Tíminn - 19.06.1966, Blaðsíða 1
136. tbl. — Sunnudagur 19. júní 1966 — 50. árg.
Frá barnaskenuntuninni á Arnarhóli. Myndin er tekin ofan frá styttu Ingólfs Arnarsonar og gefur til kynna hinn geysilega mannfjölda sem var þarna. (Tímamyndir Kári).
Fagurt veður á þjóðhátíðinni um allt land nema á Austfjörðum:
KJ-Reykjavík, laugardag.
Sjaldan hefur viðrað cins vel til hátíðalialda á 17. júní núna siðustu
árin og í gær, en jafnframt verður að segja þá sorgarsögu að sjahl '
an eða aldrei hefur verið jafnmikið um ölvun og ólæti á lýðveldis-
daginn í höfuðborginni, er líða tók á kvöldið og að lokum hátíðahald-
anna. Veður var einnig gott víðast hvar á landinu nema á Austfjörð-
um, þar sem útihátíðahöld lögðust að mestu niður vegna ausundi
rigningar. Fjölmenni var víðast hvar við hátíðahöldin og sums staðar
úti á landi bar mikið á ölvun eins og í Reylcjavík.
Blaðið hafði samband við frétia I stiga hiti þegar heitast var, þerri;
ritara sína á ísafirði. Akureyri, | dropar komu að vísu aðeins upp j
Seyðisfirði. Neskaupstað, Vestm., j úr hádeginu, en það var ekkert j
Keflavík, Hafnarfirði og Kópa- j sem orð er á gerandi. j
vogi, og fara frásagnir þeirra af Mikil þo'ka iagðist yfir Reykja
hátíðahöldunum hér á eftir. vík um kvöldið, sem er freJxar ó-
Veðrið var mjög gott allan dag i venjulegt, og sást á tímabili varla
inn í Reykjavík, sólskin og 15 • milli enda á hátíðarsvæðinu.
Mikil þoka um allt land í gær: !
Flugvellir lokuðust
GÞE-Reykjavík, laugardag.
í gærkvöldi, nótt og I morgun
var þoka um næstum allt land og
hafa flugsamgöngur teppzt nokk-
uð af þeim sökum. Flugvél Flug-
félags íslands er átti að lenda
á Reykjavíkurflugvelli síðla í gær-
kvöldi, þurfti að halda austur að
Egilsstöðum. I.oftleiðavél, er var
á leið frá New York til Reykja-
víkur í nótt, þurfti að lenda í
Prestvík. Flugfélag íslands hafði
áætlað 17 innanlandsferðir í dag,
en rétt f.vrir hádegi í dag, var eng-
in vél lögð af stað. Áætlun Loft-
leiða hefur hins vegar haldizt
óbreytt í morgun.
Samkvæmt upplýsingum Veður-1
stofunnar var í gær hafátt fyrir i
norðan og mikil þoka. Hór sunnan
lands mun þokan hins vegar hafa
stafað af því, að snögglega létti
til í gær effir mikla rigningartíð.
Raki var í lofti nær jörðu og und-
ir slíkum kringumstæðum er oft
hætta á þoku. Hér sunnanlands
mun að öllum líkindum draga úr
þokunni í dag, en hætta er á því,
að hún skelli á aftur, er líða tekur
á kvöldið. Þoka var um mestan
liluta landsins í nótt og í morgun.
Þó var bjartviðri fyrir austan fjall
og á Rangárvöllum var 15 stiga
hiti í morgun.
Dagskrá hátíðarhaldanna fór,
fram samkvæmt áætlun, og hófst.
að venju með samhljómi kirkju-1
'klukkna, en síðan lagði frú Auð-
ur Auðuns blómsveig að leiði
Jóns Sigurðssonar í gamla kirkju !
garðinum. Séra Þorsteinn L. Jóns
son predikaði í Dómkirkjunni, og j
að guðsþjónusfUHni lokinni gengu
forseti íslands herra Á&geir Ás
geirsson- og forsætisráðherra dr j
Bjarni Benediiktsson að syttu Jóns
Sigurð&sonar, þar sem forsetinn
lagði blómsveig á fótstall stytt
unnar frá íslenzku þjóðin’ni. Var
það falleg athöfn og virðuleg að
vanda, og eiginlega hápunktur
dagsins. Forsætisráðherra flutti
síðan ræðu sína af svölum AI-
þingishúsisins, Benedikrt Gröndal al
þinigismaður tilkynnti af svölunum
að gengið hefði verið frá gjöf
inni á húsi Jóns Sigurðssonar í
Kaupmannahöfn og var gefandinn
Carl Sæmundsen hylltur með
miklu lófaklappi af mannfjöldan
um við Austurvöll- Fjallkonan
Margrét Guðimundsdóttir leikkona
flutti ljóð eftir Guðmund 'Böðvars
son, og gefak síðan út í Alþingis
hússigarðinn að venju þar sem
tugir ljósimiyndara biðu þess að
mynda hana.
Barnaskemmtun fór fram á
Arnarhóíi, og hefur sjaldan verið
Framhald á bls. 14
Forseti íslands og forsætisráðherra ganga frá styttu Jóns Sigurðssonar. Skátar standa heiðursvörð við
stíginn.