Vísir - 29.01.1975, Blaðsíða 8
Vísir. MiOvikudagur 29. janúar 1975.
Vlsir. Miövikudagur 29. janúar 1975.
Umsjón: Hallur Símonarson
Holkind kom Westl
Ham í 5. umferð!
— en Fulham og Nottingham Forest gerðu jafntefli
West Ham, 1. deildarliðið
kunna, lenti i kröppum dans gegn
Swindon úr 3. deild I ensku bikar-
keppninni i gærkvöldi. Liðin
gerðu jafntefli i Lundúnum á
laugardag — og mættust nú aftur
i Swindon. Það var spennandi
leikur. Swindon skoraði i fyrri
hálfleik — en Trevor Brooking,
enski landsliðsmaðurinn, jafnaði
Júdó-
prófessor
til
Ármanns
Prófessorinn frægi i judóinu,
Nobuaki Yamamoto, 5. dan kodo-
kan, er kominn aftur hingað til
lands og mun þjálfa á vegum Ár-
manns næstu tvo mánuðina.
Yamamoto kom á mánudags-
kvöld og er frægasti judókennari,
sem hingað hefur komið — að
sögn islcnzkra judómanna. Ilann
kom hingað frá Júgóslaviu, þar
sem hann hefur kennt að undan-
förnu. Yamamoto er íslendingum
að góðu kunnur — var hér þjálfari
um þriggja ára skeið. Þá má geta
þess, að hann er 3. dan I karate,
en leggur sérstaka áherzlu á judó
og hefur helgað sig þeirri Iþrótt.
hsim.
.í^..../....'
Hvaö, sjálfur heimsmeistarinn, Muhammad Ali, fallinn? — Já og nei
— ekki var nú fallið mikið, en hann er byrjaður að auglýsa leik sinn viö
Chuck Wepner og þetta var liður I þvi. Keppni við borgarstjóra Atlanta,
Maynard Jackson, sem gerði sér litið fyrir og „sló” kappann niður I 1,
umferð — en eftir myndinni að dæma er ekki frá, að Ali hafi meitt sig I
rófubeininu, þegar hann lét sig falla. Og sá sem stendur yfir meistaran-
um, er sjálfur Julian Bond, þingmaöur, sem „dæmdi” leikinn. Ágóöinn
af sýningunni rann til svartra Ibúa Atlanta.
i þeim slðari og fimm minútum
fyrir leikslok skoraði Pat Holland
sigurmark West Ham.
Þarmeð er West Ham kom i 5.
umferð — 16 liða úrslit — og leik-
ur þá, 15. febrúar, á heimavelli
gegn QPR. Aðeins einn annar
leikur i bikarkeppninni var háður
i gær. Fulham og Nottm. Forest
léku i Lundúnum — fresta varð
leik liðanna á laugardag — og þar
var ekkert mark skorað. Forest ,
lið Brian Clough, ætti þvi að hafa
alla möguleika að komast áfram i
5. umferð. Leikur aftur gegn Ful-
ham á heimavelli og sigurvegar-
inn i þeirri viðureign leikur á
Goodison Park i Liverpool gegn
Everton.
Fresta varð i gærkvöldi leik
Wimbledon og ensku meistar-
anna, Leeds, — og leik
Arsenal-Coventry — vegna bleytu
á völlunum. Fyrirhugað er að
leikið verði á Highbury i kvöld
(Arsenal-Coventry), en leik
Wimbledon og Leeds hefur verið
frestað til 10. febrúar. Þá verður
leikið á Selhurst Park — leikvelli
Crystal Palace i Suður-Lundún-
um, skammt frá Wimbledon, þar
sem ekki er hægt að gæta öryggis
áhorfenda nægilega á leikvellin-
um i Wimbledon troðfullum.
Fjölmörgum deildaleikjum,
sem vera áttu i gærkvöldi á Eng-
landi, var frestað — en á Skot-
landi léku Aidrie og Morton i
bikarkeppninni skozku. Jafntefli
varð án þess mark væri skorað —
en á laugardag varð að fresta
viðureign liðanna vegna veðurs.
