Vísir - 15.08.1975, Blaðsíða 1
*»
vism
65. árg. — Föstudagur 15. ágúst 1975 — 183. tbl.
MUJIBUR FURSTI FÉLL í
BYLTINGU í BANGLADESH
- SJÁ BLS. 5.
r
:
KEKKONEN FEKK 8
FYRSTA DAGINN
Kekkonen heimsótti ýmsa staöi, þegar hann var á ferð I Vest-
mannaeyjum, og skrifaði þá að sjálfsögðu nafn sitt f gestabækur
staðanna. Annars slapp hann með naumindum frá Vestmannaeyj-
um, því aö þar skall á svarta þoka. Ljósm: Guðm.Sigf.
Flaug 30 m á þakið
— upp á hjólin og
svo aftur á þakið
óhætt er að segja# að
það hafi heldur betur orðið
bílvelta á Vesturlandsveg-
inum í morgun. Fólksbíll,
sem var á leið úr Reykja-
vík, fór i loftköstum út af
veginum.
Rétt við svokallað Þverholt fór
billinn að dansa á veginum . Hann
flaug 40 metra til að byrja með og
lenti á þakinu. Enn kastaðist
hann til og lenti á hjólunum og fór
svo enn aðra veltu i viðbót yfir á
þakið. Var hann þá kominn út af
aðalveginum.
Slysið átti sér stað á niunda
timanum i morgun, og var öku-
maður einn i bilnum. Hann var
fluttur á slysadeild, en ekkert var
hægt að segja um meiðsli hans i
morgun. Billinn er talinn ónýtur.
—EA.
Þannig leit billinn út eftir flugferöina. —Ljósm. Bragi.
Uhro Kekkonen, forseti
Finnlands, landaði átta
löxum í Víðidalsá i gær.
Tveir þeir stærstu voru 17
og 19 pund. Vegna veðurs
varð að aflýsa heimsókn
hans til Akureyrar. Það
var þoka vitt og breitt um
landið og fáir lendingar-
staðir opnir.
Forsetinn fór þvi landleiðina
noröur. Atta menn eru i fylgdar-
liði hans og gengu þeim veið-
arnar vel. Þeir fengu samtals 38
laxa fyrsta eftirmiðdaginn. Það
var mjög létt yfir mannskapn-
um, enda er þetta fyrsta friið,
sem forsetinn tekur i langan
tima og nýlokið er erfiðri örygg-
ismálaráðstefnu i Helsinki.
Kekkonen var einnig við veiö-
ar i Viðidalsá fyrir tveim árum
en varð að aflýsa fyrirhugaöri
heimsókn i fyrra vegna anna og
veikinda. Sjá frásögn á blaðsiðu
3.
—ÓT
FORELDRA VILJA NESTA
AÐEINS 5,9%
BÖRNIN SÍN í SKÓLANN
Könnun var gerð á þvi I febrú-
ar siöastliðnum, hver viðhorf
foreldra skólabarna i Reykjavik
væru gagnvart þvi, að skóla-
máltiðir yrðu teknar upp i borg-
inni. Sendir voru út 13.850
spurningalistar og endurheimt-
ust um 11 þúsund. Af svörunum
var gert slembiúrtak 2157
svara, og áherzla er lögö á, að
,,svo fjölmennt úrtak, gert með
réttum hætti, gefur sambæri-
lega niðurstöðu við það, sem
fengizt hefði, ef allur hópurinn
heföi verið tekinn,” segir i
skýrslu, sem Þorbjörn Brodda-
son og Gunnhildur Gunnarsdótt-
ir tóku saman könnunina.
Heimilisástæður þeirra, sem i
úrtakinulentu, voru þessar: Að-
eins annað foreldrið vinnur utan
heimilis: 50,0%. Annað foreldri
vinnur fulla vinnu utan heimilis,
hitt að hluta: 29,2%. Bæði vinna
fulla vinnu utan heimilis: 8,9%.
A heimilinu er aðeins einn full-
orðinn: 10,8%. Óglöggt: 1,1%.
Þeir valkostir, sem foreldrar
kjósa helzt, urðu þessir:
Óbreytt ástand: 38,7%. Nesti
með í skólann: 5,9%. Að börnin
fengju keypta mjólk i skólan-
um: 20 %. Að börnin fengju
keyptanmatí skólanum: 31,1%.
Óglögg voru svör 4,3%.
Sé litið á valkosti miðað við
heimilisástæður, kemur i ljós,
að flestir vildu óbreytt ástand i
þeim hópi, þar sem annað
foreldrið er heima, eða 46,6%.
Þar sem bæði foreldra vinna úti,
vildu aðeins 25,8% óbreytt
ástand. Hlutfall þeirra, sem
vildu, að börnin hefðu nesti með
sér, var einnig hæst þar sem
annað foreldra er heima, eða
6,2%, en lægst þar sem bæði
vinna úti, 2,1%, ef frá er tekinn
sá hópur, þar sem heimilisástð-
ur eru óvissar, þar vildi enginn,
að börnin hefðu nesti með sér.
Að börnin fengjú keypta mjólk i
skólanum vildu frá 14,6 upp I
21,5% i hinum ýmsu hópum, en
þar sem aðeins einn fulloröinn
er á heimili eða foreldrar vinna
úti bæði að hluta eða fullu, var
allt upp i 58,9% hljómgrunnur
fyrir þvi, að börnin fengju
keyptan mat i skólanum. Aðeins
21,4% þeirra foreldra, þar sem
aðeins annað vinnur úti, kusu
þann kost. Þegar kom að Veröi
matarins, vandaðist málið, en
allir hópar voru 100% sammála
um, að hann mætti kosta 80
krónur. Við 100 krónur voru
hlutföllin frá 81,3% til 93,1%, við
120 krónur frá 52,8 % til 69,8%,
við 150 krónur frá 25,3% til 41,4
%, við 175 krónur frá 15,1% til
34,5%. 1 öllum þessum tilvik-
um var hæst hlutfall hjá þeim
foreldrum, sem báöir vinna úti.
Ýmsar fleiri upplýsingar
komu fram við þessa könnun, en
heildarniðurstöður eru engar
svo sláandi, að unnt sé að tala
um eir.dregna afstöðu foreldra
til þessa máls. —SHH