Tíminn - 29.07.1966, Page 7
FÖSTUDAGCR 29. júK 1966
isy
TÍMINN
Egill Þorláksson
kennari
Aðfaranótt hins 25. þ.m. andað-
ist á Sjttkraihúsi Akureyrar Egill
k-ennari ÞórlSksson. Hann fædd-
ist að ÞóroddssfcaS í Ujósavatns-
hreppi hinn 6. marz 1833 Foreldr
ar hans voru hjóoin Þóriókur Stef
ánsson og Nyhjörg Jónsdóttir, er
síðar hjttggu á ísólfsstoðum á
Tjörnesi. Hann lauk gagnfræða-
psrófi frá Gagnfræðaskólanum á
Akureyri vorið 1907 og kennara-
prófi frá Kennaraskólanum í
Reykjavík 1910.
BSnn 13. julí 1915 kvæmist Eg-
iH greindri og góðri konu, Aðal-
björgu Pálsdóttur, hreppstjóra að
Stóruvöllum í Bárðardal. Lifir
hún mann sinn. Ekki varð þeim
barna auðið, en fósturdóttír þein’a
er Sigríður Kristjánstíóttir, hús-
mæðrakennari, sem gift er Jón-
asi Kristjánssyni, skjalaverði.
Einnig ólu þau upp Egil, son Sig-
ríðar. Þau hjón voru hippin með
fósturbörnin, og betri fósturfor-
eldra hefðu fósturbörn þeirra vart
getað fengið. Heimili þíirra var
með afbrigðum gestrisið menning
arheimili. Öllum leið þar vel,
sem þar dvöldu, hvort sem var
um skemmri eða lengri tíma. Þar
ríkti jafnan góðhugur, andlegt
víðsýni og friðsæld. Bæði voru
þau hjónin greind og lagin að j
halda uppi menningarlegum við-1
ræðum. j
A'ldrei urðu þau hjónin efnuð, j
enda mun torfundinn sá maður, í
sem óeigingjarnari var í fjármála
viðskiptum en Egill Þ jrláksson
var. En vinnudagur hans var oft
langur. Hann reis árla á fætur
og gekk seint til svefns. Og svo
mun hafa jafnan verið þar til
hann, áttræður að aldri, varð að
leggjast á sjúkrahús, heltekinn
af þeim sjúkdómi, sem varð bana
mein hans.
Frá þeim tíma, er Egill lauk
kennaraprófi og til loka ævi hans
var kennsla hans aðalstarf.. Sama
árið og hann lauk kennarapróii
varð hann barnakennari í Bárðar
dal og til 1916. Árin 1916—1919
var hann heimiliskennari á Akur
eyri. Þá flutti hann til Húsavíkur
og var þar barna- og unglinga-
kennari. Árið 1939 var hann skip
aður kennari við Barnaskóla Ak-
ureyrar, og við þann skóla var
hann kennari þar til árið 1949,
að hann var skipaður kennari við
Gagnfræðaskóla Akureyrar. Þar
lét hann af kennslustörfum fyrir
aldurs sakir 1959. Frá þeim tíma
og fram á s.l. vetur kenndi hann
börnum, 5—6 ára, á heimili sínu.
Framan af ævinni varð Egill að
sinna ýmsum störfum jafnframt
kennslunni. Hann fékkst dálítið
við ritstörf, enda var hann vel rit-
fær lístasikrifari; og smebkvís í
rithætti.
Egill var alla ævi sína að nema
jafnframt því, sem hann var að
kenna. Samvizkusemi hans og
trúmennska í öllu lífi hans var
frábær. Hann mun aldrei hafa
komið óuudirbúinn í kenr.du-
stund. Þekking hans var fjölþætt
og traust, en engri fræðigrein var
hann handgengnari en móðurmál
Egill var háttprúður maður. Og
hann var jafn háttprúður við
hvern, sem hann talaði, hvort sem
það var höfðingi eða smábarn.
Með framkomu sinni kenndi hann
nemendum sínum háttprýði. Hátt
prúður með góðvildarbrosi kom
hann í kennslutíma til þeirra.
Þeir fundu hlýhug hans, ástúð
hans og umhyggjusemi streyma
til sín. Þeir voru allir börnin
hans. Á meðal þeirra var ekkert
olnþogabarn. Hann unni þeim
öllum, hvort sem þau voru greind
eða treggáfuð, og frá hvaða heim
ilum, sem þau komu, og annast
lét hann sér um þá nemendur
sína, sem við einhverja sérstaka
örðugleika höfðu að stríða. Hann
var í því efni líkur góðri og göf-
ugri móöur.
