Tíminn - 07.06.1966, Blaðsíða 14
ÞRIÐTUDAGUR 7. júnf 1966
TÍMINN
GEIMFERÐ
Fram'hald af bls. 1
Á föstudaginn fengu geimfararn
ir skipun um að framlcvœma tvö
>7stefnumót“ við Atlas eldflaugina,
og tótest það vel. Þeir sváfu aftur
á móti illa um nóttina, og vökn
uðu þreyttir á laugardagsmorgun
inn .Þá áttu þeir að hafa stefnu
rniót við eldflaugina í þriðja sinn.
Þá gáfu vísindamenn á jörðu niðri
Ceman leyfi til þess að fara út
úr geimfarinu og reyna að losa
stejöldinn, en Stafford tilkynnti að
þeir vœru báðir of þreyttir til
þess að fara út úr geimfarinu, og
var geimgöngunni því frestað til
sunnudags, og „tengingin" alveg
gefin upp á bátinn.
Geimfaramir vötenuðu hressir
og endurnærðir á sunnudagsimorg
uninn, oig nokkru eftir hádegið
opnaði Oernan lúgu á geimfarinu
og steig út í geiminn, og var
aðeins tengdur við geimfarið með
þunnri línu. Hann fikraði sig aftur
á bate að afturenda geimfarsins,
þar sem ,,geimstóllinn“ var
geimdur. En vegna þess, hversu
erfitt var að starfa úti í geimnumi
svitnaði Oernan svo mjög, að drop
ar komu á sjónglerið í hjálmi
hans, og er geimfarið l«xm í
skugga jarðarinnar, fraus döggin
á glerinu, svo að hann sá svo til
ekkert. Oeman reyndi í tuttugu
mínútur að losa stólinn, en varð
að gefast upp við svo búið. Hann
komst aftur inn í geimfarið úttaug
aður, og Stafford átevað að Iáta
hann hiætta við tilraunina með
geimsfcólinn, sem hefði g’ert Oern
an kleift að fara um geiminn án
þess að vera tengdur geimfarinu,
og hann þannig orðið fyrsti mann
legi fylgihnöttur jarðarinnar
Ceman, var utarn geiimfarsins í
tvo tíma og fjórar mínútur, sagði,
að það væri fjórurn til fimm sinn
um erfiðara að vinna úti í geimn
um en við tilraunir niðri á jörð
inni. Hann sagði, er hann var kom
inn um borð í „Wasp“, að það
væri mjög erfitt að starfa úti í
geimnum. Kvað hann það leiðin
legt, að honum og Stafford hefði
ekki tekizt að framkvæma allt,
sem áætlað hefði verið, en sagði,
að þeir hefðu lært mikið í ferð
inni.
.Tohnson forseti átti símtal við
geimfarana sfeömmu eftir að þeir
lentu, og sagði, við Cernan —
Þessi gönigutúr þinn, Gene, var
einn bezti feaflinn í allri geimferða
sögu oktear.
Stafford og Ceman munu halda
til geimvísindamiðstöðvarinnar 1
Texas og munu vísindamenn bar
fá hjá þeim allar upplýsingar, sem
þeir geta veitt, um geimferðina.
Aætlað er að senda upp í geim
inn þrjú Gemini-geimför í viðbót
og á hið fyrsta þeirra að fara upp
18. júlí, en hin í september og í
nóvember. Næsta skref í banda-
rísteu geimferðaáætluninni er svo
Appollo-áætlunin, sem endar með
mannaðri geimferð til tunglsins.
SNJÓALÖG
Framhald at bls 16
meðal farþega, Hjálmar Bárðar-
son, Ósvaldur Knudiíen og banda-
rísku ambassadorshjónin, en alls
vom 28 manns á jökiinum.
Við miæli.stiteurnar var um fimm
metra snjólag, og er það heldur
meira en í meðalári, sagði Sig-
urður, en töluvert meira en í
fyrra. Hvað breytingunum
á Grímsvötnum viðkemur, eftir
hlaupið sem varð þar á s.l. hausti,
sagði Sigurður að á að gizka hefðu
þau sigið um 80 metra á um það
bil 25 ferkílómetra svæði. Á leið-
inni upp í Grímsivötn voru auk
þess athugaðar mælstikur sem sett
ar hafa verið upp vegna tíu ára
snjómælingaáætluniar eða vatna-
m æl'ingaá ætlun a r.
