Vísir - 09.12.1974, Blaðsíða 6
6
Vlsir. Mánudagur 9. desember 1974.
vísir
(Jtgefandi: Reykjaprent hf.
Framkvæmdastjóri: Sveinn R. Eyjólfsson
Ritstjóri: Jónas Kristjánsson
Fréttastjóri: Jón Birgir Pétursson
Ritstjórnarfulltrúi: Ilaukur Helgason
Auglýsingastjóri: Skúli G. Jóhannesson
Auglýsingar: Hverfisgötu 44. Simar 11660 86611
Afgreiösla: Hverfisgötu 44. Simi 86611
Ritstjórn: Siöumúla 14. Simi 86611. 7 linur
Áskriftargjald 600 kr. á mánuöi innanlands.
1 lausasölu 35 kr. eintakiö. Blaöaprent hf.
Olíuverðið
Auðhringur Arabarikjanna beinir oliuvopninu
að íslendingum sem öðrum þjóðum og veldur
stórvandræðum i efnahag rikra þjóða og snauðra.
Broshýrir segja Arabar kannski, að þetta sé
vinsamleg ábending um, að þeir eigi i erfiðleik-
um gagnvart ísraelsmönnum. Þeir kunna að
nefna, að vestrænum fjölskyldum sé vandalaust
að aka um sinn einum bil i stað tveggja.
En vopnið er hvasst. Það veldur meðal annars
hungurdauða fólks i fátækustu löndunum. Hinir
auðugri afbera þetta, en hinir snauðari ekki.
Áætlað er, að allt að 100 milljarðar dollara
muni safnast fyrir hjá oliurikjunum á einu ári, ef
ekki verður breyting á. Þetta yrðu nærri 12 þús-
und milljarðar króna. Sumir nefna þúsund
sinnum hærri fjárupphæð, sem mundi færast úr
höndum annarra, einkum vestrænna manna, i
hendur Araba næstu árin.
Ef þetta gerðist, yrði umbylting á stöðu rikja i
heiminum. Nýir timar rynnu i mannkynssögunni,
eins konar endurkoma arabisks stórveldis.
Er langsennilegast er, að þetta gerist alls ekki.
Auðhringur Araba er timabundið fyrirbæri.
Vegna annarlegra aðstæðna hefur honum tekizt
að fjórfalda oliuverð á skömmum tima og koma
þvi miklu hærra en það getur haldizt.
Oliuverð mun sennilega lækka eftir nokkra
mánuði, sumir segja hálft ár eða niu mánuði, ef
nýjar, afbrigðilegar aðstæður koma ekki Aröbum
til hjálpar.
Fólk á Vesturlöndum þarf ekki að hafa miklar
áhyggjur af þvi, að það verði neytt til að breyta
lifnaðarháttum sinum til frambúðar vegna arab-
iska auðhringsins.
Oliuverðið hlýtur að lækka, þegar hið háa verð
hefur valdið nægilegri minnkun á oliunotkun,
sem það óhjákvæmilega gerir. Háa verðið leiðir
til þess, að önnur orka leysir oliu af hólmi á
mörgum sviðum og oliulindir, sem áður voru
óarðvænlegar, fara að borga sig og valda auknu
framboði. Arabar eru sjálfir á hálum is.
Eftirspurn eftir oliu verður tvimælalaust miklu
minni en hún væri ella, þegar háa verðið hefur
runnið sitt skeið. Þrátt fyrir allt er nóg til af
hráoliu i heiminum að svo stöddu, og eins og um
aðrar vörur getur framleiðandi ekki til lengdar
heimtað okurverð, þegar framboðið er nóg. Menn
mega ekki rugla þessu saman við hugmyndir um,
að oliulindir heimsins muni ganga til þurrðar eft-
ir 50-100 ár. Það er annað mál.
