Tíminn - 09.09.1966, Page 3
3
FÖSTUDAGUR 9. september 1966
TÍMINN
í SPEGLITÍMANS
Leikkonan Ava Gardner, sem
eitt sinn var eiginkona Frank
Sinatra og var á sínum tíma
talin ein fegursta kona heims,
er nú orðin 43 ára gömul og
stöðugt á niðurleið. Fyrir-
skemmstu trúði hún blaða-
manni nokkrum fyrir því, að f.
hún hafi komið sér út úr húsi |
meðal allra vina sinna, væri í
þann veginn að drekkja sér í
vínanda, og að hún kastaði
hverju sem væri í hvern sen>,
væri. Auk þess hefði hún kas
að 25 pörum af nýjum skóm
niður í brunn og nokkrum ösku
bökkum út um glugga.
Lex Barker, sem eitt sinn lék
Tarzan í kvikmyndum við mik-
inn orðstír, hefur nú unnið
eirm sinn mesta kvlfanyndasig-
ur, að því er sögn segir, þótt
eitthvað verði hann að teljast
vafasamur. í næstu kvikmynd
sinní á hann að leika á móti
Soraya, fyrrverandi keisara-
drottningu. Soraya, sem fram
að þessu hefur aðeins leikið í
★
einni kvikmynd, Þrjú andlit
konunnar, og það án þess að
vinna sér sérstakt álit í- kvik-
myndaheiminum, hefur nú sam
þykkt það að Lex Barker leiki
á móti henni i næstu kvikmynd,
og hefur verið á það bent að
þau Soraya þekki hvort annað
frá fornu fari, því að Lex Bark
er hefur leikið í fjölmörgum
kvikmyndum, sem teknar hafa
verið í Vcstur-Þýzkalandi. Hið ||
eina, sem mælir á móti þess-1|
ari kvikmyndatöku, er kona
nokkur að nafni Carmen Cer-
vera, og hún stendur Soraya
ekki að baki hvað fegurð snert
ir og var eitt sinn kjörin feg-
urðardrottning Spánar. Nú er
hún fimmta eiginkona Lex Bar
ker og hefur greinilega ekki,
sama álit á Lex og ein af fyrri
konum hans, Lana Turnar, en
hún sagði eitt sinn: — Ég býð
þeirri konu bara góða skemmt
un, sem getur sigrað Lex. Hann
er grófur og ruddalegur og get
ur ekki haft stjórn á hinu
erfiða skapi sínu. Carmen hef
ur hins vegar ekki sömu skoð
un á málunum og má ekki
heyra á þessa væntanlegu kvik-
mynd minnzt.
1
Rachel Welch er ein vin-
sælasta kvikmyndaleikkonan
og kynbomban um þessar mund
ir. Hér sjáum við hana í hlut
verki sínu í kvikmynd-
inni Shout louder, I don't
understand. Kvikmyndin er
tekin í Róm.
★
Frank Sinatra og eigin-
kona hans, Mia Farrow, eru
nú um þessar mundir í Dan-
mörku, þar sem hann er að
leika í kvikmynd. Búa þau á
hótel Royal og hafa verið um
setin af rithandasöfnurum. Fyr
ir skemmstu gaf Mia Farrow í
fyrsta sinn eiginhandar-
skrift sína dönskum rithanda-
safnara. Brá honum heldur í
brún, þegar hann leit á það,
sem hún hafði skrifað, því að
hún hafði ekki skrifað nafnið
Mia Farrow, heldur Mrs. Frank
Sinatra.
•k
Bandaríska öldungadeildin
hefur nú icjörið fyrstu þeldökku
konuna sem dómara í Banda-
ríkjunum. Er það frú
Constance Baker Motley, sem áð
ur var öldungadeildarþingm.
í New York, og auk þess lög-
fræðingur fyrir kynþátta-
samtök.
★
Jarnes Stewart er nú að leika
í kvikmyndinni The Rare
Breed, og helzti mótleikari Ja-
mes, sem er nú sennilega van-
ari einhverju öðru og betra, er
heljarmikið naut. Er búið að
þjálfa nautið í hlutverki sínu
en það er í því fólgið að naut-
ið komi hlaupandi, þegar Juli-
et Mills, — stóra systir Hayley
Mills — syngur God Save the
King. Lét James svo um mælt
að hann heði aldrei íengið
harðari keppinaut í kvikmynd.
