Vísir - 15.04.1975, Blaðsíða 5
Vísir. Þriöjudagur 15. april 1975.
5
ÚTLÖNDÍ MORGUN UTLÖND í MORGUN ÚTL.ÖND í MORGUN ÚTLÖND Umsjón Guðmundur Pétursson
Voga sér ekki að blaka við
skœruliðum Araba
Þaö hefur syrt aftur í ál-
inn hjá Líbanon, eftir að
tveir ráðherrar stjórnar-1
innar hótuðu að segja af
sér ef stjórnin tæki ekki
hart á þeim, sem ábyrgð
bæru á blóðugum átökum
falangista og skæruliða
Palestínuaraba í gær og
fyrradag.
Fréttum ber ekki saman um,
hve margir muni hafa falliö i
þessum átökum. Sumir segja 60,
en aðrir 40, en um 80 manns munu
hafa særzt.
Vinstri sinnar hafa hótað alls-
herjarverkfalli, ef flokkur falang-
ista verði ekki leystur upp.
Stjórnvöld standa uppi máttlitil
gegn ófriðarseggjunum. Libanon-
her hefur látið átökin afskipta-
laus af ótta viö aöverða borinn
ofurliði af Palestinuskæurliöum.
Þvi að svo er komið, aö
Palestinuarabar hafa oröið fleiri
menn undir vopnum i Libanon,
heldur en Libanonher sjálfur,
sem telur aðeins um 15.000 menn.
Falangistar og Palestinuarab-
ar hafa sakað hvor annan um að
hafa átt upptökin að þessum
skærum. — Yfirvöld kröföust
þess, að nokkrir falaijgistar yrðu
framseldir, en þegar flokks-
stjórnin neitaöi var gert áhlaup á
Ain Rumaneh-hverfiö i Beirut,
Tveir ráðherrar
Líbanonstjórnar
hóta að segja af
sér og vinstrisinn-
ar hóta verkföllum
ef falangistum
verði ekki refsað
þar sem falangistar eru i meiri-
hluta, og fjórtán þeirra handtekn-
ir.
Þessi mynd var tekin i Beiriit i
gær, þar sem logaði i átökum.
Hér hafa óeirðarseggir dregiö
stóla og borð út á götuna og
kveikt i, en viða var annars
skipzt á skotum og jafnvel beitt
eldfiaugum.
L h jarta-
þeginn ný-
látinn hjá
dr. Barnard
Prófessor Christian
Barnard neitaði í gær, að
láta uppi, hvers vegna Ivan
Taylor, fyrsti hjartaþeginn
með tvö hjörtu, andaðist —
aðeins nítján vikum eftir
að hjartað var grætt í
hann.
Barnard græddi seinna hjartað
i Taylor 24. nóvember i fyrra, án
þess að nema burtu hjarta Tayl-
ors, sem hann hafði fyrir. — En i
gær var frá þvi greint, að Taylor
hefði látizt 5. april.
Blaðamaður gekk á prófessor-
inn I gær og spurði hann, hver
hefði verið dánarorsökin. — ,,Ég
held ekki, að þér komi það nokk-
urn skapaðan hlut við,” svaraði
þá yfirlæknir Groote Schur-
sjúkrahússins i Höfðaborg.
Barnard sagði, að niðurstöður
likkrufningarinnar yrðu birtar I
læknariti Suður-Afriku.
Hann hefur ekki heldur fengizt
til þess að segja neitt um liðan
Roberts Vickery, bandarisks
skurðlæknis, sem liggur á Groote
Schur og biður bess, að dr. Barn-
ard græði i hann hjarta með nýju
aðferðinni, eða þeirri sömu og
Barnard viðhafði við Taylor.
Annar hjartaþegi, sem gengur
með tvö hjörtu, Leonard Goss (47
ára), sem skorinn var upp á
gamlárskvöld, hefur gengið dag-
lega að störfum sinum núna um
nokkurt bil og segist ekki hafa
verið betur á sig kominn i mörg
ár.
Connally hlýtur
vitnisburð
John Connally, fyrrum
f jármálaráöherra USA,
mun halda áfram i dag
varnarræðu sinni, sem
hann byrjaöi á í gær fyrir
réttinum, þar sem fjallað
er um mútuákæruna gegn
honum.
Connally bar af sér i gær full-
yrðingar Jake Jacobsen, aöal-
vitnis saksóknarans i málinu, um
Róðherror EBE
rœða vínstríðið
Landbúnaöarráðherrar
EBE-landanna koma
saman til fundar í Luxem-
burg i dag í tilraun til þess
aö þurrka upp vínf lóðið hjá
vínræktarbændum sínum
og binda enda á vinstriðið
milli Frakka og ítala.
