Tíminn - 29.04.1966, Síða 12
12
ÍÞRÓTTIR
TIMINN
ÍÞRÓTTIR
FÖSTUDAGUR 29. apríl 103
Rangers
meistari
Giasg. Rangers varð skozk
ur hikarmeistari í fyrra
kvold, þegar liðinu tókst a'ð
merja 1:0 sigor yfir Celtiic í
endurleknum úrslitaleik á
Hampden Park. Celtic átti
mun meira í leiknum, en
tókst aidrei að skora, þrátt
fyrir góðar tiiraunir. Eina
mark leiksins skoraði Dan-
inn Johanson um miðjan
síðari hálfleik. Og eftir leik
inn báru félagar hans í
Rangers hann í gullstóli af
vellinum. f lýsingu BBC frá
leiknum, var ekki getið um
Þórólf, svo hann hefur senni
lega ekki leikið með.
Hreinn úrslitaleikur milli Fram og FH í kvöld:
Hvort hafnar íslandsbikann
í Reykjavík eða Hafnarfirði
Ragnar Jónsson, FH og Gunnlaugur Hjálmarsson, Fram, vígaiegir á
Svipinn. Þeir mœtast i kvöld — og ætla sér sennilega báöir að sigra!
TILKYNNING FRÁ ÖXLÍ HF.
Oss er ánægja að geta tilkynnt þeim f jölmörgu, sem undanfarin
ár hafa sýnt áhuga á International Scout landbúnaðarbifreið-
/
inni, að vegna breyttra tollalaga er bifreið þessi nú fáanleg
með sömu tollakjörum og aðrar bifreiðar í jeppáflokki.
ÖXULL HF. Suðurlandsbraut 32 — Sími 38597 og 38590.
SKÓR -
INNLEGG
Smíða Orthop-skó og tnn-
legg eftir máli Hef einnig
tilbúna barnaskó með og
án innleggs.
Davfð Garðarsson,
Orthop-skósmiður,
BergstaSastræti 48,
Simi 18893.
FRÍMERKI
Fyrir hvert ísienzkt frl-
merki. sem þér sendið mér
fáið þér 3 erlend Sendið
minnst 36 stk.
JÓN AGNARS,
P.O. Bojc 965,
Reykjavík.
VIÐTAL VIÐ ÓMAR
Framhald af bls. 9.
menntaskóla og laus og iiðug-
ur, minnist ég þess að þú fórst
að hvswa?
— Já, ég brauzt í því að
gamni mínu. Ég vann við fbúð-
ina í frístundum mínum og á
hana enn og leigi hana út, því
að hún er bara tveggja her-
bergja og of lítið fyrir okkur.
Það mætti segja mér, að bygg-
ingarstússið hafi örvað mig til
að fara út í gamanvísnasöng
til að vinna mér inn peninga
til að geta haldið íbúðinni.
— Þú ert stud. jur. í síma-
skránni.
— Já, ég hef verið í laga-
deild Háskólans, en tekið því
öllu rólega eins og fleiri. Hef
lokið forprófi, en ekki öðrum
enn sem komið er.
Alf—Reykjavík, — I kvöld,
föstudagskvöld, leika Fram og FH
til úrslita f 1. deild íslandsmótsins
í handknattleik, og verður þetta
þriðji Ieikur liðanna á keppnis-
tímabilinu og hreinn úrslitaleik
ur. f fyrsta leiknum sigraði FH
með eins marks mun, en í öðr
um leik sigraði Fram með fjögurra
marka mun.
Hvað skeður í kvöld? Tekst
Hafnfirðingum að verja íslands
meistaratitilinn — eða hafnar ís-
ladsbikarinn í Reykjavík? Svo
jöfn eru liðin, þrátt fyrir ólíkan
handknattleik, að ómögulegt er
að spá nofckru fyrir um úrslit.
Eitt er víst, að mjög ólíklagt er,
að FH leiki jafn illa í kvöld og
síðast, þegar liðin mættust, en
þá hafði Fram allt að vinna, en
FH var í varnarstöðu.
Samkvæmt upplýsingum, sem
íþróttasíðan aflaði sér í gær, verð
ur Fram-liðið oær óbreytt frá
síðasta leik, en búast má við
nökkrum breytingum hjá FH.Tjáði
Birgir Björnsson, þjálfari FH,
okkur, að Guðlaugur myndi ekki
leika með vegna meiðsla, en Ragn
ar Jónsson koma inn í hans stað.
Þá er ekki víst, að Birgir geti
leikið heilan leik. Hann sneri sig
á fæti í leiknum gegn Fram og
er ekki búinn að ná sér alveg eft-
ir bað. en sagðist ætla að reyna
að byrja leikinn.
