Vísir - 09.12.1974, Blaðsíða 5
4
Vísir. Mánudagur 9. desember 1974.
Vlsir. Mánudagur 9. desember 1974.
5
Vísir vísar á viðskiptin
Jorðtil
sölu
í Pennanum fásf jarðlíkon í mörgum sfærðum og verðflokkum,
Sfórkosfleg jólagjöf handa börnum og eiginmanninum. Sérsfök
afhygli skal vakin á raflýsfum jarðlíkönum sem sýna meir en
hingað fil hefur þekksf.
Gerið vini og vandamenn að jarðeigendum um þessi jól.
CHIMÞ-
REjJTER útlÖND í MORGUN ÚTL.ÖND
SOYUZ 16 VAR SÍÐ-
ASTA PRÓFUNIN FYR-
IR SOYUZ-APOLLO
Síðasta mannaða geim-
far Rússa, Soyuz-16, lenti
heilu og höldnu í gær eftir 6
daga hringsól um jörðina.
Láta Sovétmenn vel af feröinni
og segja, aö öll tæki og búnaöur,
sem notaöur skal svo aftur, þegar
Soyuz á aö mæta apollogeimfari i
júli næst, hafi reynzt prýöilega.
Soyuz-16 var sendur á loft gagn-
gert til aö reyna nýjan tæknibún-
aö Sovétmanna til þess aö Soyuz-
geimfar geti tengzt bandarisku
apollogeimfari úti i geimnum.
Tveir geimfarar Rússa, þeir
Filipchenko og Rukavishnikov,
voru i Soyuz-16. Voru þeir ágæt-
lega haldnir, þegar þeir lentu
mjúkri lendingu á hásléttu i Norö-
ur-Kazakhstan.
Mikið skal til mikils vinna
Frú Marva Drew, sem er 51
árs húsmóöir I Waterloo i
Iowa, hefur nú lokiö viö aö vél-
rita talnarununa frá einum og
upp I eina milljón.
Það tók hana fimm ár og
2,473 vélritunararkir.
Þaö haföi hún upp úr þvi aö
taka áskorun sonar sins,
Daryl, sem nú er orðinn 23-ja
ára. Hann haföi komiö úr
skólanum einn daginn og haft
þá sögu aö segja, aö kennarinn
hans héldi þvl fram, aö enginn
gæti talið upp I eina milljón. —
Sá hefur ekki þekkt frú Drew.
| MORGUN UTLOND I MORGUN UTLÖND í MORGUN ÚTLÖND
Umsjón Guðmundur Pétursson
GRIKKIR HOFNUÐU
KONUNGI SlNUM
Mikill meirihluti
Grikkja greiddi því at>
kvæði í gær, að sett yrði á
laggirnar lýðveldi í land-
inu undir stjórn forseta,
og höfnuðu þannig
konungsveldinu, sem
komið var á fyrir 144 ár-
um.
Þjóðin kaus, að hinn
34 ára konungur,
Konstantín, afkomandi
Georges 1., danska prins-
ins, sem lagði grundvöll-
inn að völdum Glucks-
burgarættarinnar, sneri
ekki aftur heim til valda.
Mikil fagnaðarlæti voru i
Aþenu i gærkvöldi og tóku 100
þúsund Aþeningar þátt I hátiöa-
höldunum á götum borgarinnar.
Lýðveldissinnar hömpuðu mjög
á lofti spjöldum með áletrunum,
eins og „Þjóðverjinn er dauð-
ur”, en þar er visað til þýzks
ætternis Friðriku drottningar.
Sex milljónir manna voru á
kjörskrá. Þegar um 90% at-
kvæða höfðu verið talin, kom i
ljós, að 2.889.282 höfðu greitt at-
kvæði með lýðveldisstofnun eöa
68,8%. En 1,318,827 höföu greitt
þvi atkvæði, að Grikkland yrði
konungsriki áfram, en það er
um 31,2%.
Þetta er i annað sinn, sem
griska þjóðin hafnar Konstantin
konungi, þvi að i júli i fyrra
studdi meirihlutinn stjórnar-
skrárbreytingar herforingja-
stjórnarinnar um að setja
konungsveldið af.