Arabar geta reynt að halda verðinu uppi með
þvi að minnka enn þá oliu, sem þeir selja. Með
þvi færu þeir innan tiðar að vinna gegn eigin
hagsmunum, þar eð tekjur þeirra af oliusölu yrðu
minni en ella, þegar fram liður.
Núverandi stórveldi og hinar rikari þjóðir al-
mennt munu ekki afhenda Aröbum það
fjármagn, sem þyrfti til að halda núverandi verði
uppi. Til þess er alltof augljóst, hvaða breyting-
um það mundi valda á valdahlutföllum i heims-
málum.
í nokkra mánuði enn mun mikið fé safnast i
hendur Araba. Oliurikin munu til frambúðar fá
miklar tekjur af auðlindum sinum.
En auðhringur Araba mun bresta.
—HH
Finnskt sjálfstœði
57 ara [UMSJ6N:,gTp!
Urho Kekkonen Finnlandsforseti I einni af heimsóknum slnum til Sovétrtkjanna sést hér I fylgd meö
sovézkum ráöamönnum, Kosygin og Podgorny forseta. — Finnar hafa mátt leita samþykkis valdhaf-
anna I Kreml fyrir viöskiptasamningum sinum viö önnur rlki.
Þjóðhátiðardagur
Finnlands var á föstu-
dag, þar sem minnzt var
57 ára afmælis sjálf-
stæðis Finna. Hefur
margur furðað sig á þvi,
hversu vel þeim hefur
tekizt að varðveita það,
þrátt fyrir þrýsting utan
frá og innan.
Frá þvi um lok siðari
heimsstyrjaldarinnar
hafa Finnar þróað
umfangsmikið stjórn-
málastarf, verzlunar- og
menningarsamskipti
við Sovétmenn ná-
granna sina. Er hvergi
að finna hliðstæðu sliks
hjá öðru riki, þar sem
ekki situr kommúnista-
stjórn að völdum.
20% utanrikisverzlunar Finna
er viö Rússa, og þeir kaupa tvo
þriöju hluta innfluttrar orku
sinnar af þeim. — Ahrif sliks á
ekki stærra riki en Finnland eru
aö koma æ skýrar fram I stjórn-
málalífi Finna, verzlun og menn-
ingu.
Fyrr I þessari viku sakaöi hiö
óháöa, en áhrifarika dagblaö,
„Helsingen Sanomat”, leiötoga
þjóöarinnar um aö reyna aö hefta
frelsi fjölmiöla til frásagna af
utanrikisstefnu landsins og sam-
skiptum viö Sovétrlkin. í leiöara
blaösins stóö: „Æ tiöari átroön-
ingur á stjórnarskrárákvæöum
um skoöana- og prentfrelsi er
fyrirbrigöi hér i Finnlandi, sem
krefst alvarlegrar athugunar.”
Fleiri áhrifarik málgögn
finnsku þjóöarinnar hafa siöan
tekiölsamastreng og „Helsingen
Sanomat” og mótmælt viöleitni
samsteypustjórnar vinstri og
miöflokksmanna til aö hefta
gagnrýni blaöa á Sovétrlkin. Hins
vegar hefur stjórnin ekkert gert
til þess aö draga úr fréttaskrifum
frá Vesturlöndum. Sýnist þarna
tekiö annað tillit til fréttaskrifa
aö vestan en að austan.
I þessu þykjast menn raunar
sjá spegilmynd þeirrar þróunar,
sem átt hefur sér stað á ýmsum
sviöum þjóðfélagsins. Finnskir
kommúnistar, sósíaldemókratar
og miöflokkar hafa mjög hvatt til
óhikaðs samstarfs og
skuldbindinga viö Sovétrikin.
Finnland er yfirlýst hlutlaust
rlki, þótt ekki speglist það I t.d.
orkumálum þeirra, þar sem þeir
eru algerlega háöir Rússum um
kaup á olluog öðrum orkugjöfum.
A gagnrýni á viöskiptasamn-
ingum Finna viö Rússa má þó
ekki minnast I Finnlandi.
