Vísir - 18.04.1975, Blaðsíða 3
Vísir. Föstudagur 18. apríl 1975.
3
Tekjuskiptingin
á landinu
Norðlend-
ingar
aftarlega
á merinni
Norðlendingar segjast vera
aftarlega á merinni i tekju-
skiptingu. A Norðurlandi öllu
bjuggu 15,6 af hundraði iands-
manna, en i þeirra hlut komu að-
eins 14,2 af hundraði teknanna.
Hins vegar bjuggu i Reykjavik
29,5 af hundraði landslýðs, en
hluturinn af tekjunum var stærri
eða 42,1%. Þessar tölur eru
miðaðar við lok ársins 1972.
Mismunurinn á ibúahlutfallinu
og teknahlutfallinu var þvi 2,6 af
hundraði hagstæður Reykviking-
um, en 1,4 af hundraði óhag-
stæður Norðlendingum.
Reykjanes var 0,4 af hundraði i
plús, þegar þessi hlutföll voru
borin saman, en önnur kjördæmi i
minus. Vesturland, Austur'iand og
Suðurland voru hálft prósent i
minus en Vestfirðir aðeins örlilið
brot úr prósenti i minus.
-HH.
Exorcist
nálgast
Útvegsbankinn:
Gamalgróinn
bankamaður
fékk banka-
stjérastöðu
Flugfreyjur
fara til
Eitthvað fyrir ferðalanga í Fœreyjum:
HVALUR FASTUR
I SKÁLAFIRÐI
Frændum okkar Færeyingum
ieggst ailtaf eitthvað til. Um leið
og þeir opna nýja og góða ieið til
ferða að og frá eylöndunum hér
I norðri, hafa þeir heima i Fær-
eyjum fengið nýtt fyrirbrigöi,
sem liklegt er til að lokka að
ferðamenn.
Þetta er grfðarlega stór búr-
hvalur, sem kominn er i Skála-
fjörð og syndir þar hring eftir
hring. En ekki kemst hann út,
og er þar um að kenna hugvit-
samlegu sköpulagi skepnunnar.
t Skálafirði háttar svo til, að
þegar komið er af hafi grynnist
fjörðurinn smátt og smátt, unz
hann er orðinn örgrunnur, en þá
kemur skyndilega marbakki og
innan hans er fjörðurinn aftur
Kvikmyndin Exorcist, sem
mikið var rætt um á timabiii I
vetur, er nú að náigast iandið.
Prufueintak er væntaniegt á
næstunni, og sagði Arni
djúpur. Þarna komst búri
klakklaust inn, en þegar hann
ætlar út aftur, gefa hin með-
fæddu bergmálstæki hans til
kynna, að þarna sé þverhniptur
farartálmi, sem hann komist
ekki fram hjá.
Og hvalsauminginn á ekki
annars úrkosti en svamla þarna
hring eftir hring og éta það sem
fjörðurinn hefur upp á að bjóða.
Sigurd Simonsen, ferðaskrif-
stofumaður frá Þórshöfn, sem
sagði blaðamönnum frá þessu á
fréttafundi vegna Smyrils,
sagöi einnig, að fyrir hefði kom-
ið, að grindhvalavöður hefðu
króazt inni i Skálafirði af sömu
orsökum.
— SHH
Kristjánsson, framkvæmda-
stjóri Austurbæjarbiórs, að
hún yrði fyrst sýnd réttum
yfirvöldum hér, en síöan tekin
ákvörðun um textun og
sýningu. -SHH.
Gamalgróinn bankamaður
hlaut bankastjórastöðuna við
Utvegsbanka íslands I
Reykjavík. A fundi bankaráðs
bankans i gærdag var ákveðið,
að Bjarni Guðbjörnsson, úti-
bússtjóri i Kópavogi, skyldi
hljóta stöðuna. Var það sam-
þykkt með samhljóða atkvæð-
um, en að sjálfsögðu hafði
talsverður þrýstingur verið af
hálfu annarra umsækjenda,
eins og oft vill verða, þegar
ráðið er I siikar stöður.