— Hann stelur öllum senun-
um frá mér, sagði Jamies og
til þess, að hann verði ekki vin
sæll og frægur í kvikmynda-
heiminum, hef ég tekið það ráð
að kaupa hann. Og ég sikal sjá
um það, að hann leiki ekki í
kvikmyndum framar, að
minnsta kosti ekki í þeim kvik
myndum, sem ég leik í. Ef ég
ætti óvin, myndi ég leyfa naut
inu mínu að leika í sömu kvik
mynd og hann — en sem bet-
ur fer, á ég engan óvin.
★
Brezka leikkonan Raquel
Welch er sú brezk leikkona,
sem talin er eiga mesta fram-
tíð fyrir sér í kvikmyndaheim
inum um þessar mundir. Nú
um þessar mundir er hún að
leika í kvikmynd, sem nefnist
A Fantastie Voyage, og er
þessi mynd af einu atriði kv5k
myndarinnar.
cr
Á VlÐAVANGI
Sandburður Mogga-
Ein er sú blekking, sem
Morgunblaðið leggur um þess
ar mundir slíkt ofurkapp á að
berja inn í þjóðina, að minnir
á athafnir þeirra manna, sem
bera alltaf sama sandinn upp
á loft og hella honum niður um
rennu. Þetta er kenningin um
það, að Sjálfstæðisflokkurinn
sé hinn eini og sanni frelsis
flokkur, sem hati höft og bönn
og hafi aldrei nærri slíku kom
ið, en Framsóknarflokknum séu
höft og bönn hinn eini og
sanni fagnaðarboðskapur. Á
þessu klifar Morgunblaðið nú
dag hvern ótt og títt, eins og
það sé að binda geitur. í gær
flytur það pistilinn að venju og
segir.
„Sjálfstæðismenn vilja ekki,
að einstaklingarnir þurfi að
sækja um leyfi til ótal nefnda
og ráða til þess að mega kaupa
ný framleiðslutæki, byggja hús
eða flytja inn vörur.
Framsóknarmenn vilja hins
vegar nota haftaskipulagið sem
pólitískt tæki til þess að hafa
ráð fólksins í hendi sér . . .
Sjálfstæðismenn telja slíkt
skipulag háskalegt og vinna
gegn því af afefli. En Fram-
sóknarmenn telja það beinlínis
æskilegt og eðlilegt.
Svona lætur Morgunblaðið
dæluna ganga um þennan reg
inmun, sem sé á Sjálfstæðis-
flokknum og Framsóknarflokkn
um. Þeir eru eins og svart og
hvítt.
íhaldsöfl.
Það cr sama, þótt bent sé
á þær óvéfengjanlegu stað-
reyndir, að það var Sjálfstæðis
isfl. sem fór með völd þegar
höft og skömmtun voru upp
tekin af illri nauðsyn á stríð!
árunum, hann beitti sér fyrii
þeim, samþykkti öll lög um
það og ráðherrar hans gáfu út
reglugerðir um þetta. Sjálfstæð
ismenn áttu formenn fjárhags
ráðs og skömmtunarnefnda og
stóðu sem sagt beinlínis fyrir
höftum' og skömmtun hér á
Iandi alla tíð.
Þessu svarar Morgunblaðið
aldrei, því að það veit að
þetta er satt. Það getur ekki
neitað þessum staðreyndum, og
það getur á engan hátt þvegið
af Sjálfstæðisflokknum höfuð
ábyrgð af höftum og skömintun
hér á landi og reynir það ekki.
Þau höft og skömmtun, sem fs
lendingar þekkja, eru eingöngu
íhaldshöft.
Gamla Hitlers-ráðið.
Og þegar Tíminn minnir á
þessar staðreyndir af gefnu
tilefni Morgunblaðsins, reynir
það ekki að bera á móti þessu,
heldur hefur upp rolluna, sem
birt er sýnishorn af hér að
framan, fer að hamast við aS
bera sama sandinn upp aftur og
aftur, þyrla upp innantómu og
staðlausu blekkingamoldviðri
um Sjálfstæði-frelsiflokkinn og
Framsóknar-haftaflokkinn, en
reynir auðvitað ekki að finna
þessum þvættingi nokkurn stað,
enda óhægt um vik. Svona hugs
ar Morgunblaðið sér að komast
úr kreppu þeirra óþægilegu stað
reynda, að íhaldið er mesti
haftaflokkurinn, sem stjórnað
hefur á íslandi. Blaðið notar
sama gamla ráðið, sem Frey
steinn Þorbergsson lýsir svo
fagurlega í grein í sama blaði
í gær og kennir við Stalín og
Fremhald á bls. 15.