Tíminn - 16.04.1966, Page 10
10
ÍÞRÓTTIR TÍMINN ítftÓTTIR
LAUGARDAGUR 16. apjifl 1966
Áfall fyrir
Manch Utd
Manchester Utd. varð fyrir
miklu áfalli f leiknum gegn Parti-
zan, Júgóslavíu, á miðvikudag, því
einn bezti maður liðsins, George
Best, „bítlastrákurinn írski“,
meiddist illa á fæti og er talið ó-
Iíklegt að hann leiki meira með
Manchester á þessu keppnistíma-
bili. Hlaut Best meiðsli á hné,
og verður sennilega að gangast
undir uppskurð.
Eins og kunnugt er á Manchest
er Utd. þýðmgarmikla leiki fram-
undan, síðari leikinn gegn Parti-
zan f undanúrslitum Evrópubikar
keppninnar á heimavelli, og síð-
ast en ekki sízt er lokaslagurinn
í ensku bikarkeppninni eftir, en
Manchester er í undanúrslitum.
Á myndinni að ofan, sem tekin var eftir landsleik íslands og Frakk-
lands í fyrrakvöld, sést hinn smávaxni franski dómari, lengst til hægri,
yfirgefa völlinn í órólegu skapi eftir að hafa átt lítilsháttar viðskipti við
Þorstein markvörð, sem sést fyrir miðju. Sigurður Einarsson er til
vlnstrl.
Bréf til íþróttasíðunnar:
Nokkur orð til landsliösþjálfara
Eftirfarandi bréf hefur í-
þróttasíðunni borizt, sem okk-
ur þykir rétt að birta, enda
fjallar efni þess um mál, sem
er ofarlega á baugi þessa dag-
ana. Og hefst þá bréfið:
„Eftir leik íslenzka og
franska landsliðsins í hand-
knattleik 14. apríl s.l. getur
undirritaður ekki lengur orða
bundizt, og þykir mér ásamt
sjálfsagt mörgum öðrum tími
til kominn að taka sér penna
í hönd og rita lítillega um ís-
lenzkan handknattleik. fs-
lenzka landsliðið sýndi góðan
og drengilegan leik í þessum
landsleik (einkum þó Geir
Hallsteinsson, sem án efa á
ef'tir að verða einn okkar bezti
handknattleiksmaður, að öllum
öðrum ólöstuðum). íslenzka
landsliðið brotnaði ekki niður,
.þó hinn franski dómari, sem
dæmdi síðari hálfleik þessa
landsleiks væri svo ótrúlega
hlutdrægur liði sínu, að hann
hreinlega færði því sigurinn á
silfurbakka. (Hann mætti taka
sér til fyrirmyndar okkar góða
dómara Hannes Þ. Sigurðsson,
sem dæmdi fyrri hálfleik þessa
landsleiks án nokkurrar hlut-
drægni).
En víkjum að annarri hlið
málsins.
Hversu lengi ætlar okkar á-
gæti lándsliðsþjálfari að
brenna sig á þvf að láta okkar
beztu handknattleiksmenn sitja
á varamannabekkjum á örlaga
ríkustu augnablibum leikj-
anna? Þvi ekki láta alla beztu
menn okkar leika síðustu 10—
15 mínútur síðari hálfleiks,
sem hefur yfirleitt úrslitaþýð
ingu hvers leiks? Okkar iands
lið í handknattleik er búið að
leika marga land^leiki undan-
farið, og hefur tapað nær öll-
um. Hvað veldur? Skipting
leikmanna inn á leikvang á
réttum augnablikum hefur mik
ið að segja, en að láta beztu
menn liðsins sitja á varamanna
bekkjum þar til tvær til fimm
mínútur eru til leiksloka, tel
ég útilokað. Þess vegna finnst
mér, ásamt fleirum, að okkar
ágæti landsliðsþjálfari í hand-
knattleik ætti að endurskoða
skiptingu leikmanna okkar inn
á leikvang á örlagaríkum
augnablikum.
Með þökk fyrir birtinguna.
Jón Þ. Steindórsson.
Ármann og Haukar
varpa fjöreggi KR á
millj sín annað kvöld
-tekst Ármanni að krækja í úrslitastigið?
Alf—Reykjavík.
