Vísir - 10.01.1975, Blaðsíða 5
Vísir. Föstudagur 10. janúar 1975.
5
ORGUN UTLÖND I MORGUN UTLOND I MORGUN UTLÖND
Umsjón Guðmundur Pétursson
Valdaströgl nú framundan
hjá Hartling og Jörgensen
Ekki urðu kosningarn-
ar í Danmörku í gær til
þess að glæða vonir hjá
Dönum um> að mynda
mætti öfluga ríkisstjórn/
sem tekizt gæti á við
efnahagsvanda þjóðar-
innar. Er þingið eftir sem
áður margklofið milli 10
f lokka.
Þótt frjálslyndir hafi unniö
stórsigur og nær tvöfaldað at-
kvæðamagnið frá þvi i des. ’73
og stærsti flokkurinn, sósial-
demókratar, bættiviðsig — eins
og almennt hefði verið spáð fyr-
ir kosnirigarnar — þá sýnast
báðir of litlir til þess aö geta af-
stýrt stjórnarkreppu. — Fram-
undan eru þvi viöræður millli
flokka um myndun stjórnar, og
gætu þær dregizt nokkrar vikur.
Fyrst og fremst er litið á ilr-
slitin sem mikinn persónulegan
sigur fyrir Poul Hartling for-
sætisráðherra, sem i siðasta
mánuði boðaöi kosningarnar,
þegar tillögur hans i efnahags-
málum fengu ekki hljómgrunn
hjá meirihluta þingsins. —
Hann vildi veröstöðvun i eitt ár
og frystingu launa á meðan.
Kosningabaráttan gekk siöan
út á þetta. ,
Kosningaundirbúningurinn
var dauflegur og sýndist litill
áhugi meðal almennings, þrátt
fyrir að kosið væri um, hvað til
Það fer vel á með þeim Poul
Hartling forsætisráðherra og
Anker Jörgensen. Hartling er að
óska leiðtoga sósialdemókrata
til hamingju með úrslit
kosninganna I gær, en þau hafa
flestir lagt út sem persónulegan
sigur fyrir Hartling sjálfan. —
Jörgensen hefur sagt I áheyrn
blaðamanna, að hann telji, að
Hartling beri að segja af sér, og
feia eigi öðrum að reyna að
mynda stjórn.
bragðs skyldi taka gegn 16% ár-
legri verðbólgu og 12% atvinnu-
leysi.
Kom mönnum þvi nokkuð á
óvart, þegar kjörsóknin reynd-
ist vera 88,2%.
Vart höfðu úrslitin fyrr legið
fyrir en leiðtogar nokkurra
hægri-og miðflokkanna skoruðu
á Hartling að jafna ágreining
sinn við Jörgensen, svo að unnt
væri að mynda stjórn frjáls-
lyndra og sósialdemókrata.
Hartling hefur þó látið á sér
skilja, að hann vilji leitast eftir
þvi að mynda meirihluta með
ekki-sósialisku flokkunum.
Hefjast viðræöur þeirra um
helgina.
Fyrirsjáanlega getur Hart-
ling ekki komið þessu i kring,
nema þá með stuðningi Glist-
rups og Framfaraflokksins. —
Það þykir nokkuð kaldhæðnis-
legt, þvi að Hartling hafnaði
skilyrðum Glistrups á sinum
tima, sem hinn siðarnefndi
setti, þegar hann bauð Hartling
stuðning Framfaraflokksins við
verðstöðvunarstefnu frjáls-
lyndra. Hefði Hartling gengið að
þeim þá, hefði ekki komið til
kosninganna.
Framfaraflokknum hafði ver-
ið spáö miklu afhroði i þessum
kosningum vegna sundurþykkju
innbyrðis og skugga skattsvika-
málaferla yfir Glistrup. Flokk-
urinn tapaði þó aðeins fjórum
þingsætum, og þar af tveim
vegna þess, að tveir þingmenn
hans klufu sig úr flokknum og
buöu fram óháðir.
Þótt atkvæöamagnið hafi ögn
sveiflazt meira til vinstri i kosn-
ingunum, þá hefur valdahlut-
fallið á þinginu litið breytzt frá
þeirri ringulreið, sem myndað-
ist við úrslitin 1973.
í bræði sinni vegna hárra
skatta hlupust kjósendur undan
merkjum gömlu flokkanna og
létu ýmis klofningsframboö
hafa atkvæði sln, svo að tala
þingflokkanna tvöfaldaöist.
Þeir urðu tiu.
Fréttaskýrendur i Danmörku
eru þeirrar trúar, að framundan
sé valdatafl milli Jörgensens og
Hartlings, og það kunni að leiða
til þess, að efna verði áður en
varir til nýrra kosninga.