Karamanlis forsætisráðherra
sagði, að atkvæðagreiðslan
hefði örugglega upprætt þá
óvissu, sem rikt hefði um fram-
Kanellopoulos fyrrum forsætis-
ráðherra þykir lfklegastur
fyrsti forseti nýja lýðveidisins.
tiðarstjórnskipun Grikklands.
Skoraði hann á þjóðina að virða
niðurstöðu atkvæðagreiðslunn-
ar og standa saman i framtið-
inni.
Leiðtogar stjórnarandstöð-
unnar fögnuðu úrslitunum.
Þingið kemur saman i dag til
fundar, og var við þvi búizt, að
Karamanlis legði þar fram
stefnu stjórnar sinnar, en siðan
mundi fara fram atkvæða-
greiðsla um traustsyfirlýsingu
til handa stjórn hans.
Konstantin sem dvelst i
London hafði ekkert látið frá sér
fara i morgun um niðurstöðu
þjóðaratkvæðisins.
Panayotis Lambrias, sá ráðu-
neytisstjóri, sem er blaðafull-
trúi grisku stjórnarinnar, hafði
eftir Karamanlis, forsætisráð-
herra, að það væri óskynsam-
legt fyrir hinn afsetta konung að
snúa aftur heim til Grikklands
Konstantln konungur — I annaö
sinn afneitaði griska þjóðin hon-
um.
sem óbreyttur borgari i bráð.
Sennilegast þykir nú, að
Phædon Ghizikis, hershöfðingi,
sem farið hefur með forsetaem-
bættið, segi af sér til þess að
greiða götu þess, að þingiö til-
nefni nýjan borgaralegan for-
seta. Sá, sem liklegastur þykir
til að njóta þess trausts, er
Panayotis Kanellopoulos.
Hinn 72 ára gamli Kanello-
poulos var forsætisráðherra
1967, þegar herinn gerði bylting-
una. Hann var ávallt ákafur
andstæðingur herforingjaklik-
unnar og var margsinnis
hnepptur i stofufangelsi fyrir
gagnrýnisyfirlýsingar sinar.
Solzhenitsyn
í Stokkhólmi
Sovézki rithöfundurinn, Alexander
Solzhenitsyn, kom til Stokkhólms i
gær til þess að verða viöstaddur af-
hendingu Nóbelsverölaunanna.
Myndin var tekin af honum og konu
hans. Nataja, þar sem þau eru að
skoða glermuni I Skansen.
Fjórburar
í fyrra
en nú
sexburar
26ára gömul kona, sem hef-
ur verið á frjósemislyfjum, ól
sexbura i gær — aðeins ári eft-
ir að hún átti fjórbura.
Charlotte Lange, sem býr i
San Jose i Kaliforniu, eignað-
ist fjóra drengi og tvær telpur,
en einn drengjanna dó
skömmu eftir fæðingu. —
Talsmaður sjúkrahússins seg-
ir hvitvoðungana vera i
súrefnistjaldi og gaf ekkert út
á það, hvernig horfur væru
með þá.
Fjórburarnir, sem konan
átti I fyrra, dóu allir fljótlega
eftir fæðingu._________
Saudi Arabía
kaupir upp
olíufyrírtœk-
ið,,Aramco"
//
Líklegt, að önnur
olíuútf lutningsríki
fari svipað að með
fyrirtœki, sem
selja þeirra olíu
Ahmed Zaki Yamani,
sheik frá Saudi Arabíu og
olíumálaráöherra þeirra,
kom í gær til Lundúna, þar
sem hann mun eiga við-
ræöur viö f jögur bandarisk
olíufyrirtæki um yfirtöku
Saudi Arabíu á fyrir-
tækjunum.
Stjórn Saudi Arabiu hefur gert
tilboð um að taka alveg yfir
„Arabian american oil company”
(Aramco), sem er samsett úr
fjórum fyrirtækjum, Exxon,
Texaco, Mobil Oil og Standard Oil
i Kaliforniu. — Stjórnin keypti
ekki alls fyrir löngu viðbót i fyrir-
Þjófarnir notuðu rafreikni
Tilraun til þess að stela
2,5 milljónum dala úr
borgarsjóði Los Angeles
meö aöstoö rafreiknis fór
út um þúfur um heigina,
þar sem einhver hafði
slúðrað i lögregluna.
