Tíminn - 09.09.1966, Side 8
TÍMINN
FÖSTUDAGUR 9. september 1966
Úr setjarasalnum. Tll vinstri vélsetjararnir Sverrlr Kaernested, Ásgeir Guðmundsson og Steinþór Árnason. Tll haegri handsetjarar. Halldór Bragason, Erlendur Siggeirsson,
Þórður Björnsson, Kristinn B. Sigurðsson, Njáll Sigurjónsson og Sverrir Arnkelsson.
Prentsmiðjan Edda hf. 30 ára
Jónas Þorvaldsson og Leifur Eiríksson, bókbindarar, við nýja skurð-
arhnífa.
í tilefni af afmælinu sneri
Tíminn sér til Stefáns Jónsson
ar, núverandi framkvæmda-
stjóra prentsmiðjunnar, og baö
hann að gefa sér upplýsingar
um stjórnendur prentsmiðjunn
air og þróun hennar í höfuð-
dráttum á þeim 30 árum, sem
hún hefur starfað. Varð hann
fúslega við þeirri ósk, þar sem
svo stæði á, að formaður prent
smiðjustjórnarinnar, ólafur Jó
hannesson, prófessor, væri fjar
verandi, en hann dvelst nú er-
lendis. Yfirlit' framkvæmda-
stjórans fer hér á eftir:
„Hlutafélagið Prontsmiðjan
Edda var stofnag 9. september
1936. Stofnendnr voru 13, en
fljótlega var hlutaféð aukið.
Hluthafar hafa verið 50 að tölu
er þeir voru flestir, en eru nú
41.
Fyrsta stjórn hlutafélagsins
var kosin á stofnfundi og skip
uðu hana þesir menn: Sigurður
Jónasson, forstóri, Guðbrandur
Magnússon, forstjóri, Guðmund
ur Kr. Guðmundsson, skrifstoíu
illllllll
Úr bókbandssal. Grétar Sigurðsson, verkstjóri, og talið frá vinstri Þórleif Ásmundsdóttir, Jóhanna Jóns-
dóttir, Birna Ólafsdóttir og Hólmfríður Sigurðardóttir.
stjóri, Eggert P. Briem, for-
stjóri og Sigurður Kristinsson,
forstjóri. Stjórnarformaðar var
kjörinn Sigurður Jónassoon, for
stjóri.
Stjórnarformenn hlutaíelags-
ins hafa verið:
Sigurður Jónasson, forstjóri,
í 6 ár, Sigurður Kristinsson,
forstjóri, í 15 ár, Erlendur Ein
arsson, forstjóri, í 3 ár, ofc Ólaf
ur Jóhannesson, prófessor, í 6
ár, og er hann stjómarformað-
ur nú.
Framkvæmdastjórar prent-
smiðjunnar hafa verið.
Jón Þórðarson og Óskar Jóns
son í 1 ár, Eggert P. Briem í
5 ár, Eysteinn Jónsson í 5 ar,
Þorsteinn Thorlacius í 13 ár,
og Stefán Jónsson í 6 ár og
gegnir hann því starfi nu.
Skrifstofustjóri prentsmiðj
unnar er nú Gísli B. Kristjáns-
son, og yfirverkstjóri er Stefán
Traustason, en báðir þessir
menn hafa gegnt nefndum trún
aðarstörfum um langt árabil.
Prentsmiðjan starfar í þrem
ur deildum: Setningadeild,
pressudeild og bókbandsdeild,
og er sérstakur deildarverk-
stjóri yfir hverri deild.
Hlutafélagið Prentsmiðjan
Edda hóf starfsemi sína með
þvi að kaupa lóðina Lindargötu
9A og hefjast handa um bygg
ingu prentsmiðuhúss. Samtímis
keypti það prentsmiðjuna Acta,
sem var lítil prentsmiðja, en
hafði þó starfað í 16 ár. Strax
á öðru starfsári var vélakostur
prentsmiðjunnar talsvert auk-
inn með nýjum vélum.
Á þeim 30 árum, sem prert-
smiðjan hefur starfað hefur
vélakostur hennar smám saman
verið aukinn og bættur. Starfs-
lið prentsmiðjunnar hefur og
aukizt í svipuðu hlutfalli, og
starfa nú við prentsmiðjuna að
jafnaði rúmlega 50 menn.
Prentsmiðjan starfar sem ai-
gert þjónustufyrirtæki enda ekki
aðili að neins konar útgáfu-
starfsemi. Hún annast prentun
bóka, tímarita, umbúða og
margs konar eyðublaða fyrir
verzlunarviðskipti og fram-
leiðslustarfsemi. Fyrir utan
slíka prentframleiðslu, sem er
aðalatriðið í starfi prentsmiðj
unnar, á hún Rotations-prent-
vél til blaðaprentunar og
tvö dagblöð, Tíminn og Visir,
..................................'................................................... • - ^
Gísli Kristjánsson
skrifstofustjóri
Stefán Traustason
yfirverkstjóri