Vísir - 09.12.1974, Blaðsíða 24
vísir
Mánudagur 9. desember 1974.
Hinir
eftirlýstu
fela sig
Enginn af þeim- mönnum, sem
lögreglan i Keflavlk hefur óskaö
eftir aö hafa tal af vegna hvarfs
Geirfinns Einarssonar, hefur enn
gefiö sig fram.
Um helgina var unnið áfram að
rannsókn málsins, án þess þó að
neitt sérstakt kæmi i ljós.
Valtýr Sigurðsson, fulltrúi
bæjarfógeta i Keflavik, sagði i út-
varpsviðtali um helgina, að i raun
og veru væri lögreglan litlu nær
lausn málsins en viðupphaf þess.
Miðaðist nú allt að þvi að nota
útilokunaraðferð við þá mögu-
leika sem til greina koma við
lausn málsins.
—ÓH
Innbrotsþjóf-
urínn festist
í glugganum
Það varö lítið úr stórvirkjunum
hjá piltinum sem ætlaði aö brjót-
ast inn i Skálann viö Strandgötu i
Hafnarfiröi f fyrrinótt.
Hann fór bak við húsið og
skreið þar inn um glugga, sem
honum hafði tekizt að opna. En
þegar hann var kominn miðja
vegu með haus og herðar inn um
gluggann, festist hann og komst
hvorki áfram né afturábak.
Þarna spriklaði hann i gluggan-
um eins og fiskur i neti, þangað til
fólk sem býr á hæðinni fyrir ofan
varð vart við skarkala og stunur.
Náð var i lögregluna. Kannað-
ist hún þar við einn af kunningj-
um sinum.
Er þetta liklega i eina skiptið
sem hann hefur glaðzt yfir komu
hennar. Lögregluþjónar losuðu
piltinn og settu hann i fanga-
geymslu.
—ÓH
Höfðu varla
við að sinna
afbrotamálum
„Ætli þaö séu ekki.milli 30 og 40
mál sem bárust um helgina til
okkar”, sagði Helgi Danielsson
rannsóknarlögregiumaöur í viö-
tali viö blaðið I morgun.
Hann sagði, að þrir rann-
sóknarlögreglumenn og menn úr
tæknideild hefðu varla haft undan
við að sinna tilkynningum um
innbrot, skemmdarverk, þjófn-
aði o.fl.
Sem dæmi um þjófnaði má
nefna aö öllum afturdekkjum,
fjórum að tölu, var stolið undan
vörubil sem stóð rétt hjá Vals-
véllinum. Einnig var bremsu-
skálin tekin af öðrum megin.
Þá var stolið 60 til 70 þúsund
krónum úr fataskápum starfs-
fólks á Hrafnistu. Brotizt var inn
hjá félagi bankastarfsmanna á
Laugavegi 103, á fimmtu hæð, og
stolið silfurbikar fyrir skák-
keppni.
Brotizt var inn i verzlun við
Þórsgötu og stolið þaðan sjón-
varpstækjum og segulbands-
tækjum.
Tveir strákar voru teknir, þar
sem þeir voru búnir að skrúfa
fjölmarga spegla af bilum. Bill
varð fyrir barðinu á stunguglöð-
um náunga, sem stakk göt á alla
hjólbarðana.
—ÓH
Rafveita Njarðvíkur iokar fyrir rafmagn til frystihúss vegna tíu múnaða skuldar:
Veðhafi í afurðum hússins
óskilur sér rétt til bóta
— og telur rafveitustjórann bótaskyldan
,,Ef við getum ekki staöið i
skilum viö Rafmagnsveitu
Reykjavikur, vegna þess aö við-
skiptavinir okkar standa ekki I
skilum við okkur, og vanskil
okkar leiða til þess að Raf-
magnsveita rikisins lokar fyrir
rafmagniö til veitu okkar —
hvar stöndum við þá?” spuröi
Jóhann Lindal Jóhannsson, raf-
veitustjóri i Njarðvik, er Visir
haföi samband við hann út af
fróðlegu máli, sem þar er komið
upp.
