Vísir - 10.03.1975, Síða 5
VIsir.Mánudagur 10. marz 1975
5
N ÚTLÖND I MORGUN ÚTLÖND í MORGUN ÚTLÖND í MORGUN ÚTLÖND í MO UmsjÓn: H.H.
Reyndu oð kveikja
í bótaflotar heils
þorps ó S-írlandi
öfgasamtök mótmæl-
enda á Norður-írlandi
hafa játað á sig tilraun
til þess að brenna alian
bátaflota Greencastle,
sem er smáþorp i
Donegal-sýslu, nyrzt i
trska lýðveldinu.
Talsmaður varnar-
samtaka Ulster i Lond-
onderry sagði i gær, að
fiskimenn i Greencastle
hefðu smyglað vopnum
fyrir hryðjuverkasam-
tök kaþólskra, IRA,
Lögreglan I þessu sjávarþorpi
segir, að tveir bátar hafi eyði-
lagzt af völdum Ikveikjusprengja,
en siðan hafi fundizt 30 slíkar
vitisvélar i fjórum togurum og
fjölda smærri fiskibáta. — Boruð
höfðu verið göt á oliugeyma i 17
bátum til þess að koma oliunni til
að renna, svo að bátarnir brynnu
betur.
Hefðu ætlunarverk brennu-
manna heppnazt, hefðu allir bát-
arnir 21 með tölu eyöilagzt i eldi,
þar sem þeir lágu bundnir við
bryggjur.
En lögreglumenn sáu reyk
leggja frá einum bátnum og
heyrðu sprengingu i öðrum. "Þeir
kvöddu til slökkvilið frá nærliggj-
andi bæjum.
Sjómenn, lögregla og herlið
tóku höndum saman við að
slökkva eldana. Sprengjusér-
fræðingar gerðu ikveikjusprengj-
urnar óvirkar, og áður en langur
timi var liðinn var hættan liðin
hjá.
Talsmaður Ulster-varnarsam-
takanna i Londonderry lét hafa
eftir sér i gærkvöldi: „Það er al-
kunna, að þessir bátar hafa um
langt skeið smyglað vopnum til
IRA, siðan ógnaröldin hófst. —
Tveir bátar frá Greencastle fóru
t.d. til móts við rússneskan kafbát
1972, sem kom upp að strönd N-Ir-
lands með nokkra tékkneska
hernaðarsérfræðinga, en þeir
voru IRA-mönnum til leið-
beiningar I hryðjuverkunum. —
Svo lengi sem þessi hætta er fyrir
hendi, má Irski lýðveldisherinn
(IRA) eiga von á sllkum varnar-
ráðstöfunum frá Ulster, eins og I-
kveikjunum”.
IRA hefur, eins og kunnugt er
oröið, nýlega gert hlé á hryðju-
verkum sinum. — ógnaröldin,
sem rikt hefur siðustu fimm árin
á N-trlandi, hefur kostað 1300
manns (bæði á Irlandi og Eng-
landi) lifið.
Um nokkurra mánaöa skeiö
hafa fiskimenn i Greencastle
staðiö i biturri deilu við aðra
bátasjómenn frá Norður-írlandi
um veiðiréttindin á miðunum
undan Greencastle. — Var i
fyrstu — áður en yfirlýsing
Ulstervarnarsamtakanna lá fyrir
— haldiö, að keppinautar frá N-
Irlandi hefðu staðið að ikveikju-
tilraununum.
Kristilegir demókratar unnu
einnig sigur I kosningunum I V-
Berlin fyrir viku, en ránið á
leiðtoga þeirra, Peter Lorenz,
þótti eiga þar hlut i. Þessi mynd
var tekin af Lorenz, þegar hann
kom fyrst fram opinberlega,
eftir að ræningjarnir slepptu
honum.
Sprenging
Sprenging varð i einni aðal-
járnbrautarstöð Parisar I gær-
kvöldi. Uröu miklar skemmdir
á farangursgeymslu stöðvar-
innar „Gare de L’est”. — Sjö
slösuðust.
Myndin hér fyrir neðan var
tekin i aðal biðsalnum og sýnir
verksummerkin, en ekkert lá
fyrir um, hvaö sprengingunni
olii.
Skýfall
í Sidney
Crhellisrigning leiddi af sér
algert öngþveiti i umferðinni i
Sidney i gær. A tæpum þrem
stundum mældist úrkoman 127
mm I þessari stærstu borg
Astraliu.
Flugvöllurinn lokaðist um
tima I einu skýfallinu, og
vatnselgurinn á götunum
stöðvaði umferð bila og lesta.
Varð fólk að biða i járbrautar-
vögnum og áætlunarbílum,
þar sem það var niður komið, i
allt að tvær stundir.
Einn bileigandinn varð að
Lbjarga sér á sundi, þegar bil
hans skolaöi út af vegi.
Kenndu sjónvarpsáhorfendum
tilbúning kjarnorkusprengju
Bandarískum sjón-
varpsáhorf endum var
sýnt í gærkvöldi hvernig
þeir gætu boriö sig við að
stela nógu miklu af
plútonium til að búa til
sina eigin kjarnorku-
sprengju. Um leið sýndi
háskólanemi, hvernig
hann bjó til vítisvél, sem
grandað gæti 100 þúsund
manns.
