Vísir - 02.11.1974, Page 16
Vísir. Laugardagur 2. nóvember 1974.
| í DAG | í KVÖLP | í DAG | í KVÖLD | I DAG
Sjónvarp kl. 21.40 ó sunnudag:
„Stundin okkar" kl. 18.00, sunnudag:
Barnatiminn á sunnudaginn verður með
mjög japönsku sniði. Við sjáum stráka úr júdó-
deild Ármanns sýna júdóbrögð, en júdó er eins
og allir vita jafn-japanskt og sjálfur keisarinn.
Stúlkur úr dansskóla Eddu Scheving sýna
okkur japanskan dans og klæða sig auðvitað á
japanska visu.
Þá heyrum við einnig japanskt ævintýri um
dansandi teketil. En eins og allir vita er te
jafnvinsælti Japan og mjólkin er hér. —jb
Frœgur fótbolta-
kappi slasast
í sjónvarpsleikritinu
á sunnudagskvöldið
leikur Brian Clark at-
vinnuknattspyrnu-
mann nokkurn, sem
náð hefur það miklum
frama, að hann er
metinn á 250 þúsund
pund.
Vib fáum að sjá dálitið af fót-
bolta i þættinum, en í stuttu
máli fjallar hann um knatt-
spyrnumann sem er að koma
heim úr landsleik erlendis. Þar
hefur hann fengið spark i
löppina og óttast nú að
afleiðingar þeirra meiðsla muni
skaða framtiðina.
Eins þykir honum sem fræðg-
in eftir að hann fer að leika i
landsliðinu sé aðeins til ama.
Eða eins og hann segir sjálfur:
hann er orðinn almenningseign.
Það eru boðin i hann 200
þúsund pund af Manchester-
liðinu. Hann vill þó vera áfram
með sinu liði, en óttast að
meiðslin i hásininni (Akkilesar-
hæll) komi i veg fyrir frekari
frama þar. _JB
Sjónvarp sunnudag kl. 20.35, „Fískur undir steim":
Á að ýta við fólki
Þeir félagarnir ólafur Haukur
Simonarson rithöfundur og Þor-
steinn Jónsson kvikmynda-
gerðarmaður verða á dagskrá
sjónvarpsins á sunnudags-
kvöldið með fyrstu myndina af
fjórum, sem þeir hafa samið um
að gera fyrir sjónvarp.
„Þessi fyrsta mynd nefndist
„Fiskur undir steini” og var
hún kvikmynduð i Grindavik i
april siðastliðnum. Myndin
fjallar um borgarbúa leikinn af
Jóni Júliussyni, sem langar til
að kynna sér lifið i sjávarþorpi
úti á landi.
Tekin eru dæmi um þá
menningarlegu og félagslegu
afþreyingu, sem fólkið á slikum
stöðum hefur. Maðurinn kikir
m.a. á skóla og samkomuhús,
en kemst að þvi að þar er von-
laust aðnásambandi við fólkið.
Allir virðast þjakaðir af vinnu-
ánauð.
Maðurinn verður þvi að fá sér
þarna vinnu til að kynnast fólk-
inu, sem i þorpinu býr. Undir
lokin stendur svo sú spurning
ósvöruð, hvort hann vilji stað-
festast þarna og taka þátt I at-
hafnalifi fólksins eða fara aftur
til borgarinnar.
Höfundar myndarinnar, þeir
Ólafur Haukur og Þorsteinn,
unnu að öllu leyti saman að
þessari mynd. Þeir skrifuðu
^iiandritið saman og klipptu, en
Þorsteinn myndaði einn.
Þeir segja, að hugmyndin
með myndinni sé að samrýma
hugmyndir borgarbúa um lifið I
sjávarþorpi, en nú eru þeir
margir höfuðborgarbúarnir,
sem ekki gera sér réttar hug-
myndir um lifið við sjávar-
siðuna.