Eftir nokkurt lilé verður ís-
landsmótinu í handknattleik hald
ið áfram að Hálogalandi um helg-
ina. Annað kvöld, sunnudagskvöld
fara fram tveir leiikir í 1. deild
karla, og er annar leikurinn mjög
þýðingarmikill, nefnilega leikur
Ármanns og Hauka. Takist Ár-
menningum að hljóta 1 stig út úr
þeirri viðureign, eru KR-ingar
dottnir niður í 2. deild nema þeim
takist að fá leikinn gegn FH end-
urtekinn og vinni hann.
En það er óliklegt, að KR vinni
FH í endurteknum leik, og þess
vegna má segja, að Ármenningar
og Haukar varpi fjöreggi KR í 1.
deild á milli sín í leiknum annað
kvöld.
Auk þessa leiks munu FH og
Valur leika í 1. deild. Leikurinn
hefur enga þýðingu fyrir Val, því
liðið hefur hvorki möguleika á að
falla né vinna, en hins vegar ríð-
ur mikið á fyrir FH að sigra til
þess að hljóta 2ja stiga forskot.
í kvöld, laugardag, fara fram
tveir leikir í 1. deild kvenna, og
verða þá sennilega ráðin úrslit
um það, hvaða lið fellur niður í
2. deild. í fyrri leiknum mætast
Víkingur og Ármann og í síðari
leiknum Fram pg Breiðablik.
Staða Fram er bezt, því að liðið
hefur hlotið 3 stig, en bæði Ár-
mann og Víkingur eru með 2
stig, og Breiðablik með 1 stig.
Þetta eru síðustu leikir þessara
liða, en úrslitaleikurinn verður á
milli FH og Vals síðar í mánuðin-
um.
Þá leika í kvöld í 2. deild karla
ÍR og Víkingur og í 2. flokki
karla FH og Þróttur. — Fyrstu
leikir bæði kvöld hefjast kl. 20.15.
Badminton
um helgina
Reykjavíkurmótið í badminton
1966 verður háð nú um helgina:
Mótið hefst í dag kl. 15 í Vals-
húsinu og á morgun, sunnudag
fara úrslitaleikir fram. Hefst
keppnin þá á sama tíma. Er á-
stæða til að hvetja fólk til að fylgj
ast með keppninni, sem verður að
öllum líkindum spennandi.
TIL SÖLU
Dráttarvél með ámoksturstækjum, einnig steypu-
hrærivél. Upplýsingar gefur Hannes Jónasson,
Suðurgötu 88, Akranesi, sími 1292, eftir kl. 7 á
GENERAL REIKNIVELAR
Vélvæðingin er alltaf að auka afköstin. Það er
ekki til svo lítill búrekstur, að General-reiknivélin
borgi sig ekki. Það er heldur ekki til svo stór
búrekstur, að General-reiknivélin sé ekki full-
nægjandi.
General, handdr., plús, mínus, margföldun
kr. 4.985,00.
General rafdr., plús, mínus, margföldun,
kr. 6.750,00 og 7.650,00.
Ársábyrgð, viðgerðarþjónusta — og
sendum í póstkröfu.
SKRIFVÉLIN
BergstaSastræti 3 — Sími 19651.
TRELLEBORG
Þetta er TRELLEB0RG
SAFE-T-RIDE
Ávala brúnin eyðir áhrifum
ójafns vegar á stjórnhæfni
bifreiðar yðar.
FRELLEBORG
er sænskt gæðamerki.
Söluumboð víða um iand.
Auglýsið í Tímanum
kvöldin.
ÚTBOÐ
Óskað er eftir tilboðum 1 2 hitaskipta (forhitara)
fyrir kyndistöð Hitaveitu Reykjavíkur
Útboðslýsingar eru afhentar í skrifstofu vorri,
Vonarstræti 8.
Innkaupastofnun Reykjavíkurborgar.
KASSAGERÐ REyKJAVÍKUR.
TILKYNNING TIL
VIÐSKIPTAVINA
Verksmiðja vor verður lokuð vegna sumarleyfa
frá og með laugardeginum 25. júní 1966, til mánu-
dagsins 25 júlí 1966.
Pantanir, sem afgreiðast eiga fyrir sumarleyfi
verða að hafa borizt verksmiðjunni eigi s>ðar en
15. maí 1966.
KASSAGERÐ REYKJAVÍKUR H.F.