Ferðin gebk í heild ágætlega
þótt menn yrðu að leggja nótt við
dag til þess að leysa þau verk-
efni sem fyrir lágu. Bað Sigurður
Tímann að skila kæru þakklæti
til áhugamanna þeirra sem lagt
hefðu á sig tíma og erfiði í sam-
bandi við leiðangurinn.
Svo steemmtilega vildi til að
þrenn hjón héldu upp á 10, 20
og 25 ára brúðkaupsafmæli sín á
Vatnajöfeli. Voru það Árni Kjart-
ansson og frú, sem reyndar fóru
í brúðkaupsferð á Vatnajökul fyr-
ir 10 árum, Penfield hjónin (amb-
assadorsihjónin) sem áttu 20 ára
brúðkaupsefmæli á jöklinum og
Þórður Sigurðsson og frú sem
áttu 25 ára brúðkaupsafmæli með-
an á ferðinni stóð.
ÞAKKARÁVÖRP
Ykkur öllum í Nemendasambandi Löngumýrarskól-
ans, sem heiðruðu mig með rausnarlegri gjöf, sendi
ég mínar innilegustu kveðjur og þakkir. ,
Lifið heilar.
Reimar Helgason.
Þökkum lnnilega auðsýnda samúð og vlnáttu við andlót og jarðar-
för móður okkar tengdamóður og ömmu
Sveinsínu Benjamínsdóttur
Tannastöðum
Ólína Daníelsdóttir, Héðinn Sveinsson,
Ingibjörg Daníelsdóttir, Sigurður Sveinsson,
Daníel Daníelsson, Sigurbjörg Þorgrímsdóttir,
Sólveig Daníelsdóttir, Robert Young
barnabörn og barnabarnabörn.
Innilegar þakklr færum við öllum þeim er sýndu okkur samúð og
vinarhug við andlát og útför mannsins míns, föður, fósturföður,
tengdaföður og afa,
Kristins P. Grímssonar
frá Horni
Einnig viljum við þakka skólastjóra og kennurum Réttarhoitsskóla
og sambýlisfólki fyrir sérstakan heiður vlð hlnn látna.
Guðný Halldórsdóttir,
Ólína Kristinsdóttir, Hreiðar Guðlaugsson,
Guðrún E. Kristinsdóttir, Torfi Þ. Ólafsson,
Magnús Kristinsson, Svanhildur Eyjólfsdóttir,
Snorri Júlíusson, Sigríður GuðbrandsdótHr,
Gróa Alexandersdóttir, Gísli Hansen,
og barnabörn.
Sonur minn,
Atli Guðmundsson
Eskihlíð 12 A, andaðist í Landakotsspítala 5. júni.
Kristín Vigfúsdóttir.
41
Jarðarför konu mlnnar, móður, tengdamóður og ömmu okkar,
Vilhelmínu Jónasdóttur
Hringbraut 109,
verður gerð frá Fossvogskirkju miðvikudaginn 8. júni kl. 10.30
Blóm vinsamlegast afþökkuð, en þeim sem vildu minnast hennar
er bent á Krabbameinsfélag íslands.
Athöfninni i kirkjunni verður útvarpað.
Hannes Hreinsson,
börn, tengdabörn og barnabörn.
MARCEAU
Framhald af bls. 16
meðal þeirra S.-Afríka, Ástra-
lía, Japan og Indland. Auk
þess hefði hann oft komið til
Bandarikjanna, m.a. hefði
hann einu sinni ferðazt um
Bandaríkin í 8 mánuði og hald
ið þá um 300 sýningar. MaTceau
talaði hratt, eins og l'öndum
hans er títt og pataði hönd-
unurn í sífellu. I-Iann sagðist
hafa teomið víða fram í sjón-
varpi og kvikmyndum. Nýlega
hefði kvitemyndin The Ways of
Creation verið gerð um hann
og list hans, og ætti sú tevik-
mynd að koma út í haust.
Marceau tók nú að lýsa lát-
bragðslistinni og sögu hennar
lítillega. Sagði hann, að lát-
bragðslistin væri ekki fólgin
í því einu að herma eftir fólki,
þar þyrftu mörg f-leiri atriði
að koma til greina. Til dæmis
yrðu menn að hafa ákveðinn
stí'l og tæteni. Þá sagði Marceau
að þótt látbragðslistin væri
gömul listgrein væri hún ekki
næstum eins vinsæl og t.d. list-
dans. Taldi hann það stafa af
skorti á góðum skólum. Sönn
list verður aldrei gamaldags,
sagði hann, því fólk getur not-
ið hennar á hvaða tímum sem
er. Shakespeare er ekki gam-
aldags, Chaplin er eteki gam-
aldags. Moliére er ekki gamal-
dags. Þess vegna verður lát-
bragðsliistiin eteki gamaldags.
