Vísir - 15.04.1975, Side 11
Versta tap
Svía í 3 ár!
Þessi mynd er af þýzka kvennaliðinu Eintracht Mindcn, sem Islenzka stúlkan Kristbjörg Magnúsdóttir
— eiginkona Axels Axelssonar —leikur meö. Hún er önnur frá vinstri f aftari röö og er meö númer 14 á
búningnum.
Eiginkona Axels
líka í eldlínunni
Það er mikiö aö gera hjá Axel
Axelssyni og eiginkonu hans,
Kristbjörgu Magnúsdóttur, i
þýzka handboltanum þessa dag-
ana. Liöin sem þau leika meö, eru
bæði i úrslitum f deildarkeppninni
i Vestur-Þýzkalandi, sem nú
stendur yfir, en þar leika fjögur
liö 11. deild karla og fjögur liö í 1.
deild kvenna.
Kristbjörg leikur með
Eintracht Minden, sem sigraði i
vestur-deildinni, og hefur leikið
sinn leik i úrslitakeppninni. Var
sá leikur gegn Berlinarliðinu TSV
Guts Muths, og lauk honum með
jafntefli 10:10.
Eintracht Minden á eftir siðari
leikinn við Guts Muths, og vonast
Minden-stúlkurnar eftir að geta
gert betur i þeim leik, en sigur i
honum þýðir, aðliðið kemst beint
I úrslit.
Liöið, sem Axel leikur með —
Dankersen — er einnig frá Mind-
en, og það á góða möguleika á að
komast i úrslit eftir 22:11 sigur
gegn TUS Hofwier. Úrslitaleikur-
inn verður annaðhvort við VFL
Gummersbach eða TSV Rint-
heim, en það eru hin tvö liðin,
sem leika um þýzka meistara-
titilinn.
Við sögðum frá þvi i gær, að
Gummersbach hefði sigrað i fyrri
leiknum 17:16. Það var ekki rétt
— Rintheim sigraði i leiknum
17:16 eftir að hafa haft 10:7 yfir i
hálfleik. Sá leikur för fram á
heimavelli Rintheim en búizt er
við að Gummersbach sigri auö-
veldlega á heimavelli i siöari
leiknum.
Það liðið sem tapar i úrslitá-
leiknum mun siðan leika tvo leiki
við liðið sem verður i þriðja sæti
um rétt til að keppa i Evrópu-
keppni bikarmeistara, sem nú er
verið að setja af stað, og hefst um
leið og Evrópukeppni meistara-
liða i haust. — klp —
Sænska landsliðið i ishokkey
tapaði hrottalega fyrir Tékkum i
gærkvöldi i heimsmeistara-
keppninni i Dusseldorf. Lokatölur
7-0 og það er versta tap Svia i sjö
ár. Þjóðarsorg i Sviþjóð eftir
þessa útreið i vinsælustu iþrótta-
greininni þar i landi — og margir
gátu ekki horft á beina sjónvarps-
sendingu frá leiknum til loka!
Það var i fyrstu lotunni, sem
Tékkar „rotuðu” sænska — þrjú
mörk skoruð á tæpri minútu. Hið
fyrsta skoraði Bohuslav Eber-
mann eftir 6.26 min. Milan
Martinic nokkrum sekúndum sið-
ar og Josef Augusta það þriðja á
7.18 min.
Þá var Svium öllum lokið og
þeir áttu ekkert svar við leiftur-
hraða Tékka og nákvæmni. Eftir
lOmin. stóð 4-0 og lokatölur svo 7-
0. t fyrri leik liðanna — i Munchen
i siðustu viku — sigruðu Tékkar
með 5-2. Þá léku Sovétrikin og
Finnland einnig i gærkvöldi og
sigraði sovézka liðið 5-2. Leikur
Tékka og Rússa á fimmtudag
verður hreinn úrslitaleikur á
mótinu, en staðan eftir leikina i
gærkvöldi er þannig:
Sovétrikin 7 7 0 0 58-17 14
Tékkóslóvakia 7 6 0 1 41-14 12
Sviþjóð 7 4 0 3 34-16 8
Finnland 7 3 0 4 29-27 6
Pólland 7 1 0 6 11-57 2
Bandarikin 7 0 0 7 17-59 0
— hsim.
'Þeir sögöust mundu YJæja, en hverjir'
berja mig ef ég mætti., eru þeir — hvað
J hafa þeir á mótif
. Lolla?.
Þetta er glæpaflokkur. Veðjuðu
Þeir hættulegir!
