Vísir - 17.03.1975, Blaðsíða 13
12
I
Vfsir. Mánudagur 17. marz 1975.
, Urnsjón: Hallur Símonarson
__
Vísir. Mánudagur 17. marz 1975
Grótta uppi
- en ÍR féll
Tveir leikir voru háðir f 1. deiid tslands-
mótsins i handknattleik i Laugardalshöll
i gærkvöldi. Úrslit urðu þessi:
Armann—Grótta 14-16
Fram-ÍR 20-19
Staðan er mi þannig:
Vikingur 14 11 1
Valur 13 9 0
Fram 14 7 2
FH 13 7 0
Haukar 14 6 1
Armann 14 6 1
Grótta 14 3 2
2 279-235 23
4 251-219 18
264-265 16
269- 255 14
274-263 13
242-251 13
270- 322 8
ÍR
14 2 1 11 253-292 5
Vfkingur er islandsmeistari — tR fallið
i 2. deild. Aðeins einn leikur er eftir, Val-
ur—FH, og verður hann i Laugardalshöll
á miðvikudagskvöld.
Markahæstu leikmenn:
Hörður Sigmarsson, Haukum 125/40
Björn Pctursson, Gróttu, 89/30
Einar Magníisson, Viking, 67/16
Pálmi Pálmason, Fram, 66/19
Stefán Halldórss., Viking, 61/21
Óiafur H. Jónsson, Val, 57
Halldór Kristjánss., Gróttu, 54/4
Þórarinn Ragnarsson, FH, 49/20
AgústSvavarsson, tR, 48/7
Björn Jóhanness., Armanni, 47/4
Hörður Harðarson, Armanni, 46/22
Viðar Simonarson, FH, 43/11
Brynjólfur Markússon, tR, 41
Jens Jensson, Armanni, 41
— hsim.
Heimsmet í
kringlukasti
John van Reenen, Suður-Afriku, setti
nýtt heimsmet i kringlukasti á móti i
Stellenbosch i Suður-Afriku á föstudags-
kvöld —• kastaði 68.48 metra. t fyrstu var
tikynnt, að hann hefði jafnað heimsmet
Jay Silvester, USA, sett i Reno 1968, og
Ricky Brucht Sviþjóð, sett i Stokkhólmi
1972, eða kastað 68.40 metra en reiknings-
skekkja var þá i útreikningi á fetunum,
sem siðar var leiðrétt. Van Reenen, sem
er 28 ára gamall, er fyrsti Suður-Afriku-
maðurinn, sem setur heimsmet i köstum.
Siðustu árin hefur hann stundað nám i
Bandarikjunum. Hann komst i fremstu
röð kringlukastara i Port Elizabeth á sið-
asta ári, þegar hann kastaði 68.04 metra.
Þó hiö staðfesta heimsmet sé 68.40 m.
Iiafa Silvester og Bruch báðir kastað
lengra — Silvester 70.38 metra 1971 og
Bruch 68.58 m i Malmö 1972, en hvorugt
afrekið hlaut staðfestingu vegna form-
galla á mótunuin, sem þau voru unnin á.
—hsim.
Metaregn í
Hittni IR-inga i leiknum við KR I gærkvöldi var ótrúleg á köflum. Hér
hefur Þorsteinn Guðnason misst vald á sinum stóra likama — en skorar
þrátt fyrir það. Jón Jörundsson ÍR og GunnarGunnarsson KR fylgjast
spenntir með. Ljósmynd Bj.Bj.
IR á aðeins eftir að kvitta
fyrir íslandsmeistaratitilinn
— Sigraði KR í gœrkvöldi 91:80 og á eftir leik við Val og unna kœru ó móti Ármanni
ÍR-ingar eru svo gott sem búnir
að vinna tslandsmótið I körfu-
knattleik karla. Þeir tóku KR-
inga I karphúsið i gærkvöldi —
unnu þá með 11 stiga mun 91:80 —
og eiga einn leik eftir I mótinu og
svo unna kæru frá leiknum á móti
Armanni. Kæran ein nægir þeim
til að sigra — hún gefur tvö stig,
sem dómstóll UMSK hafði dæmt
af liðinu með þvi að dæma leikinn
ólöglegan. Dómstóll KKl hefur
sent dóminn aftur til UMSK, eftir
að úrskurður kom frá Alþjóða
körfuknattleikssambandinu um,
að ekki væri hægt að kæra leik
eftir að skýrsla hefði verið undir-
rituð — jafnvel þótt hún hafi verið
röng.