Bjarni Guðbjörnsson er
fæddur I Reykjavik 1912 og
gerðist starfsmaður við (Jt-
vegsbankann 1941. , Niu árum
siðar var hann ráðinn útibús-
stjóri við bankann á lsafirði og
fyrir rúmum tveim árum við
útibú bankans I Kópavogi.
Hann sat á þingi fyrir Vest-
firðinga á árunum 1967 til 1974.
— JBP —
Kammersveit
Reykjavíkur:
LJÚKA FYRSTA STARFSÁRINU
séttasemjara
Flugfreyjur og viðsemjendur
þeirra, Flugfélag tsiands og
Loftleiöir, hafa nú visað
samningaviðræðum sinum til
sáttasemjara. Fundur hefur þó
ekki verið boðaður þar ennþá.
Að sögn formanns Flugfreyju-
félagsins Erlu Hatlemark hafa
samningar verið lausir siðan 1.
nóvember á slðasta ári. Siðan
hafa staðið yfir viðræður við
Flugfélagið og Loftleiðir, en það
sést vist bezt á timanum hversu
hægt og sigandi viðræður ganga.
Erla sagði, að enn hefði ekkert
verið ákveðið um verkfallsboðun.
Lágmarkslaun flugfreyju I dag
eru 48 þúsund krónur. Hámarks-
laun eru 68.700 krónur. -EA.
Hér eru þau Guðný Guömundsdóttir, Helga Ingóifsdóttir, Graham Tagg og Pétur Þorvaldsson. Þau
frumflytja Divertimento fyrir sembal og strengjatrió eftir Hafliða Hallgrimsson á tónleikum Kammer-
sveitarinnar á sunnudaginn.
AFLAR SÉR ÞORRA-
Prokofieff flutt, en fulltrúar 18.
aldarinnar verða þeir Leopold
Mozart og Johann Sebastian
Bach. Mozart var reyndar
þekktari sem faðir Wolfgangs
Amadeus en sem tónskáld,
enda þótt nokkur verk liggi eftir
hann og þyki áheyrileg. Tón-
leikunum lýkur á Branden-
borgarkonsert Bachs og verður
sembal þá i fyrsta sinn notaður
hér á landi sem einleiks-
hljóbfæri við flutning verksins.
Hljóðfæraleikarar, sem koma
fram, eru 21 talsins, þar af 4
einleikarar. Rut Ingólfsdóttir,
sem er einn félagi sveitarinnar,
tekurekki þátt i hljómleikunum
vegna veikinda. A hún við at-
vinnusiúkdóm aðstriða,en tals-
vert hefur borið á sliku meðal
hljóðfæraleikara i Sinfóniu-
hljómsveitinni. Er þar einkum
um að ræða vöðvabólgu og sina-
skeiðabólgu, sem er atvinnu-
sjúkdómur þeirra, sem leika á
streng jahljóðf ærin.
-JBP-
MATAR
— heldur íslenzka viku á
veitingastað í Luxemburg
— og skipuleggja það nœsta
„Ahugi áheyrenda á starfi
sveitarinnar lofar góðu,” segir I
fréttatilkynningu frá Kammer-
sveit Reýkjavikur. Sveitin er
um þessar mundir að ljúka
starfsári sinu, fyrsta
starfsárinu. Og það er hreint
engin uppgjöf I félögum sveitar-
innar, þviþegar er búið að gera
tónleikaskrá næsta vetrar. Þá
verða fernir tónleikar haldnir,
auk þess sem fiutt veröur tón-
og leikverkið „Sagan af dátan-
um” I samvinnu við Leikfélag
Reykjavikur.
Fjórðu og siðustu tónleikar
þessa fyrsta starfsárs verða
haldnir i sal Menntaskólans I
Hamrahliðásunnudaginnkl. 16.
A tónleikaskrá eru tvö tónverk
frá 18. öld og önnur tvö frá 20.
