Tíminn - 19.06.1966, Blaðsíða 16

Tíminn - 19.06.1966, Blaðsíða 16
TARSIS KEMUR HINCAÐ í DAG Rússneski rithöfundurinn Val- eriy Tarsis kemur hingað til lands í dag, sunnudag, í boði Stúd- entafélags Reykjavíkur og Al- menna bókafélagsins. Tarsis dvelst hér þangað til á fimmtudagsmorg- un, en þá fer hann til Evrópu. Valeriy Tarsis kemur hingað frá Bandaríkjunum, þar sem hann hefur haldið fjölda fyrirlestra víða um landið. Nú síðast sat hann PENJþingið í New York. TARSIS Á meðan Valeriy Tarsis dvelst hér mun hann flytja fyrirlestur á vegum Stúdentafélagsins og svara fyrirspurnum. Fyrirlestur- inn flytur hann í Sigtúni á þriðju- dagskvöldið oig hefst hann kl. 9 síðdegis. Valeriy Tarsis varð heimskunn- ur er hann kom til London sl. vetur í boði Collins-forlagsins. Höfðu áður komið út eftir hann i tvær bækur á Vesturlöndum, sem I komið hafði verið út úr Rússlandi í handritum. Vöktu bækur hans mikla athygli, einkum sú síðari, þar sem hann fjallar um persónur á geðveikrahæli. Er skýrt frá því í bókinni, hvernig menn eru settir á slík hæli vegna gagnrýni á ríkj- andi skipulag. Sjálfur getur Val- eriy talað af nokkurri reynslu um þetta, þar sem hann hefur setið inni í slíku hæli um tíma vegna skoðana sinna. Síðastliðinn vetur birti Tíminn framihaldssögu eftir Tarsis. Var það „Deild 7“, sem hann skrifaði eftir vistina í geðveikrahælinu. Um það leyti, sem Tíminn hóf birtingu sögunnar kom hún út hjá Collins-forlaginu 1 London og síðan í öðrum löndum Evrópu. Sagan vakti eðlilega mikla athygli enda lýsir hún næsta óvenjulegum aðstæðum. í sambandi við útkomu bókarinnar hjá Collins, bauð for- lagið rithöfundinum að koma til London. Hann þáði boðið og fékk fararleyfi. Þegar hann var kominn til London sviptu sovézk yfirvöld Framhald á bls. 15 108 STÚDENTAR VORU NÚ BRAUTSKRÁÐIR FRÁ MA FB-Reykjavík, laugardag. Menntaskólanum á Akureyri var slitið við hátíðlega athöfn í Ak- ureyrarkirkju kl. hálf ellefu að morgni þess 17. júní. Að þessu sinni brautskráðust frá skólanum 108 stúdentar, og er þetta stærsti hópurinn, sem brautskráður hef- ur verið, og hefur tala stúdenta aldrei komizt yfir eitt hundrað þar áður. Stúdentar úr máladeild voru nú 73 og 35 útskrifuðust úr stærð- fræðideild. Hæstu einkunn við stúdentspróf hlaut Ríkharður Kristjánsson frá Bíldudal, 1 ágæt- iseinkunn, 9.36, Ríkharður var í stærðfræðideild. Hæstu einkunn í máladeild hlaut Höskuldur Þráins son úr Mývatnssveit, 1. ágætisein- i kunn 9.35. Fulltrúar 25 ára stúdenta voru imættir við skólauppsögnina, og I mælti séra Jóhann Hlíðar úr Vest 'mannaeyjum fyrir þeirra hönd og færði skólanum að gjöf handbóka- i safr í íslenzkum fræðum, ætlað til . að vera á Testrarstofu nemenda. j Fyrir 10 ára stúdenta talaði Jósep j Þorgeirsson frá Akranesi 03 ifærði skólanum fjórar styttur eft jir Ásmund Sveinsson, Árstíðirnar. 1 Er ætlunin, að þær prýði húsa kynni skólans, að öllum líkindum setustofú' heimavistarinnar. í lok skólaslitaathafnarinnar ávarpaði skólameistari, Þórarinn Björnsson hina nýju stúdenta og þakkaði um leið gjafir, sem skól- anum höfðu bonzt 4 HNÍFJAFNIR Alf-Reykjavík. — í úrslitum í 100 m hlaupinu á 17. júní mótinu skeði sá atburður, að keppendurnir fjórir komu hníf jafnir í mark og hlutu allir sama tímann, 11.3 sek. Eftir á treystu dómarar sér ekki til að úrakurða hver hefði orðið fyrstur í mark, en í svona til- felli er sjónarmunur oft látinn ráða. Á myndinni hér að ofan, sem Ijósm. Tímans, Róbert, tók sjást hlaupararnir koma í mark. Lengst