Vísir - 18.04.1975, Qupperneq 1
VISIR
65. árg. Föstudagur 18. apríl 1975 — 88. tbl.
Einar eftir Moskvuferðina:
EKKERT MAL -
LEYNDARMÁL -
baksíða
Kisa í hrakningum
— baksíða
„Kunningjarnir
kalla mig
Loðmund"
— baksíða
•
GULLFOSS-
GLUGGINN
OPNAÐUR
— leiðari um ferju-
flutninga Fœreyinga
— bls. 6
„Mesf til
að halda
menningar-
sambandi"
— sagði Birgir
ísleifur Gunnarsson,
borgarstjóri, um
fund með FÍM og
BÍL í dag
„Þetta er nánast rabb-
fundur. Þar verða engar til-
lögur lagðar fyrir,” sagði
Birgir isleifur Gunnarsson,
borgarstjóri, sem hefur boð-
að stjórnir Félags islenzkra
myndlistarmanna og Banda-
lags islenzkra listamanna til
sin á fund i dag.
,,Það má kannski segja, að
þessi fundur sé mest til að
halda inenningarsam-
bandi,” sagði Birgir isleifur.
Það er sem sagt allt við
svipað, livað snertir deiluna
um Kjarvalsstaði. Myndlist-
armenn hafa aftur á móti
fengið lóð i Kópavogi undir
sýningarhús, sem þeir hugsa
sér að koma þar upp hið
fyrsta. Um helgina verður
haldinn aðalfundur Banda-
lags islenzkra listamanna,
og er búizt við, að formanns-
kosningar beri mjög keim af
þvi, liver sé talinn liklegast-
ur til aö koma byggingar-
málinu röggsamlega fram.
— SIIIl
12-1400 bílar óseldir
Verða nýju bílarnir
boðnir upp i sumar?
Enn er fjöldi nýrra blla óseldur I landinu, og þótt nokkuð hafi selzt, er tæpast hægt að segja, að salan sé
ör.'Spurningin er, hvað gert verður við þá bíla, sem óscldir veröa i sumar. Ljósm. VIsis Bragi.
„Bilarnir eru ekki
orðnir það gamlir i
landinu að það sé kom-
ið að uppboði ennþá. Til
þess þarf varan að
verða ársgömul. Mér
skilst, að það sé þá ekki
fyrr en i júni eða júli,
sem það gæti komið
til”.
Þetta sagði tollstjóri, Björn
Hermannsson, þegar við höfð-
um samband við hann i gær
I sambandi við þá ótollafgreiddu
bfla, sem nú biða bara eftir þvi
að ganga út.
Það kom fram i Visi fyrir
nokkru að talið væri að óseldar
bifreiðar i landinu væru um 1200
til 1400 að tölu.
Tollstjóri kvaðst ekki hafa
neina tölu um þá bila, sem
óseldir eru, en sagði að það gæti
sjálfsagt staðizt, að þeir væru á
annað þúsund.
En varðandi uppboðið á bilun-
um sagðist tollstjóri búast við
þvi, að það yrði eins og með
aðra vöru, „nerna að þeir sendi
vöruna úr lahdi, þvi að það
mega þeir að sjálfsögðu,” bætti
hann við.
,,En nú er alltaf verið að toll-
afgreiða nokkra bila”, sagði
hann ennfremur. „Þannig að
það smá gengur á þetta, þegar
ekkert nýtt kemur i staðinn.”
Gat hann i þvi sambandi um,
að nýlega væri búið að veita
eftirgjöf til sjúklinga og ör-
yrkja. Sagði hann þar vera það
marga sem fengju ivilnanir I
tollum, ,,að það fara sjálfsagt
nokkur hundruð af bilum og
hafa farið þegar.” —EA
Tryggja hús sín
gegn hamförum
nóttúrunnar
— frumvarp um nýja skyldutryggingu eftir helgi
„Eftir helgina kemur
fram frumvarp, sem
fjallar um skyldutrygg-
ingu á húseignir og lausa-
fé, til þess að bæta tjón
vegna náttúruhamfara,
eldgosa, jarðskjálfta og
skriðufalla," sagði
Matthias Bjarnason,
tryggingaráðherra, í við-
tali við Visi í morgun.
,,Ég skipaði nefnd 30. desem-
ber siðast liðinn til þess að at-
huga þessi mál og semja frum-
varpið,” sagði ráðherra. ,,i
henni áttu sæti Ásgeir Ólafsson,
forstjóri Brunabótafélags is-
lands, Benedikt Sigurjónsson,
hæstaréttardómari og Bjarni
Þórðarson, tryggingafræðingur.
Þetta frumvarp er i prentun, en
verður útbýtt á alþingi i byrjun
vikunnar.”
Matthias vildi ekki skýra frá
efni frumvarpsins, en i þvi mun
vera gert ráð fyrir, að húseig-
endur greiði visst hlutfall af
brunabótamati fasteigna sinna,
sem mun vera 250 krónur af
hverri milljón i brunabótamati,
unz sjóðurinn hefur náð vissri
upphæð, og siðan aftur, ef
hörmungar dynja yfir. — SHH
Samkeppnin harðnar á sykurmarkaðnum:
KRON borgar
með sykrinum
Hafi maður gert
skökk innkaup verður
maður að taka af-
leiðingunum. Þess
vegna er það nú, sem
KRON hefur lækkað
verð á sykri i sinum
verzlunum til jafns við
lægsta sykurverð i
öðrum verzlunum,”
sagði Ingólfur ólafs-
son, kaupfélagsstjóri i
viðtali við Visi i
inorgun.
„Þetta þýðir það.að KRON
þa rf að borg a um 65 k rón ur með
hverju kilói miðað við fyrra út-
söluverð,” sagði Ingólfur. „En i
flestum verzlunum okkar var
kilóið selt á 310 krónur, en var
að hækka með nýjum sending-
um. Verðið var i nokkrum
verzlunum komið upp i 410
krónur.”
Ekki gat Ingólfur svarað þvi,
hversu lengi KRON mundi
borga með sykrinum:
„Verðlækkunin hjá Hagkaupi,
Kjöti og Fiski og Kaupgarði
kom nokkuð óvænt og okkur
hefur ekki unnizt timi til að átta
okkur fyllilega á hlutunum.”
KRON hefur að sjálfsögðu
keypt sinn sykur frá Sam-
bandinu og kosta tvö kilóin i
heildsölu 560 krónur, en út úr
KRON-búðunum kos:a tvö
kilóin i dag 490 krónur.
Aðspurður, hvort KRON f'æri
út I að flytja inn sykur fyrir
verzlanir sinar upp á eigin
spýtur svaraði Ingólfur aðeins:
„Það er möguleiki sem hefur
komið til tals.”