Hins vegar á hún sína góðu
og slæmu daga. Og Marceau
sagði síðar: Þessi list talar til
hjartans.
Marceau lýsti nú listaferli
sínum nokkuð og talaði fyrst
um kennara sína og samstarfs-
menn. Talaði hann sérlega hlý-
lega um Etienne Decroux kenn
ara sinn við leiklistarskóla
Oharles Dullin og sagði að
hann hefði skapað nýja stefnu
í látbragðslist með hliðsjón af
eldri stefnum. Hefði hann skap
að nýja „málfræði látbragðs-
listarinnar“ eins og hann orð-
aði það. Lýsti Marceau síðan
ferðum ninum um þau lönd.
sem hann hefur heimsótt.
Nefndi hann nokkra þjóð-
höfðingja, sem hann hafði
skemmt með list sinni og sagð*
ist hafa orðið ákaflega hrifinn
af Nethru, en hann hefði setið
kvöldverðarboð með honum.
Nú sagði hann, að Johnson,
B-andaríikjaforseti hefði beðið
sig um að koma fram í sam-
kvæmi, sem haíldið yrði í góð-
gerðarskyni í New York 11.
þ.m. Sagðist hann hafa tekið
b-oðinu, en ekki minnzt á það
við Johnson, að ha-nn færi
beina leið til Rauða-Kína á eft-
ÍH.
Heim-sóten Marcel Marceau
til íslands er liður í ferðalagi
Marceau u-m heiminn, en þeirri
ferð á að 1-jútea á næsta ári.
Sagðist hann hafa ánægju af
að koma hingað og lýsti ánægju
sinni yfir hinni miklu aðsókn
að sýningum sínum. Hann hafði
mikinn áhuga á að vita, hvern-
ig hesta íslendingar hefðu og
vildi gjarnan fá að reyna hæfni
sína í reiðmennsku hér.
Aðspurður kvaðst Marceau
alltaf hafa verið á ferðalagi
með sýningar sínar, en að lote-
inni ferð sinni um heiminn
ætlaði h-ann að stofna félag
með góðum listamönnum, en
ektei gat hann sagt um í hvaða
landi það yrði.
Á sýningum sínum hér fer
Marcel Marceau með 15 þætti
og er helmingur þeirra urn
Bip, en Bip er afkomandi Pier
rofcs, að því er Marceau sagði.
Hann sa-gðist hafa í taktein-
um 35 þætti um Bip og 35
aðra og með þessa þætti færi
hann einn með aðstoð tónlist-
ar.
KENNEDY
Framhald af bls. 1.
hömlur yrðu hreinsaðar brott úr
Suður-Afrífeu, þá gæti landið —
sem hefur yfir að ráða mestum
hluta vísindamanna Afríteu, stál
framleiðslu heimsálfunnar og raf
orteu — gegnt einstæðu hlutverki
í baráttunni ge-gn fátætet og neyð
í löndunum lengra í norðri. En
þessi ríki geta ektei tekið á móti
hjálp oktear, ef lönd okkar neita
að viðurkenna fullteomleika ein-
staklingsins og samhygð allra
manna.
— Rétta aðferðin til þess að
berjast gegn kommúnisma er ekld
að innleiða einræði hans, heldur
að auka frelsi einstaklingsins £
öllum ríkjum og í oktear eigin lönd
um. í sérhverju landi finnast
menn, sem kalla sérhverja ógnun
gegn sérréttindum sínum kommún
isma, en á ferðum mínum hef ég
séð, að umbætur eru ekki kommún
ismi, sagði Robert Kennedy.
Kennedy er í Suður-Afríku í
boði Stúdentasambandsins þar í
landi, en í því eru stúdentar af
öllum kynþáttum. Ian Robertsson,
formaður sambandsins, var nýlega
settur í stofufan-gelsi samtevæmt
lögum landsins u-m baráttu gegn
kommúnismanum. Kennedy hélt
ræðu sína á þeim degi, sem stud
éntar í Suður-Afríku hafa helgað
baráttunni fyrir akademísteu
frelsi.
Kennedy dvelur í Suður-Afrfku
í fimm daga.
KENNARAÞING
Framhald af bls. 16
undan endurkjöri og voru honum
þökkuð vel unnin störf á undan-
förnum árum.