Inc., 1973. World.iighu rezerved
© King Fenture* Syndicate
Jafnað úr víti ó
lokamínútunni!
Evrópumeistarar Bayern
Munchen eru að hressast i knatt-
spyrnunni. A sunnudag tókst
þeim að ná jafntefli gegn efsta liði
1. deildarinnar vestur-þýzku,
Kourussia Mönchenglandbach, á
heimavelli sinum — Olympiuleik-
vanginum f Munchen.
Að visu var leikur Bayern ekki
beint sannfærandi —en þó greini-
leg framför frá þvi, sem liðið hef-
ur yfirleitt sýnt á keppnistfmabil-
inu. Borussia sótti miklu meira i
leiknum og Wolfgang Kulik skor-
aði i byrjun siðari hálfleiksins. En
á siðustu minútu leiksins fékk
Bayern vitaspyrnu. Markakóng-
urinn Gerd Muller skoraði af
öryggi 1-1.
Borussia hefur ekki tapað á sið-
ustu 17 deildaleikjum sinum og
hefur nú fjögurra stiga forustu i 1.
deild. Hertha, Berlin, er i öðru
sæti — en Bayern i ellefta. Tveir
aðrir leikir voru i 1. deild,
Eintracht Brunswich vann Kick-
ers Offenbach 1-0, en Wuppertal-
er og Stuttgart gerðu jafntefli 2-2.
Leikið var i bikarkeppninni.
Eintracht Frankfurt, Duisburg,
Essen og Dortmund komust i.
undanúrslit. Eintracht vann Köln
4-2, Duisburg Werder, Bremen, 2-
0 á útivelli, Essen Dusseldorf 1-0,
og Vfb Stuttgart (áhugalið) tap-
aði heima fyrir Borussia, Dort-
mund 0-4. — hsim.
Hún ef stórkostleg — fimleika-
kona f gæöaflokki meö
Turitschevu og Olgu Korbut. t
kvöld fáum við aö sjá Natalfnu
Krashennikovu á fimleikasýning-
unni i Laugardalshöllinni ásamt
nokkrum öörum löndum hennar,
sem eru i fremstu röö i heimin-
um. Natalfna er núverandi Sovét-
meistari og hefur oröiö heims-
meistari i fiokkakeppni fyrir
Sovétrikin. Mynd Bjarnleifur.
UPPSLATTUR I EXTRABLAÐINU I GÆRDAG:
Spœnsk stórfélög elta
Jóhannes Eðvaldsson
í Extr ablaðinu
danska, sem kom út um
hádegi i gær, er þvi sleg-
ið upp sem einni aðal-
frétt blaðsins, að þekkt
knattspyrnufélög á
Spáni séu á eftir ís-
lendingnum Jóhannesi
Eðvaldssyni, sem sé hjá
danska 1. deildarliðinu
Holbæk.
Svo mikið gerir blaðið úr þessu,
að það notaði þessa frétt á fregn-
miða, eða auglýsingar, sem sett-
ar eru upp á öllum blaðsöluturn-
um, og öðrum stöðum, þar sem
Extrabladet er selt i Danmörku.
Þar stóð meö stærstu stöfum, að
spænskir stórklúbbar væru á eftir
leikmanni frá Holbæk.
Blaðið getur þess ekki i grein
sinni hvaða klúbbur eða klúbbar
þetta séu, né heldur hvaðan það
hefur fréttina. t henni er viðtal
ÞÆR KOMU A OVART
Stúlkurnar frá Laugum komu
okkur algerlega á óvart í blak-
inu —sýndu góöan leik i úrslita-
leiknum viö Vlghólaskóla,
Kópavogi, og sigruöu meö mikl-
um yfirburöum. Þetta er mjög
sterkt liö á okkar mælikvaröa
og gefur ekki eftir þeim tveimur
liöum, sem leika til úrslita i
kvennaflokki á islandsmótinu,
nema siöur sé, sagöi Guö-
mundur Skúli Stefánsson,
Iþróttakennari, eftir úrsiitaleik-
inn á sunnudag milli Lauga og
Vighólaskóla i iþróttahúsi
Kennaraháskóians I stúlkna-
flokki gagnfræöaskólanna.