Nú, undir hádegi kom sú frétt
frá Reuter að leik Wimbledon og
Leeds hefði verið frestað til 10.
febrúar svo skozku landsliðs-
mennirnir fimm i Leeds-liðinu —
Billy Bremner, David Harway,
Joe Jordan, Peter Lorimer og
Gordon McQueen — gætu farið til
Spánar nk. mánudag i sambandi
við Evrópuleik Spánar og Skot-
lands. —hsim.
Twente Enschede sigraði efsta
liöiö I 1. deildinni hollenzku, PSV
Eindhoven, 2-1 I leik I 1. deild I
Enschede I gærkvöldi. Það er
fyrsti tapleikur PSV I deildinni.
A Evrópumeistaramótinu I list-
hlaupum á skautum, sem hófst I
Kaupmannahöfn I gær, vann
Sergei Volkov, Sovétrikjunum,
fyrstu gullverölaunin I æfingum
karla. Landi hans Kovalev varö
annar og John Curry, Englandi,
þriöji. Keppnin mun standa I
fimm daga — og I dag verða
frjálsar æfingar. Þá er talið, aö
hinn 25 ára Curry komist upp
fyrir þá sovézku I stigakeppninni.
1 tvenndarkeppninni er skauta-
fólkiö fræga, Alexander Zaitsev
og Irene Rodnina, Sovétrlkjun-
um, efst eftir fyrsta daginn meö
35.46 stig, en österreich og
Kermer, Austur-Þýzkalandi,
voru I ööru sæti meö 34.75 stig.
Rodnina hefur verið Evrópu- og
heimsmeistari slðustu sex árin —
og Zaitsev veriö félagi hennar tvö
slöustu árin. — hslm.
Það var slœmt brot *
Meiðslin, sem júdókappinn Sig-
urður Kr. Jóhannsson varð fyrir I
júdókeppninni á sunnudaginn,
voru mun alvarlegri en við sögð-
um frá i blaðinu á mánudag.
Við vorum á staðnum, þegar ó-
happiö varð, og heyrðum eins og
margir aðrir I húsinu, að það var
eitthvað, sem brotnaöi, er fótur-
inn bögglaðist undir Sigurði I
fyrstu glimu hans.
Um kvöldið var okkur sagt, aö
þetta hefði ekki verið brot, heldur
mjög slæm tognun, en þó var það
ekki fullkannað. En það var ann-
að, sem kom i ljós á spitalanum.
Sperrileggurinn var I sundur og
sömuleiðis öll liðböndin, og tók
langan tima að gera við þetta.
Mun Sigurður eiga I þessu I þrjá
til fjóra mánuði, þar af þarf hann
að vera cinar sex vikur i gifsi.
Hann kemur þvi ekki nálægt júdó
i vetur, og er það mikið áfall fyrir
júdólandsliðið okkar.
Var hann einn bezti maður
þess, en menn höfðu gert sér von-
ir um, að nteðSigurð & Co hefðum
við góða möguleika á gullverð-
laununum á Norðurlandamótinu i
sveitakeppni, sem fram á að fara
i Laugardalshöllinni um miöjan
april. Hann var i liðinu, sem náði
silfurverðlaununum I siðasta
NM-móti, og verður erfitt að fylla
áans skarð nú. —klp—
Þau, sem mættu I hófiö I gær til aö taka viö viðurkenningum slnum frá Iþrótta-
blaöinu. Fremri röö frá vinstri: Þórunn Alfreðsdóttir (sund) , Sigurður
Thorarensen (golf), Lovlsa Sigurðardóttir (badminton). Aftari röö: Jóhann
Briem forstjóri útgáfufyrirtækisins. Hjálmur Sigurösson (giima), Siguröur T.
Sigurðsson (fimleikar), Halldór Jónsson (blak), Jóhannes Eðvaldsson (knatt-
spyrna), Kristinn Stefánsson (körfuknattleikur), Arni Þór Helgason (lyftingar),
Daniel Friöriksson (siglingar), Jón Sigurösson (borðtennis), Erlendur Valdi-
marsson (frjálsar íþróttir) og GIsli Halldórsson forseti ÍSl. A myndina vantar:
Sigurð Kr. Jóhannsson (judó), Viðar Simonarson (handknattleik) og Magnús
Eiriksson (skiði). Ljósmynd Bj.Bj.
