Vísir - 03.06.1975, Blaðsíða 16
Hún
keyrir
strœtó
— meðan eigin-
maðurinn hugsar
um heimilið
„Fólkiö er mjög vingjarn-
legt og ég hef ekki yfir neinu
að kvarta”, sagði fyrsti kven-
bílstjórinn hjá Strætisvögnum
Reykjavíkur, þegar Vísir
hafði tal af henni eftir tveggja
daga reynslu hennar I starf-
inu.
Marfa er 28 ára gömul,
eiginkona og tveggja barna
móðir. Sagðist hún áður hafa
unnið við skrifstofustörf hjá
Trésmíðafélagi Reykjavfkur.
Tók hún meirapróf og rútupróf
i tómstundum sfnum f vetur,
þvf að hún hefur hug á aö ger-
ast ökukennari I framtfðinni.
En Maria verður að biða tvö
ár eftir ökukennararéttindum.
Fannst henni tilvaiið að nota
réttindi sin sem rútublistjóri
og gæti það veriö skemmtileg
tilbreyting aö vinna sem
strætóbllstjóri. Einnig eru
launin eitthvað hærri.
Eiginmaður Marlu, sem er
kennari á veturna, gætir nú
bús og barna og dyttar að hús-
inu þeirrá, þcgar færi gefst og
segist hann ánægður með
þessi hlutverkaskipti.
HE
Biðröðin við Áburðar-
verksmiðju ríkisins þótti
mjög löng í gærmorgun,
en í morgun var hún samt
orðin helmingi lengri.
Þar stóðu þá 116
flutningabílar, þar af 40
frá í gær. Var röðin nær
kílómetri að lengd, þegar
afgreiðsla hófst í morg-
un.
„Helzt hefði ég þurft að geta
farið tvær ferðir með áburð
héðan á einum degi. Það væri
lika hægt undir venjulegum
kringumstæðum. Það er þvi
ólýsanlega dapurlegt að fýlgja
þessari löngu biðröð og þurfa að
sitja hér fastur i tvo daga til að
ná út einum bilfarmi,” and-
varpaði einn bilstjóranna, sem
Visir haföi tal af.
Um 60 manns vinna við að
ferma bilana og mun afgreiðsla
i Aburðarverksmiðjunni aldrei
hafa gengið eins hratt fyrir sig
og i góða veðrinu i gær og i
morgun. Afgreiðslumennirnir
komast þó ekki yfir að afgreiða
meira en 700 tonn á dag, en þeg-
ar afgreiðsla hófst I gærmorg-
un, voru til um 5 þúsund tonn af
sekkjuöum áburði.
Afgreiðslumennirnir sextíu
eru þeir einu, sem eru við störf
hjá Áburðarverksmiðjunni eins
og sakir standa, og eru þeim
ákveðin takmörk sett: þeir
mega ekki vinna neina yfir-
vinnu.
Sömu sögu er að segja hjá
Sementsverksmiðju rikisins.
Það eru engir að störfum i
sjálfri verksmiðjunni á Akra-
nesi. Einu mennirnir, sem eru
þar við störf, eru afgreiðslu-
mennirnir við Sæviðarhöfða, en
þeir eru nú verkefnalausir.
Sementið er á þrotum. Þeir fara
þvi sjálfsagt heim aftur og
halda áfram verkfalli.
Þegar Visir hafði samband
við Kísiliðjuna við Mývatn i
morgun, var þær upplýsingar að
fá, að þar væru aðeins að störf-
um tólf manns. Vinna þeir við
dælingu, en við það verk starfar
sami fjöldi undir venjuiegum
kringumstæðum. —ÞJM
HITAVEITAN
LÍKA STOPP
,,Við náðum ekki
hálfum afköstum i gær
með þvi litilræði af se-
menti, sem okkur var
skammtað. Og núna er
allt stopp á nýjan leik
og starfsmenn Steypu-
stöðvarinnar hf., sjötiu
talsins, aðgerðarlaus-
ir,” sagði sá, er varð
fyrir svörum, þegar
Visir hringdi á skrif-
stofu fyrirtækisins i
morgun.
