Tíminn - 16.04.1966, Blaðsíða 7
ÞiNGFRETTiR
ÞiNGFRETTiR
TÍMINN
1
Brýn nauðsyn sérstakra lána
tíl framleiðsluaukningar
1*ram yar haltBð 2. vmræðu ttm
fnrmvarp ríldsstjórn arinn ar um
aS Iáta Framkvæmdasjóð íslands
taka víð starfsemi Framkvæmda-
bankans. Jónas Rafnar hafði tal-
að fyrir áliti meirihluta fjárhags-
nefndar fyrr í vikunni, en Einar
ÁgnsíBson mælti fyrir áliti 1.
minníbhita (E.Á. og Skú'li Guð-
aaHHKisson).
Nefndarálitið fer hér á eftir
ásamt þerm hreytmgatniögum, er
minnihkitinn flytur:
Fjárhagsnefnd hefur athugað
frmnvarpið, og leggur meiri hluti
hennar til, að það verði samþykkt
með breytmgu þeirri, sem frá er
greint á þingskjaíi 451. Við und-
irritaðir leggjum til, að á frum-
varpinu verði gerðar frekari breyt
ingar, og skal nú gerð grein fyrir
þeim.
1. kafii frv. fjallar um Fram-
kwæmdasjóð fslands, er taki við
ejgiram og sku'ldlbindingum Fram-
kvæmdahanka fslands eins og þær
verða hinn 1. janúar 1967. í frum-
varpinu er þó ekki gert ráð fyrir
því, að sömu reglur gildi að öllu
leyti um Framkvæmdasj óð og áð-
ur giltu um Framkvæmdabankann.
Mkilvægasta breytingin er sú, að
í frumvarpinu er aðeins gert ráð
fyrir lánum til fjárfestingarlána-
sjðða, er veita einstök lán til fram
kvæmda, og hins vegar til meiri
háttar opinberra framkvæmda, en
einsfaklingar eiga ekki að hafa
beinan aðgang að sjóðnum á þann
hátt, sem nú gildir um Eram-
kvæmdabankann. Úr þessu hefur
nokkuð verið bætt með breyting-
artillögu meiri hluta fjárfiags-
nefndar á þingskjali 451, enda
þótt við teljum, að eðlilegra hefði
verið, að framkvæmdasjóður gæti
í vissum tilfellum lánað beint til
einstaklinga, að uppfylltum viss-
um skilyrðum, eins og nú er hjá
Framkvæmdabanka fslands.
Þá eru í frumvarpinu felld nið-
ur ákvæði, sem nú eru í lögum
Framkvæmdabankans, um stjórn-
arfundi og rétt einstakra stjóm-
armanna til að krefjast þeirra.
Munum við bera fram tillögu um
að breyta þeim ákvæðum í það
horf, er tíðkazt 'hefur.
Ennfremur munum við gera
það að tiHögu okkar, að við fyrir
hugaðan Framkvæmdasjóð verði
stofnuð framleiðnilánadeild, er
hafi þann tflgang að veita atvinnu-
vegunum lán umfram þau, sem
fáanleg eru hjá stofnlánasjóðum,
í því sérstaka augnamiði að bæta
framleiðnina með aukinni vél-
tækni, fullkomnara framleiðslu-
skipulagi og hagræðingu. Nokkr-
ir þingmenn Framsóknarflokksins
í efri deild fluttu fyrr á þessu
þingi frumvarp um stofnun slíkr-
ar framleiðnilánadeildar við Fram
kvæmdabankann. Þar sem nú er
sýnt, að sá banki verður lagður
niður frá og með næstkomandi
áramótum, þykir okkur eðlilegt
að taka þessa tillögu upp í sam-
bandi við þetta frumvarp, enda
kemur Framkvæmdasjóður að
mestu í stað Framkvæmdabanka.
II. kafli frumvarpsins fjallar um
Efnahagsstofnun, en þótt sú stofn
un hafi starfað síðan á árinu 1962,
hefur fyrirkomulag hennar enn
eigi verið ákveðið með lögum.
Við teljum, að í sambandi við
lagasetningu um þessa stofnun sé
rétt að ákveða stjórn hennar með
nokkuð öðrum hætti en verið hef-
ur til þessa. Hér er um svo mikils-
verða stofnun að ræða, að við telj-
um sjálfsagt, að allir þingflokkar
eigi aðild að stjórn hennar. Gerum
við því að tillögu okkar, að inn
í frumvarpið verði tekið ákvæði
um, að stjórn stofnunarinnar verði
skipuð 5 mönmim. Skulu 4 tíl-
nefndir af þingflokkunum, einn
frá hverjum, en sá fimmti skip
aður af ríkisstjórninni.
