Vísir - 03.06.1975, Page 8

Vísir - 03.06.1975, Page 8
Sá bezti sfakk af til V-Þýzkalands! Austur-þýzki fimleikamaðurinn Wolfgang Thuene bað um hœli sem pólitískur flóttamaður eftir Evrópumeistaramótið í Bern Bezti fimleikamaður Austur- Þýzkalands baö f gær um hæli i Vestur-Þýzkalandi sem pólitfskur flóttainaður eftir að hafa keppt á Evrópumeistarainótinu I fimleik- um, sem háð var í Bern í Sviss um Sundmót r Armanns Sundmót Ármanns verður hald- ið I Laugardalslauginni mánu- daginn 9. júni n.k. kl. 20.00. Keppnisgreinar: 400 m fjórsund karla 100 m flugsund kvenna 200 m bringusund karla 100 m bringusund kvenna 100 m skriðsund karla, bikarsund 200m fjórsund kvenna, bikarsund 50 m skriðsund drengja (1959 og siðar), bikarsund 50 m skriðsund telpna (1959 og siðar), bikarsund 100 m flugsund karla 100 m baksund kvenna 4x100 m skriðsund karla 4x100 m fjórsund kvenna. Þátttökutilkynningar sendist Guðmundi Gislasyni c/o Laugar- dalslaug, fyrir 6. júni, á tima- varðaspjöldum ásamt þátttöku- gjaldi kr. 50,- fyrir hverja skrán- ingu. Þessir kunnu kappar urðu stúdentar á sunnudaginn, þegar Kristján Bersi ólafs- son, skólameistari, útskrif- aði fyrstu stúdentana frá Klensborg f Hafnarfirði. Til vinstri er Elias Jónasson, leikmaöurinn kunni i Hauk- um, cn til hægri Gunnar Ein- arsson, landsliðsmaður FH. i sumar lieldur Gunnar til Vestur-Þýzkalands til náms og mun næsta vetur leika með Göppingen — liðinu, sem Geir Hallsteinsson lék með um tfma. Ljósmynd Bjarnlcifur. helgina. Talsmaður vestur-þýzka fimleikasambandsins skýrði frá þessu i Frankfurt í gær. Fimleikamaðurinn, Wolfgang Thuene, sem er 26 ára að aldri, sagði, að hann hefði tekið þá ákvörðun að flýja vegna deilna við þjálfara sinn og austur-þýzka fimleikasambandið — ekki af Pele til Cosmos Braziliski knattspyrnumaður- inn Pele staðfesti við brazilfska blaðamenn i gær i Santos, að hann mundi undirskrifa samning við Cosmos, knattspyrnufélagið i New York, i þessum mánuði. Hins vegar neitaði hann, að hafa þegar skrifað undir — en mun gefa nán- ari skýringar á samningnum, sem hljóðar upp á nokkrar milljónir dollara, á blaðamanna- fundi f dag. Pele sagðist vonast til að leika sinn fyrsta leik með Cos- mos 18. júni. pólitískum ástæðum, að sögn fréttastofunnar SID. Thuene hefur verið bezti fim- leikamaður Austur-Þýzkalands undanfarin ár. Hann hlaut silfur- verðlaun á slá á heimsmeistara- mótinu í Varna í Búlgariu i fyrra — en varð aðeins i 13. sæti á mót- inu i Bern um helgina. Var mjög • gagnrýndur i austur-þýzku press- unni fyrir þann árangur. Thuene yfirgaf austur-þýzka liðið aðfara- nótt mánudags — fór yfir landa- mæri Sviss og Vestur-Þýzkalands eftir miðnætti og komst siðan ,,á puttanum” til Frankfurt, sem er 350 km fyrir norðan Bern. Eigin- kona hans og dóttir eru enn i Austur-Þýzkalandi. Jafntefli í fyrsta leik Armann og KR gerðu jafntefli, 5:5, I fyrsta leik tslandsmótsins I sundknattlcik, sem háður var i Laugardalslauginni I gærkvöldi — jafntefli f hörkuskemmtilegum leik. KR náði forustu i leiknum með marki ólafs Gunnlaugssonar og hann skoraði einnig annað mark áður en Armann komst á blað. Sigurður Þorláksson skoraði og staðan var 2:1 eftir tvær fyrstu loturnar. 