Þessi fræðsluþáttur var sýnd-
ur hjá PBC-sjónvarpinu, en þar
var fjallað um þær öryggisráð-
stafanir, sem gerðar eru til
varöveizlu plútoniumbirgða i
Bandarikjunum. Plútonium er
ágætis hráefni til framleiðslu
kjarnorkusprengja, en er úr-
gangur úr kjarnorkuverum.
I sjónvarpsþættinum voru
sýndar teikningar af kjarnorku-
verum, en þessar teikningar eru
öllum aimenningi aðgengilegar.
Hryðjuverkamenn gætu fyrir
þær sakir vel fengið að kynna
sér þær. Jafnframt var lýst ör-
yggisráðstöfunum yfirvalda
varðandi kjarnorkuverin.
Siðan var sýnt i smáatriðum,
hvernig háskólastúdent bjó til
sitt heimasmiðaða kjarnorku-
vopn og studdist þá eingöngu við
upplýsingar, sem gerðar hafa
verið opinberar. Þessu verki
lauk hann á fimm vikum.
Varnarmálasérðfræðingur,
sem spurður var álits, taldi að
sprengjan réði yfir samsvar-
andi sprengikrafti og 10 þúsund
til 100 þúsund smáiestir af TNT-
sprengiefni. — Slik sprengja.
spryngi hún i borg. gæti orðið 50
þúsund til 100 þúsund að bana.
I sjónvarpsþættinum var lögð
mikil áherzla á, hve þjófum
væri gert auðvelt að stela
plútonium, ef þeir vildu.
Kristilegir
demókratar
juku fylgi
sitt enn
Kristilegi demókrata-
flokkurinn (CDU) vann
glæsilegan sigur og
hreinan meirihluta i
kosningunum i
Rhineland og Phalz i
gær. Fékk flokkurinn
53,9% atkvæða og jók
fylgi sitt um 3,9%.
Sósialdemókratar Helmuts
Schmidts kanslara fengu 38,5%
atkvæða, en fengu 40,5% fyrir
fjórum árum. Frjálslyndir demó-
kratar fengu 5,6%.
Fylgistap stjórnarflokksins,
sósialdemókrata, þykir mun
minna en almennt hafði verið bú-
izt við. Telja menn, að sam-
steypustjóm Schmidts megi vel
við una. — 1 rikiskosningum i
fyrra og i V-Berlin fyrir viku töp-
uöu sósialdemókratar frá þrem
og upp I átta prósent.
2,5 milljónir voru á kjörskrá i
Rhineland-Phalz.
Úrslitin eru mikið vatn á mylli
Helmut Kohl, formanns kristi-
legra demókrata i Þýzkalandi.
Hann er liklegasta kanslaraefni
kristilegra demókrata i kosning-
unum næsta ár eftir þessi úrslit,
nema keppinautum hans innan
flokksins leggist eitthvað alveg
sérstakt til.
RéðTcÍA
flugumenn
mafíunnar
Timaritið „TIME”
skýrði frá þvi í gær, að
leyniþjónusta Banda-
rikjanna (CIA) hefði
leigt flugumenn til að
ráða Fidel Castro á
Kúbu bana.
„Rafael Trujillo i
Dominikanska lýðveld-
inu og Francois „Papa
Doc” Duvalier á Haiti
voru einnig ætluð sömu
örlög”, bætir blaðið við i
gær.
Það segir, að CIA hafi leigt
skyttur af mafiunni i Bandarikj-
unum i nokkrar misheppnaðar
tilraunm til að ráða Castro af dög-
um. A það aö hafa verið reynt
bæði fyrir og eins skömmu eftir
Svinaflóabardagann, þegar gerð
var tilraun til innrásar á Kúbu
1961.
Mafian var boðin og búin —
segir I frétt TIME — til að aðstoða
i þessu efni, þvi aö leiðtogi Kúbu
hafði þá nýlega látiö taka eignar-
námi öll spilaviti mafiunnar i
Havana.
TIME segir, að CIA hafi viljað
Trujillo feigan, „þvi að hann var
farinn að stiga i vænginn við
kommúnista”. Hefur blaðið eftir
heimildarmanni sinum, að „eng-
inn vildi, að önnur Kúba sprytti
upp i Suður-Ameriku”.
Þvi á CIA að hafa stutt þau öfl,
sem unnu að þvi að bylta Trujillo,
sem var ráðinn af dögum 1963.
TIME heldur þvi ennfremur
fram, að CIA hafi stutt leiðtoga
200 uppreisnarmanna, sem þjálf-
uðu sig i Dominikianska lýðveld-
inu til undirbúnings innrásar á
Haiti 1963. En her Dominikanska
lýðveldisins hafi stöðvað innrás-
ar”herinn”, áður en hann lagði af
stað til Haiti.
Einn flugmaður hafi þó náð að
komast á loft og hann varpaði
sprengju, sem kom niður 300
metrum frá höll Duvaliers for-
seta.