Og til hliöar eru stúlkurnar úr
sigurliðiLaugaskóIa.Efri röö frá
vinstri Agnes Einarsdóttir,
Bergljót Þorsteinsdóttir, Unnur
Jónsdóttir, Helga Matthfasdótt-
ir, Ragna Erlingsdóttir og
Siguröur Viöar, kennari á Laug1-
um og þjálfari liösins. Fremri
röö Kristjana Skúladóttir,
Laufey Skúladóttir, tvfburar, og
Heba Hallsdóttir. Bjarnleifur
tók myndina eftir úrslitaleikinn.
Mikil þátttaka var i skólamót-
inu I blaki og keppt I tveimur
flokkum, gagnfræöa- og fram-
haldsskólaflokkum. Skipt var i
þrjá riðla Suður- Noröur- og
Austurland. í framhaldsskóla-
flokknum sigruðu Samvinnu-
skólinn Bifröst (karlaflokki) og
Menntaskólinn á Akureyri
(kvennaflokki), og Vfghólaskóli
i karlaflokki gagnfræöaskólans,
en Laugar i kvennaflokknum.
— hsim.
við Bosse Hákonsson, þjálfara
Holbæk, en hann segir þar, að
hann viti ekkert um þetta mál.
Það komi sér þó ekki á óvart þótt
einhverjir stórklúbbar i Evrópu
hafi áhuga á tslendingnum, því
hann sé mjög góður knattspyrnu-
maður. — klp —
Ármann-KR 6:6
Armann og KR gerðu jafntefli I
Sigurgeirsmótinu I sundknattleik
6-6. Sigurður Þorkelsson skoraöi
fyrsta markið fyrir Armann, en
Ólafur Gunnlaugsson jafnaði.
Pétur Pétursson kom Ármanni i
2-1, en Ólafur skoraði siðan tvö
mörk. 3-2 fyrir KR. Gunnar Ást-
valdsson jafnaði. KR-ingar kom-
ust aftur yfir með marki Vil-
lijálms Þorgeirssonar — en
Stefán Ingólfsson jafnaði og Pét-
ur kom Ármanni I 6-4. Enn var
Ólafur á ferðinni — skoraði tvö
siðustu mörkin fyrir KR i leiknum
eða fimm mörk alls.
i kvöld hcldur mótið áfram kl.
9.30 I Sundhöllinni. Þá leika Ægir
og Ármann. Siðasti leikurinn
verður mánudaginn 21. april. Þá
leika Ármann og Ægir. —hsim.
— Tékkar unnu þá 7:0 í heimsmeistara-
keppninni í íshokkey í gœrkvöldi
Valsmenn fóru
brosandi í bað
en Magnús Bergs skoraði sigurmark þeirra
gegn Ármanni á lokamínútu leiksins
Hún var ekki upp á marga fiska knatt-
spyrnan, sem Reykjavikurfélögin Valur
og Ármann buðu upp á I Reykjavikur-
mótinu i knattspyrnu á Melavellinum i
gærkvöldi. Valsmenn komust brosandi
út úr þeirri viðureign þvi þeir skoruðu
eina mark leiksins, og var þar að verki
ungur piltur, Magnús Bergs, sem kom
inn á i siðari hálfleik fyrir Hermann
Gunnarsson.
Þetta mark lét biða eftir sér fram á
siðustu minútu leiksins, þegar allir voru
búnir að sætta sig við jafntefli. Ar-
menningar gleymdu sér i baráttunni við
að halda jöfnu, og Magnús komst einn
upp miðjuna, þar sem hann átti greiöa
leið að marki.
Valsmenn léku þokkalega vel fyrstu
20 minúturnar, en siðan ekki söguna
meir. Þeir áttu fleiri tækifæri til að
skora en Armenningar, en heppnin var
ekki með þeim. Auk þess þurftu þeir að
glima við mjög góðan markvörð —
ögmund Kristinsson — sem hvað eftir
annað varði meistaralega frá peim.
Armannsliðið barðist mjög vel I leikn-
um, en litið fór fyrir samspilinu, eins og
hjá Valsmönnum. Menn voru iðnari við
að senda boltann á mótherja en sam-
herja og var það aðaleinkenni leiksins.
Næstu leikir i meistaraflokki verða
um helgina. A laugardag leika
KR—Vikingur, sunnudag Valur—-Fram
og mánudag Þróttur—Armann. 1 kvöld
verða fyrstu leikirnar i Reykjavikur-
mótinu i 1. flokki, og á morgun leika á
Melavellinum Valur—IBK i Meistara-
keppni KSI.