Margir mæla heldur með
þvl, aö viöskiptin við þá veröi
aukin, þvl að það séhiö eina rétta,
sem Finnland geti gert á þeim
sveiflutlmum, sem nú ríki I
hinum vestræna viðskiptaheimi.
Rússar hafa fullkomlega staðiö
viö sína verzlunarsamninga viö
Finna.en eftir þvl sem verzlunin
hefur aukizt, hafa Finnar bundiö
hendur slnar æ fastar. — Enginn
samningur um millirlkjaverzlun
Finna viö önnur rlki öðlast gildi
nema hann njóti blessunar vald-
hafanna I Kreml.
Þannig var því t.d. varið um
frlverzlunarsamning þann, sem
Finnar geröu viöEBE fyrir tveim
árum. Þaö var einnig
meginástæöa þess, að Finnar
stóöu I vegi fyrir þvl, aö komiö
yröi á efnahagsbandalagi
Noröurlanda (Nordek) 1969) ,
eins og til haföi staðiö.
Þetta hefur orðið einnig til þess,
aö Finnar hafa fjarlægzt
Noröurlöndin, sem annars hafa
haft samstööu um hlutleysis-
stefnu I ýmsum utanrikismálum.
Hafa þeir I staðinn hallazt æ meir
á sveif með Rússum I ýmsum
alþjóöamálum. Fyrri varfærni
þeirra viö aö taka afstöðu i
alþjóöamálum, einkanlega þeim,
sem tengd voru stórveldunum,
hefur breytzt I greinilegan stuön-
ing viö Austur-Evrópu.
Finnlandsforseti, dr. Urho
Kekkonen, sem mestu hefur ráðið
um utanrikisstefnu landsins og
nýtur ákafs stuönings Sovét-
stjórnarinnar, er jafnvel
byrjaður að endurskrifa nýrri
tlma sögu Finnlands, þar sem
hann tekur meira tUlit til skoðana
Sovétmanna I túlkun hennar. —
Ekki alls fyrir löngu sakaði
Kekkonen leiðtoga finnsku
þjóöarinnar á timum stríðsins um
aö hafa átt upphafið að fjand-
skapnum viö Sovét-Rússland
1941, fljótlega eftir innrás Þjóð-
verja I Rússland. — Hann hefur
einnig haldið þvl fram, sem
stangast nokkuö á viö sögulegar
staöreyndir, aö Finnlandi hafi
veriö illa stjórnað síðustu árin
fyrir ófriöartimana og aö þaö hafi
veriö óskynsamlegt af finnskum
stjórnvöldum aö heimila ekki
Rússum 1939 aö hafa herstöðvar á
finnskri grund.
Hvaö sem þvl liöur, þá er
Finnland vestrænt þjóöfélag I
flestum háttum, þótt að Finnum
sé lagt aö tengjast Sovétmönnum
enn sterkari böndum. Finnlandi-
sering er orðiö alþjóöaheiti yfir
þaö, sem Rússar hafa gert
Finnum, en þar er orð, sem menn
skyldu fllka varlega, ef þeir eru
staddir I Finnlandi.
Lenin viðurkenndi sjálfstæði
Finnlands 1917, en þá haföi
Finnland veriö erkihertogadæmi
keisararikisins I meira en öld.
Finnum hrýs þvl ekki eins mikiö
hugur við því, þótt þeir starfi
meira eöa minna undir hjarnar-
hramminum sem sjálfstætt riki I
dag.og vestrænum nágrönnum
þeirra. Verra var það, meðan
þeir voru undir keisaralegum
aga.
Ahrifa skuldbindinganna viö Rússa hefur gett I ■tjórnmálallfi,
viöskiptallfi og menningu Finna. — Kekkonen forseti, sem hér
gengur aö kjörkassanum I slöustu þingkosningum (1972), hefur
ver'iö talsmaöur aukinna samskipta viö Sovétmenn.