1 þeirri þriðju gekk Ármanni vel. Guðmundur Ing- ólfsson jafnaði i 2:2 en Jón Þor- geirsson kom KR yfir aftur. Guð- mundur jafnaði og Stefán Ingólfs- son kom Armanni yfir, 4:3. 1 sið- ustu lotunni var hart barizt — Ólafur jafnaði I 4:4, en Stefán skoraði fimmta mark Armanns. Rétt fyrir leikslok jafnaði Ólafur fyrir KR úr vitakasti — fjórða mark hans I leiknum. Næsti leikur mótsins verður á föstudagskvöld I Laugardalslaug og hefst kl. 21.00. Þá leika KR og Ægir. Tvöföld umferð er leikin i mótinu. Þessi hlaut fyrstu verðlaun — fyrstu verðlaun knattspyrnumynda I Vestur-ÞýzkaJandi á slðasta ári. Það voru samtök þýzkra Iþróttafréttamanna, sem völdu myndina eftir „Þýzka meistaramótið meö beztu Iþróttamyndina” eins og Þjóðverjar kalla það. Myndina tók Erich Bauman, 34ra ára ljósmyndari I Ludwigsburg, og nefndi hann myndina „stökkið”. Fram hlaut bœði stigin á glœsi-markvörzlu Árna i — Mjög óvœnt úrslit í 1. deild í Keflavík í gœrkvöldi og Fram setti þar heldur betur strik í reikninginn hjá Keflvíkingum Framarar settu heldur betur strik í reikninginn hjé iBK suður í Keflavik í gærkveldi, þegar þeir sigruðu heimamenn með einu marki gegn engu í miklum baráttuleik. úrslitin koma mönnum sannarlega á óvart, þar sem IBK hefur af mörgum þótt líklegt til sigurs í l-deildinni, enda sigurvegari tveggja nýafstaðinna móta. Framarar hafa hins vegar misst marga af sínum traust- ari stoðum frá því á fyrra ári og eru því að móta lið sitt með nýjum mönnum með litla reynslu. Framliðið, undir stjórn þeirra Jó- hannesar Atlasonar og Guðmundar Jónssonar, hefur tekið miklum fram- förum frá þvf i leiknum gegn FH I Hafnarfirði. Þeir leikmenn sem voru þá einna lakastir i Framliöinu, áttu mestan þátt I sigrinum I gærkveldi, Steinn Jónsson miöherji, sem skoraði Aðalfundur Aðalfundur HandknattieiKS- dómarafélags Reykjavikur verð- ur haldinn 3. júni — 1 kvöld kl. 20.00 i Valsheimilinu. eina mark leiksins á 32. minútu, og Arni Stefánsson markvörður, sem varði af snilld i þau skipti, sem Kefl- vlkingar gátu sýnt á sér klærnar. Keflvikingar léku undan snarpri norðanátt fyrri hálfleikinn og sóttu fast framan af, en tókst ekki að skapa sér opin færi utan einu sinni, en þá varöi Arni Stefánsson með miklum til- þrifum — tók undir sig stökk og sveif eins og fugl marga metra og hremmdi knöttinn, sem óumflýjanlega sýndist ætla að hafna innan marklinu. Mörgum liöum hefur orðið hált á þvl að láta varnarmennina fylgja sóknar- lotunum fast eftir og i þá gryfju féllu Keflvikingar. Reyndar var varla um annað að ræöa með gagnslausa fram- linu — og þetta notfærðu Framarar sér og miðuðu leik sinn gegn vindinum við skyndiupphlaup. 