Úrslitin i dönsku þingkosningunum
i gær:
% Þingsæti
% 1973 Nú Aður
Sósial demókr. 30,0 25,6 53 46
Sósial frjáisi. 7,1 11,2 13 20
ihaidsfl. 5,5 9,2 10 16
Justice 1,8 2,9 0 5
Sósialiski þjóðafl. 4,9 6,0 9 ii
Kommúnist. 4,2 3,6 7 6
Miödemókratar 2,2 7,8 4 14
Kristil. 5,3 4,0 9 7
Frjálsl. 23,3 12,3 42 22
Vinstri sósial. 2,1 1,5 4 0
Framfara flokkur 13,6 15,9 24 28
CIA sakað
um iðnað-
arnjósnir
Enn einni ásökuninni hefur ver-
ið beint að CIA, leyniþjónustu
Bandarikjanna. Er hún nú sökuð
um aö hafa staðið að iðnaðar-
njósnum.
Richard Schweicker, þingmað-
ur repúblikana I Pennsylvaniu,
hefur krafizt þess, að þingið láti
rannsaka, hvað hæft sé i þessu.
Þingmaðurinn hefur lagt fram
leyndarskjal frá CIA frá þvi 2.
des. 1974, þar sem þess er farið á
leit við ýmis bandarisk fyrirtæki,
að þau taki þátt i eins árs upp-
lýsingaöflun um almennings-
vagnakerfi I Bretlandi, Vestur-
Þýzkalandi, Frakklandi, Japan,
Kanada og Sovétrikjunum. — A
þetta að taka til járnbrautarkerfa
aðallega.
I skjalinu er sagt, að miklar
tækniframfarir hafi orðið á þessu
sviði hjá öðrum þjóðum. Er sagt,
að könnun þessi sé til þess að
grafast fyrir um þá tækniþróun
erlendra rikja, sem veiti
Bandarikjunum hvað mesta sam-
keppni.
Þetta tillag þingmannsins kem-
ur einmitt á þeirri stundu, sem
sérstök rannsóknarnefnd forset-
ans er i þann veginn að fara að
kanna starfshætti CIA, sem sögð
er hafa stundað persónunjósnir i
pólitisku augnamiði undir Nixon-
stjórninni.
Einn af eldri starfsmönnum
dómsmálaráðuneytisins, James
nokkur Devine, skýrði frá þvi I
gær, að hann og aðstoðarmaður
hans hafi árið 1970 látið CIA hafa
lista yfir 9000 Bandarikjamenn,
sem voru andvigir Vietnamstrlð-
inu. Maðurinn sagði, að CIA hafi
verið falið að hafa gætur á þess-
um mönnum, þegar þeir væru er-
lendis.
NBC-útvarpsstöðin sagði i gær-
kvöldi, aö þessi listi hefði geymt
nöfn 12000 Bandarikjamanna, en
ekki 9000. Sagði útvárpið, aö hér
væri ekki um að ræða sama
nafnalistann, sem New York
Times skýrði frá á dögunum, en
þar var talað um 10.000 Banda-
rikjamenn.
/
Kort af höfninni I Hanstholm, sem byggð var út frá sléttri sand-
ströndinni út I Noröursjó. Pólski togarinn var á ytri höfninni með
laskaö stýri.
Fórust á
ytri höfn
Hanstholm
Fimm menn af áhöfn
pólsks 650 lesta togara
drukknuðu, þegar fár-
viðri við Jótlandsstrend-
ur kastaði togaranum
upp að steinsteyptum
brimgörðum ytri hafn-
arinnar i Hanstholm.
Fjögurra manna til við-
bótar er saknað.
Með þyrlum tókst björgunar-
sveitum að ná 17 mönnum frá
borði togarans „Brbra”. Tveim
mönnum tókst að klifra upp á
brimgrjótinn og bjargast af eigin
rammleik i land.
Þetta er fyrsta sjóslysiö I höfn-
inni i Hanstholm, sem gerö var i
algerri hafnleysu á sendinni norö-
vesturströnd Jótlands.
Togarinn var vélarvana og
hékk hann I slefi aftan I dráttar-
skipi, sem var að draga hann til
hafnar i Hanstholm i vonzku-
veðri, þegar svona tókst til.
Brezkur fiskibátur fórst I nótt I
þessu sama veðri. Sökk hann út af
Farneeyjum, sem eru við norð-
austurströnd Englands.
Norski báturinn „Innvær” (500
lestir) bjargaði sex manna áhöfn
brezka bátsins, en hann hafði sent
út neyðarskeyti.