Markmiðið með myndunum I
heild segja þeir félagar aftur á
móti vera að ýta við fólki I
menningarlegum og félags-
legum efnum.
í myndinni á sunnudags-
kvöldið er ekki samstillt tal,
heldur talar höfuðpersónan
aðeins I bakgrunni myndar-
innar. Næsta mynd i þessum
flokki verður svo sennilega sýnd
innan mánaðar. Þess má geta,
að á eftir myndinni á súnnu-
dagskvöldið fara fram umræður
i sjónvarpssal. Þar ræðir
Kjartan Jóhannsson við
höfunda myndarinnar auk Guð-
laugs Þorvaldssonar háskóla-
rektors og Magnúsar Bjarn-
freðssonar fulltrúa.
—JB
Sjónvarp kl. 18.20 í dag:
11 MÖRK HJÁ ÓMARI
— Mynd fró hnefaleikakeppninni hefði kostað 700 þúsund
t iþróttaþættinum hans Ómars i
dag verða tveir leikir úr ensku
knattspyrnunni. Annar er miili
Derby County og Middlesboro,
hinn er á milli Chelsea og Stoke
City. Samtals fáum við þvi að sjá
11 mörk I leiknum, en óþarfi er að
geta um, hvernig þau skiptast, ef
menn vita það ekki fyrir.
Það er raunar hann Bjarni
Felixson, sem sér um knatt-
spyrnuhliðina, en Ómar sjálfur
verður með mynd frá golfkeppni
milli kappanna Johnny Pott og
Wicenzo. t lok þáttarins verður
syrpa af ýmsum iþróttamyndum
erlendis frá.
Við öfluðum okkur upplýsinga
um það hjá ómari, hvers vegna
hann byði hvorki upp á heims-
meistarakeppnina i fimleikum,
sem háð var i Búlgariu i siðustu
viku, né hnefaleikakeppnina
miklu milli Muhammad Ali og
Foreman.
„Við fengum fyrir löngu boð um
að fá að sýna frá hnefaleika-
keppninni fyrir 600 þúsund krónur
að viðbættum kostnaði,” segir
Ómar.
„Við hefðum þurft að láta
Danina taka keppnina upp, svo
verðið hefði ekki verið undir 700
þúsund á efninu hingað komnu.
Já, þeir kunna að selja sig þess-
ir kappar og láta ekki fet af neinu
nema full greiðsla komi fyrir.
Þessu tilboði var auðvitað
hafnað, enda hefði þetta getað
orðið annar Lénharður, hefði
keppnin nú kannski ekki staðið
nema I eina minútu, ha.
Auðvitað er ég allra manna
ergilegastur. Ef ég veit nokkuð
um nokkra iþrótt, þá er það um
hnefaleika i þungavigt. Frá þvi ég
var smástrákur og pabbi sendi
mér bók um hnefaleika I sveitina
hef ég getað talið upp alla heims-
meistara i greininni i réttri
timaröð.
Það er alveg óbætanlegt að
missa af þessu. Ég hef nefnilega
alltaf verið mikið fyrir hnefa-
leika, þótt margar grátkonur i
karlmannsliki séu sifellt að
barma sér.”
Um heimsmeistaramótið i
Búlgariu sagði Ómar, að vand-
ræði væru að fá efni frá Spáni og
ýmsum f jarlægri löndum austur-
blokkarinnar.
„Við verðum að hafa það að
skriða fyrst fyrir einhverri sjón
varpsstöð úti, sem fær sendingar
beint frá keppninni, og biðja hana
um að taka hana upp á band fyrir
okkur. Þeir hafa annaðhvort eng-
in tæki til sliks eða nenna ekki að
standa i þvi, svo við verðum bara
að gráta i hljóði.”
Hvorki verður þvi um sjónvarp
aö ræða frá hnefaleikakeppni
aldarinnar né heimsmeistara-
keppninni i fimleikum,
—JB
Sjónvarp kl. 21.45 í kvöld:
ÞJÓÐSAGNAPERSÓNA
Marlene Dietrich eins og hún
litur út I dag.
