Vísir


Vísir - 10.01.1975, Qupperneq 1

Vísir - 10.01.1975, Qupperneq 1
65.árg. — Föstudagur 10 janúar 1975 — 8. tbl. UNNU FJÓRAR MILLJÓNIR Það er ástæða til að gleðjast. Páll H. Pálsson forstjöri Happ- drættis Háskóla islands er hér á tali við heppin hjón, Kristján Sveinsson, skipstjóra á björgunarskipinu Goðanum, og Valgerði Hjartardóttur, eigin- konu hans. Þau unnu 4 milljónir i happdrættinu fyrir siðustu jól. — Sjá baksfðu. SM YGLIÐ I KCFLAVIK UPP Á 30 MILUÓNIR — stœrsta smyglmál, sem lögreglan hefur rannsakað Smyglhringurinn# sem tollgæzlan á Keflavikur- flugvelli og lögreglan í Keflavík eru að afhjúpa, er sá afkastamesti í ís- landssögunni. Heildarupphæö áfengisins, sem hringnum hefur tekizt að smygla til landsins, nálgast 30 milljónir á útsöluveröi. Ekki mun aðeins um innflutn- ing á spira að ræða, heldur einnig öðrum tegundum áfengis. Visir hefur fregnað að sá hluti sé ekki minni en spirinn. Allt bendir til, að viðtæk sam- vinna hafi verið með mönnum er- lendis, sjómönnum sem fluttu varninginn til landsins, og mönn- um, sem dreifðu honum til sölu. Meirihluta áfengisins var smyglað til landsins á þann hátt, að þvi var fleygt fyrir borð á skipum, sem voru að koma frá út- löndum. Þetta var gert skammt undan ströndum. Siðan komu bát- ar út og sóttu áfengið, þar sem þaö flaut á sjónum. — ÓH. Hjónaskilnaðir — á franska vísu — sjá bls. 6 „LENGSTA FLUGBRAUT LANDSINS ER 37 KÍLÓMETRAR — en bílaumferðin skapar þó vissa hœttu — baksíða Páfagaukur í „aðflugi"á flugvellinum — bls. 3 Fœðingar: FYRSTU KLUKKUTÍMARNIR SKIPTA MESTU FYRIR BARNIÐ — INN-síða á bls. 7 Það eru ekki bara hestar sem eru tjóðraðir Þótt hesturinn sé ekki leng- ur helzta farartæki þjóöarinn- ar, virðist tjóðurbandið enn við lýði. Hestarnir þóttu til alls visir ótjóöraðir, en að flugmenn tjóðri flughesta sina við staura hlýtur þó að teljast til undan- tekninga. Ekki hefur enn vitnazt, að menn gefi flugvélum sinum gras að bita, en einn hefur aftur á mót tjóðraö vél sina við staur úti á Reykja vikurflugvelli. Þessum farartækjum nútimans er vist til alls treystandi, hefur eigandinn hugsað og þvi tjóðrað vél sina kirfilega við staur. Véiin er raunar gamla Dúfan, sem fræg varð, á meöan hún var i eigu Björns heitins Pálssonar. Nú er hún ekki svipur hjá sjón lengur, enda hlutverk hennar nú eingöngu að vera varahlutalag- er fyrir aðra vél sömu tegundar. — JB. Ljósm. Bragi. ,,Þú ferð ekki langt góurinn,” héfur flugmaðurinn sennilega sagt og tjóörað flugvélina sina aö gömlum og góðum sið. VALDATAFL MILLI OG JÖRGENSENS HARTLINGS — sjó úrslit dönsku kosn- inganna ó bls. 5 „Stóra happdrœttið", loðnuveiðin: ÞRÁSKÁK UM VERÐIÐ - SKUGGALEGAR SÖLUHORFUR „Stóra happdrættið”, loðnuveiðin, er farið af stað, en enginn loðnu- veiðimaður veit, hvað verðið verður, og eng- inn veit, hvort loðnu- afurðir seljast eða á hvaða verði. „Það er hverjum manni ljóst að ekki verður auðvelt að ná samkomulagi,” sagði Jón Sigurðsson, formaður yfir- nefndar, i viðtali við blaðið. Verðið á loðnumjöli, reiknað i erlendri mynt, er talið hafa lækkað um nálægt helming frá i fyrra. Gengislækkun krónunnar bætir nokkuð úr skák, en þó að- eins að litlu leyti ef til vill 1/4- 1/3. Fyrsti fundur i yfirnefnd um þetta mál var i gær. Menn telja vist, að þráskák verði. Sennileg- ast er talið, að verðið verði ákveðið til bráðabirgða um skamman tima hverju sinni yfir vertiðina. Sveinn Finnsson, verðlags- ráði sjávarútvegsins, tjáði blað- inu, að fundir um loðnuverðið hefðu hafizt þar um miðjan desember. „Það er ekki alveg ljóst i tölum, hver ágreiningur- inn er,” sagði Sveinn. Seljendur og kaupendur greinir mikið á, þar sem verðið i fyrra var mið- að við 9,50 dollara fyrir prótein- einingu i mjöli við sölu erlendis, en þetta verð hefur fallið um helming. Við þessar aðstæður vilja kaupendur loðnu, verk- smiðjurnar, að verðið lækki, en seljendur, útgerðin, eiga erfitt með að una lækkun i þjóöfélagi geysilegrar verðbólgu. Þetta er erfiður hnútur. Sveinn sagði, að ágreiningur væri einnig um mat á aðstæð- um. Verðlagsráð visaði málinu til yfirnefndar, þegar engin leið fannst til samkomulags i ráð- inu. Alger óvissa er um verðið á loðnumjöli og útflytjendur þess vondaufir um breytingu til batnaöar. Þá eru horfur skuggalegar um sölu á frystri loðnu til Japan. Japanir eiga miklar birgðir loðnuafurða og þeir gera strangari kröfur en áður um hrognainnihald frystu loðnunnar. Þangað eru nú konn- ir tveir fulltrúar frá SÍS og full- trúar Sölumiðstöðvarinnar. 1 fyrra keyptu Japanir frysta loönu fyrir einn milljarð króna. —HH SJÁ LEIÐARA UM LOÐNUNA Á BLS. 6 t

x

Vísir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.