Vísir - 05.06.1975, Qupperneq 16
Alit Guðna
í Sunnu og
Air ViJcing:
___Umsögn Flugleiða
vart nema á einn veg
„Það vita allir aö umsögn
Flugleiöa veröur neikvæö, þvi
held ég aö þaö hafi veriö algjör
óþarfi aö senda þeim umsókn
okkar tii umsagnar,” sagöi
Guöni Þóröarson forstjóri Air
Viking í morgun um þá ákvörö-
un fiugráös aö senda Flugleiö-
um til umfjöllunar umsókn
fyrirtækisins á ódýrum flug-
ferðum frá islandi til Kaup-
mannahafnar.
„Mér kemur þetta þó ekki
eins á óvart og mörgum, sem
lásu um þetta I Visi um helgina.
Flugleiöir virðast njóta sérlega
mikils álits. Til dæmis fær það
fyrirtæki reglulega sendar I
pósti fundargerðir Flugráðs.
Það Ut af fyrir sig er furðulegur
hlutur, þvi þar geta birzt við-
kvæm mál samkeppnisaðila,
sem ætlazt er til að fari ekki
lengra. Þetta berst siðan sjálf-
krafa inn á skrifborðin þeirra
hjá Flugleiðum.”
Guðni Þórðarson kvaðst hafa
orðið var við mikinn áhuga fólks
á hinum svonefnda „shuttle-
service”, en þar er reiknað með
fjórfalt lægri fargjöldum en nú
tiðkast, þ.e. almennu fargjöld-
unum, sem kosta yfir 50 þúsund
krónur. Ferðaskrifstofur bjóða
hins vegar viðskiptavinum far-
gjöld á þessari flugleið fyrir um
27 þúsund krónur, séu þeir fé-
lagsmenn i hinum ýmsu og óiik-
ustu félögum, sem samningar
hafa verið geröir við.
Sveinn Sæmundsson, blaða-
fulltrúi Flugleiða, sagði i morg-
un að umsögn Flugleiða hefði
verið send flugráði. Ekki gat
hann t jáð blaðinu neitt um inni-
hald þess bréfs, það kemur i ljós
eftir næsta fund ráðsins. Sveinn
kvað Flugleiöir bjóða ýmis far-
gjöld á Kaupmannahafnarrút-
unni, allt niður I 20.870 krónur,
en þá verður viðkomandi að
vera staddur I 70 manna hópi i
vor- eða haustfargjaldi.
—JBP
Þetta gat aðeins gerzt í verkfalli:
Andamamma verpti í trollið!
Það er sennilega fá-
títt, að endur geri sig
heimakomnar um borð i
togurum, enda sjald-
gæft, sem betur fer, að
þeir séu bundnir í höfn
svo að vikum skiptir
vegna verkfalla.
Ein andamamma sá
sér þarna leik á borði og
hóf hreiðurgerð í troll-
inu um borð í Engey RE.
Þar er hún nú búin að
verpa sínum eggjum og
hyggst koma sinni fjöl-
skyldu upp.
Það verður því einn,
sem vonar að verkfallið
standi eitthvað áfram
og lætur sig litlu skipta,
hvort mannfólkið dreg-
ur bein úr sjó eða ekki.
Hún andamamma lá
grafkyrr á eggjunum
sínum á meðan Bjarn-
leifur smellti myndinni
af, alveg eins og hún
hefði ekki gert annað en
vera I jósmyndaf yrir-
sæta. Þegar við komum
alveg að henni f laug hún
fyrst upp og eggin
hennar reyndust vera
níu.
—EVI
*%■. '.
' ^
Hugsjónirnar ofan ó!
BÆRINN FÆR SAND
VISIR
Fimmtudagur 5. júni 1975
Tekur
þátt í
Miss
Universe
Helga Eldon, ung stúlka úr
Kópavoginum, á langt feröa-
lag fyrir höndum. Nær allan
næsta mánuö veröur hún á
feröalagi á milli stórborga
bæöi vestan hafs og austan, en
hápunktur feröarinnar veröur
þátttaka i keppninni Miss Uni-
verse 1975, sem haldinn verö-
ur I E1 Salvador siöast I mán-
uöinum.
Þær, sem komast i efstu sæti
þessarar alþjóðlegu fegurðar-
samkeppni, fá stórkostleg
verölaun og enn fleiri ferða-
lög.
Helga var kjörin fulltrúi Is-
lands til keppninnar á Sunnu-
kvöldi á Hótel Sögu 9. marz sl..
