Tíminn - 09.09.1966, Síða 15
FÖSTUDAGUR 9. september 1966
TÍMINN
IÐNSÝNINGIN
Framhald af bls. 2.
COCA-COLA: Senn rís ný verk-
smiðja í nýja iðnaðarhverfinu við
Árbæ og verður 811 starfsemin
flutt þangað. Þá koma á markað-
inn stærri flöskur — allt upp í
1. líters flöskur, og sykurlaust
Coke. í stærri flöskunum, sem ný-
lega eru komnar á markaðinn og
hefur verið vel tekið, er 60 meira
magn, en verSið er 30% hærra.
Margra álit er að íslenzkt Coke
sé betra en erlent vegna vatns-
ins, en alls staðar er Coke fram-
leitt úr sama hráefni, sem flutt
er hingað frá Belgíu.
OPAL: Nú er farið að pakka allt
sælgæti í vélum hjá fyrirtækinu.
Opal töflurnar eru íslenzk fram-
leiðsla að öllu leyti, og mjög vin
sælar, sem sést bezt á því, að um
180 þúsundir pakkar seljast á
mánuði, eða 1 pakki á hvert manns
harn á mánuði.
EFNABLANDAN OG AMOR:
Efnablandan framleiðir m.a. Prins
essu Macaroni, og liggja frammi
mataruppskriftir, - þar sem Maca-
roni er notað. Amor framieiðir
ýmsar gerði af sælgæti.
FRÓN: Fyirtækið hefur starfað
í 40 ár. Undanfarið hefur það átt
í erfiðleikum vegna fyrirvaralauss
innflutnings á erlendu kexi, en
salan er nú aftur vaxandi, enda
matarkexið og kremkexið jafn
vinsælt og áður. Mikið er selt af
matarkexi á vinnustaði,' og dálítið
er flutt út til Færeyja.
O. JOHNSON OG KAABER: Ný
verksmiðja er nú að rísa í Selási
og verður þá hægt að setja fleiri
kaffitegundir á markaðinn, m.a.
mokkakaffi, og kaffi í loftþéttum
umbúðum.. Kaffibætir er enn not-
aður talsvert úti á landi.
MÓNA: Fyrirtækið framleiðir ýms
ar gerðir af súkkulaði. Meðal nýj-
unga eru Súkkulaðidropar, sem
ætlaðir eru til að skreyta tertur.
11 manns vinnur nú hjá fyrir-
tækinu, sem staðsett er í Hafnar-
firði.
SANA: 7 tegundir af gosdrykkjum
eru framleiddir hjá Sana, sem hef-
ur útihú að Digranesvegi 12 í
Kópavogi. í nóvember er von á
bjór frá Sana, ennfremur malt-
öli. Bruggaður verður sterkur bjór
til sölu í sendiráðum o. fl. stöð
um. Það er danskt fyrirtæki sem
útvegar vélar í hina nýju verk-
smiðju á Akureyri.
FREYJA: Framleiðir einkum kon-
fekt, og sala í vöfflustöngum
(staurum) fer sívaxandi. Vönduð-
ustu umbúðir um konfektið kosta
hátt á 2 hundruð króna vegna
hárra tolla.
SMJÖRLÍKISGERðlRNAR: Þriðj-
ungur af hráefni í venjulegu smjör
líki er hert lýsi. Jurta smjörlíkið
selzt nú ekki eins vel og í fyrstu,
en salan er þó góð. Smjörlíkið
er framleitt samkvæmt ströngustu
kröfum 1 fullkomnum vélum og
snertir mannshöndin aldrei á
smjörlíkinu. Á markaðinn er að
koma þörf bók, Kökubókin, sem
hefur að geyma 38 uppskriftir,
og verður hún seld í matvöru-
búðum á 15 krónur eintakið.
LINDA: Framleiddar eru um 50
tegundir af sælgæti. Flutt hefur
verið út til Kanada og Banda-
ríkjanna sérstakt súkkulaði, Ice-
linda, og er það einnig selt í flug-
vélum Loftleiða. Þá framleiðir
Linda Pez með einkaleyfi og Delfol
hálstöflur. Nýtt á markaðnum er
karamellusúkkulaðikex.
