Vísir - 07.05.1975, Blaðsíða 1

Vísir - 07.05.1975, Blaðsíða 1
VISIR 65. árg. — Miövikudagur 7. mal 1975 —102. tbl. ÞEIR KEPPA I REIÐHJÓLAKÚNST FYRIR ÍSLAND — baksíða Þrettón stundo fundur með flugfreyjum "íruuZ Viðrœður ón verkfalls fyrír 43% kauphœkkun? — stöðugt I sambandi við fœreyska vini - bls. 3 e EKKERT RÆTT UM FLUGVÉLA- KAUP — segir Pétur Sigurðsson — Baksíða Vottornir festa rœtur — boksíða Losna úr Súez- skurðinum eftir 8 óra lokun — bls. 5 Flugleiðir báðu flug- freyjurnar að fresta verkfallinu, sem hefur verið boðað frá miðnætti aðfaranótt laugardags, og um þetta var rætt frá klukkan fjögur i gærdag til fimm í nótt. Flugfreyjur neituðu þessum til- mælum, en buðust til að halda áfram viðræðum, ef Flugleiðir samþykktu ýmis atriði sem talin eru jafngilda verulegri kauphækkun, 43% segja sumar heimildir. „Það hefur ekkert komið fram, sem rökstyður, að við ættum að fresta verkfallinu,” sagði Erla Hatlemark, formaður Flugfreyjufélagsins, þegar við vöktum hana i morgun. Hún sagði, að vinnuveitendur hefðu ekki komið svo að heitið gæti til móts við kröfur flugfreyja. „Þeir Islendingar, sem óttast að komast ekki heim vegna verk- fallsins, geta komið á föstudag. Þær vélar eru enn létt bókaðar,” sagði Sveinn Sæmundsson, blaða- fulltrúi Flugleiða f morgun. Hann sagði, að yrði verkfall yfirvofandi á föstudag, mundi verða sérstök ferð til Glasgow og London klukk- an niu á föstudagskvöld. Annars vonuðu menn enn hið bezta, sagði hann. Hingað fljúga nú engin erlend flugfélög reglubundnar ferðir. „Selfossmólið" nýja: Aðeins „Ég veiti blaðamönnum engar upplýsingar um það, hverjir eiga að mæta i próf eða hvenær hér I Kennaraháskólanum,” sagði rit- ari skólastjóra K.Í., þegar Visir hafði samband við skrifstofu skólans skömmu fyrir hádegi i dag. Það uppiýstist þó, þegar blm. VIsis fór á staðinn, að eina prófið, sem var á dagskrá i morg- un, hefði að engu orðið. Það mætti aöeins einn nemandi til prófs. einn mœtti til prófs Skólastjórinn sat á áríðandi fundi i morgun, og var ekki vitað, hvenær þeim fundi mundi ljúka, en fullvist var talið, að „verkfall” nemenda væri aðalumræðuefnið. En nemendur á fyrsta, öðru og þriðja ári samþykktu á fundi, sem haldinn var i skólanum sl. laugardag, að mæta ekki til vor- prófa, fyrr en skólayfirvöld hafa endurskoðað afstöðu slna til mæt- ingaskyldunnar. Eins og skýrt var frá i Visi sl. laugardag hafði skólastjórinn til- kynnt fimm nemendum á fyrsta ári, að þeir fengju ekki að taka þátt i prófunum sökum þess, að þeir hefðu ekki náð 80 prósent mætingu á vetrinum. Upplestarfri var þá að hefjast, en boðað var til fyrsta prófsins i gærmorgun. Það var próf fyrir nemendur á fyrsta ári. Til próf- töku mættu aðeins þrir nemend- ur. í morgun átti svo að vera próf hjá nemendum á öðru ári, en mætingin var enn lakari þar. Það mætti aðeins einn nemandi til þess prófs. Næsta próf á dagskrá er á föstudag, en það er fyrir nemendur á þriðja ári. Höfðu nemendur allra þriggja árganga skólans ákveðið að halda fund um stöðuna i málinu i hádeg- inu i dag. —ÞJM British Airways hætti fyrir nokkru og Pan Am var hætt áður. Flugfélög draga yfirleitt seglin saman um þessar mundir. Vand- séð virðist, aö leiguflugvélar gætu fyllt skarðið, ef flug legðist niður um talsverðan tima vegna verk- falls flugfreyja, en stundum er I verkföllum flugáhafna gripið til þess ráðs að fá leiguvélar, og telja flugfélögin það ekki verk- fallsbrot. —HH Krökkunum finnst það ekki amaiegt að fá að halda á iömb- um. Enda kunnu þau Þórarinn og Guðrún aö meta það i morg- un. Lömbin komu i heiminn i gærmorgun. Ljósm: Bragi. „Vó, hvað þau eru lítil og sœt" Þau kunnu sannar- lega vel að meta heim- sóknina til hans Mey- vants Sigurðssonar i morgun, krakkarnir Guðrún og Þórarinn. „Mega kindurnar koma út”, sögðu þau, en Meyvant kvað það ekki mega, heldur bauð hann þeim að kikja á lömbin, sem nú eru ný- borin. Þau komu i heiminn i fyrrinótt og gærmorg- un. Ein kindin eignað- ist eitt lamb, en önnur var tvilembd. „Vá, hvað þau eru litil og sæt”, sögðu krakkarnir og urðu yfir sig hrifin, þegar þau fengu að halda á lömbunum. Meyvant, sem býr að Eiði við Nesveg, á annars 6 kindur og einn hrút. Og það má búast við þvi, að þeir krakk- ar, sem eitthvað geta umgengizt kindur, séu orðnir spenntir nú þeg- ar sauðburður er haf- inn. — EA/ljósm Bragi. i

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.