Vísir - 15.04.1975, Qupperneq 1
65. árg. Þriðjudagur 15. apríl 1975. — 85. tbl.
Gjaldeyrisstaðan farin að skána
VIÐ ERUM AÐ FYLLA í GATIÐ
„Gjaldcyrisstaðan hefur
heldur batnað siðustu daga,”
sagði Jóhannes Nordal seðla-
bankastjóri i morgun I viðtali
við Visi. „Þetta segir þó litið
um, hver þróunin verður.”
Jóhannes Nordal sagði, að
gjaldeyrisstaðan hefði farið
versnandi i marzmánuði, en
endanlegar tölur um stöðuna
um siðustu mánaöamót lægju
ekki fyrir ennþá.
Breytingar á gjaldeyrisstöð-
unni eru mjög árstiðabundnar.
Þvi miður er of fljótt að full-
yrða, að gengislækkunin hafi
snúið vörn i sókn i þessum efn-
um, en verði þróunin á næstunni
hin sama og verið hefur það,
sem af er april, ættum við brátt
að komast úr minus í plús.
Minusinn á nettógjaldeyris-
stöðunni, eða gjaldeyris,,sjóðn-
um” svokallaða, var tveir
milljarðar króna i lok febrúar.
Minusinn er þvi enn, eins og sjá
má af framansögðu, varla
minni en þá, þar sem staðan fór
versnandi i marz, þótt hún sé nú
að skána. —HH
SPÆNSK KNATTSPYRNUFÉLÖG Á EFTIR
JÓHANNESI EÐVALDSSYNI? — Sjá íþróttir í opnu...
Flugfragt eykst hröðum skrefum innanlands
Þessa mynd tóku Vfsismenn á Egilsstaöaflugvelli. Vörurnar blða
og 48 farþega flugvélin fór með aðeins 16. Hin sætin voru látin vfkja
fyrir vörunum. Ljósmynd Bragi.
„Svo lítill verðmunur er
orðinn á flugfragt og bílafragt,
að fóik horfir ekki eins mikið I
það og áöur var,” sagði Thulin
Johansen, starfsmaður Flug-
leiða, I morgun. „Nú fer mjög
vaxandi aö smábilar séu fluttir i
flugvélum innanlands. Það
kostar 18.000 krónur að flytja bil
frá Reykjavfk til Egilsstaða.”
„Algengt er, að i 48 sæta
Fokkernum séu 32 sæti tekin
undir vörur, svo að farþegar
hafi aðeins 16 sæti.”
Thulin taldi ekki, að þetta
heföi valdiö farþegum vand-
ræðum. Enn algengara eða
„standard”, eins og hann komst
að orði, er, að 16 sæti séu tekin
burt og 32 ætluð farþegum.
Hann sagði, að aðstaða til
vöruflutninga innanlands hefði
stórbatnað með kaupum á
Fokkernum frá Þýzkalandi i
fyrra.
Mest væri flutt af matvöru og
annarri algengustu verzlunar-
vöru. Húsgögn væru talsvert
flutt flugleiöis, svo og heimilis-
tæki og allmargir snjósleðar.
Þessir flutningar hefðu allir
stórvaxið siðan i fyrra.
Thulin sagði, að flutningarnir
væru að sjálfsögðu mestir yfir
vetrartimann, þegar örðugt
væri um akstur. Þó hefði svo
brugðið við nú, að fragtin hefði
ekki minnkaö aö ráði, þótt vegir
væru orðnir góðir viðast hvar.
8 ....
Reyðarfjörður og Seyðis-
fjörður keppa um ferjuna
Huldumaðurinn
á Héraði minnst
fertugur
— baksíða
Líbanonher vogar
ekki að blaka við
skœruliðunum
— Sjá bls. 5
umboðsmenn ferjunnar, en
slagurinn stendur um það eystra,
hvort isiandshöfnin verður
Seyðisfjörður eða Reyðarfjörður.
Færeyingarnir fóru austur i gær,
og munu hafa farið á Seyöisfjörð
fyrst.