NÓI: Fyrirtækið framleiðir marg-
ar þekktar tegundir af sælgæti.
•Nýlega eru karamellur í nýjum
umbúðum komnar á markaðinn
og gæðin meiri en áður, þar sem
settar hafa verið upp nýjar vélar
frá Ítalíu.
VALUR: Meðal fjölbreyttra vöru-
tegunda frá fyrirtækinu er íslenzk
tómatsósa, sem hefur líkað ágæt-
lega. Valur framleiðir einnig
ávaxtasafa, og ýmsar gerðir af sult
um.
Stml 22140
Synir Kötu Elder
(The sons of Katie Elder)
Víðfræg amerísk mynd í
Terhnicolor og Panavision.
Myndin er geysispennandi
frá upphafi til enda og leik
in af mikilli snilld, enda tal
in einstök sinnar tegundar.
Aðalhlutverk:
John Wayne
Dean Martin
Bönnuð innan 16 ára
íslenzkur texti
Sýnd kl. 5 og 9.
SLÁTURFÉLAG SUðURLANDS:
Sýndar eru helztu kjötvörur, ssm
fyrirtækið framleiðir. Kjötið geym
ist mjög vel í loftþéttum umbúð-
um, sem farið er að nota í vax-
andi mæli. Það veldur vandkvæð-
um, að svínaflesk verður æ feit-
ara og talið að um úrkynjun geti
verið að ræða eða röng vinnu
brögð við fóðrun svínanna.
LEIKARAR
Framhald af bls. 2.
ur Jóhannesson formaður félags-
ins, og leikhússtjórarnir Guðlaug-
ur Rósinkranz og Sveinn Einars-
son. Eftir ráðstefnuna verða full-
trúar gestir á 100 ára afmæli
Svenska Teatern í Helsinki 30.
september.
Leikararáð Norðurlanda byrjar
fund sinn hér að Hótel Sögu á
sunnudag, og verða til umræðu
þrjú aðalmál, sjónvarp á íslandi,
kvikmyndasamningar í Danmörk
og Svíþjóð, og leikaraverkfallið í
Noregi, sem hófst 2. september.
Sjónvarp á Norðurlöndum var til
umræðu á fundi ráðsins í Helsinki
í fyrra, og er alger samstaða með
leikhúsfélögum á öllum Norður-
löndum, sem kemur í veg fyrir
að sjónvarp í einu landi geti haft
um hönd misbeitingu, t.d. með því
að kvikmynda leiksýningar í öðru
landi til að hliðra sér hjá að
semja við leikara í eigin landi,
eins og við hefur viljað brenna.
Nú verður tekið fyrir þetta mál
hér vegna tilkomu íslenzka sjón-
varpsins. Verði ekki hægt að ljúka
fundarstörfum á sunnudag, verður
fundi haldið áfram á mánudag.
En á miðvikudagskvöld verður svo
haldið afmælishóf Félags íslenzkra
leikara að Hótel Sögu, og munu
m.a. íslenzkir óperusöngvarar
skemmta með söng í hófinu. Leik-
húsin bæði hafa leiksýningar í til-
efni afmælisins og fundarins, Þjóð
leikhúsið sýnir „Ó, þetta er indælt
stríð” á sunnudagskvöld og Leik-
félag Reykjavíkur sýnir, „Þjófa,
lík og falar konur á mánudags-
kvöld.
IÐNÞING
Framhald af bls. 16
Síðan voru tekin fyrir önnur mál
á málskrá Iðnþingsins og var m.
Steindór Steindórs-
son settur
rektor MA
ED-Akureyri.
Steindór Steindórsson, yfir-
kennari, hefur verið settur rektor
Menntaskólans á Akureyri næsta
ár í veikindaforföllum Þórarins
Björnssonar. Steindór er einn af
elztu kennurum við skólann, en
hann hefur kennt þar náttúrufræði
og sögu.