1 einu þeirra tók Gunnar Jónsson, hægri bakvörður, skakkan pól I hæðina — ætlaöi að bianda sér i baráttu miðvarðanna við Rúnar Gislason og Eggert Stéingrims- son, en gleymdi Steini Jónssyni hrein- lega, sem fékk knöttinn gersamlega óvaldaður og skoraði viðstöðulaust með fallegu skoti, er Þorsteinn ólafs- son réð ekki við þótt hann legði sig all- an fram, 1-0. Svo undarlegt scm það kann að virð- ast með jafn reynslurikt lið og ÍBK, þá virtust leikmenn missa móðinn við þetta eina mark og varla er hægt að segja, aö heil brú hafi verið I leik liðs- ins eftir það þar til á lokaminútunum, aö lif færðist i sóknarleikinn. Guðjón Guðjónsson, ungur og sprækúr leik- maður, var kominn inn á ásamt gömlu kempunni Jóni Ólafi. Framarar áttu þá i vök aö verjast, en Arni Stefánsson sá um að bæði stigin færu heimleiöis með Frömurum — og botnliðið kæmist á toppinn — með frábærri markvörziu. Ekki má samt gleyma þvl, að Fram- arar þjörmuðu fast að heimamönnum lengst af seinni hálfleik og gerðu harða hrlð að marki þeirra án árangurs, enda drógu Kefivlkingar allt lið sitt I vörn. Ekki verður þó um þennan leik sagt að um algeran varnarleik hafi verið að ræða. Framarar öttu liöi sinu til sóknár svo um tima var allt að þvl 21 leikmaður inni I vitateig ÍBK, en vörnin var traust og stöövaði sóknar- loturnar hverja af annarri — oft á seinustu stundu — með þvi að senda knöttinn aftur fyrir endamörk. Marteinn Geirsson og Jón Pétursson voru að vanda burðarásar Fram og þeirsáu um það ásamt bakvörðunum, að framherjum IBK var haldið i járn- greipum allan timann, svo þeir máttu sig ekki hræra. Steinn Jónsson átti einnig mjög góðan leik, staðsetti sig vel, með áðurgreindum árangri. Rún- ar Gislason og Eggert Steingrimssoii gerðu varnarmönnum IBK oft erfitt fyrir, enda fljótir og þrekmiklir. Ann- ars var leikur liðsins yfirvegaður og leikmenn samstilltir um átakið. Ekki er þar sömu sögu að segja um ÍBK. Aðeins öftustu varnarmennirnir sýndu sina betri hliö, — þeir Astráður, Einar og Gisli, ásamt Gunnari Jóns- syni, sem þó var full fljótur á sér stundum. Grétar Magnússon, harðjaxl liðsins og aöal driffjöður, var eitthvað miöursin —og munaði kannski mest um það. Ólafur Júliusson átti góða spretti á stundum i framlinunni, en aörir sáust vart — ef nota má slik orð. Dómari var Þorvarður Björnsson og dæmdi mjög vel, en honúm til aðstoðar voru þeir, Óli Olsen og Ingi Jónsson. Ahorfendur voru um átta hundruð. STAÐAN Meö leik Keflavikur og Fram i gærkvöldi er lokið tveimur fyrstu umferðum 1. deildarkeppninnar. Staðan er nú þannig: FH Akranes Fram ÍBV Víkingur KR Valur Keflavik Óbreytt landslið gegn Þjóðverjum — Leikur íslands og Austur-Þýzkalands í Evrópukeppni landsliða verður á Laugardalsvelli á fimmtudag íslenzka landsliðið tilkynnt í dag Landsleikur islands og Austur-Þýzkalands í sjö- unda riðli Evrópukeppni landsliða — síðari leikur landanna — verður á fimmtudagskvöld/ 5. júní/ á Laugardalsvellinum og bíða menn spenntir eftir úrslitum hans víða í Evrópu — þó öllu mest í Belgíu/ en leikurinn skiptir Belga hvað mestu máli. tslenzka landsliðið verður til- kynnt i dag — en engar breyting- ar verða gerðar á landsliðinu, sem náði jafntefli á dögunum við Frakkland