öldinni. Frumflutt verður
tónverk eftir Hafliða Hallgrims-
son, Divertimento fyrir sembal
og strengjatrló. Verkið var
samið siðastliðið sumar með
Kammersveit Reykjavikur i
huga.
Þá verður verk eftir
Stærsta islendinganýlendan er-
lendis er án efa skemmtistaður-
inn BLACKBESSI Luxemburg, ef
miða á við fermetrafjölda.
Black Bess er jafnan þétt setinn
Islenzkum starfsmönnum flugfé-
laganna Cargolux, Loftleiða og
Luxair, svo og Isíendingum, er
leið eiga um Luxemburg. Chuck
Klisser eigandi staðarins var hér
nýlega á ferð, er blaðamaður VIs-
is náði tali af honum. Chuck
kvaðst vera hér staddur til að afla
sér islenzks þorramatar með til-
heyrandi vökvum, fánum og
hljómplötum. Kvaðst Klisser ætla
að efna til islenzkrar viku á
skemmtistað sinum.
Annars eru þetta beztu skinn,
og i gegnum árin hef ég eignazt
margan góðan islenzkan vin I
Luxemburg.”
Kiisser lét mjög vel af dvöl
sinni hér, en kvaðst vera mjög
undrandi yfir skemmtanalifi okk-
ar hér.
„Aldrei á minni ævi hef ég þurft
ab standa I langri biðröð til þess
eins að komast inn á skemmti-
stað, og þvflikur troðningur, oh
boy”.
„En maturinn ykkar er góður
og hollur, og Islendingar eru gott
fólk að sækja heim.” ö.P.
,,Má ekki bjóða þér hardfish”
skaut Klisser inn i, um leið og
hann hámaði i sig harðfisk eins og
hvert annað sælgæti.
Aðspurðurum hegðan landans I
Black Bess sagði Klisser: „Þeir
bera af, þeir eru sællegri og
ánægðari en aðrir gestir minir, en
eiga stundum til að gleyma lok-
unartima staðarins, og þá reynir
oft á mina fátæklegu islenzku-
kunnáttu, „við fara loka, fara
heim goda not, bless”.
„Má bjóða þér harðfisk?” —
Klisser kunni vel aö meta þenn-
an þjóðarrétt okkar.
Davíð Scheving um ástandið í iðnaðinum:
„MINNI PANTANIR EN
NOKKRU SINNI FYRR"
Starfsmannaf jöldi í
iönaöi er nú minni en áður
og forsvarsmenn fyrir-
tækja spá fækkun starfs-
manna á þessu ári, sagði
Davíð Scheving Thor-
steinsson, formaður
Félags íslenzkra iðnrek-
enda, við setningu
ársþings þeirra.
Innheimta fyrirtækjanna á
andvirði sölu þeirra hefur farið
versnandi og fyrirliggjandi
pantanir eru minni en nokkru
sinni fyrr, sagði hann.
Davið sagði, að það hlyti að
vera vanhugsuð ráðstöfun
stjórnvalda, að stöðva útlán til
iðanðarins i kjölfar gengis-
fellingarinnar, einmitt þegar
iðnaðurinn þyrfti á auknu
rekstarfé að halda til þess, að
gengisfellingin kæmi að gagni
og gegndi þvi hlutverki sinu að
auka og treysta grundvöll
framleiðsluatvinnuveganna.
Heildarframleiðsla i iðnaði
jókst um aðeins f jögur prósent á
siðasta ári. Það er mun minni
aukning en verið hefur i mörg
undanfarin ér. Davið sagði, að
af mörgum tillögum iðnrekenda
til stjórnvalda um úrbætur
hefðiaðeins eitt af stærri
málunum verið leyst, en þó að-
eins að hálfu leyti. Söluskattur i
tolli af vélum framleiðslu-
iðnaðarins hefur verið lækkaður
um helming. Aðrar kröfur séu
sagðar i athugun i ráðuneytum.
. -HH.