Vísir - 07.05.1975, Blaðsíða 8
Vísir. Miðvikudagur 7. mai 1975.
Vlsir. Miðvikudagur 7. mai 1975.
• jjSB ; 4 -■ •“ • 'í. 3' ^ , _ - V,í _ * - }C
■HHhatÉaMÉHH BÉaMWMfctiM
A FRANSKA STIGAKERFIÐ
ORÐIÐ ERINDI HINGAÐ?
Þeirra svar við minnkandi aðsókn ó knattspyrnuleiki var aukastig fyrir 3:0 sigur
eða meir — Svíar og Italir íhuga að taka það upp til að auka aðsóknina aftur
Við sögðum frá þvl I gær, að mjög lé-
leg aðsókn hefði verið að leikjunura I
Reykjavikurmótinu I knattspyrnu I
vor, og kenndum þvi um, að I flestum
leikjunum hefði verið leiðindaveður —
rok og rigning, ef þá ekki var frost og
Benfica meist-
ari í 18. sinn!
Bcnfica tryggði sér á laugar-
daginn portúgalska meistaratitil-
inn I knattspyrnu I átjánda sinn.
Þá lék Benfica við Sporting
Lissabon og náði jafntefli 1:1.
Sporting var eina liðið, sem gat
ógnað Benfica, sem nú er með 47
stig, þegar ein umferð er eftir, en
Sporting er með 44 stig.
—klp—
Svigið ó morgun
Svigkeppni Reykjavikurmóts-
ins, sem fresta varð á dögunum,
fer fram á morgun, uppstign-
ingardag, og hefst kl. tvö. Keppt
verður í Bláfjöllum.
snjókoma — og að fólk hefði engan
áhuga fyrir að sjá knattspyrnu I sllku
veðri.
Nokkrir góðir knattspyrnuunnendur
höfðu samband við okkur I gær út af
þessu og sögðu, að við hefðum ekki
sagt nema hálfa sögu með þessu. Hinir
erlendu þjálfarar, sem hér starfi séu
búnir að innleiða svo stifan varnarleik
hjá liðunum, að ekkert væri lengur
gaman að þvl að horfa á þau leika. Ef
ekki yrði gerð breyting á þessu I ís-
landsmótinu, mætti eins búast við þvi,
að aðsóknin yrði svipuð og I Reykja-
vlkurmótinu og öðrum mótum, sem
hefðu farið fram I vor — áhorfenda-
fjöldinn yrði þetta frá 20 og upp I 500
manns.
Flest Islenzk lið hafa á undanförnum
árum — og þaö löngu áður en þessir
þjálfarar komu — leikið stifari varn-
arleik en sóknarleik, svo ekki má
kenna þeim um allt. Að vlsu hafa verið
undantekningar með eitt og eitt lið, en
I heildina hefur varnarleikurinn sett
meiri svip á leiki okkar beztu liöa en
fjölbreyttur og skemmtiiegur sóknar-
leikur.
En hvað er hægt að gera til að lag-
færa þetta og um leið að fá betri að-
sókn? Um það eru eflaust skiptar
skoðanir eins og margt annað. — En ef
að er gáð, er til eitt ráð, sem ekki er of
mikil fjarstæða, og vel þess virði að
reyna það. Það er að gefa aukastig
fyrir 3:0 sigur eða meir.
Þetta fyrirkomulag var tekið upp I
Frakklandi I fyrra og hefur gefizt
mjög vel. Þar hefur aðsókn að kpatt-
spyrnuleikjum aukizt verulega og
frönsk lið aftur farin aö vekja athygli I
öðrum Evrópulöndum. Þeim hefur
lika vegnað vel — eins og t.d. I slðustu
Evrópukeppni meistaraliða, þar sem
St. Etienne komst I undanúrslit — og
það eingöngu á mjög skemmtilegum
og vel útfærðum sóknarleik, aö sögn
sérfræðinga.
Sviar hafa sýnt þessu „franska
fyrirkomulagi” mjög mikinn áhuga,
og var um það rætt að taka það upp 11.
deildarkeppninni I ár, en úr þvl varð
ekki, þar sem tillaga um það kom ekki
fram I tæka tlð. ítalir — en þeir eru
frægir fyrir sinn varnarleik — hafa
einnig hug á að taka þetta fyrirkomu-
lag upp, og það jafnvel á næsta
keppnistimabili.
f viðtali I sænsku blaði fyrir
skömmu sagði Svlinn Leif Eriksson,
sem leikur með franska liöinu OFG
Nice, að þetta „aukastigskerfi” gerði
knattspyrnuna miklu skemmtilegri,
bæði fyrir áhorfendur og leikmenn.
