Vísir - 05.06.1975, Blaðsíða 3
Vísir. Fimmtudagur 5. júni 1975
3
Treflar
eru til
margs
nýti-
legir
Skýrsla um þyrluslysið komin til róðherra
Öryggisnefnd FÍA gagn-
rýnir rannsóknarnefndina
Skýrslur vegna rannsóknar á
'þyrluslysinu á Kjalarnesi liggja
nú fyrir, en hafa þó ekki fengizt
birtar opinberlega enn.
Rannsóknarnefnd flugslysa sá
um rannsóknina og hefur hún nú
skilaö heildarskýrslu um niöur-
stöður til samgöngumálaráð-
herra.
Rannsóknarnefndin sætti strax
við upphaf rannsóknar á flugslys-
inu nokkurri gagnrýni vegna yfir-
lýsinga sinna um umframþunga
sem orsök slyssins, þótt rannsókn
væri enn á frumstigi.
öryggisnefnd Félags islenzkra
atvinnuflugmanna sendi nefnd-
inni bréf, þar sem störf hennar
voru gagnrýnd, en hingað til
hefur verið mjög hljótt um inni-
hald þess bréfs, þar eð málið
hefur verið viðkvæmt.
Gunnlaugur Helgason flugmað-
ur, formaður öryggisnefndarinn-
ar var spurður um það, hvað
nefndin hefði einkum gagnrýnt i
sambandi við störf rannsóknar-
nefndarinnar.
„Einkum og sérilagi gagnrýnd-
um við þá ákvörðun rannsóknar-
nefndarinnar að birta yfirlýsing-
ar um orsök flugslyssins, þegar
rannsóknin var algjörlega á
frumstigi. Slik vinnubrögð eru
ekki liðinhjá neinu flugmannafé-
lagi,” sagði Gunnlaugur.
Gunnlaugur vildi ekki tjá sig
um annað innihald bréfsins en
sagði þó, að mest hefði þar verið
fjallað um tæknilegar staðreyndir
i sambandi við yfirlýsingar rann-
sóknarnefndarinnar, sem birtust
i blöðunum skömmu .eftir flug-
slysið.
Ekki náðist i Jóhannes Snorra-
son, formann rannsóknarnefnd-
arinnar, til að bera gagnrýni
þessa undir hann, en Karl Eiriks-
son, sem einnig á sæti i rannsókn-
arnefndinni, sagðist ekki vilja tjá
sig um umgetið bréf og aðra
gagnrýni.
„Við höfum komið skýrslu okk-
ar til ráðuneytisins og er málið nú
i höndum þess,” sagði Karl.
„Fyrst og fremst var það illa
liðið,. að rannsóknarnefndin
skyldi láta frá sér fara yfirlýsing-
ar um slysið, að allt að þvi órann-
sökuðu máli. Ég tel jafnframt, að
ýmsar af þeim fullyrðingum i
sambandi við vigt vélarinnar,
sem þar komu fram, hafi siðan
verið afsannaðar,” sagði Halldór
Friðriksson flugmaður, sem
fylgzt hefur með rannsókn slyss-
ins sem aðstandandi annars eig-
anda vélarinnar, sem fórst i slys-
inu.
„Daginn eftir var jafnvel búið
að grafa meginhluta þyrluflaks-
ins i jörðu, sem þó er helzta sönn-
unargagnið i málinu,” sagði Hall-
dór Friðriksson.
Þar eð skýrsla rannsóknar-
nefndarinnar liggur ekki enn
opinberlega fyrir hefur ekkert
verið hægt að aðhafast i trygg-
ingarmáli þyrlunnar. Engar
tryggingar hafa enn verið greidd-
ar vegna eignatjónsins.
„Við sem þekkjum til flug-
mánnanna erum sannfærð um, að
eitthvað hafi komið fyrir þarna
um morguninn er þyrluslysið
varð. Þetta voru ekki menn, sem
léku sér að því að stofna lifi sínu
og annarra i hættu,” sagði Hall-
dór Friðriksson.
—JB
FORSETINN FÆR NYJAN BENZ
FYRIR KONUNGSKOMUNA
Treflar I litum 1. deildar lið-
anna i knattspyrnu eru nú seldir á
flestum leikjum liðanna. Það er
félag einstæðra foreldra, sem
stendur fyrir prjónaskapnum.
Jóhanna Kristjónsdóttir, for-
maður félagsins, upplýsti: að
þetta væri hugmynd, sem fjáröfl-
unarnefnd félagsins undir forystu
Stellu Jóhannsdóttur, hefði út-
fært.
Ljóst varð á siðastliðnu
hausti, að lóðin, sem félaginu
hafði verið úthlutað á Eiðs-
granda, yrði tilbúin á næsta ári.
Þessi fregn, sem var mjög gleði-
leg, þýddi jafnframt, að gifurlegt
átak i peningamálum þurfti að
koma til.
Þá kom fram hugmynd, sem
reyndar er ekki alveg ný af nál-
inni, um að koma hér upp þeirri
treflastemningu sem rikir viða
erlendis t.d. i Englandi. Hver
maður skrýðist trefli félags sins
og veifar honum og notar til að tjá
tilfinningar sinar. Ekki tókst þó
að koma sölunni af stað fyrr en
handknattleiksvertiðin var úti.