Á undan leik Fram og FH leika
Víkingur og Þróttur í 2. deild
Nægir Víking jafntefli til að
hljóta sigur í deildinni. en vinni
hins vegar Þróttur, verða þrjú
lið enn einu sinni jöfn að
stiguim. — Fyrri leikur hefst kl.
20.15 og er fólki ráðlagt að mæta
tímanlega til að forðast þrengsli.
KR tapaði kærumá
inu fræga gegn FH
f gærkvöldi var loks kveðinn
upp dómur í hinu fræga kæru
máli KR vegna leiksins gegn FH
í 1. deild. Undirréttur dæmdi þann
ig í málinu, að leikurinn ætti að
endurtakast, en dómstóll HSÍ,
sem dæmdi í málinu í gærkvöldi
hrundi þeim dómi, og verður
því leikurinn ekki endurtekinn.
Nýstáriegt skíða-
mót í Hveradöhim
Á sunnudaginn verður efnt tf!
nýstárlegs skíðamóts við Skíða-
skálann í Hveradölum. Er hér um
að ræða mót fyrir eldri skíðamenn
og konur, svo og hjón á öllum
aldri. Keppt verður í eftirfarandi
aldursflokkum: Karlar 35—50 ára
og 50 ára og eldri. Konur 30—40
ára og 40 ára og eldri. Hjóna-
flokkur: Sameiginlegur tími hjóna.
KR kærði úrslita-
leik í kvennaflokki
S. 1. þriðjudagskvöld léku KR
og Keflavík til úrslita í . deild
kvenna og lauk Ieiknum með eins
marks sigri Keflavíkur eftir fram
lengingu tvisvar sinnum. f síðari
framlengingunni var leikinn að-
eins einn hálfleikur í staðinn fyrir
2, eins og skýrt er tekið fram í
mótareglum, og kærði KR því
leikinn og verður hann að fara
fram að nýju.
SUNDMÓT FJÖGURRA SKÓLA
í GÖMLU LAUGUNUM í DAG
í dkg kl. 16.30 hefst í Sundlaug
um Rvíkur (gömlu laugunum),
sundmót fjögurra skóla, Lauga-
lækjar-Laugarness, Voga- og Lang
holtsskóla. Keppt verður i boð
sundi og má búast við mjög
skemmtilegri keppni milli skól-
anna.
Keppt verður um bikar, sem
Toyota-umiboðið hefur gefið. Að
öllum líkindum verður þetta síð
asta sundmótið, sem háð er í
gömlu laugunum.
Skemmtikraftar ættu að vera
bindindismenn.
— Heldurðu að það hafi
hjálpað þér að halda þér „á
toppinum" að þú ert bindind-
ismaður?
— Já, ætli það ekki. Það er
eiginlega alveg nauðsynlegt að
vera það. Hljóðfæraleikarar,
þjónar og skemmtikraftar
þyrftu að vera bindindismenn.
En þótt margir viti, að ég
smakka ekki vin þá er alltaf
verið að bjóða manni sjúss.
Ég skil það ekki. Nú ætla ég
reyndar ekkert að fara að pré-
dika, en ég er ósköp feginn
að hafa látið það vera að
smakka vín hingað til.
H.K.
MINNING
Framhald al bls. 9.
búkona af lífi og sál, fljót til
hjálpar og mátti aldrei aumt sjá.
Hún var djörf í framkomu og
hreinlynd, skemmtilega orðhepp
in og mjöig sérstæður persónu-
leiki, sem sveitungar hennar og aðr
ir er henni kynntust munu lengi
minnast. Höfðingi var hún heim
að sækja á rausnar- og myndar
heimili. Margar leiðir lágu heim
að Þurranesi og nutu þeir bæði
góðra veitinga og skemmtilegra
samræðna. Þórey var félagslynd
og tók virkan þátt í kvenfélagi
sveitarinnar og starfi kirkjunnar
unni hún og trúði á æðra líf.
Skammt er stórra högga á milli
í Þurranesi. Húsbændur báðir
fallnir í valinn á sarna vetri. End
urfundir þeirra munu þeim báð-
um kærkomnir, til þess „meira að
starfa euðs um geim“.
Við þetta tækifæri minnist ég
með þakklæti tryggrar vináttu
kærleiksríkrar konu, sem var af
sterkum stofni, er stóð af sér
storma lífsins. Minning hennar
mun lengi geymast.
Samúð mína votta ég aðstendum
öllum-
Blessuð sé minning þín, mæta
kona. Ásgeir Bjarnason.