Talsmaður borgarinnar segir,
að um hafi verið að ræða þaul-
hugsaðan þjófnað, sem fólst i
þvi að láta rafmagnsheila
borgarsjóðs skrifa út ávisanir
handa hinum og þessum fyrir-
tækjum, er ekki voru til. Það
mikil skipulagning lá að baki
þessu, að liklegast þykir, að
Mafian hafi átt þarna hlut að
máli.
Tveir ollumálaráöherrar Araba, Abdesselam frá Alsir og Yamani frá
Saudi Arabiu.
tækjunum, svo að hún ræður nú
þegar yfir '60% þeirra.
Fyrirtækin hafa sætt sig við, að
Saudi Arabia þjóðnýti Aramco
með þessum hætti, en ætlunin er á
fundinum i Lundúnum að reyna
að fá breytta skilmála.
Ef af þessu verður, þykir mjög
liklegt, að önnur oliuútflutnings-
riki fari að fordæmi Saudi Arabiu
og reyni að slá eign sinni á oliu-
fyrirtækin, sem selja oliu þeirra.
Yamani oliumálaráðherra mun
að loknum þessum viðræðum
fljúga til Vinar, þar sem haldinn
verður ráöherrafundur OPEC
(samtaka oliuútflytjenda), en
fyrir dyrum stendur hjá þeim að
ákveða oliuverðið fyrir fyrsta
ársfjórðung 1975.
Tveir menn voru handteknir á
laugardag, þegar þeir yfirgáfu
hótel eitt i Beverly Hills með
töskur, sem þeir héldu fullar af
bankaseðlum, 2,5 milljónir áttu
það að vera. En töskurnar voru
fylltar af bréfmiðum, sem
skornir voru i stærð við seðla, og
hafði leynilögreglan búið þann
veg um hnútana.
Þriggja annarra manna er
leitað og jafnframt er hafin
rannsókn á bókhaldi borgarinn-
ar.
Tekinn í
fœreyskri
landhelgi
George Wood (42 ára)
skipstjóri á Aberdeen-
togaranum „Scottish
King" var dæmdur fyrir
rétti í Þórshöfn til að
greiða nær 1 milljón
króna sekt fyrir að hafa
verið aö veiöum 7/10 úr
sjómílu innan við 12
mílna landhelgi Fær-
eyja.
Jafnframt voru veiðarfæri
togarans gerð upptæk, en þau
voru metin til einnar milljón-
ar.
Wood skipstjóri hélt fast
fram sakleysi sinu og skýrði
réttinum svo frá, að radar
skipsins hefði verið i ólagi,
þegar danskt varðskip hafði
komið að honum.
Hann á þess kost að áfrýja
dómnum fyrir hæstarétt
Dana.
Dómsorðið yfir erkibisk-
upnum lesið upp í dag
Jórsalaréttur birtir i dag
dóm sinn yfir Hilarion
Capucci, erkibiskup, sem
kæröur var fyrir vopna-
smygl til skæruliða Palest-
inuaraba.
Hans heilagleiki er yfir-
maður grisk-kaþólsku
kirkjunnar í Jórsölum og á
vesturbakka árinnar Jór-
dan en í söfnuðinum í Jór-
sölum eru um 4.500 manns.
tsraelsmenn sögðust hafa stað-
ið hann að verki i ágúst með
minniháttar vopnabúr falið i bif-
reiðinni, sem flutti erkibiskup á
milli. Það var meint, að i annarri
ferð sinni frá Beirut hefði hann
flutt Katyushaeldflaugar,
sprengiefni, handsprengjur og
vélbyssur.
Erkibiskupinn var handtekinn
8. ágúst og stóöu réttarhöldin yfir
frá 20. september til 14. nóvem-
ber, en siðan hefur dómsniður-
stöðunnar verið beðiö.