Helga hefur áður tekið þátt i
fegurðarsamkeppni á erlendri
grund, en hún náði að komast i
þriðja sæti keppninnar Miss
Young International fyrir
tveim árum. —ÞJM
Douðaslys í
Sandgerði
Dauöaslys varð I Sandgeröi i
gærdag. Sextán ára piltur á léttu
bifhjóli ók fyrir vörubifreið á
Strandgötunni um eitt leytið i
gærdag. Ilann fékk mikla áverka,
var strax fluttur I sjúkrahúsið I
Keflavik, en þegar þangaö var
komiö, var liann látinn.
Ekki er unnt að greina frá nafni
piltsins að svo stöddu. —EVI—
Harður árekstur
í Kópavogi
Haröur árekstur varö laust
fyrir kl. 10 i gærkvöldi á mótuin
Borgarholtsbrautar og Urðar-
brautar. Rákust þar á fólksbifrcið
og Broncojeppi meö þeim afleið-
ingum aö jeppinn valt og lagöist
yfirbygging hans saman.
Bílstjóri jeppans, sem var einn
i bílnum, skapp meö skrámur, en
bilstjóra og farþega fólkshilsins
sakaði ekki.
—EVI—
Fyrsti sótta-
fundur í deilu
blaðamanna
Sáttasemjari hcfur boöaö
fyrsta fund sinn I kjaradeilu
blaöamanna og útgefenda I dag
klukkan tvö.
Aöilar deilunnar urðu sammála
um aö visa henni til sáttasemj-
ara, eftir að tveir samningafundir
höföu veriö haldnir.
Þeir fundir voru stuttir. Biaöa-
menn lögöu fram kröfur slnar, og
ekkert tilboö kom frá útgefend-
um. _HH
Keflavikurbæ hefur á
ný verið heimiluð mal-
artaka á Miðnesheiði.
Bæjaryfirvöldum hefur
verið meinuð jarðvegs-
taka þarna i tæp 2 ár.
Á þeim tima hefur
bærinn orðið að kaupa
efni úr Stapafelli mun
dýrara verði. Þetta upp-
lýsti bæjarstjórinn, Jó-
hann Einvarðsson.
Það var varnarmálanefnd
utanrikisráöuneytisins, sem meö
bréfi 27. júli 1973 lýsti jarövegs-
töku þarna óheimila. •
Bæjarstjórinn tjáöi Suöur-
nesjatiöindum, aö varnarmála-
nefndin heföi visaö þeim á efnis-
kaup hjá ákveönu fyrirtæki þar
syöra. Þá kom i ljós, aö fyrirtæk-
iö, Kambur h.f., haföi fengiö
einkaleyfi til malartöku á Miö-
nesheiði!
Jóhann kvað hafa verið höföaö
til annars vegar náttúruverndar-
sjónarmiða og svo hins, aö mölin
væri aö ganga til þurröar. Hiö siö-
arnefnda kvað hann vart fá staö-
izt.
í viötali viö VIsi kvað Hannes
Guömundsson hjá varnarmála-
nefnd bann hafa verið sett á alla
efnistöku. Náöi þaö jafnt til
hreppsfélaga og fyrirtækja. Þótti
ekki ástæöa til aö hafa samráö viö
þau fyrrnefndu, þar sem þau
sýndu lítinn áhuga á mengunar-
vörnum.
Kambi h.f. hefði verið veitt
einkaleyfi til aö annast eftirlit á
svæðinu. Og ef um malartöku yröi
aö ræöa af fyrirtækisins hálfu,
bæri þvi að greiða fyrir það.
Ástæðuna fyrir þvi, að þetta
ákveðna fyrirtæki var valiö, sagði
Hannes vera þá aö „þeir taka
sand við Súlur”.
Keflavikurkaupstaöur átti þvi
ekki aö vera á flæðiskeri staddur.
—BA
Maja fegurðarsamkeppnin:
Ungfrú Venezuela fegurst
Ungfrú Rúmenía vinsœlust
Ungfrú Deobora Velasco,
fenezuela, varö hlutskörpust I
flaja alþjóöafeguröarsam-
cppninni I Madrid á Spáni.
Númer tvö varö feguröardls
rá Dóminikanska lýöveldinu,
Jiguelina Sanches aö nafni.
Jngfrú Marilyn Ursulich frá
'uerto Rico varö númer þrjú.
Vinsælasta stúlkan, kosin af
stallsystrum hennar I fegurðar-
samkeppninni, var ungfrú
Rúmenla, Lia M. Bolloga en
bezta Ijósmyndafyrirsætan var
Ingela A. Jonsson frá Svíþjóð.
Vlsis-stúlkan, hún Vala Jóns-
dóttir, komst ekki i úrslit.
—H E