Einn viðskiptavina Raf-
magnsveitu Njarðvikur hefur
átt I greiðsluörðugleikum með
fyrirtæki sitt, sem hefur leitt til
þess, að hann hefur ekki getað
greitt rafmagn siðastliðna tiu
mánuði og er skuld hans komin i
715 þúsund krónur. Þegar svo
var komið sögu, sá rafveitu-
stjórinn sér ekki annað fært en
að loka fyrir raforku til við-
skiptavinarins, samkvæmt 17.
grein reglugerðar fyrir rafveitu
Njarðvikur.
Þegar svo var komið, fékk
rafveitustjórinn skeyti frá
Landsbanka íslands, sem á veð
i afurðum umrædds rafmagns-
kaupanda, en þar er um frysti-
hús að ræða. 1 skeytinu segir, að
þar sem bankinn eigi veð i af-
urðunum i húsinu, sé bankinn
reiðubúinn að ábyrgjast
greiðslu á rafmagnssölu til
hússins frá „deginum I dag”,
þaö er 5. desember, til að halda
frosti i frystiklefum hússins.
Rafveitustjórinn sendi Lands-
bankanum skeyti á móti, þar
sem segir að rafveitan fallist á
að „opna fyrir rafmagnið
strax, ef Landsbanki íslands á-
byrgist að áðurnefnd skuld
verði greidd fyrir næstkomandi
áramót”.
Landsbankinn sendi skeyti
aftur, þar sem segir að tilboðið
frá fyrra skeyti standi óbr., en
ábyrgð vegna eldri skulda sé
útilokuð, þar sem bankinn sé
veðhafi í eigninni og afurðum
hennar. Skeytinu lýkur þannig:
„Bendum vér á fyrirsjáanlegt
tjón vegna innheimtuaðgerða
yðar og áskiljum okkur allan
rétt til bótakröfu á hendur yð-
ur”.
„Ég hef rætt við nokkra
starfsbræður mina um þetta
mál, og okkur þykir það öllum
hiö merkilegasta”, sagði
Jóhann rafveitustjóri. „Ef þú
færð að geyma kjötlæri hjá
kunningja þinum, og hann borg-
ar ekki rafmagnið, svo lokað er
fyrir hjá honum og lærið
skemmist — átt þú þá bótakröfu
á hendur rafveitunni, sem á
ekki aðra leið til að vernda sölu-
vöru sina en að hætta afhend-
ingu hennar, þegar hún fæst
ekki greidd?
Við fáum heldur ekki séð,
hvernig rafveita Njarðvikur
getur slegið striki yfir 715 þús-
und króna skuld. Ef vanskil
verða hjá okkur, sem valda þvi
að lokað verður fyrir rafmagnið
til okkar, liggja snöggtum meiri
verðmæti undir skemmdum en
hjá þessu eina húsi. Og fijá
hverjum liggur bótaskyldan
þá?”
—SH
Sisco œtlar aðeins að
tala um alþjóðamálin
Þaö voru fagnaöarfundir, þegar þeir hittust I morgun Joseph Sisco og
Einar Ágústsson. Þeir höföu kynnzt, þegar viöræöur um varnarmálin
stóöu, og nú snúa þeir sér aö ööru.
Alþjóöamál veröa umræöu-
efni dr. Joseph Siscos, aöstoöar-
utanrikisráöherra Bandarikj-
anna, og islenzkra ráöamanna.
Bandarikjamenn telja, aö engin
vandkvæöi séu óleyst milli ís-
iands og Bandaríkjanna og þvi
sé ekki þörf á umræöum um
slikt.
Sisco kom hingað i gærkvöldi.
Með honum er meðal annarra
James L. Holloway III, yfir-
flotaforingi Bandarikjanna.