Sá sigur var heppnissigur tR i
mótinu eins og tveir þrir aðrir. En
ileiknum i gær var ekki um neina
heppni að ræða. IR-ingarnir voru
langtum betri en KR-ingarnir, og
áttu að sigra með enn stærri mun.
Þróttur kominn með
tœrnor í 1. deildino
Þróttur þarf aðeins að sigra KR
i síðasta leiknum i 2. deildinni i
handknattleik karla til að tryggja
sér sigur í deildinni og jafnframt
sæti i 1. deild næsta ár.
Þróttur lék I gærkvöldi við
Fyiki og sigraði i leiknum með 23
mörkum gegn 17. Bjarni Jónsson
var markhæstur Þróttara með 9
mörk, en Einar Agústsson mark-
hæstur Arbæinganna með 5 mörk.
1 gær léku Breiðablik og Kefla-
vík siðasta leik sinn i deildinni i
vetur. Þeim ieik lauk með sigri
Racing White Malenbeek hefur
svo gott sem tryggt sér sigur I 1.
deildinni i Belgiu — sigraði
Anderleckt 2-0 i gær. Standard
Liege, liðið, sem Asgeir Sigur-
vinsson leikur með, vann þá
Lierse 3-0.
i Hollandi varð engin breyting.
Fejenoord vann Haag 3-0 og
Eindhoven vann Wageningen 2-0.
Fejenoord og Eindhoven hafa
bæði 40 stig eftir 25 leiki. Ajax er
með 36 stig og gerði jafntefli á úti-
velli við Deventer 2-2.
i Potúgal jók Bénfica forskot
sitt I fimm stig — hefur 42 stig eft-
ir 24 leiki. Sigraði Cuf 1-0, en
Sporting, sem er I öðru sæti með
37 stig, tapaði fyrir Boavista á
útivelli 2-0. A italiu vann Roma
Juventus 1-0, en hitt Rómarliðið,
Lazio vann þó ekki nema eitt stig
á Juventus — gerði jafntefli við
Cagliari 1-1 á útivelli. —hsim.
sundkeppni H(iuk(ir OQ IS
Metaregn var á sundmóti I Dresden I BB H mr ^^H H OP'
ustur-Þýzkalandi á föstudag og laugar-
í undcmúrslit
Metaregn var á sundmóti I Dresden I
Austur-Þýzkalandi á föstudag og laugar
dag. Kornelia Ender, A-Þýzkalandi, 16
ára, bætti heimsmet sitt I 100 m skrið-
sundi, þegar hún synti á 56.83 sek. á föstu-
dag, sem er 0.58 sek. betra en eldra met
hennar. A laugardag setti hún heimsmet i
200 m skriðsundi, synti á 2:02.27 mín., en
eldra heimsmetiö átti Shirley Babashoff,
USA, 2:02.94 min. Ender bætti heimsmet-
ið i 100 m I sjöunda sinn.
Ender náði þessum árangri I lands-
keppni A-Þýzkalands og Sovétrikjanna,
þar sem austur-þýzku keppendurnir höfðu
algjöra yfirburði, 195 stig gegn 149. Þar
voru mörg góð afrek unnin að auki. Roger
Pyttel, A-Þýzkal. setti Evrópumet i 200 m
flugsundi 2:01.82 min. Sovézka sveitin
setti Evrópumet i 4x200 m skriðsundi
7:39.52 min., sem var 0.18 sek. betra en
eldra Evrópumet vestur-þýzkrar sveitar.
Þeir Burc, Krivzov, Samsonov og Krylov
syntu I sovézku sveitinni. Roland
Matthes, A-Þýzkalandi, kom aftur fram á
sjónarsviðið eftir langvarandi veikindi og
sigraði I 200 m baksundi á 2:06.65 min. í
100 m baksundi kvenna sigraöi Ender á
1:04.63 min. og synti lokasprettinn I 4x 100
m skriðsundi, þar sem austur-þýzka
sveitin setti Evrópumet 3:52.23 min.
Sovézka karlasveitin setti einnig Evrópu-
met I 4x100 m skriösuiuli á 3:28.89 min..
—hsim.
Haukar tryggðu sér rétt til að
leika i undanúrslitunum i
bikarkeppninni i handknattleik á
laugardaginn þegar þeir sigruðu
KA frá Akureyri með 24 mörkum
gegn 16. 1 hálfleik voru Haukarnir
tveim mörkum yfir 9:7.
önnur lið sem eru kominr i
undanúrslit eru Fram og Leiknir,
en Valur og FH eiga eftir að leika
I 8-liða úrslitunum. Sá leikur á að
fara fram á miðvikudaginn i
næstu viku.