Tveir aldraðir kennarar voru
gerðir að heiðursfélögum, þeir
Ingimar Jóhannesson, kennari og
Guðjón Guðjónsson, fyrrv. skóla-
stjóri í Hafnarfirði. Þeir hafa
báðir unnið ötult starf í þágu sam
bandsins og verið forystumenn um
ýmis merk málefni þess.
Launamál og endurskoðun skóla
mála voru helztu viðfangsefni
þessa fulltrúaþings og voru gerðar
ályktanir um þau. Kosin var inilli-
þinganefnd til þess að ganga frá
ályktununum að fullu.
SAMNIN GAVIÐRÆÐUR
Framhald af 16. siðu.
nefndar lialdinn á þriðjudaginn.
f nefndinni eru af hálfu Verka-
mannasambandsins formaður og
varaformaður þess, þeir Eðvarð
Sigurðsson og Björn Jónsson.
Blaðið átti í dag tal við Þóri
Daníelsson, framkvæmdastjóra
Verkamannasambandsins, og
kvaðst hann vilja taka það fram
vegna missteilnings, sem fram
hefði komið í sumum blöðum, að
framkvæmdanefnd verkamanna-
sambandsins hefði ekki fengið um
boð frá verkalýðsfélögunum til
þess að semja fyrir þau. Hér væri
aðein-s um að ræða könnum fram-
fcvæmdaráðsins á því, hvort hægt
væri að koma á einhvers feonar
rammasam-ningi, sem fé-lögin gætu
síð-an notað sem grundvöll við
samningagerð sína. Væri fram-
kvæmdaráð Verkamannasambands
ins því ekki að semja fyrir fé-
lögin sem slík.
KVIKMYNDIR
Framhald ai Dls. 5.
Að rekja söguþráðinn er einsteis
virði fjTÍr myndina, því að hann
er með slíkum endemum, að ann
að eins rugl hefur vart sézt á hvíta
tjaldinu. Ef ekki hefðu komið til
fyrrgreind tæknibrögð, hefði kvik
myndinni svo sannarlega verið
alls varnað, og heiti hennar því
jafnframt getað verið örvænting-
aróp hennar. Það er eitthvað
þvælt fram og aftur um dýrmæt-
an hring, sem glatazt hefur, en
upp kemst, að hann muni finnast
á hendi Ringo's, og fjallar mynd
in um tilraunir þeirra manna, er
hringinn vilja hreppa, en geng
ur auðvitað mjög tregle-ga.
Sigurður Jón Ólafsson.
ÍÞRÓTTIR
Framhald af bls. 13.
með Arsenal 1961—1965, en
fór þá til Norwidh. Hægri
útherji. Hann lék áður í
unglingalandsliði Englands.
Gordon Bolland, innherji.
Hann lék áður með Ohelsea
og er ann-ar dýrasti leik-
maður, sem Norwidh hefur
beypt.
Phil Kelly ,hægri bakvörð
ur. Hann lék áður með Wolv
es og hefur enn fremur leik
ið fimm sinnum með írska
landsliðinu.
Malcolm Lucas, hægri
framvörður. Hann leikur í
landsliði Wales.
Freddie Sharpe, varnar-
maður. Lék áður með Tott-
en-ham, níu keppnistímabil.
Dave Stringer, bakvörður
eða miðvörður. Hann hefur
leikið í áhugamannalands-
liði unglinga fyrir England.
Fyrsti leikurinn verður á
Laugard-alsveHinum föstu-
daginn 10. júní kl. 20.30,
gegn úrvalsliði landsliðs-
nefndar. Annar leikurinn
verður á Akranesi sunnu-
daginn 12. júní kl. 15.30.
gegn Akurnesingum.
Þriðji leikurinn verður
svo í Keflavíte miðvikudag-
inn 15. júní kl. 20,30, gegn
Keflivikingum.
ÍÞRÓTTIR
Framhald af bls. 13.
Harðarsonar í 100 m skriðsundi,
en hann náði tímanum 58,6 sek.
og var sekúndubroti á undan Davíð
Valgarðssyni.
Þessi tími Guðmundar er hans
langbezti, og vonandi lætur hann
ekki þar við sitja, heldur bætir
tímann. ICeppni Guðmundar og
Darvíðs í þess-ari grein var einhver
skemmtilegasta keppni mófcsins.
í kvennagreinum var Hrafnhild
ur Guðmundsdóttir atkvæðamest.
í lok mótsins var háð „biöðru-
sund“ og vakti sú keppni mikla
káttnu.