgason.
• Ljósmæðrafélag Reykjavíkur gengst fyrir merkjasölu á morg
un, sunnudaginn 17. apríl, og verða merkin afgrcidd kl. 10 á
sunnudag á eftirtöldum stöðum. Austurbæjarskólanum, Álfta
mýrarskólanum, Langholtsskólanum, Rauðarárstíg 40, sími
12944 (Guðrún Halldórsdóttir) Laugarnesveg 106 sími 31243
(Margrét Larsen) og Bjarkarlundi, Silfurtúni, sími 50826
(Anna Kristjánsdóttir). Það er vinsamleg ósk stjórnar Ljós-
mæðrafélagsins, að mæður hvetji börn sín til að selja merki
og að Reykvíkingar taki vel á móti þeim. Myndin hér að neðan
er af þeim börnum, sem seldu flest merki fyrir félagið í fyrra.
Auglýsing
Tilkynning
frá yfirkjörstjórn í KeflavíkurkaupstaÖ.
frá félagsmálaráðuneytinu um sveitarstjórnar-
kosningar.
Frestur til að skila framboðslistum við bæjar-
stjórnarkosningamar í Keflavíkurkaupstað, sem
fram eiga að fara sunnudaginn 22. maí 1966 er
útrunninn þann 20. apríl kl. 12 á miðnætti.
Yfirkjörstjórn tekur við framboðslistum í skrif-
stofu Keflavíkurbæjar þann 20. apríl n.k. frá kl.
21 til 24.
í samræmi við ákvæði 17. greinar sveitarstjórnar-
laga nr. 58 frá 1961 skulu almennar sveitarstjórn-
arkosningar í kaupstöðum og hreppum, þar sem
fullir 3á hlutar íbúanna eru búsettir í kauptúni,
fara fram sunnudaginn 22. maí n.k.
Framboðsfrestur rennur út á miðnætti miðviku-
daginn 20. apríl.
Keflavík 15. apríl 1966,
Yfirkjörstjórn,
Ólafur Þorsteinsson,
Sveinn Jónsson,
Þórarinn Ólafsson.
Atkvæðagreiðsla utan kjörfundar má hefjast
sunnudaginn 24. apríl.
Kærur út of kjcrskrá skulu hafa borizt hlutaðeig-
andi sveitarstjórn fyrir 1. maí.
Félagsmálaráðuneytið, 15. apríl 1966.
3
Á VÍÐAVANGI
Áhugamál íslenzkra
stjórnarblaða
Að undanförnu hefur verið
rætt um stórmál í íslenzku
stjórnmálalífi og hörð átök
orðið svo sem í umræðum á
Alþingi. Það hefur verið deilt
fast á stjórnarstefnuna í van-
traustsumræðum á ríkisstjórn-
ina, og nú síðustu vikur og mán
uði hefur álsamninginn svo-
nefnda borið yfir allt annað.
Bæjarstjórnarkosningar eru að
skella yfir, og ágreiningsmálin
mörg. Stjórnin hefur
sérstaklega átt í vök að verjast
| í ál-málinu, þar sem hún er að
i binda þjóðina í 45 ár af áhættu
| sömum ókjarasamningi, þar
I! sem rafmagn er selt á undir-
| verði og íslenzku dómsvaldi og
i réttargæzlu afsalað í hendur
I erlendum gerðardómi. Samt er
í það ekkert af þessum málum,
| sem efst er á baugi hjá stjóm-
arblöðunum i gær. Ritstjórara-
i ir skrifa ekki forystugreinar
yt sínar um þessi örlagamál íslend
| inga. Svo opinber er uppgjöf
| ills málstaðar. Þeir leita til
• annarra áhugamála. Ritstjórar
Morgunblaðsins skrifa tvíefld-
an leiðara um stjrjöldina og
ástandið í Vietnam og nauð-
syn þess að hvika hvergi frá
þeirri ágætisstefnu, sem þar
hefur verið rekin með miklu
veldi, og Ieggja Johnson for-
setá það fyrst og síðast á minni
að láta ekki dcigan síga, því að
þótt Ky hershöfðingja takist
ekki að halda völdum „verði
menn að gera sér Ijóst, að árás-
arstefnu kommúnista í Asíu
verði að stöðva“. Morgunblaðið
hvetur því Johnson sem fastast
að herða sig í þess konar bar-
áttu gegn kommúnistum, sem
hefur sýnt sig að magna í sí-
fcllu kommúnismann og virðist
að því komin að varpa nú öllu
Vietnam endanlega í faðm
kommúnismans. Og meðan
Johnson sjálfur reynir eftir öll
um Ieiðum að losna úr styrjöld
inni í Víetnam hvetur Morgun-
blaðið hann sem fastast til að
herða sig í styrjöldinni.
„Bowling"
Alþýðublaðið telur að vísu
ekki krossferðina í Vietnam
brýnasta umræðuefni dagsins,
er taka beri fram yfir að ræða
við íslendinga um verðbólgu,
álsamning eða önnur íslenzk
stjórnmál. Eigi að síður á það
sér brýnt umræðuefni í leiðara
— þá ágætu iþrótt „bowling"
— amerískt kúluspil — sem það
telur öllu öðru brýnna að æska
þjóðarinnar taki að iðka. Muni
þá margur framtíðarvandi leys
ast, gott ef ekki að ókjör ál-
samningsins snerust til ágætis.
Um þetta dugar auðvitað ekk-
ert minna en heill leiðari í Al*
þýðublaðinu og feitletraður,
þar sem þunginn er mestur.
Þannig eru þá áhugamál
þessara „ábyrgu“ stjómarmál-
efna þennan daginn, meðan
ríkisstjórnin skellir yfir þjóð-
ina verðhækkunum á fiski,
smjörlíki o. fl. svo að nemur
4 vísitölustigum, sem launþeg-
ar skulu bera bótalaust um
sinn og er skýlaust brot á júní-
samkomulaginu síðasta, og
meðan þjóðin er með allan hug
ann við mörg vandkvæði ís-
lenzkra stjórnmála, þá ræða
stjórnarmálgögnin helzt um
nauðsyn þess að Johnson verði
sem allra harðastur í Vietnam-
stríðinu og æskan uni sér við
„bowIing“.