Við fáum að sjá þjóðsagna-
persónuna Marlene Dietrich i
sjónvarpinu I kvöld.
Hún er nú á áttræðisaldri sú
gamla og enn að syngja gamla
slagara uppi á sviði hér og þar.
Hún fæddist f Berlin 1904 og
stundaði nám i leikskóla þar. 26
ára lék hún sennilega i sinni
frægustu mynd tii þessa. Það
var „Blái engiilinn” eftir Von
Sternberg.
Hennar síðasta eftirminnilega
hlutverk var I myndinni Rancho
Notorius, sem tekin var árið
1952 og við fáum að sjá I kvöld.
Myndinni leikstýrði Fritz Lang
og eftir honum er haft, að Mar-
lene Dietrich hafi verið honum
vandræðagripur alla myndina i
gegn, en leikiðgat hún samt vel.
—JB
SJÚNVARP •
Laugardagur
2. nóv. 1974
16.30 Jóga til heilsubótar.
Bandarískur myndaflokkur
með leiðbeiningum i jóga-
æfingum. Þýðandi og þulur
Jón O. Edwald.
17.00 Enska knattspyrnan
17.55 Iþróttir. Umsjónarmað-
ur ómar Ragnarsson.
19.15 Þingvika.
Hlé
20.00 Fréttir og veður
20.25 Dagskrárkynning og
auglýsingar
20.30 Læknir á lausum kili.
Brezkur gamanmynda-
flokkur. Vinir I raun. Þýð-
andi Jón Thor Haraldsson.
20.55 Ragnar Bjarnason og
hljómsveit hans.l þættinum
eru flutt gömul og ný rokk-
og bitlalög og önnur vinsæl
lög. Hljómsveitina skipa,
auk Ragnars, Birgir Karls-
son, Halldór Pálsson, Jón
Sigurðsson, Rúnar Georgs-
son, Stefán Jóhannsson og
og einnig kemur þar fram
irska söngkonan Mary
Connolly.
21.20 A fornum slóðum.Mynd
með sögulegum heimildum
og getgátum um hinar fornu
byggðir norrænna manna á
Grænlandi og eyðingu
þeirra. Þýðandi Dóra Haf-
steinsdóttir. (Nordvision —
Danska sjónvarpið)
21.45 Lukkupotturinn.
(Rancho Notorious) Banda-
risk biómynd frá árinu 1952,
byggð á sögu eftir Sylviu
Richards. Leikstjóri Fritz
Lang. Aðalhlutverk
Marlene Dietrich, Arthur
Kennedy og Mel Ferrer.
Þýðandi Guðrún Jörunds-
dóttir. Myndin gerist i
„villta vestrinu” fyrr á ár-
um. Unnusta aðalsöguhetj-
unnar er myrt, og hann
leggur af stað að leita
morðingjans. Hann kemst
brátt á sporið og finnur
hinn sekaá búgarði þar sem
illvigir bófaflokkur hefur
aðsetur sitt.
23.15 Dagskrárlok
Sunnudagur
3. nóvemberi 1974
18.00 Stundin okkar. í þessum
þætti kemur Tóti litli aftur
við sögu, og sama er að
segja um söngfuglana og
dvergana, Bjart og Búa. Þá
dansa nokkrar stúlkur úr
Dansskóla Eddu Scheving
japanskan dans og drengir
úr júdódeild Ármanns sýna
júdó, sem er þjóðariþrótt
japana. Einnig heyrum við
japanskt ævintýri um dans-
andi teketil og þýskt ævin-
týri um litla stúlku, sem
villist I stórum skógi. Um-
sjónarmenn Sigriður
Margrét Guðmundsdóttir og
Hermann Ragnar Stefáns-
son. Stjórn upptöku Kristin
Pálsdóttir. ___
J