i sömu keppni. Allir is- lenzku landsliðsmennirnir hafa „sloppið” heilir gegnum aðra umferð Islandsmótsins. Landsliðið verður þvi þannig skipað. Sigurður Dagsson, Val, Gisli Torfason, Keflavik, Jón Pét- ursson, Fram, Karl Hermanns- son, Keflavik, Marteinn Geirsson, Fram, Jóhannes Eðvaldsson, Holbæk, Guðgeir Leifsson, Vik- ing, Asgeir Sigurvinsson, Stand- ard Liege, Teitur Þórðarson, Akranesi, Matthias Hallgrims- son, Akranesi, og Ólafur Július- son, Keflavik. Meðal varamanna er þvi Elmar Geirsson, Hertha, og spurningin hve snemma hann verður sendur inn á völlinn — flestir myndu sennilega kjósa, að Elmar hefji leikinn með islenzka liðinu. Aðrir varamenn eru Arni Stefánsson, Fram, Björn Lárusson, Akranesi, Jón Gunnlaugsson, Akranesi, og Grétar Magnússon, Keflavik. Leikurinn á fimmtudaginn er mjög þýðingarmikill fyrir austur- þýzka liðið. Þaðverðurbeinlinisað sigra i leiknum til að hafa ein- hverja möguleika I riðlinum — eftir þrjá jafnteflisleiki i fyrri umferðinni. Á heimavelli við ts- land (1-1) og Belgiu (0-0) og á úti- velli við Frakkland (2-2). Staðan I þessum sjöunda riðli er fyrir leikinn þannig: Belgia 3 2 1 0 4-1 5 A-Þýzkaland 3 0 3 0 3-3 3 Frakkfand 3 0 2 1 3-4 2 tsland 3 0 2 1 1-3 2 Og tapi Þjóðverjarnir stigi hér á fimmtudag eru þeir raunveru- lega án möguleika i keppninni um efsta sætið við Belga — sæti, sem gefur rétt i undanúrslit keppninnar. Austur-Þjóðverjar hafa valið íslandsmót Meistaramót tslands i kraft- lyftingum fer fram i iþróttahúsi KR laugardaginn 7. júni kl. 15.00. Þátttaka tilkynnist til Ómars Olfarssonar i sima 27032 sem fyrst og I siðasta lagi á fimmtu- dag. landslið sitt og er það skipað held- ur yngri mönnum en voru i liðinu, sem tsland gerði jafntefli við i Magdeburg i fyrrahaust. Þrir af fastamönnum liðsins geta ekki keppt hér vegna meiðsla — en all- ir hinir beztu mæta til leiksins. —hsim. JÚGÓSLAVÍA VANN HOLLAND Júgóslavia sigraði Holland i landsleik knattspyrnu I Belgrad i gær 3-0. Fyrsta mark leiksins var skorað á 12. min. af Dusan Savic, sem lék sinn fyrsta landsleik. Hollenzki HM-markvörðurinn, Jan Jongbloed, átti enga mögu- leika að verja skot hans. Sex minútum slðar skoraöi Danilo Popivoda annaö mark Júgóslaviu með miklum þrumufleyg — en 3ja markið skoraði Zvonko Ivezic niu min. fyrir leikslok. Aðeins þrir úr silfurliði Hol- lands frá heimsmeistarakeppni sl. sumar léku i landsliðinu nú og mark Júgóslaviu komst varla i hættu í leiknum. Vestmannaeyingar eru byrjaðir framkvæmdir við mikið Iþróttahús I Eyjum — og á laugardaginn tók menntamálaráðherra, Vilhjálmur Hjálmarsson, fyrstu skóflustunguna. tþróttahúsið veröur I Brimhóla- laut og verður mikið mannvirki. Fréttamaður VIsis I Vestmannaeyj- um, Guðmundur Sigfússon, tók myndina, þegar menntamálaráðherra tók skóflustunguna I vikur og ösku, svo jafnvel má sjá — ef myndin prentast vel — að úr rýkur. Hvaö skeði Polli Ertu meiddur? /Einhver reyndi aö’ drepa Lolla. Ég að ná honum! reyndi

x

Vísir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.