Vísir - 15.08.1975, Blaðsíða 4
Vísir. Föstudagur 15. ágúst 1975
4
Húsbyggjendur —
EINANGRUNARPLAST
Getum afgreitt einangrunarplast á Stór-
Reykjavikursvæöiö meö stuttum fyrir-
vara.
Afhending á byggingarstaö.
HAGKVÆM VERÐ.
GREIÐSLUSKILMALAR
Borgarplast hf.
Borgarnesi
Simi 93-7370
Helgar- og kvöldsimi 93-7355
FERBAVORMR
f MIKLV ÚRVALI
Mjög hagstœð verð. — Lítið inn.
Sh 1 /1
BÍIDIJX Vssíí' Rekin ttf Hjálparsveit skáta Reykjo uik
SNORRABRAUT 58.SIMI 12045
Takið GAF filmuna
með í ferðalagið
Litmyndir tilbúnar
ó 3 dögum
Passar í allar
instamatic vélar
SENDUM I POSTKRÖFU
tXKJAr&ötu 6b
, SÍMI: 15 55 5
Smurbrauðstofan
Njólsgötu 49 — .Simi 15105
Gamlir nemendur Brúarlandsskóla:
Ætla að reisa
skólastjóra-
hjónunum
minnisvarða
Skólastjórahjónin á Brúarlandi: Kristin Magnúsdóttir og Lárus
Halldórsson.
Minningarsjóður Kristinar
Magnúsdóttur og Lárusar Hall-
dórssonar, skólastjóra, var
stofnaður við útför hans á s.l.
ári i þvi skyni að heiðra minn-
ingu þeirra mætu hjóna á ein-
hvern viðeigandi hátt.
Frú Kristin lézt 8. nóv. 1970,
en Lárus skólastjóri þann 27.
marz 1974 og fór útför hans fram
frá Lágafellskirkju, en jarðsett
að Mosfelli.
Þar voru samankomnir
frændur og vinir þeirra hjón-
anna, en einnig mikill fjöldi
nemenda Lárusar heitins af
þrem kynslóðum.
Lárus hóf kennslu i Mosfells-
hreppi árið 1922 og kenndi sam-
fleytt allt til ársins 1972, en af
þeim tima var hann skólastjóri
þar til skólunum var skipt
haustið 1966, en var stunda-
kennari eftir það, meðan heils-
an leyfði.
Þessi ferill Lárusar i 50 ár við
kennslustörf i sama sveitar-
félagi er vafalaust mjög fátiður
og nemendur hans skipta örugg-
lega hundruðum, en um fjölda
þeirra eru ekki fyrir hendi ná-
kvæmar tölur.
Heimili þeirra hjóna stóð
lengst i þjóðbraut að Brúarlandi
og á timabili var þar heimavist
á heimilinu. Nutu nemendur
hans þar i rikum mæli góðs at-
lætis þeirra hjóna.
Sjóðurinn hefur nú eflzt það
mikið að ákveðið er að reisa
þeim hjónum minnisvarða á
skólalóðinni að Varmá, en hug-
mynd að varðanum hefur
sonur þeirra Ragnar, gert mjög
smekklega.
Þá hefur Reyni Vilhjálmssyni
arkitekt verið falið að velja
minnismerkinu stað, en hann
hefur séð um skipulag skóla-
svæðisins.
Varðinn er 2ja metra stuðla-
bergssúla með mörgum minni
stuðlum umhverfis, og hefur
efni i þetta verið pantað og
væntanlega til afgreiðslu á
þessu ári.
Vitað er, að enn heíur ekki
náðst til allra þeirra, sem hug
hafa á þvi að vera með, og er
þessari frétt þess vegna komið á
framfæri.
Störf þeirra hjóna i Mosfells-
sveit voru ekki eingöngu bundin
við skólann og heimavistina,
heldur einnig og ekki siður við
félagsmálin, og var einkum
Lárus þar viða viðriðinn og si-
starfandi að menningar- og
félagsmálum sveitar sinnar alla
tið.
Framlög i sjóðinn hafa borizt
hvaðanæva af landinu og úr öðr-
um heimsálfum, en nú er ráð-
gert að ljúka þessari söfnun og
stefnt að þvi, að ganga frá und-
irstöðum minnisvarðans i haust
og reisa hann á komandi vori.
Eftirtaldir aðilar munu taka
við framlögum i sjóðinn: Hjalti
Þórðarson, Æsustöðum, Jón M.
Guðmundsson, Reykjum, Guð-
mundur Magnússon, Leirvogs-
tungu, Haukur Nielsson, Helga-
felli, Jön V. Bjarnason, Reykj-
um, Salome Þorkelsdóttir,
Reykjahlið, Tómas Sturlaugs-
son, Markholti 4, og skrifstofa
Mosfellshrepps, Hlégarði.
Nýtt gallerý opnað
Nýtt gallery, Gallery OUTPUT, verður opnað í dag á
Laugarnesvegi 45. Gallery Output hyggst beita sér fyrir
sýningum á nútímalist, bæði innlendri og erlendri, á sem
breiðustum grundvelli. Fyrirhugað er, að það verði opið í
allan vetur með stanzlausum sýningum, sem hver um sig
stendur hálfan mánuð. Fyrsta sýningin er á verkum Ól-
afs Lárussonar, sem túlkar verk sín með Ijósmyndum.
Sýninguna kallar hann ,,Línur". — SHH
Breiðholts
og
Hvassaleitis
eignast
höggmyndir
„Þær voru keyptar I fyrra,
þessar höggmyndir, en þá hafði
ekki verið afráðið, hvar ætti að
koma þeim fyrir”, sagði Ilafliði
Jónsson, garðyrkjustjóri, um
listaverk i eigu borgarinnar.
Umrædd listaverk eru eftir sinn
hvorn höfundinn. Teningar eftir
Hallstein Sigurðsson verður sett
upp á Stekkjabakka. Höggmynd
þessi, sem er um 2 metrar á hæö,
var á sýningunni frægu I Austur-
stræti i fyrra.
Landnám heitir verkið eftir
Björgvin Haraldsson. Það er 3-4
metrar á hæö og hefur aldrei áður
verið til sýnis. Ætiunin er að stað-
setja það við Hvassaieiti.
Ilafliði sagðist vonast til, að
liægt yröi að koma verkunum
fyrir áður en sumri lyki. Þangað
til yrðu þau i sinni vörzlu og engar
myndir af þeim teknar.
-BA.