Þórarinn Björnsson liggur nú á
sjúkrahúsi, en er á batavegi. Að
lokinni sjúkrahúsvist mun hann
flytjast til Reykjavíkur ásamt fjöl-
skyldu sinni, þar sem hann mun
dveljast fyrst um sinn til hvíldar.
Slml 11384
„Fantomas"
Maðurinn með 100 andlitin.
Hörkuspennandi og mjög við-
burðarík ný frönsk kvikmynd
I litym og scinemascope.
Aðalhlutverk:
Jean Marais,
Myléne Demongeot
Bönnuð börnum innan 12 ára
Sýnd kl. 5, 7 og 9.
GAMLA BÍÓ |
-• : .. . ' n •■■■■■ ■ ....-
Síml 114 75
Fjallabúar
(Kissin' Cousins)
Ný amerisk söngva- og gaman
mynd*i litum og Panavision
Elvis Prestley
Sýnd kl. 5, 7 og 9.
a. rætt um iðnfræðslumál og hafði
Jón E. Ágstsson, málaram, fram-
sögu fyrir því máli. Ingvar Jó-
hannsson, framkvæmdastjóri hafði
framsögu um lánamál iðnaðarins,
Þórir Jómsson um innflutning og
tollamál og Grímur Bjamason um
tryggingarmál iðnaðarmanna. ÖU-
um þessium málum var vísað til
nefnda og verða álit nefndanna
rædd á morgun.
í fyrramálið munu iðnþingsfull-
trúar heimsækja Iðnsýninguna
1966, en síðan flytur Amé Haar,
skrifstofustjóri í norska iðnaðar-
málaráðuneytinu, erindi um iðnað-
armál í Noregi.
GILDIR STÁLBITAR
Framhald af bls. 16
67 metra löng stálbitabrú yf-
ir Tungufljót á nýja veginum
milli Geysis og Gullfoss. Þetta
er næststærsta brúin, sem smíð-
uð er á þessu sumri og má
þess geta, að í henni eru gild-
ustu stálbitar, sem notaðir hafa
verið í brúarsmíði hér á landi.
Eru þeir 1 metri á breidd.
Smíðinni á að vera lokið í
haust.
Auk framangreindra brúa
hafa verið smíðaðar nokkrar
smábrýr og ræsi.
Á VÍÐAVANGI
Framhald af bls. 3
Hitler — að endurtaka í sí-
bylju einföld ósannindi.
Haftaþulan, sem Morgunblað
ið flytur nú marga daga, er
eins og samin eftir blekkinga
kennslubókum Hitlers og Stal-
íns.
GUNNAR MYRDAL
Framhald af bls. 5.
að til varð fjöldi „hvítra fá-
tæklinga sem lifði vig mikla
vesöld, bæði efnahagslega og
menningarlega.
SUÐUR-FYLKIN urðu á
eftir norður-fylkjunum í efna-
hagsþróun og af þeim sökum
tók mkill hluti hinna hvítu
þegna, sem aðeins höfðu til
hnífs og skeiðar, að hegða sér
eins og þeim þætti smán að
fátæktinni. Undangengna ára-
tugi hafa íbúar suður-fylkj-
anna þó smátt og smátt gerzt
bandarískari en áður, eftir
því sem iðnaðar- og þéttbýlis-
þróun hefir miðað fram og
fyrir atbeina löggjafar og dóms
úrskurða í Washington.
Innflytjendur héldu áfram
að streyma til norður-fylkjanna
allt fram að fyrri heimsstyrjöld
einkum frá Evrópu. í raun og
veru fengu þeir allir að reyna
margt misjafnt • áður en þeir
voru búnir aö koma sér fyrir
LAUGAftAS
Slmar 38150 oð 32075
um einhvern mesta njósnara
aldarinnar Mata hari.
Sýnd kl. 5, 7 og 9.
Bönnuð börnum innan 16 ára
Danskur texti
Miðasala frá kl. 4.
