Vísir - 16.07.1975, Blaðsíða 16
VÍSIR
Miðvikudagur 16. júlf 1975.
ÍSLENZKA
KRÓNAN ER
HELDUR AÐ
HRESSAST
„Krónan okkar stendur betur
að vlgi i dag gagnvart mörgum
gjaldniiðium en eftir siðustu
gengisfellingu,” sagði Ingvar
Sigfússon hjá Seðlabankanum, er
haft var samband við hann i
morgun.
Islenzka krónan hefur að visu
sigið gagnvart dollaranum um
4,5%, en hefur hins vegar hækkað
með tilliti til sænsks og þýzks
gjaldmiðils. Brezka sterlings-
pundið sigur stöðugt og greiðum
við nú 342 krónur fyrir það i stað
358 i febrúar.
Pesetinn, sem Spánarfarar
verða að kaupa, hefur heldur
lækkað miðað við islenzku krón-
una. lOOpesetarnir voru 8 krónum
dýrari I febrUar en nú er.
Er Ingvar var spurður um
gjaldeyrisstöðuna, sagðist hann
einungis hafa öruggar tölur fyrir
maimánuð. Þá hefði tekizt að
bæta stöðuna um 963 milljónir.
Reyndist Utkoman þá vera minus
1621milljón. Ef heildartölur fyrir
fyrstu 5 mánuðina eru bornar
saman við stöðuna i fyrra á sama
tima, kemur i ljós, að gjaldeyris-
staðan i ár var 2727 milljón krón-
um betri.
—B.A.
Landspítalinn:
ENGIN
VERZLUN
— vegna peningaleysis
— Ver/.luninni hefur verið val-
inn staður á sjúkrahúsinu og um-
gjörð um hana er koruin upp, en
það er peningaleysi, sem frekari
framkvæmdir stranda á, sagði
Georg Lúðviksson hjá skrifstofu
Rikisspitalanna I viðtali við Visi i
gær.
SjUklingar á Landspitalanum
og gestir, er þangað koma, hafa
oftlega kvartað undan þvi, að þar
skuli ekki vera söluop með helztu
nauðsynjum eins og á hinum
sjUkrahUsunum, Landakoti og
Borgarspitalanum.
Frumaðstaðan hefur verið fyrir
hendi en sjálfa innréttinguna
vantar.
— Við vorum bUnir að fá fé til
þessara framkvæmda, en þá voru
teikningar ekki fyrirliggjandi. NU
eru þær aftur á móti til, en þá
vantarpeningana. Þaðer einfald-
lega það margt, sem þarf að
framkvæma á stórum spitala, að
þetta hefur orðið að biða, sagði
Georg LUðviksson.
Georg LUðviksson sagði, að
reikna mætti með, að innrétting i
væntanlega verzlun i Landspital-
anum kostaði um tvær milljónir,
enda væri hUn fyrirhuguð öllu
stærri en þær verzlanir, sem eru á
hinum sjUkrahúsunum.
— Kvennadeild Rauða krossins
var þegar i upphafi boðið að reka
umgetna verzlun. Þá bauð deildin
að annast innréttingu, en þvi boði
var hafnað, þar eð talið var, að
sjUkrahúsið hefði tök á þeirri
framkvæmd sjálft. Ég veit aftur á
móti, að Kvennadeildin hefur
itrekað boð sitt nú, þegar fram-
kvæmdir við verzlunina hafa
dregizt svona. Það mætti þvi bú-
ast við, að bráðlega yrðu fram-
kvæmdir við verzlunina hafnar,
sagði Georg Lúðviksson hjá skrif-
stofum Rikisspitalanna.
—JB
14 ÍSLCNDINGAR EIGA
LÖGHEIMILI í SIGÖLDU
— og nœrri tvö hundruð Júgóslavar
Skálarnir við Sigöldu eru
annað og meira en svefnstaðir.
Þeir cru lögheimili Júgóslav-
anna, sem hér eru, að minnsta
kosti langflestra þeirra, sam-
tals nærri 200 manns. Þá hafa
nokkrir íslendingar, alls 14,
eignazt lögheimili þarna. i
þessum hópi eru nokkur börn, 3
einhleypingar og þrenn hjón.