ítalia og framkvæmdanefnd
EBE hafa höfðað mál á hendur
Frakklandsstjórn til þess að
hindra, að hún stöðvi innflutning
á ódýrum vinum frá Italiu, sem
brýtur i bága við grundvallar-
reglur bandalagsins um
friverzlun.
Hrannazt hafa upp vinbirgðir
hjá EBE vegna mikillar
uppskeru i Suður-Evrópu og um
leið minnkandi neyzlu vins i
Frakklandi. Offramboðið og
sölutregöan hafa leitt til mót-
mælaaðgerða hjá frönskum vin-
bændum, sem mest hafa orðið
fyrir barðinu á þessu.
Aðalumræðuefni ráöherranna i
dag verður tillaga um auknar
verðbætur vins, sem fer i eimingu
til að framleiða vinanda til
iönaðarnotkunar. En einnig mun
bera á góma ráöstafanir til að
draga úr offramleiöslu i fram-
tiðinni.
að hann heföi tvivegis þegið 5
þúsund dala greiðslur frá mjólk-
urframleiðendum fyrir að telja
Nixon forseta á að leyfa hækkun
mjólkurverðs.
Réttarhöldin hafa- nú staðið 8
daga. Segir Connally, að máliö
snúist um, hvorn kviödómendur
marki meira, framburö sinn eða
Jacobsens.
Leiddi hann fjölda vitna fram i
gær, sem báru honum gott orð og
sögöu hann áreiðanlegan og stál-
heiðarlegan. Meðal þeirra var
Lady Bird Johnson, fyrrum for-
setafrú Bandarikjanna. En einnig
komu i vitnastúkuna Robert
McNamara, bankastjóri Alþjóöa-
bankans og fyrrum landvarna-
ráðherra USA, Dean Rusk, fyrr-
um ráðherra, Robert Strauss,
formaður Demókrataflokksins,
sem gaf Connally góðan vitnis-
Connaliy: Hvorum triiið þið bet-
ur, mér eöa honum?
burð, þrátt fyrir liöhlaup þess siö-
arnefnda yfir i Repúblikanaflokk-
inn — og loks kom einnig i vitna-
stúkuna predikarinn, Billy
Graham.
IRSKIR FISKIMENN
LOKA LÍKA HÖFNUM
Fiskimenn liafa iokaö höfninni i
Dublin i mótmæiaskyni viö inn-
flutning á ódýrum fiski frá iönd-
um utan Efnahagsbandaiagsins.
— Þeir virtu aö vettugi i morgun
dómsúrskurð um, að þeim bæri
aö aflétta hafnbanninu þegar I
stað.
Á sama hátt hefur fimm öðrum
höfnum i Irska lýðveldinu verið
lokað með bátum fiskimanna, að
fyrirmynd starfsbræðra þeirra i
Bretlandi. — Segjast sjómennirn-
ir ráðnir i aö halda höfnunum
lokuðum i 36 klst., eða fram á
miðvikudagsmorgun.
Stólu mól-
verkum
Rembrandts
Málverki meistarans
Rembrandts af systur
hans sjálfs var stolið úr
listasafni i Boston i
gær. Tveir menn
vopnaðir héldu safn-
vörðunum i skefjum
með byssum, meðan
þeir fjarlægðu mál-
verkið.
Þetta málverk, sem ber nafn
fyrirsætunnar ,,Elsbeth van
Rijn” er sagt ómetanlegt.
Málvsrkaræningjarnir örk-
uðu inn i safnið um miðjan
dag i gær, drógu upp byssur
sinarog miðuöu þeim á veröina,
meðan þeir tóku málverkið
niður af veggnum. — Þeir börðu
einn varðanna i höfuðiö meö
byssuskefti og varö aö leggja
hann siöar inn á sjukrahús.
Þetta málverk var eitt af sjö
verkum Rembrandts, sem eru
til sýningar i safninu. Það hefur
verið þar i láni siðustu 45 árin.
'Forstööumaöur safnsins gat
ekki upplýst fréttamenn um,
hvað málverkið heföi verið
tryggt hátt. Um þá hlið málsins
annaðist eigandinn sjálfur, en
nafn hans hefur ekki verið látið
uppi.
Enginn skilur, hvað fyrir
þjófunum vakir meö stuldi á
svona frægu verki, sem allir
þekkja. Nýir eigendur gætu
aldrei látið það koma fyrir
annarra sjónir.