ÍS tryggði sér sæti f undanúr-
slitunum i bikarkeppninni i körfu-
knattleik á föstudaginn, en þá
sigruðu stúdentarnir IBK með 81
stigi gegn 45.
t dag verður dregið um hvaða
lið mætast þar i undanúrslitun-
um. Liðin, sem þar leika eru: 1S,
Armann, KR a og KR b. -klp-
Breiðabliks 15:14. Hörður
Kristjánsson skoraði bróðurpart-
inn af mörkum Breiðabliks I
leiknum — 8 talsins og er hann
langmarkahæsti maður deildar-
innar I vetur meö 95 mörk.
—klp—
Þeir komust vel yfir 20 stig um
tlma og KR-ingarnir réðu ekkert
við þá hvorki i sókn né vörn.
Hittni þeirra var ótrúleg — jafn-
vel liggjandi á hnjánum gátu þeir
skorað á meðan að hinir brenndu
af einir undir körfunni.
Reykjavíkur-
mót út í
veður og vind
Reykjavíkurmótið á skiðum
fauk svo til út i veður og vind I
Bláfjöllunum um helgina. Hætta
varð við keppnina i alpagreinum
og skiðastökki, en gangan fór
fram fyrir hádegi i gær.
Þá var vel þokkalegt veður og
létu göngumennirnir sig hafa það
að fara út og keppa. Reykjavikur-
meistari í skiðagöngu 1975 varð
Freysteinn Björnsson SR á 64,21.
Annar varð Sigurjón Hallbjörns-
son SR á 64,43 og þriðji Páll Guð-
björnsson SR á 65,53 min. I flokki
17 til 19 ára varð Sigurður
Sigurðsson, Hrönn, Reykjavikur-
meistari,
A-Þýzkaland tryggði sér rétt i
úrslitakeppni heimsmeistara-
keppni kvenna i handknattleik i
gær — vann þá Búlgariu 20-10 i
Freiberg. HM verður háð i
Moskvu 3.-14. desember nk. Pól-
land náði sama árangri, þegar
pólsku stúlkurnar sigruðu þær
sænsku 21-15 i Katowice á laugar-
dag. 11-4 stóð í hálfleik og i Buda-
pest komst Ungverjaland I úr-
slitakeppnina með þvi að sigra
Frakkland 17-9. —hsim.
1R komst strax í 14 stiga mun —
18:4 — og siðan 20:8.1 hálfleik var
IR 19 stigum yfir 47:28 og hélt
þeim mun alveg fram i lokin, að
KR náðí að minnka i 11 stig —
91:80 — en það urðu lokatölur
leiksins.
,,Það bjargaði okkur tapið á
móti Ármanni i bikarképpninni,”
sagði Kristinn Jörundsson fyrir-
liði IR og bezti maður vallarins
við okkur eftir leikinn. „Þá rædd-
um við málin og gerðum þær
breytingar sem til þurfti i leikina
við IS og KR. Annars græddum
við á þvi i þessu móti, hvað hin
liðin töldu okkur lélega i byrjun —
það spáðu okkur allir i mesta lagi
fjórða til til fimmta sæti — en við
tökum það fyrsta og áttum það
skilið, þvi við vorum beztir”.
Kristinn átti stórleik i gær —
beztur i vörn og beztur i sókn.
Hann skoraði 21 stig, en Agnar
Friðriksson var stigahæstur með
22 stig. Bróðir Kristins — Jón
Jörundsson — var einnig mjög
góður og skoraði 20 stig. Hjá KR
var Bjarni Jóhannsson stigahæst-
ur með 19 stig en þeir Kolbeinn
Magnús Sigurðsson, bjargvættur Gróttu I gærkvöldi, býr sig undir að
skora eitt af sex mörkum sinum I leiknum. Ljósmynd Bjarnleifur.
GROTTA HELT VELLI
Gróttu tókst það — tókst það,
sem engu öðru liði nema íslands-
meisturum Vikings hefur tekizt I
siðari umferð islandsmótsins i
handknattleik — að sigra spútnik-
lið Ármanns. Það var sætur sigur
— og verðskuldaður — fyrir litla
Seltjarnarncsliðið, sem þar með
tryggði sér áframhaldandi rétt I
1. deild. Þvi spáðu fáir, þegar
keppnin byrjaði i haust — Grótta
var fallkandidat nr. eitt -en liðið
kom á óvart i gær i Laugardals-
höllinni eins og svo oft áður á
leiktimabilinu. Það stefndi i
góðan sigur Gróttu i gærkvöldi —
en taugarnar gáfu eftir um tima
og Ármanni tókst að vinna upp
fimm marka forskot Gróttu og
jafna i 12-12. Ekki nóg með það.