Þeir verða hér i dag og á
moigun.
Þeir munu hitta helztu ráða-
menn hér, forseta Islands, ráð-
herra og þingleiðtoga. Strax i
morgun hugðist Sisco ganga á
fund forsætisráðherra, utan-
rikisráðherra og forseta ís-
lands, og hann snæðir hádegis-
verð með rikisstjórninni.
Siðdegis mun hann ræða við
utanrikismálanefnd Alþingis og
snæða kvöldverð i boði utan-
rikisráðherra.
Sisco er talinn flestum fremri
I bandarisku stjórninni, heims-
kunnur fyrir starf sitt með
Kissinger að lausn heimsvanda-
málanna. Hann hefur verið að-
stoðar utanrikisráðherra um
árabil og einkum fengizt við mál
Mið-Austurlanda og Suðaustur-
Asiu, þau mál, sem verið hafa
einna erfiðust.Hann hefur verið
fulltrúi Bandarikjanna á alls-
herjarþingi og i öryggisráði
Sameinuðu þjóðanna. James L.
Holloway tók við sinni stöðu i
júli siöastliðnum.
—HH
SJOMENN
VILJA
20-30
PRÓSENT
Sjómenn telja sig þurfa aö
minnsta kosti 20-30 prósent kaup-
hækkun til aö bæta upp þaö, sem
tapazt hefur i launum á árinu.
Þetta var niðurstaða þings
Sjómannasambands íslands um
helgina. Kosin var 7 manna nefnd
til að annast samninga við vinnu-
veitendur. Nefndin mun fyrst
samræma kröfur einstakra sjó-
mannafélaga.
Aherzlu skal leggja á að bæta
hag hinna lægst launuðu I stétt-
inni.
— HH.
öryggi brann
yfir í
Njarðvíkunum
Eidur kom upp i spennistöö viö
Borgarveg I Njarövikunum rétt
fyrir klukkan 3 i gær. Þar haföi
öryggi I háspennubúnaöi brunniö
yfir og gosiö upp mikill reykur.
Slökkviliðið var kvatt á staðinn
og fékk það ráðið niðurlögum
eldsins, áður en hann varð mjög
megn.
Einhverjar truflanir urðu á raf-
magni I Njarðvikunum I gær af
þessum sökum. —jr
15 DAGAR
TIL JÓLA
„Bezt að fá úr því skorið,
hvort þeir eigi Húnaflóa"
— segir Kóri Snorrason hjú Sœrúnu h/f
„Þaö er rétt aö fá úr þvi skor-
iö, hvort llúnaflói eigi aö teijast
eign fjögurra verksmiðja. (Jr
þvi fæst skoriö ef skipstjórarnir
á Aöalbjörgu og Nökkva veröa
teknir fyrir dóm, eins og ótind-
ir veiðiþjófar,” sagði Kári
Snorrason, einn eiganda rækju-
vinnslustöðvarinnar Særúnar á
Blönduósi, þegar Visir náði tali
af honum skömmu fyrir hádegi i
dag.
„Ráðuneytið hefur hótað þvi,
að setja sýslumann i málið ef
Aðalbjörg og Nökkvi halda
áfram rækjuveiðum á Húna-
flóa,” hélt Kári áfram. „Það er
þá bara bezt að málið hafi þann
gang til að úrskurður fáist i
fyrrnefndu spursmáli.”
Kvað Kári bátana tvo liggja
inni þessa stundina vegna
brælu. „Við erum ennþá að
vinna úr aflanum, sem þeir
lönduðu hér á Blönduósi á
laugardaginn. Það voru um 4
tonn,” sagði Kári. „1 fyrra
skiptið voru það ekki nema 15
kassar, sem við fengum senda
frá bátunum eftir að þeir höfðu
landað á Hvammstanga. Það
var bara smáræði, sem við
fengum til að stilla vélarnar,
sem tóku strax vel við sér,”
sagði Kári að lokum. _v>jm