Þeir beztu - í hverri grein
* 0
Utnefning Iþróttablaðsins og sérsambandanna ó bezta íþróttafólkinu í hverri grein
í fyrra tók iþróttablaðið I samstarfi
við sérsamböndin innan ÍSt upp á
þeirri nýbreytni að tilnefna iþrótta-
mann ársins I hverri iþróttagrein.
Voru öll sérsamböndin — 15 að tölu —
beðin um að útnefna sinn mann, og
tóku þau öll mjög vel I það, enda gafst
þeim þar með tækifæri til að heiðra sitt
fólk fyrir afrek eða vel unnin störf.
t gær bauð ISI og Frjálst Framtak,
sem sér um útgáfuna á Iþróttablaðinu
þvi iþróttafólki, sem valið var fyrir
afrek eða störf i fyrra, i hóf, þar sem
verðlaunin voru afhent. Auk þeirra
var þar fjöldi annarra gesta frá við-
komandi félögum og sérsamböndun-
um.
Jóhann Briem forstjóri FF afhenti
verðlaunin, en þau fengu eftirtalið
iþróttafólk:
Skiði: Magnús Eiriksson, Skiðafélagi
Fljótamanna.
Blak: Halldór Jónsson, IS.
Siglingar: Daniel Friðriksson, Ými
Það var öllu meira en smátognun, sem fékk Sigurö Kr. Jóhannsson til
aö engjast af kvölum 1 júdókeppninni á sunnudaginn. Fóturinn var
brotinn og öll liöbönd tætt Isundur. Ljósmynd Bj.Bj.
Borðtennis: Jón Sigurðsson, UMF
Keflavík
Lyftingar: Arni Þór Helgason, KR
Badminton: Lovisa Sigurðardóttir,
TBR
Sund: Þórunn Alfreðsdóttir, Ægi
Fimleikar: Sigurður T. Sigurðsson,
KR
Körfuknattl.: Kristinn Stefánsson, KR
Judó: Sigurður Kr. Jóhannsson, JFR
Knattspyrna: Jóhannes Eðvaldsson,
Val
Golf: Sigurður Thorarensen, GK
Glima: Hjálmur Sigurðsson, Vikverja
Handknattleikur: Viðar Simonarson,
FH
Frjálsar iþr.: Erlendur Valdimarsson,
IR
Aðeins eitt sérsamband —
Handknattleikssambandið — valdi
ekki mann, og þess i stað gerðu þeir
Hannes Þ. Sigurðsson og Steinar J.
Lúðviksson það, og völdu þeir Viðar/
Simonarson FH. —-klp-
Aðalfundur
Breiðabliks
Aðalfundur Breiðabliks i Kópa-
vogi verður haldinn nk. föstu-
dagskvöld, og hefst hann kl. 20.30
I félagsheimili Kópavogs. Venju-
leg aðalfundarstörf fara fram.
Félagar eru hvattir til að mæta
timanlega.
Aðalfundur hjá Val
Aðalfundur Knattspyrnu-
deildar Vals verður i kvöld og
hefst kl. 20.30 i Valsheimilinu,
Hliðarenda.
Stefán í pressuna
Þaö er I kvöld klukkan 20.15,
sem fyrsti stórleikurinn af tveim
hefst I Laugardalshöllinni. Þá
storma þar inn kvennalandsliöiö
I handknattleik, sem m.a. sigraöi
stórveldið Bandarlkin I tveim
landsleikjum fyrir nokkru, og
karlalandsliöiö I knattspyrnu,
sem geröi jafntefliö viö stórveldiö
Austur-Þýzkaland I haust.
I báðum herbúðum er mikið
brallað þessa stundina, en hver
útkoman verður kemur i ljós,
þegar stjörnurnar mæta. Ef eitt-
hvað fer úrskeiðis mun Ómar
Ragnarsson „trimmari” vera til
staðar og hressa upp á mann-
skapinn, og verður það áreiðan-
lega ekki til að skemma fyrir
neinum.