En ákveðið var að einbeita sér að
1. deildar knattspyrnunni i
sumar.
Fyrst voru treflarnir seldir
uppi á Akranesi þ. 17. mai siðast-
liðinn. Formaðurinn sagði, að
fólk hefði fyrst og fremst verið
undrandi, en alls ekki tekið þessu
illa.
Á landsleiknum milli Islands og
Frakklands voru bláir og hvitir
treflar seldir, og þá strax kom i
ljós, að menn höfðu hugmyndir
um hvernig mætti nota þá.
Ætlunin er að selja á öllum 1.
deildar leikjunum, a.m.k. i
Reykjavik, Keflavik og á Akra-
nesi.
Fyrir þau 2. deildarfélög, sem
þess óska, hefur félagið prjónað
trefla, en ekki er ætlunin að mæta
með þá til sölu á kappleikjum 2.
deildar.
Verðið á treflunum er 1000 kr.
Það eru litirnir, sem eru á skyrt-
um félaganna, sem ráða lit trefl-
anna. Þetta á að auðkenna þau,
en hins vegar eru ekki félags-
merki i treflunum.
Þeir, sem ekki eru iþrótta-
áhangendur ættu þvi að geta
fengið sér þessa flik til venju-
legrar notkunar. —BA
„Það náðist samkomulag um
lagfæringu á samningum flug-
virkja, sem vinna á jöröinni, hins
vegar er ósamið við flugvél-
stjóra,” sagöi Ragnar Karlsson,
sem er i samninganefnd flug-
virkja.
Samningurinn gildir til 1.
Glænýr forsetabill verður
kominn á götuna timanlega
fyrir komu Sviakonungs til
landsins i næstu viku.
Nýi forsetabillinn, sem er
Mercedes Benz 280 SEL, kom til
landsins fyrir stuttu og hefur
siðan verið I frágangi hjá inn-
flutningsfyrirtækinu. Búizt var
við að hann kæmist á götuna i
dag.
Bill af þessu tagi kostar rúm-
ar fimm milljónir með tollum. t
þessu tilviki eru tollarnir þó
felldir niður, þannig að verð
bilsins verður i kringum 2
milljónir.
Hingað til hafa forsetabilarnir
verið amerfskir og er það þvi
nýjung að islenzkur forseti aki
um á þýzkum Benz.
Bíllinn verður fyrsti forseta-
bill en Buickbill, sem áður var i
þvi sæti, færist niður i annaö
sæti. Chevroletbill frá árinu
1969, sem áður var annar for-
febrúar 1976 og eraðal lagfæring-
in á honum fólgin i þvi, að samið
var um að visitölubætur verði
greiddar samkvæmt þeim samn-
ingum, sem ASI kann að gera við
VSÍ. „Ef bráðabirgðalög verða
sett njótum við lika góðs af
þeim,” sagði Ragnar. _EVI—
setabill hefur verið afhentu Inn-
kaupastofnun rikisins til sölu.
Nýi forsetabillinn er fenginn
til landsins nú óbeint vegna kon-
ungskomunnar, er Buickbillinn,
sem hann leysir af hólmi, kom
hingað til landsins fyrir komu
Margrétar Danadrottningar i
hittifyrra.
Þá komst billinn ekki á götuna
fyrr en rétt fyrir komu drottn-
ingar.en i þetta sinn verður nýi
bfllinnheldur fyrr á ferðinni. Þó
vannst ekki timi til að ryðverja
hann fyrir komu konungsins,
þar eð óttazt var að billinn
mundi anga af ryðvarnarlykt,
er konungurinn settist upp i
hann á þriðjudaginn.
—JB
FLUGVIRKJAR FA LAGFÆRINGU
Á SAMNINGUM
Skjaldarmerkin flutt á nýja forsetabilinn. Hann kemst á götuna
rétt mátulega til að taka á móti Sviakonungi á þriðjudaginn.
—Ljósm.: Bragi.
K.S.I.
LANDSLEIKURINN
I.S.I.
ISLAND
ÞYZKA ALÞYÐULYÐVELDIÐ
fer fram á Laugardalsvellinum i kvöld
Dómari: Í.M.D. FootefráSkotlandi
Linuverðir: G.B. Smith & F. McKenzie frá
Skotlandi
Skólahljómsveit Kópavogs leikur frá kl.
19.30 e.h.
Aðgöngumiðar eru seldir við tJtvegsbank-
ann til kl. 18.00 og i Laugardal frá kl. 13.00
e.h.
Knattspyrnumenn Þýska Alþýðulýðveld-
isins eru meðal bestu knattspyrnumanna
heims.
fimmtudaginn 5. júni og hefst kl. 20.00.
Úrslit i Magdeburg 1974 Þýska Al-
þýðulýðveldið — ísland 1-1
Úrslit i Reykjavík 1975 ísland — Alþýðu-
lýðveldið? (Það er spurning dagsins)
Fjölmennið á völlinn og hvetjið isl. lands-
liðið og látum „Áfram ísland” hljóma af
röddum þúsundanna er heimsækja
Laugardalsvöllinn i dag, sem hvatningu
fyrir islenskum sigri.
Knattspyrnusamband íslands.