Vísir - 29.01.1975, Blaðsíða 7

Vísir - 29.01.1975, Blaðsíða 7
Vísir. Miðvikudagur 29. janúar 1975. 7 IIIMIM 1 = SÍÐAN = Umsjón: Edda Andrésdóttir 1890-1900 Hártízkan gengur í hring hér er hórtízkan fró því fyrir Krist. Síða hórið oftast vinsœlt 1860-1870 1840-1865 1914 Hártizkan fer í hring. Það sjáum við bezt á þessum skemmtilegu myndum, en hér gefur að líta hártízkuna frá því fyrir Krist. Við getum fundið margt merkiiegt út með því aó virða þessar myndir fyrir okkur. Einna athyglis- verðast er það hversu stuttan tíma stutt hár- tízka hefur verið ríkjandi á þetta löngum tíma. Það þótti næstum þvi regin- hneyksli þegar bitlahárið svokallaða fór að ryðja sér til rúms. Það er kannski ekki skritið ef við litum á myndina fyrir framan þá greiðslu, eins konar Gatsby-greiðslu, eins og sagt er i dag. En ef við förum svolitið aftur i timann sjáum við að svona stutt hár hefur ekki komið fram á sjónarsviðið áður. Siða hárið virðist alltaf hafa verið rikjandi. Um 1500 hefur hárið fengið að vaxa frjálst og virðist hið skrautlegasta, svo ekki sé nú talað um árið 700 fyrir Krist. Margar af þessum greiðslum sjáum við á götunni i dag. svo það má liklega segja, að hártizkan i dag sé nokkuð frjáls- leg. En snyrtilegt skal hárið vera. Hár getur lika verið sitt þó að það sé snyrt reglulega, enda þarf vist tæpast að segja hversu mjög reglubundin snyrting verndar hárið. Menn nota sér það lika meira i dag en áður að skreppa til rakarans og fá hárið snyrt og hafa liklega lært að það er ekki nauðsynlegt að koma snoðaður út þó að setzt sé i stólinn. Annars segja rakarar að kvenmenn hafi áhrif á hártizku karlmanna, svo sem hvað viðkemur þvi að hárið sé vel snyrt en samt ágætlega sitt. I dag er engin ein hárgreiðsla sem gildir. Menn þurfa þvi ekki að lita nákvæmlega út eins og einhver annar þó þeir vilji fylgja tizkunni. Það sem mestu máli skiptir er að finna þá greiðslu sem hæfir hverjum og einum, og það má finna með hjálp fagmanns. Hár má vera sitt, i millilengd og stutt, alveg eins og hver vill. t dag er lika hægt að fá mjög mikið gert fyrir hárið. Það er til dæmis hægt að gera rennislétt hár mjög gott með þvi að fá það blásið á rakarastofu og þannig mætti áfram halda. En hreint hár, heilbrigt hár og snyrtilegt er það sem er númer eitt. Tízkan í dag

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.