Mér þótti það mikill fengur,
er ég fékk Egil sem kennara við
Gagnfræðaskóla Akureyrar. Hann
var fús til að kenna bekkjum,
sem fremur tornæmir nemendur
sátu í, og mörgum þeirra kom
hann vel áleiðis, og gerði suma
þeirra að mun betri námsmönnum
en þeir liöfðu áður reynzt. Hann
gerði það með því að vekja sjálfs
virðingu þeirra og sjálfstraust.
Egill sá jafnan það, sem var
gott og göfugt í fari manna,
nemenda sinna sem annarra. í
huga hans var jafnan sól og sum
arbirta.
Hann kveður lfið á miðju sumri.
Og þótt ástvinir hans sakni hans
eru minningarnar um hann ljúfar
og bjartar. Þær eru þeim harma-
bót.
Eg vil enda þessar línui með
því að votta ekkju hans og öðrum
nánustu ástvinum hans samúð
mína og fjölskyldu minnar. Með
ástarþökkum til hans og þeirra
fyrir áratuga vináttu.
Þorsteinn M. Jónsson.
Ég lærði ungur dæmisöguna um
sólina og storminn, og einn mað-
ur hefur verið mér öðrum frem-
ur lifandi ímynd þess, að meira
vinnst með blíðu en stríðu. Það
var Egill Þorláksson, kennari. Nú
er hgnn borinn til grafar í dag.
Egill Þorláksson var fágætnr
maður. Góðvild hans, óeigingimi
og manngæzka virtist nær því
fölskvalaus, ef svo mætti segja.
Hann virtist hafa tamið svo skap
höfn sína og __ viðmót, að aldrei
brysti fyrir. Ég sá hann aldrei
beita nema einu vopni, góðvild-
inni, en það var svo skær vignr,
að fylgdi jafnan sigur. Og sá sig
ur var allra. Agasproti hans við
unga og umbrotasama nemendur
var aldrei annað en ástúðin, um-
hyggjan og vináttan, og ekkert
stóðst það vald, af því að þessi
ástúð var nógu djúp, nógu skilyrð
islaus og fölskvalaus. Ég hef
heyrt marga segja það á fullörðins
árum að þeir fái aldrei fullþakk-
að það að hafa notið kennslu Eg-
ils Þorlákssonar á barnsaldri, ekki
endilega þeirra fróðleiksmola, sem
hann miðlaði og voru þó í góðu
gildi, heldur ástúðar hans og
persónulegra töfra, sem voru
hverju barni sem svaladrykkux.
Kennslustundir hans með börnun
um urðu ætíð leikur, og leikurinn
lífið sjálft. Bæjarstjórn Akureyr
ar heiðraði Egil Þorláksson aldr-
aðan með heiðursgjöf fyrir sér-
staka þjónustu við yngstu borgar-
ana. Sú ráðstöfun var báðum til
heiðurs.
Egill Þorláksson var miklum
og góðum gáfum búinn, náms
maður alla ævi, leitandi gildra Kfs
verðmæta og skildi betur en aðrir,
hvar þau er að finna. Hann átti
afbragðskonu, og sambúð þeirra
og heimili fannst mér stundum
eins og dýr draumur um fagurt
mannlíf væri að rætast.
Andrés Kristjánsson.
Greinargerö frá þjónum
Eins og alþjóð er kunnugt gaf
forseti íslands hinn 15. þ.m. út
bráðabirgðalög um lausn deilu
framreiðslumanna og veitinga-
manna og var þar með lagt hann
við verkfalli Félags framreiðslu-
manna, sem staðið hafði frá 8. þ.m.
Lög þessi sem sett voru á ábyrgð
samgöngumálaráðherra virðast okk
ur svo ósvífin aðför að verkfalls-
réttinum, að við teljum rétt að
gera nokkra grein fyrir málstað
okkar á opinberum vettvangi, svo
þjóðinni gefist kostur á að kynn-
ast þeirri nauðsyn, er knúði ráð-
herrann til lagasetningar þessar-
ar.
Kröfur okkar í vinnudeilunni
við Samband veitinga- og gistihúsa
eigenda voru að mes-tu kröfur um
samræmingar á vinnutilhögun í
veitingahúsum og að látin yrðu
haldast vinnutilhögun sú sem tíðk-
ast hefur hjá framreiðslumönnum
um langan aldur og gefist vel.