Samkvæmt framansögðu isggj-
um við til, að á frumvarpinu verði
gerðar eftirtaldar breytingar
1. Við 6. gr. Við greinina bæt-
ist 3. málsgrein, svohljóðandi:
Sjóðsstjórn heldur að iafnaði
fund einu sinni í mánuði, en skylt
er formanni að boða til aukafund-
ar, ef tveir eða fleiri stjórnar-
menn æskja þess.
2. Á eftir 12. gr. komi 3 nýjar
greinar, svohljóðandi:
a. (13. gr.) Stofna skal \ið
Framkvæmdasjóð íslands séistaka
lánadeild, sem nefnist framleiðni-
lánadeild
Tilgangur framleiðnilánadeildar
er að veita atvinnuvegunum lán
umfram þau, sem fáanleg eru hjá
stofnlánasjóðum, í því sérstaka
augnamiði að bæta framleiðnina
með aukinni véltækni, fullkomn
ara framleiðsluskipulagi og hag-
ræðingu.
b. (14. gr.) Starfsfé deildarinn-
ar er:
1. Framlag ríkissjóðs, sem skal
vera 10 milljónir króna á ári,
næstu 10 ár, nema hærra fram-
lag kunni að verða ákveðið 1 fjár-
lögum.
2. Seðlabanki íslands skal
tryggja sölu skuldabréfa, sem
Framkvæmdasjóður fslands gefur
út vegna deildarinnar, að upp-
hæð 40 milljónir króna á ári næstu
10 ár. Bréfin séu til a.m.k. 15
ára, en vextir skulu ákveðnir af
ráðherra. Bréfin séu tryggð með
ábyrgð ríkissjóðs.
3. Lán umfram það, sem um
ræðir í 2. tölulið. getur deildin
tekið innanlands eða utan, eftir
því sem þörf krefur og aðstæður
leyfa, allt að 300 milljónum króna.
Rfkissjóður ábyrgist slíkt lán.
e. (15 gr.) Umsóknir um lán
úr framleiðnilánadeild skutu send-
ar Framkvæmdasjóði.
Þeim skal fylgja:
1. Ýtarleg lýsing á því, hvernig
verja eigi lánsfénu.
2. Upplýsingar um tryggingar
þær, sem umsækjandi getur sett.
3. Rekstrar- og efnahagsreikn-
ingur umsækjanda, ef um starf-
andi fyrirtæki er að ræða.
4. Aðrar upplýsingar, sem um-
sækjandi telur máli skipta eða
sjóðurinn óskar eftir.
Þegar umsókn hefur borizt, skal
leita umsagnar Iðnaðarmálastofn-
unar íslands og/eða Fiskifélags
fslands eða Búnaðarfélags fs-
lands, eftir því sem við á, um
það, hvort tilgangur umsækjanda
með lánsumsókninni sé í samræmi
við tilgang þessara lagaákvæða.
Að slíkri umsögn fenginni ákveð
ur stjórn Framkvæmdasjóðs hvort
lánið skuli veitt, enda hafi sjóð-
urinn áður kannað hag umsækj-
anda og veðhæfni framboðinna
trygginga.
3. Við 15. gr. (er verði 18. gr.)
f stað 2 og 3 málsliðar grein
arinnar komi:
Stjórn stofnunarinnar skal skip
uð 5 mönnum Séu fjórir þeirra
tilnefndir af þingflokkunum, einn
af hverjum, en hinn fimmta skip-
ar ríkisstjórnin, og sé hann for-
maður stjórnar.
Finar Ágústsson skýrði þessar
breytingatillögur. Hin fyrsta er
samhljóða ákvæði, sem nú er i lög
um um stjórn Framkvæmdabank-
ans, en þetta ákvæði hefur verið
fellt niður í frumvarpinu um
Framkvæmdasjóð.
Önnur breytingatillagan er um
stofnun sérstakrar framleiðnilána
deildar. Framsóknarmenn hafa á
þessu þingi og hinu síðasta flutt
frumvarp um stofnun slíkrar deild
ar við Framkvæmdabankann, en
talið eðlilegt að freista þess að
fá efni þess inn í þetta frum-
varp, þar sem það kveður á um
að leggja Framkvæmdabankann
niður. Frumvarp ríkisstjórnarinn-
ar felur ekki í sér neinar breyt-
ingar, sem verulegu máli skipta,
þar er ekki fjallað um nýtt fjár-
magn að neinu leyti, sagði Einar,
og ekki heldur um breytingar á
ráðstöfun þess f jármagns, sem fyr
ir er. Þessi breytingatfllaga nm
sérstök framleiðnilán myndi hins
vegar valda straumhvörfum og
bæta úr mjög brýnni þjóðarnauð-
syn. Bent hefur verið á, að fram-
leiðsluaukning á síðustu árum eigi
að óverulegu leyti rætur að rekja
til framleiðniaukningar. Sjávarút-
vegur, frystiiðnaður og iðnfyrir-
tæki hefur brýna þörf fyrir að-
gang að sérstökum lánum, sem
varið yrði til hagræðingar, aukinn
ar vélvæðingar og bætts fram-
leiðsluskipulags hvers konar.