Siðari stórleikurinn verður á
milli NM-liðsins, sem Birgir
Björnsson hefur valið, og
„pressuliðsins”, sem nokkrir
Iþróttafréttamenn völdu. Sú
breyting hefur verið gerð á press-
unni, að Stefán Jónsson kemur
inn fyrir Hörð Sigmarsson, og
einnig hefur Asgeir Eliasson IR
verið boðaður á leikinn, sem á að
hefjast um klukkan niu. — klp —
Svíar óttost eld-
gos er þeir rnœta
íslendingum á NM
Hljóta að vera með „ofsalega" skotmenn fyrst Jón Hjaltalín
Magnússon kemst ekki i liðið hjá þeim, segir sœnski þjálfarinn
Sviar gera sér góöar vonir um
aö sigra I Noröurlandakeppninni I
handknattleik karla I Danmörku I
næstu viku. Eina liöiö sem þeir
óttast er Islenzka liöiö, sem þeir
eiga aö mæta i undankeppninni.
Aftur á móti segjast þeir hvorki’
óttast Dani né Norömenn I úr-
slitaleiknum — ef þeir þá komast
I úrslit.
Sænski einvaldurinn Beril
Andersen, sagði i viðtali við
Skánska Dagbladet á dög-
unum, að hann óttaðist „eldgos” .
. . vulkanutbrott . . . þegar hans
menn mættu íslendingum.
„Um Færeyingana veit ég ekki
mikið. Þó hefur mér verið sagt,
að þeir séu eins og miðlungsgott
1. deildarlið, sem við skulum ekki
vanmeta. En með eðlilegum leik
ættum við að geta unnið þá nokk-
uð örugglega”, sagði hann.
„Aftur á móti getum við auð-
veldlega lent i vandræðum með
íslendingana. Þeir geta brotizt út
eins og eldgos, og með alla sina
skotmenn komið i veg fyrir að við
komumst i úrslitin. I úrslita-
leikjunum i Kaupmannahöfn 5.
marz getum við þvi alveg eins
þurft að leika um þriðja sætið við
Norðmenn eða Dani eins og fyrsta
sætið”.
1 öðru blaði segir þjálfarinn
Dan-Olof Lindqvist, að hann óttist
islenzka liðið mest af öllu. —
„Þeir hafa feiknalega góða skot-
menn en eru likamlega sterkir.
Við höfum eitt gott dæmi um það
hér i Sviþjóð — Jón Magnússon
Lugi — sem er einn bezti skot-
maðurinn i sænskum handknatt-
leik, og hann kemst ekki einu
sinni I liðið hjá þeim þar”, segir
hann.
Sviar fara með 16 menn i
keppnina, en Islendingar 13. Eru
Sviarnir að þreifa fyrir sér með
lið, sem á að komast i lokakeppni
olympiuleikanna i Kanada næsta
ár, og telja sig vera búna að finna
það — eða svo gott sem. klp—
Keilis-golfmenn
fó girnilegt boð
Golfsambandi islands hefur
borizt bréf frá Spáni, þar sem
spánska golfsambandið býöur
þrem islenzkum golfmönnum aö
koma til Spánar og taka þar þátt I
Evrópumóti klúbbliöa i golfi.
I boðinu stendur að aðeins megi
senda menn úr þeim golfklúbbi,
sem hafi orðið landsmeistari i
flokkagolfi. — Hér er það Golf-
klúbburinn Keilir i Hafnarfirði,
sem sigraði i sveitakeppninni á
Islandsmótinu s.l. sumar.
Til þessarar keppni er aðeins
boðið áhugamönnum, og þurfa
þeir hvorki að borga uppihald né
ferðir. Þekkt sælgætisfyrirtæki
„KSA” sér um þá hlið á málinu,
en spánska sambandið um undir-
búning og framkvæmd mótsins.
fslenzkir golfmenn hafa litið
getað æft að undanförnu, enda
allt annað en þægilegt að finna
litinn hvitan bolta i snjónum, sem
nú hylur golfvellina. En þeir i
Hafnarfirði ætla sér að fara á
mótið, og munu byrja æfingar
innanhúss einhvern næstu daga,
og siðan að velja þrjá menn til
fararinnar. —klp—
Sænska landsliðiö, sem keppir á Noröuriandamótinu.
Mundi segir deili á sér
Penninn, sem ég gaf þér, gefur frá^
sér hljóðmerki. Þess vegna fundum
~~------ við þig! ~I "
^Það var ánægjulegt að kynnast \
ykkur, piltar. Vona ég sjái ykkur^y
- i Frakklandi i heimsmeistara-?