Það hefði komið glöggt I ljós I Frakk-
landi I fyrra og enn betur I ár, eftir að
kerfið var örlitið endurbætt.
Hann sagði, að áður fyrr hefði það
verið segin saga, að þegar lið komst I
2:0, lagðist það I vörn til að halda þvl.
En nú væri keyrt á fullu til að skora 3ja
markið og fá aukastig og aldrei slegið
af allan leikinn. Mælti hann eindregiö
með þvl, að landar slnir tækju þetta
kerfi upp.
Við könnuöum úrslit I leikjum I 1.
deild tslandsmótsins I fyrra og kom þá
I ljós, að aðeins fimm leikjum hafði
lokið með 3:0 eða stærri sigri.....
tBK—ÍBA 3:0, tBK—KR 5:1, ÍA—IBA
4:0, ÍBV—ÍBA 3:0 og Fram—IBA 4:1.
Þetta hefði þýtt eitt aukastig handa
Fram, tA og ÍBV en 2 aukastig fyrir
IBK. Aftur á móti hefði þetta kerfi þýtt
5 aukastig fyrir FH I 2. deild og eitt til
tvö stig fyrir flest hin liðin I þeirri
deild.
Nú er skammur tlmi þar til islands-
mótið hefst og llklega of seint að gera
breytingu eins og þessa, en þó er það
hægteins og allt annað, ef vilji er fyrir
hendi. Ef ekki, má kanna þetta betur
og koma þá með þetta athygiisverða
kerfi inn I knattspyrnuna hjá okkur
næsta ár. Sumum finnst það kannski
orðið of seint — fólk sé þegar búið að fá
nóg af varnarleiknum og að aðsóknin
verði öll I öfuga átt eins og I mótunum I
vor, ef ekkert verði að gert strax.
En Frakkar gátu unnið hana upp
aftur með þessu kerfi, og þvl ættum
við þá ekki að geta það llka...—klp—
Hafa œft á hverjum
degi í heilan mánuð
En gera sér samt litlar vonir um að komast langt í b-deildinni í Evrópumótinu
í körfuknattleik, sem hefst á mánudaginn í Vestur-Þýzkalandi
Islenzka landsliðið I körfu-
knattleik heldur utan á föstudags-
morguninn til að taka I fyrsta sinn
þátt I keppninni I b-deild Evrópu-
mótsins I körfuknattleik, sem
hefst á fjórum stöðum I Vestur-
Þýzkalandi á mánudaginn.
Evrópulöndunum er skipt I
tvær deildir — a- og b-deild, og
keppa löndin i a-deildinni um
Evrópumeistaratitilinn. Neðsta
liðiö iþeirrideild fellur i b-deild á
hverju ári, en i stað þess kemur
svo sigurvegarinn i b-deild og
leikur þar næsta ár. Þetta sama
fyrírkomulag á nú að fara að taka
upp 1 HM-keppninni i handknatt-
leik karla.
Eins og fyrr segir fer Island I
keppnina í b-deild, en þar er lið-
unum skipt i 4 riðla. í sama riðli
og Island er Albania, Grikkland,
Pólland, Sviþjóð og Luxemborg.
Þetta er einn sterkasti riðillinn I
þessari keppni, og eru litlar vonir
um að Island verði framarlega i
honum.
I islenzka landsliðinu eru 12
ieíkmenn, og er reyndastí maður
liðsins Agnar Friðriksson IR. Er
hann með flesta landsleiki af öll-
um i hópnum — 33 samtals.
„Ég vil engu spá um árangur
okkar,” sagði Agnar, er við rædd-
um aðeins við hann i gærkvöldi,
en þá var hann að koma af æfingu
með landsliðinu. „Róðurinn verð-
ur erfiður, það er eitt sem ég veit.
Liöin, sem við leikum við, eru
hvert öðru sterkara og pró-
grammið mjög erfitt.
Við leikum fyrsta leikinn á
mánudagskvöldið við Pólland.
Morgunin eftir mætum við
Unglingasundmót Ármanns:
Sonjo bœtti metið
um þrjór sekúndur
Ekki varð mikið metaregn á
unglingamóti Armanns I sundi,
sem háð var I Sundhöllinni á
sunnudaginn. Tvö met sáu þó
dagsins ljós, og voru þau bæði sett
af hinni efnilegu stúlku úr Njarö-
vikum, Sonju Hreiðarsdóttur,
sem er aðeins 12 ára gömul, og
setti þvl metin I telpnaflokki 12
ára og yngri.