Konurnar, sem dvelja þarna
með mönnum sinum, munu
allar vera ráðskonur. Börnin
eru það ung að þau eru ekki
komin á skólaskylduaidur.
Sigöldusvæðið tilheyrir Asa-
hreppi, en i þeim hreppi er 31
bær. Þessar upplýsingar feng-
um við á sýsluskrifstofunni á
Hvolsvelli. Júgóslavarnir, sem
allir verða að eiga lögheimili
hér á landi, munu vera á annað
hundrað talsins með lögheimili i
Ásahreppi. Ásahreppur fær
þarna þvi enga smábúbót hvað
opinber gjöld snertir. Hvort
skattar og útsvör Islendinganna
eru lægri þarna en til dæmis i
Reykjavik tókst ekki að fá ná-
kvæmar upplýsingar um, þar
sem skattskráin er enn ekki
komin. —B.Á.
„ðrvar alls ekki
heikrfrumumar"
w
— segir Friðrik Olafsson,
30 gráðu hita í Zurich
Aðeins eru nú eftir þrjár um-
ferðir I svissneska meistaramót-
inu i skák, sem stendur yfir i
Zúrich, en þar er Friðrik Ólafsson
stórmeistari meðal þátttakenda.
„Þetta hafa verið jafntefli og
aftur jafntefli siðustu fjórar eða
fimm umferðirnar”, sagði Frið-
rik Ólafsson, þegar blaðamaður
Visis náði tali af honum i sima i
morgun.
„Það virðist sama, hvað maður
bitur á jaxlinn og leggur sig fram
— vinningurinn lætur einhvern
veginn á sér standa”, bætti hann
við.
1 Zurich hefur verið óhemju
heitt þessar vikurnar. í gær og I
fyrradag mældist nitinn um 30
gráður... i forsælunni! Inni i
sem teflir í rúmlega
taflsalnum, þar sem keppendur
hafa á orði, að loftræstingunni sé
ábótavant, er hitinn meiri.
Þegar Friðrik var spurður að
bvf hvort hitinn bagaði hann,
svaraði hann: „Ég get ekki
hrósað þvi, að það hafi beinlinis
örvandi áhrif á heilafrumurnar.”
Efstur eftir 10 umferðir er Gar-
cia frá Kúbu með 7 1/2 vinning.
Númer tvö er KellerC Sviss) með
7 vinninga. Næstir með 6 vinninga
allir eru Umzicker, Hug, Dúrch-
stein og Tatai. Númer sjö er
Langeweg með 5 1/2 vinning.
Númer átta er Lombardi með 5
vinninga. Friðrik og Keene eru
jafnir með 4 1/2 vinning hvor og
aðrir koma svo þar á eftir.
G.P.
ORLOFSGREIÐSLURNAR
Á LEIÐINNI í PÓSTI
Aðstoð við innheimtu ef óskað er
Ef orlofið þitt keinur ekki með
skilum I pósti, skaltu fara með
kvittanir þinar niður i orlofs-
deildina i Pósthússtræti og
spyrja, hvernig á þvi standi.
Liklegasta skýringin er sú, að
fyrirtækið, sem þú starfaðir hjá,
hafi ekki innt þessar greiðslur
af hendi til Pósts og sima, en þú
færð þá aðstoð við að innheimta.
Siðari hluti greiðslu orlofs er
nú hafinn og Þorgeir Þorgeirs-
son, deildarstjóri orlofsdeildar,
sagði Visi I gær, að allt væri
póstlagt og ætti að berast við-
takendum á næstu dögum. Einn
aðalvandi deildarinnar er, að
fyrirtækin standa ekki öll i skil-
um.
— En við höfum nú fengið
lögtaksúrskurð og vonum, að
það ýti á eftir. Ef einhver fyrir-
tæki hafa ekki gert skil, verður
gengið á þau og peningarnir
verða sendir út til þeirra, sem
þá eiga að fá, jafnharðan og þeir
berast til okkar. Ef fólki finnst
biðtíminn orðinn eitthvað ó-
venjulega langur, getur það
leitað til okkar um aðstoð. Það
þarf þá að koma til okkar með
kvittanir eða uppgjör, þvi það
þurfum við að hafa i höndunum
við innheimtuna. —ó.T.