til vinstri er Ragnar Guðmundsson, Árm. og eftir myndínni að (tema er seenilegast, að haam hafl orð- ið fyrstur. Til hliðar við ha»n er Valbjöm Þorlátosson KR-, Skafti Þorgrímsson, nr. 25 og lengst til hægri er Ólafur Guð- mundsson, KR. HÚSIÐ AFHENT ALÞINGIÁ17. JÚNÍ Órtíðið hvað gert verður við hús Jéns Sigurðssonar GÞE-Reykjavík, laugardag. Bústaður Jóns Sigurðssonar for- seta við Austurvegg í Kaupmanna höfn var formlega afhentur Al- þingi við hátíðlega athöfn í Al- þinigishúsinu ki. 12 á hádegi þjöð hátíðardagsins. Gefandi, Carl Sæ- mundsen forstjóri í Kaupmanna- höfn undirritaði afsalsskjalið að viðstöddum forsetum ATþingis, Sig urði Ó. Ólafssyni forseta efri deild ar, Benedikt Gröndal varaforseta neðri deildar og Sigurði Ingimund arsyni, örðum varaforseta samein aðs þings. Auk þeirra voru viðstaddir Frið- jón Sigurðsson skrifstofustjóri Al- þingis, Pétur Sæmundsen lögfræð- ingur og Andersen lögfræðingur gefanda. Er afsalið hafði verið und irritað flutti Siguröur Ó. Ólafsson forseti neðri deildar, þakkarávarp fyrir hönd Alþinigis og því nœst gekk Benedikt Göndal varafor- seti neðri deildar út á svalir Al- þingishússins og skýrði frá gjöf- inni. Var þelta að lokinni ræðu forsætisráðherra. Tíminn hafði í dag tal af Friðjórii Sigurðssyni skrifstofustjóra Alþingis. Aðspurð- ur sagði hann, að enn hefðu ekki verið teknar neinar ráðstafanir j vörður og húsameistari ríkisins varðandi húsið, en bæði þjóðminja 'hefðu litið á það. FITUMAGNID 14-18% FB-Reykjavík, laugardag. Átján skip tilkynntu í nótt og morgun síldarleitunum á Raufar- höfn og á Dalatanga um aíla sinn, og höfðu þau samtals fengið 3120 Testir af síld. Hægviðri var á miðunum en svarta þoka. Veiði- svæðið er nú 160 m. austur af norðri frá Langan. Skipin köstuðu töluvert mikið í gærkv., en gekk erfiðlega að ná síldinni, þar sem hún var mjög stygg, og straumur var mi'ldll. Skipum er nú farið -að fjölga mi'kið á síldveiðunum, en allmargir munu þó hafa brugðið sér í hátíðarfrí í kringum 17. júní. í fyrradag var mælt fitumagn i síld úr Gullver, og var það gert á Seyðisfirði. Reyndist síldin frá | 14—18% feit. Lítið er um smásfld í síldinni, og er hún full af átu. Söltun mun hefjast á þremur sölt unarstöðvum á Raufarhöfn. Valur og Akur- eyrí í dag - KR og Akranes á morgun í dag, sunnudag, klukkan 16 leika Valur og Akureyri í 1. deild fslandsmótsins í knattspyrnu. Fer leikurinn fram á Melavellinum, þar sem Laugardalsvöllurinn er ekki enn þá talinn nægilega góð ur til að leika á. Sömuleiðis fer leikur KR og Akraness á mánu- dagskvöld (kl. 20.301 fram á Mela- vellinum. SKEMMTI- FERÐIN Hin árlega skeinmtiferð Framsóknarfélaganna í Reykjavik verður farin sunnudaginn 26. jún n. k. Að þessu sinni verður farið um Reykjanes. í meginatriðum verður farin þessi leið: Ekið verður til Keflavíkur, um Garð og Sandgerði og að Reykjancsvita. Þá verður farið til Grindavíkur og með strönd- inni til Krísuvíkur og Ilerdísarvíkur, um Selvog til Þorláks- hafnar og um Þrengslaveginn heim. Fararstjóri verður Hannes Pálsson, formaður fulltrúaráðs Framsóknarfélaganna, en leiðsögumaður Gísli Guðmundsson. en auk hans Iciðsögumenn í hverjum bíl. Miðapantanir og allar nánari upplýsingar er aö fá á skrif stofu Framsóknarfélaganna í Reyksavík. símar 15564 og 16066 Mjög mikil aðsókn hefur verið að skemmtiferðum Fram- sóknarfélaganna á undanförnum árum, svo að vissast er að menn panti scr miða hið allra fyrsta.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.