Hún synti 100 metra bringusund
á 1:24,4 min, og bætti þar sitt eig-
iö met um heilar 3 sekúndur.
Metiö hennar var 1:27,4 min. Hún
sigraði I þessari grein, en Þórunn
Alfreðsdóttir varð önnur á sama
tima.
Þá setti Sonja nýtt met i 100
metra baksundi er hún kom I
mark á 1:24,6 min. Gamla metiö,
sem hún átti sjálf var 1:25,8 min.
Bróðir hennar, Karvel Hreiðars-
son, sigraði I 100 metra baksundi
sveina á 1:16,4 min., sem er mjög
þokkalegur timi.
Sigurvegarar I öðrum greinum
á mótinu urðu þessir: 200 metra
bringusund sveina, Steingrimur
Daviðsson UBK. Hann sigraði
einnig I 200 metra fjórsundi á
2:31,4 min., sem er ágætur timi.
Brynjólfur Björnsson sigraði I
100 metra skriðsundi drengja á
1:00,8 min., og I 50 metra skrið-
sundi sigraði Þröstur Ingvarsson.
Þórunn Alfreðsdóttir sigraði I 100
metra skriðsundi stúlkna, en var
nokkuðfrá sinum bezta tima. Hún
komimarká 1:06,6mln. 50metra
skriðsund telpna — 12 ára og
yngri — vann Guðný Guðjónsdótt-
ir á 34,8 sek. Hún er mikið sund-
konuefni, og á heldur ekki langt
að sækja það, þvi að hún er dóttir
Ágústu Þorsteinsdóttur, fyrrver-
andi sunddrottningar.
Bæði boðsundin i mótinu voru
unnin af sveitum frá Ægi, en tim-
ar þeirra voru ekkert sérstakir.
Næsta sundmót — IR mótið —
verður I lok þessa mánaðar, og þá
liklega I Laugardalslauginni.
—klp—
Opinn tví-
liðaleikur
Þessi mynd er af sigurvegurun-
um með og án forgjafar i fyrsta
opna golfmótinu — Uniroyal
keppninni hjá GK I Hafnarfirði.
Til vinstri er sigurvegarinn án
forgjafar, Magnús Halldórsson,
GK, en til hægri er Sveinn Sveins-
son GN, sem sigraði með forgjöf.
1 þessari keppni tóku þátt um 80
kylfingar, og I þeirri næstu, sem
verður á sunnudaginn, er búizt
við öðrum eins hóp. Er það opin
tvlliðakeppni hjá Golfklúbbi
Suðurnesja, eða svonefnd „Mixed
Fouresome” og er hún án forgjaf-
ar.
Þá leika tveir og tveir saman
eftir ákveðnum reglum, sem er
mjög skemmtilegt að leika eftir.
Báðir slá af teig, en siðan skipta
þeir um bolta sitt á hvað.
Það er móðir Polla...
Það er rétt að Lolli verðf)
arkitekt ... en
leyfðu honum að leika
unmuins
Grikkjum, á miðvikudaginn Svi-
um, leikum við Albani á fimmtu-
daginn og Luxemborg á föstudag-
inn. Þetta verða þvi fimm leikir á
fimm dögum, og það allir erfiðir.
Við höfum æft alveg geysilega
vel fyrir þetta mót. Við höfum
veriö að á hverjum degi i nær
heilan mánuð og verðum að þar
til kvöldið áður en við förum.
Ég er mjög ánægður með liðið
einsog það er, en þó gæti það ver-
ið sterkara. Þrir af okkar beztu
mönnum, Jón Sigurðsson Ár-
manni, Kolbeinn Pálsson KR og
Þorsteinn Hallgrimsson SISU
gátu ekki verið með okkur, en
þeir heföu örugglega allir styrkt
liðið mjög mikið. Að visu kemur
Kolbeinn með okkur sem farar-
stjóri, en hann getur ekki leikið
vegna meiðsla.”
Auk Agnars Friðrikssonar eru I
landsliðshópnum þessir menn:
Kristinn Stefánsson KR, Bjarni
G. Sveinsson IS, Jón Jörundsson
1R, Jóhannes Magnússon Val,
Sfmon Ólafsson Armanni, Þórir
Magnússon Val, Gunnar Þor-
varðarson UMFN, Jón Björgvins-
son Ármanni, Kári Mariasson
Val, Kolbeinn Kristinsson 1R og
Kristinn Jörundsson 1R.