Leiddist biðin og fór sjólfur af stað
Mannlausum bil, sem stóð við
Grensáskjör i gærdag, hefur
sjálfsagt leiðzt biðin eftir eig-
anda sinum. Hann fór af stað
sjálfur, aftur á bak að visu, og
stöðvaðist ekki fyrr en ofan I
húsagarði.
Mesta heppni er, að ekkert
skyldi henda bilinn á leiðinni,
þvi hann rann talsverða vega-
lengd.
Eigandinn hafði skilið hann
eftir fyrir utan verzlunarhús-
næðið. Billinn rann siðan niður
bilastæði út á Grensásveginn,
yfir umferðareyju, aftur yfir
götuna hinum megin eyjarinn-
ar, yfir gangstétt og hafnaði i
garði við ibúðarhús.
Það þarf liklega ekki að
spyrja að upplitinu á eigandan-
um, en hjálpfúsar hendur tóku
sig fljótt til og bilnum var komið
upp á götuna fljótlega aftur.
—EA
Þarna hafnaði billinn eftir aðhafa runnið talsverða vega-
lengd aftur á bak. Mesta mildi, að ekki skyldi verr fara.Ljósm.
Bragi.
BERGENFARARNIR FÁ
BARA 300 KR. NORSKARl
l „Þetta er ákvörðun gjald-
eyrisnefndarinnar með tilliti til
hinnar stuttu viðdvalar”, sagði-
Ingólfur Þorsteinsson hjá gjald-
eyrisnefnd bankanna. Þar hefur
sú ákvörðun verið tekin, að ís-
lendingarnir sem fara utan til
að fylgjast með landsleik ts-
lands og Noregs fái 300 krónur
norskar. Sú upphæð mun vera
innan við 10.000 krónur.
Guðni Þórðarson hjá Air Vik-
ing sagðist vera mjög undrandi
á þessari ákvörðun. ,,í minum
huga er bara til einar gjald-
eyrisreglur fyrir fólk, sem fer til
útlanda”, sagði hann.
Þess má raunar geta, að sam-
kvæmt gjaldeyrisreglunum ber
fólki að skila við heimkomuna
þeim gjaldeyri, sem það hefur
ekki komið i lóg i ferðinni.-BA
ÁFRAM ÍSLAND
— hundrað íslendingar fara utan til að
horfa ó leikinn milli íslands og Noregs,
sem verður í Bergen ó morgun
Það verður ægilegt stuð i Nor-
egsferðinni á morgun, en þá fer
full vél af islcndingum til að
horfa á leikinn milli Norðmanna
og tslendinga, sem haldinn
verður I Bergen, sagði Birgir
Þorvaldsson, sem er gamal-
reyndur KR-ingur.
Ég ætla að selja islenzka fán-
ann og gjallarhorn I vélinni á
kostnaðarverði náttúrlega. Sið-
anfer ég sjálfur með stóran lúð-
ur, eins ogE .O.P.fyrrv. formað-
ur KR notaði i gamla daga.
Þannig útbúinn ætla ég að
stjórna h\ tningarópunum og
halda stemmningunni uppi,
sagði Birgir.
Lagt verður af stað kl. tiu I
fyrramálið. Leikurinn er kl. sex
að staðartima. Að leiknum lokn-
um verður farið beint upp i
rútu og keyrt út á flugvöll og
flogið heim. Áætlaður komutimi
til Reykjavikur verður ein-
hvern tima um miðnætti, sagði
Birgir.
Þessar ferðir eru á vegum Air
Viking og hafa rúmlega hundr-
að og fimmtiu manns keypt sér
far I ferðina og nokkrir eru
ennþá á biðlista. HE
Birgir Þorvaldsson vopnaður lúðri og Islenzka fánanum. Ljósm
Bj.Bj.