— klp —
Fyrirliðinn var
rekinn af velli
Þaö skeöi tvennt i itölsku 1. deildinni sl. sunnudag, sem Italir munu tala um næstu
árin. Napoli skoraöi sjö!!! mörk gegn Terana, en ár og dagur er siöan sllkt hefur
skeö, og fyrirliöi Italska landsliösins, Facchetti hjá Milanó, var rekinn af leikvelli í
fyrsta skiptiá leikferli sinum — eftir yfir 400 deilduleiki. Dæmd var hendi á
Facchetti og hann mótmælti meö fyrrgreindum afleiöingum.
Juventus hefur enn þriggja stiga forskot á Napoli — geröi jai’ntefli viö Cagliari á
sunnudag 1-1. Jose Altafini jafnaöi fyrir Juventus tveimur mfn. fyrir leikslok. Lazio
vann Varese 2-0 og Bologna og AC Milanó geröu jafntefli 0-0, en Inter vann
Fiorentina 1-0.
t Belgiu vann efsta iiðiö Molenbeek Lierse 2-0 á sunnudag og hefur fimm stiga
forskot á Anderlecht, sem sigraöi Maiines 0-4á útivelli. Standard Liege, liðiö, sem
Asgeir Sigurvinsson leikur meö, vann góöan sigur á heimavelli — sigraöi Beringen
4-1.
t Holiandi hefur Eindhoven enn forustu eftir 30. umferö. Er meö 47 stig og geröi
jafntefli á sunnudag viö de Graafschap á útivelli Fejenoorder i ööru sæti meö 46 stig
og vann Rotterdam-liöiö Excelsior á sunnudag 1-0. Ajax er I þriöja sæti meö 45 stig
og vann Alkmaar 4-0. t Portúgal er Benfica á góöri leiö meö aö tryggja sér meistara-
titilinn hefur fjögurra stiga forskot á Sporting. Bæöi liöin unnu á sunnudag. —
Benfica Atletico 3-0 á útivelii, en Sporting Oriental 3-0 heima. Ekki var leikið á
Spáni vegna landsleik Spánarog Rúmeniu i Evrópukeppninni nk. fimmtudag. -hsím.
Fram fór hraðferð
upp í 1. deildina!
Eftir afteins eins árs veru I 3. deild
og siðan eins árs veru i 2. deild tryggöi
Fram sér sæti í 1. deildinni i körfu-
knattleik næsta ár með þvi að sigra
Borgarnes I úrslitaleiknum i 2. deild
tslandsmótsins á laugardaginn með 81
stigi gegn 64.
Þrjú lið áttu upphaflega að leika um
sigurinn i deildinni og sætið i 1. deild
næsta ár — Fram, Þór og Borgarnes —
en aðeins tvö þeirra mættu. Stjórn Þórs
ákvað að senda lið sitt ekki suður i úr-
slitakeppnina vegna agabrots nokkurra
leikmanna um fyrri helgi, og fórnaði þar
með möguleikanum á sæti i 1. deild
næsta ár.
Hinir unguleikmenn Fram náðu fljótt
forustu i leiknum við Borgarnes og
komust m.a. i 25:10. 1 hálíleik höfðu þó
Borgnesingar náð að minnka biliö t 3
stig — 35:32 — en um miðjan siðari hálf-
leik voru þeir einu stigi undir — 51:50.
En þá tóku Framararnir, sem flestir eru
á aldrinum 17 til 20ára, heldur betur
við sér og sigruðu með 17 stiga mun —
81:64.
Þjálfari Fram i vetur hefur veriö
fyrirliði tR, sigurvegaranna i 1. deild.
Kristinn Jörundsson, og má með sanni
segja, að körfuknattleiksvertiðin hafi
verið stórglæsileg hjá honum i vetur.
klp-
Alltaf í öðru sœti
Við sögðum frá þvi á dögunum, aö karlalið KR I körfuknattleik heföi oröiö I ööru
sæti I öllum mótunum, sem liöiö tók þátt I í vetur — íslandsmótinu, Reykjavikur-
mótinu og Bikarkeppninni.
Þetta hafa nú KR-stúlkurnar ikörfuboltanum leikiö eftir. Þær töpuöu úrslitaleikn-
um I bikarkeppninni fyrir Þór á Akureyri á sunnudag og uröu þvf þar i ööru sæti,
cins og I Reykjavlkur og íslandsmótinu.
Þórsstúlkurnar sigruðu meö 20 stigum gegn 16 eftir aö staöan f hálfleik haföi veriö
8:7 fyrir heimaiiöiö. Eftir sjö minútna leik var staöan 1:0 fyrir Þórsstúlkurnar!!!
— klp —