3. breytingatillagan er »m
stjórn Efnahagsstofnunarinnar.
Efnahagsstofnunin á að annast
margháttuð störf, sem skipta aila
landsmenn, og er eðlilegt að
þingflokkarnir eigi aðild að stjém
stofnunarinnar.
Jónas G. Rafnar, framsögumað-
ur meirihlutans, taldi breytmga-
tillögur Framsóknarmanna óþarf-
ar.
Einar Olgeirsson vildi að þing-
flokkarnir ættu aðild að stjóm
Efnahagsstofnunarinnar. Sagði
Framsóknarfl. illan flokk viðskipt-
is í sambandi við áætlanagerðir
og taldi breytingatiílögur Fram-
sóknarflokksins ekki ganga nógu
langt.
Á ÞINGPALLI
irk Enn var fram haldið 3. umræðu um frumvarp ríkisstjórnar-
innar um verðtryggingu fjárskuldbindinga í neðri deild síðdegis í
gær. Ræðna þeirra Eðvards Sigurðssonar og Gylfa Þ. Gíslasonar er
getið á forsíðu blaðsins í dag.
★★ Einar Ágústsson minnti á, að Gylfi hefði sagt í ræðu sinni í
fyrrakvöld, að alltaf hefði verið ætlunin að Iáta verðtryggingu spari-
fjár hefjast jafnt og samhliða verðtryggingu útiána. Sagði Einar
þetta nýjar fréttir í málinu fyrir þingmenn, því að þeir hefðu skilið
skýringar Jóhannesar Nordals, Seðlabankastjóra, svo, að fyrsta skref
ið yrði verðtrygging útlána lífeyrissjóða og tryggingarfélaga, annað
verðtrygging fjárfestingarsjóða og síðan og ekki fyrr verðtrygging
spariinnlána með þeim fyrirvara þó, að svo miklu leyti sem því yrði
við komið. Sagðist Einar fagna þessari yfirlýsingu ráðherrans, sem
hann taldi, að breytti málinu verulega.
★★• Gylfi Þ. Gfslason ítrekaði, að ekki kæmi til mála annað en
taka upp verðtryggingu innlána samhliða verðtryggingu útlána.
★★ Þórarinn Þórarinsson benti á, að ráðherrann hefði sagt, að
reksturslán fyrirtækja hjá bönkunum myndi verða með öliu undan-
þegið verðtryggingarkvöðum en reksturslánin væru einmitt megnið
af sparifjárútlánum bankanna.
★-★ Fleiri tóku til máls í þessum umræðum sem stóðu til kl 7 síð
degis og var haldið áfram á kvöldfundi sem hófst kl. 9 í gærkveldi.
★★- Fleiri tóku til máls í þessum umræðum sem stóðu til kl. 7
síðdegis og var haidið áfram á kvöldfundi sem hófst kl. 9 í gærkveldi.
idr Gísli Guðmundsson lagði fram rökstudda dagskrá við 3. um-
ræðu um frumvarpið um hægri umferð. Lagði Gísli til að málið vrði
©kki samþykkt á þessu þingi. Kvaðst hann ekki vilja mæla efnis-
lega á móti hreytingunni, en taldi rétt að leyfa almenningi að ræða
þetta mál milli þinga og ekki taldi hann óráSfleet að híða eftir hvf
að reynsla fengist á þessa breytingu hiá Svíum áður en til skarnr vrði
látlð skríða hér. Ef breytingin yrði framkvæmd yrði fsland eina ey-
ríkið í Norðurálfu, sem slíka breytingu hefði gert.
idc Ríkisstjórnin lagði í gær fram frumvörp um landshöfn f Þor-
lákshöfn og um atvinnuréttindi skipstjórnarmanna.
Auglýsing
Ráðsmann vantar við Sjúkrahús Húsavíknr. Um-
sóknarfrestur til 5. maí næstkomandi.
Launakjör: 19. launaflokkur.
Umsóknir sendist til formanns sjúkrahússtjórnar,
Áskels Einarssonar, bæjarstjóra, Húsavík.
Stjórn Sjúkrahúss Húsavíkur.
Auglýsíng
Ráðskonu vantar við Sjúkrahús Húsavíkur. Um-
sóknarfrestur til 5. maí næstkomandi.
Launakjör: 13. launaflokkur.
Umsóknir sendist til formanns sjúkrahússtjórnar,
Áskels Einarssonar, bæjarstjóra, Húsavfk.
Stjórn Sjúkrahúss Húsavíkur.
Gölluð baðker
frá Byggingarvöruverzlun SÍS við Grandaveg.
Seld verða næstu daga nokkur gölluð baðker,
bæði ungversk og sænsk.
Sími 22648.
hvaí —Al M □ DA- mj •>
er •