Kristinn verður fyrirliði liðsins,
en Agnar varafyrirliði. Tveir ný-
liðar eru i hópnum, Jón Jörunds-
son 1R og Jón Björgvinsson Ar-
manni. —klp—
Atvinnumannakörfuboltinn:
Bullets eðo Boston
Celtic í úrslit?
Úrslitakeppnin I bandarlska at-
vinnumannakörfuboltanum
stendur nú sem hæst, og er geysi-
lega spennandi að vanda. Milljón-
ir fylgjast með þessari keppni út
um allan heim, og túristar alls
staðar að úr heiminum koma tii
Bandarikjanna gagngert til að
fylgjast með henni.
Vitað er a.m.k. um einn Islend-
inga, sem fór utan til að fylgjast
með Boston Celtic, sem er komið
langt i keppninni.
Leikið er á vestur- og austur-
ströndinni, og er deildarkepþn-
inni löngu lokið. Úr henni fara 4
lið úr hverri deild i úrslit og leika
7 leiki. Þaðan koma 2 lið sem
siðan berjast um að komast I
sjálfan úrslitaleikinn.
A austurströndinni komust I úr-
slit Chicago Bulls og Golden
Stade úr þessum 4ra liða úrslit-
um, og er staðan hjá þeim eftir
þrjá leiki 2:1 fyrir Chicago.
A vesturströndinni sigraði
Boston Celtic Huston 4:1 — þurfti
Efa það ekki, en hvað um hamingju^—^
Lolla? Ég er fátæk kona og þaöskiptir ^
ekk i máli hvað Polli vinnur sér inn...
J-,hamingja hans er mér allt!
Samræður þeirra halda áfram
og úti fyrir
J
Það verður enginnM
árangur J
Biddu við, þú
þekkir ekki
mömmu!
ekki 7 leiki — og Washington Bull-
ets sigraði Buffalo 4:3. 1 keppn-
inni milli Boston og Bullets er
staðan2:lBulletsivil fyrir fjórða
leikinn, sem verður i kvöld, og
lýst er i Keflavikurútvarpinu um
miðnættið.
—klp—
Fiskurinn tefur fyrir
Ólafsvíkur-Víkingum
ÓlafsvIkur-VIkingar, sem nú I
sumar leika I fyrsta sinn I 2. deild,
búa sig vel undir keppnistlmabil-
ið — þó erfitt hafi verið um æf-
ingasókn leikmanna, þar sem
vertlð stendur enn, og margir
leikmenn stunda sjóinn.
Fyrst er að telja, að Ólafsvik-
ingar hafa tryggt sér landsliðs-
manninn Ásgeir Eliasson sem
þjálfara og hann mun leika með
liðinu I 2. deildinni. Missir þó þrjá
fyrstu leiki liðsins i 2. deild, þar
sem hann má ekki leika með Vik-
ing fyrr en 11. júni vegna félaga-
skiptanna úr Fram.
En Ásgeir fór vestur um siðustu
helgi og lék æfingaleiki með Vik-
ing gegn Viði úr Garði. Fyrri leik-
urinn var á laugardag og Ásgeir
var ekki lengi að setja mörk sin á
Víkingsliðið — skoraði fyrsta
mark leiksins með virkilegum
þrumufleyg af 30 metra færi. Vik-
ingur sigraði I leiknum með 2-1. Á
sunnudag mættust liðin aftur á
vellinum i ólafsvik, sem er undir
snjó. Þá gekk heimaliðinu enn
betur — sigraði með 5-0.
Ásgeir byrjar að þjálfa Vikinga
hinn 1. júni og eiginkona hans
Soffia Guðmundsdóttir, sem
einnig er iþróttakennari að
mennt, mun kenna handknattleik
vestra. Þjálfari liðsins frá i fyrra.
Gylfi Þ. Gislason, sem lék einnig
með Viking i fyrrasumar, er nú
aftur kominn i raðir sinna gömlu
félaga á Selfossi — og fyrsta
viöureign hans þar verður við lið-
ið,sem hann kom upp i 2. deild sl.
haust — Viking i Ólafsvik.
Gylfi er nú orðinn þekktari leik-
maður en hér áður fyrr og enn
gengur sagan fræga manna á
meðal, þegar Gylfi var eitt sinn i
leik og braut eitthvað af sér. Dóm-
arinn sneri sér að honum og
sagði. „Hvað heitir þú, pilt-
ur minn”, og hinn svaraði rétt
og samvizkusamlega, Gylfi Þ.
Gislason. — Dómarinn rak hann
samstundis af leikvelli, sann-
færður um að piltur væri að skýla
sér bakvið þáverandi mennta-
málaráðherra. —RM/hsIm.