Okkur þykir í því samhandi rétt
að benda á að nefnd vinnutilhög-
un er enn viðhöfð á því veitinga-
húsi horgarinnar, sem lengst hef-
ur starfað, þeirra er framreiðslu-
menn starfa hjá. Er hér um að
(ræða Hótel Borg, sem hinn
reyndi og þekkti veitingamaður
Pétur Daníelsson, veitir forstöðu.
Ástæðan til þess að við settum
fram umræddar kröfur er sú, að
á síðustu árum hafa komið fram
nýmæli í sambandi við vinnutil-
höfun, er við teljum mjög óæski-
leg. Er þar einkum um að ræða
kassa þá, sem settir hafa verið upp
í vínstúkum nokkurra veitinga-
húsa og framreiðslumönnum í
vínstúkum er ætlað að stimpla
inn á hverja afgreiðslu. Reynsla
sú sem fengin er af umræddum
stimpilkössum er sú, að þegar
mest er að gera í vínstúkunum
tefja þeir verulega fyrir afgreiðslu
enda hefur einn veitingamanna
þeirra, er tekið hafa upp kassana
samþykkt að framreiðslumaður í
einni vínstúkunni í húsi því er
hann veitir forstöðu, þurfi ekki að
stimpla jafnóðum inn á kassann
þegar annríki er mikið, en megi
þá stimpla inn söluna þegar búið
er að loka. Ekki er okkur ljóst
hvaða hlutverki kassinn á að
gegna í umræddri vínstúku.
Þegar fram var komið í viðræð-
um okkar við veitingamennina að
þeir voru ekki til viðræðu um að
hætt yrði að stimpla - hverja ein-
staka sölu inn á stimpilkassana
komum við með þá málamiðlunar-
tillögu að veitingahús þau sem
nota það afgreiðslufyrirkomulag í
vínstúkum, sem nú hefur verið
lýst (stimplun hverrar einstakrar
sölu inn á kassa) bæru sjálfar hall-
ann af þeirri rýrnun, er yrði í vín-
stúkunum, enda væri ekki um óeðli
lega rýrnun að ræða. Óskuðum við
upplýsinga um hvað veitingamenn
irnir teldu eðlilega rýrnun, en eng-
in svör fengust við því. Við töld-
um á hinn bóginn nauðsynlegt,
að slegið yrði föstu í samningun-
um hvað talið yrði eðlileg rýrn-
un m.a. til að tryggja að samræm-
is gætti varðandi hugsanlegar end-
urkröfur á hendur einstakra fram-
reiðslumanna. Veitingamennirnir
vildu engar tölur nefna í þessu
sambandi og töldu, að engin rýrn-
un ætti að vera í vínstúkunum.
Við teljum á hinn bóginn alveg
útilokað, að þegar mikið er að
gera við afgreiðslu í vínstúku, fari
ekki eitthvað niður þegar verið er
að mæla í glösin og eins getur
alltaf komið fyrir að flaska velti
eða brotni. Við fáum því ekki
annað séð, en ef það er ætlun
veitingamanna að vínstúka skili
100% því sem í hana kemur sé
til þess ætlast að rýrnunin, sem
óhjákvæmilega verður, komi niður
á viðskiptavinunum. Á Hótel Borg
og annars staðar þar sem vinnu-
tilhögun er enn með sama hætti
og tíðkazt hefur fram á síðustu
ár, er rýrnuninni mætt með því að
% líters flaska, sem talin er inni-
halda 18% sjússa er reiknuð fram
reiðslumanni sem 18 sjússar. Verði
rýrnun meiri en þessu svarar ber
framreiðslumaður hallann af því,
en verði hún minni er það hagur
hans.
f öðru lagi bárum við fram mála
miðlunartillögu þess efnis, að þjón
ustugjald í vínstúkunum yrði hækk
að og loks kom til greina að fram-
reiðslumenn í vínstúkum fengju
fast kaup auk þjónustugjaldsins,
hvort tveggja til þess að mæta
rýrnun, en tillögur þessar voru
ekki ræddar.
