Vísir - 15.04.1975, Blaðsíða 3
Visir. Þriðjudagur 15. april 1975.
3
Fjórðungssjúkrahúsið ú Akureyri:
Lokar slysavarðstofunni
ó nóttunni og um helgar
— Dýrt og ónauðsynlegt að óliti yfirlœknisins
Cngm
þjónusta
- kegri
fargjöld
— bandarísk flugfélög
bjóða afslótt ó
ýmsum ferðum til
þess að nó upp
viðskiptum
Flugfélagið National Airlines
býður nú 35% afslátt á vissum
flugleiðum til þeirra farþega,
sem vilja fljúga, án þess að fá
mat eða drykki um borð. Svo
virðist sem fleiri flugféiög stefni
að breytingum á fargjöldum sin-
um til þess að ná upp farþega-
fjölda á ný.
„Heimilislæknir eða
vaktlæknir er jafnfær
og venjulega færari um
að greina og lækna
áverka en þeir mjög
ungu læknar, sem oft-
ast taka á móti á Slysa
varðstofunni á nætur-
þeli þótt þeir starfi á
sjúkrahúsi,” segir
Gauti Arnþórsson, yfir-
læknir Fjórðungs-
sjúkrahússins á Akur-
eyri. Tilkynnt hefur
verið, að slysavarð-
stofa sjúkrahússins
verði framvegis lokuð
yfir nóttina og um helg-
ar.
„Almenningi kann að virðast
það fremur hastarleg breyting á
þjönustuvenjum handlæknis-
deildar sjúkrahússins, að slysa-
varðstofu hennar skuli nú lokað
á nóttunni og yfir helgar,” segir
Gauti. Og hann vill útskýra,
hvaö veldur þeirri breytingu,
auk þeirrar ástæðu, sem að ofan
greinir:
„Erfiðleikar á þvi að tryggja
viðunandi mannafla til reksturs
slysavarðstofunnar með þvi
sniði, sem verið hefur á. undan-
förnum árum, á stóran þátt i
breytingunni,” segir Gauti.
„Kostnaður samfélagsins af þvi
að halda uppi gæzluvakt til þess
eins að taka á móti þeim fáu
smáslysatilfellum, sem berast
slysavarðstofunni á þeim tima,
sem hér um ræðir, er óhóflegur
miðað við nýtingu. Ekki sizt,
þegar þess er gætt, að samtimis
er greitt fyrir gæzluvakt i bæn-
um.”
Og Gauti heldur áfram:
„Leikmenn geta sjálfir annazt
smá áverka, án þess að óhag-
ræði fylgi, enda ætið kostur á að
leita læknis á dagtima innan
fárra klukkutima. Handlæknis-
deild sjúkrahússins er ætið til
reiðu, hvenær sem er sólar-
hringsins með allan sinn mann-
afla, skiptistofur og skurðstofur
fyrir þá sjúklinga, sem ekki er
unnt að veita jafngóða og
örugga meðferð við önnur skil-
yrði.
Sýnist svo sem algengur ótti
við að sjá blóð hvetji fólk til að
koma tafarlaust til læknis, ef
eitthvað blæðir úr skeinu,” seg-
ir Gauti ennfremur. „Auk ótt-
ans við blóð sýnist hér einnig
koma til skortur á viðunandi
fræðslu almenningsum meðferð
smárra áverka. Þetta þarf eng-
anað undra, þegar þess er gætt,
að uppfræðsla læknisefna aö
þessu leyti sýnist einnig ábóta-
vant. Algengt er, að sá séu
saumuð tafarlaust án tillits til
þess, hvort það er skynsamlegt
eða jafnvel áhættulaust.”
— ÞJM
önnur félög bjóða til dæmis
25% afslátt á vissum féröum til
farþega, sem panta flug með viku
fyrirvara. Trans World Airlines
vill endurvekja barna- og fjöl-
skylduafslátt. Nýlega fór World
Airways fram á að fá að bjóða
áætlunarferðir milli meginland-
anna á lægra verði en áður.
Staða flugfélaga i Banda-
rikjunum virðist stöðugt hafa far-
ið versnandi siöustu þrjá mánuði,
og þvi ekki skritið þó að flugfélög-
in gripi til slikra ráða.
Afsláttarfargjöldin eru þó háð
ýmsum takmörkunum. Sum
verða ekki I sumar. Hvort svo af-
sláttarfargjöldin ná viðskiptum
upp aftur eru skiptar skoðanir
um. National Airlines telur svo
vera og segir, að 40% þeirra, sem
keypt hafa farmiða aö undan-
förnu, hefðu ekki gert þaö, ef far-
gjaldið hefði verið dýrara.
Dálkahöfundurinn Art Buch-
wald slær á létta strengi I sam-
bandi við þetta.
„Ég sé þetta i anda,” segir
hann. „Fimmtiu manns sitjandi I
vélinni án þess svo mikið sem að
sjá flugfreyju. Allir hafa nesti
meö sér. Um leið og vélin hefur
hafið sig til flugs, hrópar einn:
„Vill nokkur skipta á samloku
með kjúklingasalati og fá sam-
loku með nautakjöti I staðinn?”
— EA
Friðrik á
frí í dag
— Larsen hœttur
Friðrik Ólafsson á fri á skák-
mótinu I Las Palmas I dag, þvi
að sá, sem hann átti að tefla
við, danski stórmeistarinn
Larsen, er hættur og farinn
heim. Sagt er, að hann hafi
hætt af fjölskylduástæðum, en
kona hans mun lasin.
Friðrik vann Rodrigues i
gær og hefur þannig fjóra
vinninga eftir sjö umferðir. -
— SHH.
VILTU
SOFA
UPPI Á
ÞAKI?