„Þeir hafa ekki líomið hingað
enn að lita á aðstæður,”
sagöi Hörður Þórhallsson,
sveitarstjóri á Reyðarfirði. „Og
sjálfsagt er ég ekki rétti maður-
inn að segja um, hvor sé betri
þeirra tveggja staða, sem til
greina koma, Reyðarfjörður eða
Seyðisfjörður. En ég held þvi
fram, að Reyðarfjörður standi
mun betur að vigi. Um hafnar-
skilyrðin er svipað að segja á
báðum stöðum, þau eru mjög góð,
en Reyðarfjörður hefur mun betri
samgöngur á landi.
Þvi verður ekki á móti mælt, að
Fjarðarheiðin er mjög mikill
þrándur i götu Seyðfirðinga. Hún
getur lokazt af veðrum hvenær
sem er, meira að segja yfir
sumarið. Ég er lika vantrúaður á,
að eins drifs bill hafi hjólhýsi yfir
heiðina.
Hingað er aftur á móti mun
auðveldara aö komast, og
Reyðarfjörður oftast i góöum
samgöngum bæði suður um og
eins um Egilsstaði noröur um.
Hvað snertir samgöngur á landi,
finnst mér ekki fara milli mála.
hvorum megin ferjan eigi að
vera,” sagði Hörður.
Jónas Hallgrlmsson, bæjar-
stjóri I Seyðisfiröi, sagðist ekki
vilja segja neitt um málið á þessu
stigi.
Færeyingarnir ræddu við aðila i
Reykjavik i gærmorgun, en fóru
siðan austur og komu til Seyðis-
fjarðar i morgun. Þaðan fara þeir
trúlega til Reyðarfjarðar.
Björn Vilmundarson, forstjóri
Ferðaskrifstofu rikisins, sagði
Visi, að viðræður hefðu fariö fram
milli Færeyinganna og ferða-
skrifstofunnar um þessi mál.
Ýmsir hefðu hug á aö taka að sér
afgreiðslu ferjunnar, og ferða-
skrifstofan hefði boðizt til að
verða aðal umboðsaðili hennar
hér,” en við gerum jafnframt ráð
fyrir, að allar ferðaskrifstofur
geti selt ferðir með henni,” sagöi
Björn.
Talsverður áhugi er hér á landi
fyrir ferjunni, bæði meðal þeirra
sem sjá sér leik á borði að not-
færa sér þjónustu hennar til að
komast utan, og eins aðila hér-
lendis, sem vilja veita erlendum
ferðamönnum hér ýmsa þjón-
ustu.
Talað hefur verið um, aö fyrsta
ferð ferjunnar héðan yröi 28. júni
I sumar, og siðan vikulega út
ágúst.
— SHH
Nyleg
matar-
mylsna
bœlt
Húsa
eystra
Tveir forstöðumenn færeysku að semja við Isienzka aðila um af-
bilaferjunnar Smyrils komu hing- greiðslu hér fyrir Smyril. Margir
aðtil lands á sunnudaginn til þess eru fúsir að taka að sér að verða
— bak-
síða
HARÐARI SAMKEPPNI
FLUGS VIÐ LANDVEG
Títla komin til síns heima
— er í eigu formanns Dýraverndunarsambandsins
Þrösturinn, sem við sögðum
frá í blaðinu I gær, og virtist
ætla að setjast að i Ingólfs-
prenti, er nú kominn til sins
heima. Hann á sér langa sögu að
baki i viðskiptum sinum við
mennina, þvi að með þeim hefur
hann verið frá þvi hann var litill
ungi.
Þrösturinn, sem reyndist vera
starri, þegar allt kom til alls, er
i eigu formanns Dýra-
vemdunarsambandsins, Jór-
unnar Sörensen. Hún hefur alið
hann upp frá þvi hann var l.it-
ill ungi og kennt honum ýmsar
kúnstir. Meðal annars að reyna
að segja nafnið sitt, sem er
Titla, þvi að starri litli er kven-
kyns.
t desember, i einu af þessum
vondu veðrum, slapp Titla frá
Jórunni. Einhverjir krakkar
fundu Titlu og fóru með hana
inn i Blómaval við Sigtún. Það-
an fór hún lika á flakk, og þegar
svo Steingrimur Leifsson i
Ingólfsprenti blistraði á hana,
var hún ekki lengi að verða vin-
kona hans.
En nú er Ti'tla komin til sins
heima og liklega fer hún ekkert
á flakk i bráðina.
— EA