Þannig stóðu málin er sáttaum-
leitunum í vinnudeilu okkar lauk
og bráðabirgðalögin voru sett og
verkfall okkar bannað. Lögin voru
sett með atbeina samgöngumála-
ráðherra, að því er virðist með
vafasömum rétti. Þar sem vinnu-
deilur heyra samkvæmt gildandi
forsetaúrskurði um skiptingu
starfa milli ráðherra, undir félags
málaráðherra. í 28. gr. stjórnar-
skrárinnar er að finna heimildina
til útgáfu bráðabirgðalaga og hljóð
ar greinin svo: „Þegar brýn nauð-
syn ber til getur forsetinn gefið
út bráðabirgðalög milli þinga. Ekki
mega þau þó riða í bág við stjórn-
arskrána. Ætíð skulu þau lögð fyr-
ir næsta Alþingi á eftir. Nú sam-
þykkir Alþingi ekki bráðabirgða-
lög, og falla þau þá úr gildi. —
Bráðabirgðafjárlög má ekki gefa
út ef Alþingi hefur samþykkt fjár-
lög fyrir fjárhagstímabilið." Svo
mörg eru þau orð og skulum við
nú aðeins víkja að þeirri brýnu
nauðsyn sem bar til þess að banna
verkfall okkar með bráðabirgða-
lögum. Forspjall laganna er á
þessa leið:
„Forseti íslands gjörir kunnugt:
Samgöngumálaráðherra hefur tjáð
mér, að verkfall hafi staðið yfir
hjá félögum í Félagi framreiðslu-
manna frá því 8. þ.m., og hafi
sáttatilraunir ekki borið árangur
og ekki horfur á lausn deilunnar
í bráð, m.a. vegna djúpstæðs
ágreinings um rétt Félags fram-
reiðslumanna til afskipta af vinnu-
tilhögun í veitingahúsum.
Enn fremur, að Samband veit-
inga- og gistihúsaeigenda hafi
ákveðið að loka veitingahúsum sín-
um fyrir alla nemp e: enda dval-
argesti, meðan verkfalliö stendur,
og tilkynnt það samgöngumálaráðu
neytinu bréflega. Muni þá ekki
unnt að veita öðrum mönnum
þar á meðal farþegum erlendra
skemmtiferðaskipa almenna og
samningsbundna þjónustu. Nú sé
mesti annatími veitingahúsa, vegna
mikils fjölda erlendra ferðamanna
og ferðamannaskipa. Verði ekki
unnt að veita þessu ferðafólki
sæmilega þjónustu, sé hætta á að
varanlega verði spillt árangri langr
ar og ötullar landkynningarstarf-
semi, sem erfitt yrði að bæta, og
bitna myndi á öllum þeim aðilum
hér á landi, sem hafa atvinnu af
þjónustu við ferðamenn, og verða
þjóðinni til vánsæmdar.
Því telur ríkisstjórnin, að brýna
beri til að koma í veg fyrir stöðv-
un á rekstri veitingahúsanna.
Fyrir því eru hér með sett bráða
birgðalög, samkvæmt 2ö. gr. stjórn
arskrárinnar á þessa leið:
Hér er nauðsyninni lýst. Þegar
á á fyrsta degi verkfalls okkar
rituðum við Sambandi veitinga- og
gistihúsaeigenda á þessa leið:
„Á stjórnarfundi í Félagi fram-
reiðslumanna, sem haldinn ,var í
dag, var gerð svohljóðandi sam-
þykkt:
1........
2. Þá var rætt um hvort gera
beri einhverjar undanþágur vegna
erlendra ferðamanna.
Stjórnin samþykkti að gefá Hót-
el Sögu, Hótel Holt, Hótel Borg
og Hótel Loftleiðir undanþágu til
almennra veitinga fyrir hótelgesti
og þá ferðamenn, sem hingað
kunna að koma með erlendum
skemmtiferðaskipum.
Jafnframt var Nausti h.f. gefin
undanþága til þess að hótelgestir
frá City Hotel fái almennar veit-
ingar framreiddar í Nausti h.f.
3........
Jón Maríasson (sign). Haraldur
Tómasson (sign). Sævar Júníusson
jlsign). Viðar Ottesen (sign). Guðm.
H. Jónsson (sign). Valur Jónsson
(sign). Leifur Jónsson (sign).
Með vísan til bréfs yðar dags.
í dag tilkynnist yður þetta hér
með.“
Með þessu gerðum við það sem
í okkar valdi stóð til þess að
tryggja erlendum ferðamönnum
og innlendum hótelgestum nauð
synlega þjónustu og leyfum okkur
því að staðhæfa að við höfum ekki
með verkfalli okkar stofnað í
hættu árangrinum af „langri og
ötulli landkynningarstarfsemi.“
Þá má geta þess, að meðan verk-
fall okkar stóð, stóð hér yfir þing
norræna ungtemplara. Óskað var
eftir heimild oklcar til að halda
kveðjuhóf fyrir þingfulltrúa og
urðum við fúslega við þeirri ósk.
Hóf þetta skyldi haldið að Hótel
Sögu, en' er heimild okkar var
fengin neitaði hótelstjórinn því að
Framhald á bls. 12.