Margur er sá, sem ekki hefur
notið ferðarinnar af kviða fyrir
þvi að þurfa að tjalda. Ekki eru
heldur allir ánægðir með að
dragnast með hjólhús eða tjaid-
vagn, sem dregur verulega úr
ferðahraðanum. En nú er komið
eitt áhaldið enn, sem á að
auðvelda ferðam anninum
ferðalagið. Það er tjald, sem er
spennt eins og farangursgrind
ofan á bilinn. Með rúmlega einu
handtaki má reisa tjaldið og
fella, og þegar það hefur verið
reist, er I þvi sæmiiegasta rúm
fyrir tvo, meira að segja
svampdýna undir. Þaö er Festi
á Klapparstig sem selur þessi
tjöld, og verðið með söluskatti
er um 69 þúsund krónur. Ljósm.
Visis Jim.
LEKNR FUNDNAR TIL AD
VERNDA HLUT SJÓMANNA
VK) GENGISFELLINGAR
10 manna nefnd skili niðurstöðu fyrir 1. des.
— drœm þútttaka í atkvœðagreiðslu um samningana
Sjómannsambandið og Lands-
samband íslenzkra útvegsmanna
samþykktu I þessum kjara-
samningum að óska eftir þvi við
rikisstjórnina, að komið verði i
veg fyrir framvegis, að ráð-
stafanir við gengisfellingar bitni
jafn hart á skiptakjörum sjó-
manna og verið hefur.
t bréfi, sem báðir aðilar sam-
þykktu, er óskað eftir við rikis-
stjórnina, að þjóðhagsstofnun
gangist fyrir endurskoðun á þeim
reglum, sem gilt hafa um þessi
efni.
Kjósa skal, samkvæmt
bréfinu, 10 manna nefnd, sem
skili niðurstöðum fyrir 1. desem-
ber. Nefndina eiga að skipa full-
trúi þjóðhagsstofnunar, sem
verður formaður hennar, tveir
fulltrúar frá Sjómannasamband-
inu, Farmannasambandinu og
Llú hverju og einn frá Alþýðu-
sambandi Vestfjarða, Alþýðu-
sambandi Austfjarða og Félagi
islenzkra botnvörpuskipaeigenda
hverju.
Hiímar Jónsson, formaður Sjó-
mannafélags Reykjavikur, gaf
blaðinu þessar upplýsingar I
gær. Atkvæðagreiðsla um sjó-
mannasamningana fór fram i
fyrradag i sjómannafélögunurh.
Hilmar sagði, að um 50 manns
hefðu mætt á fundi Sjómanna-
félags Reykjavikur um samning-
ana. 1 Sjómannafélagi Reykja-
vikur eru um 1400 félagar. Gagn-
rýni hefði verið litil og umræður
málefnalegar. Við spurðum
Hilmar, hvort ekki væri öruggt,
að samningarnir yrðu samþykkt-
ir. „Menn renna blint i sjóinn um
það,” sagði hann.
Hilmar sagði, að helzt hefði
komið fram óánægja á,að sjó-
menn hefðu enn ekki fengið alger-
lega fæði inn i samningana.
Hlutaskipti hafa verið gerð sjó-
mönnum nokkuð hagstæðari I
þessum samningum, en sumum
mun þykja of skammt gengið.
Atkvæði I Sjómannasamband-
inu verða talin eftir hádegið i dag.
Þá á flugvél að vera komin frá
Akureyri með atkvæðaseðla.
Akurnesingar slitu sig þó frá og
felldu samkomulagið með 35 at-
kvæðum gegn 9. — HH
Örugg persónuskilríki
gerð á tveim mínútum
Ný gerð skilrikja er nú fáanleg I
Stúdiói Guömundar, Einholti 1.
Hér er um að ræða spjald með lit-
mynd af viðkomandi manni,
ásamt þeim upplýsingum, sem
henta þykir að hafa á spjaldinu.
Allt er þetta tekið saman í einni
mynd, sem ógerlegt er að falsa
eftir á. Spjaldið er siðan fellt inn I
glært plastumslag, sem er brætt
til lokunar.
Skilriki þessi eru gerð i
Polaroid-vél, sem skilar þeim
tilbúnum á tveimur minútum.
Stofnanir, sem vilja nota sér
þessa þjónustu, geta sjálfar aflað
sér spjalds með igreyptu merki
sinu eða heiti. Má með þvi
tryggja, að illmögulegt sé að
falsa skilrikin.
Hægt er að fá þau greypt i
plastumslög með klemmu, og
nota þau þannig sem barmmerki,
ef henta þykir. Einnig er hægt að
hafa mismunandi litan bakgrunn
á myndum spjaldsins, ef hentugt
þætti að sjá i fljótheitum, hvaða
réttindi skilrfkin veita.
Noktun nafnskirteina hefur
farið mjög i vöxt undanfarið, en
sá ókostur hefur verið á nafnskir-
teinum Islendinga, að á þeim er
ekki mynd eða annað, sem örugg-
lega sannar, að handhafi sé sá,
sem hann segist vera. Skirteinin
frá Stúdói Guðmundar myndu
taka af allan vafa þar að lútandi.
Persónuskilriki af þessari gerð
eru mikið notuð hjá flugfélögum,
skólum, bönkum og félagasam-
tökum um allan heim. 10 fylki
Bandarikjanna nota skirteini af
þessu tagi fyrir ökuskirteini.
Stúdió Guðmundar hyggst
bjóða þessa þjónustu fyrirtækj-
um, skólum og öðrum stofnunum,
og getur verðið farið niður i 300
krónur fyrir spjaldið, sé um stóra
hópa að ræða. Vélin, sem býr þau
til, er auðveld i meðförum og
hægt að fara með hana þangað,
sem verkefnið er. -SHH