Ármann komst i annað skipti yfir
i leiknum, þegar 10 min. voru til
ieiksloka 13-12. Þá töldu flestir
hinna fáu áhorfenda daga Gróttu
talda — en ekki Magnús Sigurðs-
son. Hann skoraði tvö mörk fyrir
Gróttu — Þór Ottesen það þriðja
og Árni það fjórða — síðustu 10
minúturnar og Grótta vann 16-14.
Já, Magnús Sigurðsson var
hetja Gróttuliðsins ásamt mark-
verðinum Guðmundi
Ingimundarsyni, sem varði
snilldarlega allan leikinn. Þegar
bikorinn
í kvöld
Reykjavíkurúrvalið i körfu-
knattleik leikur annan leik sinn i
Sendiherrakeppninni i körfu-
knattleik i Laugardalshöllinni i
kvöld. Mótherjinn er úrval varn-
arliðsins á Keflavikurflugvelli.
Fyrsti leikurinn — af fimm —
fór fram á Keflavikurflugvelli i
siðustu viku og þar sigraði
Reykjavikurúrvalið eftir harða
viðureign. Aukaleikurinn i kvöld
verður á milli unglingalandsliðs-
ins og b-landsliðsins.
stórskytta Gróttu, Björn Péturs-
son, brást, tók Magnús upp
merkið — skoraði sex falleg mörk
i leiknum og það, þegar mest reið
á. 1 heild barðist lið Gróttu mjög
vel i leiknum — vörn og mark-
varzla var miklu betri en i undan-
förnum leikjum íiðsins. Það átti
að koma i veg fyrir fall — og tókst
og baráttugleði leikmanna Gróttu
setti Ármenninga úr jafnvægi.
Jens skoraði fyrsta mark
leiksins fyrir Armann, en Björn
jafnaði, og Magnús kom Gróttu i
3-1. Ármann jafnaði. Grótta
komst aftur yfir 5-3 og þó lét
Björn Ragnar Gunnarsson verja
tvivegis frá sér vitaköst. Grótta
komst svo i 8-5 með marki
Magnúsar og tveimur frá
Halldóri, annað viti, sem Árni
fékk eftir stórsnjalla linu-
sendingu Halldórs. Jón Astvalds-
son skoraði úr viti fyrir Ármann i
lok hálfleiksins og staðan var 8-6
fyrir Gróttu.
Grótta skoraði þrjú fyrstu
mörk siðari hálfleiks, 11-6,
Magnús og Björn tvö — en i fyrri
hálfleiknum var skotnýting hans
mjög slæm. En við þessi mörk
setti Ármann mann til höfuðs
Birni og það furðulega skeði, að
allt fór úrskeiðis hjá Gróttu um
tima. Armenningar gengu á lagið
og tókst að jafna i 12-12, og
komast yfir. En þá tók Magnús
til sinna ráða — skoraði fallega og
jafnvægi komst aftur á i leik
Gróttu. Það nægði — en ekki
mátti miklu muna. Ármenningar
misnotuðu tvö viti i lokin — en
Ragnar varði lika sitt þriöja hinu
megin.
Þó ekki hafi verið mikill glæsi-
bragur yfirleitt á leikjum Gróttu i
vetur er ástæða til að óska leik-
mönnum liðsins til hamingju með
þann árangur, sem þeir þó hafa
náð. Þeir gerðu allarhrakspárað
engu — voru eitt fárra liða, sem
náði stigi af Viking,einnig Fram.
Tveir sigrar gegn IR voru
þyngstir á metunum, og svo sig-
urinn i gærkvöldi. Mörk Gróttu
skoruðu Magnús 6, Björn 3.
Halldór 2, Árni 2, Axel, Þór og
Kristmundur eitt hver. Fyrir Ar-
mann skoruðu Björn 4, Jón 4 (c
viti), Hörður H. 2 (1 viti), Jens
Hörður Kr., Kristinn og Pétui
(viti) eitthver. Dómarar Kristjár
örn og Jón Friðsteinsson. -hsim
Pálsson og Gisli Gislason voru
með 14 stig hvor. — klp —
ÍR féll og
tapaði
Það skiptust á skin og skúrir
hjá ÍR-ingum i gærkvöldi. 1
körfuknattleik tryggði lið 1R sér
svo gott sem íslandsmeistara-
titilinn, en rétt á eftir, i Laugar-
dalshöll, féll IR-liðið i handknatt-
leiknum niður i 2. deild, þegar
Grótta sigraði Armann.