Steypustöðin hf. lét megnið af
sinni steypu renna til hitaveitu-
framkvæmda, en þær fram-
kvæmdir — eins og raunar svo
margar aörar framkvæmdir —
eru nú orðnar talsvert á eftir á-
ætlun vegna skorts á steypu.
Á myndinni hér til hliðar má
sjá bil frá Steypustöðinni hf.
renna steypu í hitaveitustokk i
Garðahreppi. Það var hluti
aðalæðarinnar, en ístak hf. er
verktakiþess hluta.
„Það hefur litið sem ekkert
verið hægt að vinna að hita-
veitulögninni siðan skrufað var
fyrir steypuna,” sagði Sigfús
Thorarensen hjá ístak i viðtali
við VIsi i morgun. Kvað hann
það hafa verið óhjákvæmilegt
að segja upp mönnum, sem
ráðnir höfðu verið til vinnu við
hitaveitulögnina. Ýmsar fleiri
uppsagnir hafa einnig átt sér
staðhjá fyrirtækinu vegna yfir-
standandi erfiðleika af völdum
verkfallsins.
„Skorturinn á steypu hefur
gert það m.a. að verkum, að all-
ar framkvæmdir okkar við
höfnina f Þorlákshöfn eru að
mestu lamaðar og sömuleiðis
framkvæmdir okkar við
Mjólká,” sagði Stefán. Og hann
gat þess ennfremur, að brúar-
gerð I Flóanum gæti ekki farið
af stað fyrr en verkfallið leyst-
ist.
—ÞJM
Þriðjudagur 3. júnl 1975
W
ASI og vinnuveitendur í „sömu sporum" og í byrjun
BEÐIÐ EFTIR ÁBURÐI: Biðröðin
kílómetri að lengd
— sementið búið — Aðeins unnið við dœlingu hjá Kísiliðjunni við Mývatn
vísir
tV o
Vinnuveitendur vilja miða
kaupvísitölu við viðskiptakjör
Þeir standa i sömu
sporum og i upphafi
samningaviðræðn-
anna, ASí-menn og
vinnuveitendur, þrátt
fyrir samningafundina.
í gær var þjarkað um
efnahagsmál á fundi,
sem stóð i um þrjár og
hálfa klukkustund.
Vinnuveitendur vilja helzt
ræða um visitölubindingu i
breyttu formi frá þvi, sem var.
Vlsitalan er, sem kunnugt er,
ekki ”1 sambandi”. Vinnuveit-
endur hafa leitað að „umræðu-
grundvelli” um þetta mál, en
hann finnst ekki. Þeir hafa boð-
ið, að visitölubindingin mundi
að miklu leyti byggjast á þvi,
hvernig viöskiptakjör íslands
verða gagnvart útlöndum.’
Þannig mundu launþegar til
dæmis fá kauphækkanir, ef við-
skiptakjör breyttust okkur I
hag.
Vinnuveitendur höfnuðu
kaupkröfum ASÍ I upphafi, og
hefur sú staða ekki breytzt
siðan. Ekkert gengur I viðræð-
unum og allsherjarverkfall eftir
8 daga.
—HH
LÖGREGLAN STÓÐ
FIMM ÞJÓFA AÐ VERKI
Lögreglan stóð aðfaranótt
laugardags nokkra þjófa að
verki áöur cn þcir voru langt
komnir með verknaði slna.
Við Bæjarnesti var fjórtán
ára unglingur gripinn eftir að
hann hafði brotið rúðu i
verzluninni. Hann viðurkenndi
aö hafa ætlað inn i peningaleit
og var ekið heim að þvi loknu.
Þá var maður tekinn fyrir
utan Glæsibæ sömu nótt og var
sá önnum kafinn við að taka
hjólkoppa undan bilum, sem
þar hafði verið lagt.
Aö lokum voru svo tveir inn-
brotsþjófar teknir i verzlun-
inni Krónunni við Mávahlið.
Þessir ungu innbrotsþjófar
voru þegar komnir inn i verzl-
unina, er til þeirra náðist.
Þeim var ekið á upptökuheim-
ilið, þar eð þeir voru of ungir
til að gista fangageymslurnar.
—JB