HAFNARBÍÚ
Eiginkona læknisins
Hörkuspennandi litmynd
Endursýnd kl. 7 og 9
Sonur óbyggðarinnar
Bönnuð innan 16 ára
Sýnd kl. 5.
< iUÍJLUi-
Slm «>18«
Hetjur Indlands
Stórfengleg breiðtjaldsmynd i
litum eftir ítalska leikstiórann
M Camerine
Sýnd kl. 9
Sautján
kl. 7
í hinu nýja landi. Kirkjur og
stjórnmálaflokkar urðu þeim
helzt að liði, næst eigin seiglu
og framtakssemi. Þegar á leið
komu flestir innflytjendurnir
frá löndum í austanverðri og
sunnanverðri Evrópu, þar sem
menning var fjarskyldari því,
sem gerðist í Bandaríkjunum.
Þá tóku innflytjendurnir að
•setjast að í sérstökum hverfum
í stórborgunum, til þess að
kunna betur við sig en ella og
geta fremur veitt hvor öðrum
aðstoð. En þetta kom að veru-
legu leyti í veg fyrir að þeir
samlöguðust bandarísku þjóð-
lífi sem þegnar á jafnréttis-
grundvelli.
Til Bandarfkjanna fluttust
einnig þeldökkir menn frá
Mexíkó, Puerto, Rico og Asíu.
Þeir voru settir skör lægra en
aðrir í öllum fylkjum Banda-
ríkjanna, líkt og tíðkaðist með
negra í suður-fylkjunum. Gyð-
ingar frá ýmsum Evrópulönd-
um áttu einnig ýmsum fordóm-
um að mæta í Bandaríkjunum
Gyðingar eiga enn við meira
misrétti að búa þar en i nokkru
öðru vestrænu • landi síðan að
nazismann í Þýzkalandi leið.
Þessar staðreyndir. samhliða
skýlausri viðurkenningu jafn-
réttis í orði, valda tvískinnungi
í bandarísku lýðræði. Nauðsyn-
legt. er að minna á þessa hópa,
sem ekki hafa að öllu leyti
verið viðurkenndir sem jafn-
inejar. áður en að farið er að
ræða hina bandarísku undir-
stétt.
15
CfP
ÞJÓÐLEIKHÚSID
Ó þetta er indæit stríd
Sýning sunnudag kl. 20
Aðgöngumiðasalan opin frá kl.
13.15 til 20. Sími 1-1200
'lUIIIHIUilimllHiriWI:
Slm «1985
Islenzkur rexti
Banco í Bangkok
Víðfræg og snilldarvel gerð, ný
frönsk sakamálamynd t .lames
Bond-stll
Myndin sem er i litum hiaut
guiiverðlaun é kvikmyndahátíð
inni 1 Cannes.
Kerwin Mathews
Robert Hossein.
Sýnd kl. 5 og 9.
Bönnuð börnum.
Slmi 50249
Börn Grants
skipstjóra
Walt Disney kvikmynd i litum
Hayley Mills.
Sýnd kj. 7 og 9
T ónabíó
Slm> 31182
íslenzkur textí
Hjónaband á ítalskan
máta
(Marriage Italian Style)
Víðfræg og snilldarvel gerð, ný
ítölsk stórmynd 1 Utum, gerð
af snillingnuro Vittorio De Sica
Aðalhlutverk:
Sophla Loren
Marcello Mastroianni.
Sýnd kl. 5, 7 og 9.
Slmr 1154«
Grikkinn Zorba
(Zorba the Greek)
Grísk-amerísk stórmynd sem
vakið hefur heimsathygli og
hlotið þrenn heiðursverðlaun
Anthony Quinn
Alan Bates
Irena Papas
Lila Kedrova
íslenzkur texti.
Bönnuð börnum.
Sýnd kl. 5 og 9.
Slmi 18936
Kraftaverkið
(The reluctant saint)
Sérstæð ný amertsk úrvalskvtk
mynd. Aðalhlutverkið leikur
Óska rsverðlaunahaf inn
Maximilian ScheU
ásamt
Richard Montalban,
Akim Tamiroff.
Sýnd kL 5, 7 og 9.
é