Leikur Fram og 1R i hand-
boltanum skipti þvi engu máli
fyrir IR-inga, þó kannski hefði
verið skemmtilegra að kveðja 1.
deildina með sigri. Það tókst ekki
— en litlu munaði þó i lokin, en
með sigrinum, 20-19, komst Fram
upp i þriðja sæti.
Fram-liðið með Pálma, Sigur-
berg, Arnar og Pétur sem beztu
menn, ásamt Guðjóni, mark-
verði, sýndi á köflum skemmti-
legan leik — en féll þess á milli al-
veg niður eins og i lokin, þegar IR
tókst að vinna upp fimm marka
forustu Fram — jafna i 19-19. En
ekki tókst ÍR-ingum, með Jens
Einarsson hreint frábæran i
marki lokakaflann, að fylgja
þessu eftir. Arnar skoraði siðasta
markið i leiknum. IR-liðið féll og
þvi hefðu fáir spáð i haust, þegar
keppnin byrjaði. Miklu frekar, að
IR yrði i baráttunni um Islands-
meistaratitilinn. En agaleysi
varð liðinu að falli — nokkrir leik-
menn liðsins sviku félaga sina,
nokkuð, sem þeir hafa komizt upp
með siðustu árin, en var nú ekki
lengur liðið. Þess vegna leikur IR
i 2. deild næsta keppnistimabil —
og viðstaðan verður varla löng
þar með alla þá góðu leikmenn,
sem félagið hefur á að skipa, þó
auðvitað agaspursmálið setji þar
spurningamerki.
IR náði aðeins þrisvar forustu i
gær, 1-0, og 4-3 og 6-5. Leikurinn
var afar jafn framan af, 10-9 fyrir
Fram i hálfleik. I byrjun siðari
hálfleiks náðiFram góðu forskoti
— komst 117-12, en missti svo allt
niður.
Mörk Fram i leiknum skoruðu
Pálmi 5, Arnar 5, Pétur 3, Arni
Sverrisson 2, Ragnar Hilmarsson
2, Sigurbergur 2 og Guðmundur
Þorbjörnsson 1. Fyrir 1R skoruðu
Asgeir 4, Hörður Hákonarson 3,
Brynjólfur 3, Gunnlaugur 2,
Agúst 2, Vilhjálmur 2, Sigurður
Svavarsson 2 og Hörður Arnason
1. Dómarar Óli Olsen og Kjartan
Steinbach. —hsim.
Dankersen tapaði ■
en er ekki úr leik
A.xel Axelsson og félagar hans
i Dankersen töpuðu fyrir
Wellinghofen i vestur-þýzku
deildarkeppninni i handknatt-
leik I gær. Wellinghofen, sem
lék á heimavelli, sigraði með 23
mörkum gegn 21.
Axel hafði sig litið í frammi i
leiknum — skaut aðeins 4 sinn-
um á markið og skoraði 3 mörk.
Er hann ekki alveg búinn að ná
sér eftir meiðsli.semhann hlaut
i leiknum um fyrri helgi.
Dankersen á tvo leiki eftir i
norður-deildinni. A
þriðjudaginn leikur liðið aftur
við Wellinghofen — i þetta sinn á
heimavelli, en hinn leikurinn
verður við Bad Schwartau á
laugardaginn. Ef Dankersen
sigrar I báðum þessum leikjum,
er liðið komið i fjögurra liða úr-
slitakeppni um þýzka meistara-
titilinn.
Kristbjörg — eiginkona Axels
— á einnig möguleika á að
komast i úrslitakeppni um
meistaratitil Vestur-Þýzka-
lands. Liðið, sem hún leikur
með, Eintracht Minden, á eftir
einn leik i deildinni, og i honum
veröur úr þvi skorið, hvort það
kemst i úrslitakeppnina eða
ekki. -klp-
Brynjólfur Markússon, 1R, skorar i leiknum I gærkvöldi fyrir tR, en
Arnar Guðlaugsson, Fram, einn bezti maður leiksins, horfir á tilburð-
ina. Ljósmynd Bjarnleifur.
straufría sængurfataefnið er nú fyrirliggjandi í mörg-
um mynztrum og litum.
Einnig í saumuðum settum. Kærkomin gjöf, hverj-
um sem hlýtur.
Sparið húsmóðurinni erfitt verk, sofið þægilega og
lífgið upp á litina í svefnherberginu.
Reynið Night and Day og sannfærizt.
Samband íslenzkra samvinnufélaga
Innflutningsdeild
Sambandshúsið Rvík sími28200