Vísir - 15.08.1975, Síða 13

Vísir - 15.08.1975, Síða 13
Vísir. Föstudagur 15. ágúst 1975 BELLA Ég ætla að synda út núna, ef þú vildir æfa þig i björgun. ©PIB Jú, sjáðu nú til, herra dómari, ég kom keyrandi niður götuna með eiginmann minn við stýrið. Utvarp kl. 20,40: Vakningin Erindi, séra Kolbeins Þor- leifssonar, sem hann kallar „Vakningin á Egilsey” er hluti af fjögurra ára rannsóknum um séra Egil Þórhallason sem var fyrsti prófasturinn i Grænlandi, búsettur i Godtháb, en séra Kol- beinn hefur unnið að þessum rannsóknum i Kaupmannahöfn. 1 viðtali við VIsi sagði Kol- beinn, að erindið sem hann flyt- ur i kvöld, fjallaði um þá vakn- ingu, sem átti sér stað i Godt- hábsfirði árið 1768 og næstu ár á eftir. A þessum tima starfaði einmitt fyrsti islenzki kristni- boðinn á Grænlandi, sem var Egill Þórhallason. Egill dvald- ist i Grænlandi á árunum 1765-75. Þessi vakning hófst á þann hátt, að seiðmaður á einni eynni I finðinum gaf til kynna að hann vildi gerast kristinn. Sendi hann menn til Godtháb, til þýzks safnaðar, en safnaðarmeð- limirnir voru kallaðir hernhútar á Egilsey og voru áhangendur Jóhanns Húss, sem urðu að flýja Þýzka- land vegna trúarofsókna. Seiðmaðurinn tók trú þeirra. En það þótti regin hneyksli á þessum tima, að seiðmaðurinn skyldi ekki hafa leitað til hins konunglega trúboðs. Egill Þórhallason, sem var konunglegur trúboði gerði ráð- stafanir til þess að slikt gæti ekki hent sig aftur. Þessar ráð- stafanir urðu Grænlandi til mikils góðs, þvi hann sendi bæði danska og grænlenzka kennara út I veiðistöðvarnar, en þessir menn voru kallaðir djáknar. Frá þvi að þetta gerðist eða árið 1769 þá hafa slíkir kennarar verið burðarásinn i danska kennslukerfinu þarna. Séra Kolbeinn Þorleifssen hefur þegar flutt eitt erindi um þetta áður I útvarpinu, þar sem Kolbeinn Þorleifsson. hann gerði grein fyrir hvernig vakningin varð til. 1 kvöld segir hann frá þvi hvernig djáknatrú- boðið byrjaði. í þriðja erindi sinu greinir hann frá þvi hvernig séra Egill efldi þessa vakningu. — HE 13 ~4 ☆★☆★☆★☆★☆★☆★☆★☆★☆★☆★☆★☆★☆★☆★☆★☆★☆★☆★*★☆★☆★{: Spáin gildir fyrir laugardaginn 16. ágúst. 4 * 4 ★ 4 4 4 4 4 4 4 4 4 4 4 4 4 4 4 4 4 4 4 ~i- 4 ★ 4 4 4 4 4 4 4 4 4 4 4 4 4 4 4 4 4 £3 % * .*....C m Hrúturinn, 21. marz — 20. april. Þetta litur út fyrir að verða góð helgi hjá þér. Finpússaðu verk sem þú hefur lokið við. Ferðalag eykur við- sýni þitt. Nautið,21. april — 21. mai. Eitthvað af hamingju annarra gæti fallið þér i skaut, en treystu nú sámt ekki á það. Nýr samningur færir þér lukku. Tviburarnir, 22. mai — 21. júni. Hjónaband og félagslif er undir mjög góðum áhrifum i dag. Blandaðu geði við eins margt fólk og hægt er. Taktu minna tillit til sjálfs þin, Krabbinn, 22. júni — 23. júli. Þú skalt eyða morgninum i að gera við ýmislegt er aflaga fer á heimili þinu. Þeir sem óska eftir bættri stöðu, fá hana að öllum likindum. Ljónið, 24. júli — 23. ágúst. Ef þú stendur ekki I stórræðum þá skaltu endilega verða þér úti um slik. Þú getur hagrætt málum þannig að innstu óskum þinum verði fullnægt. Meyjan, 24. ágúst — 23. sept. Þú ættir ekki að fara langt frá heimili þinu um þessa helgi. Það er betra að aðrir komi til þin frekar en þú til þeirra. Vogin, 24. sept,—23. okt. Þetta er góður dagur til þátttökui allskonar sporti og útilifi. Hringdu i vin þinn eða nýfundinn kunningja. Ástamálin blómstra. Drekinn,24. okt — 22. nóv. Þú ættir að slá öllum stórum ákvörðunum á frest ef mögulegt er. Full- nægðu óskum fjölskyldu þinnar i dag, reyndu ekki að komast undan skyldum. Bogmaðurinn, 23. nóv. — 21. des. Þú þarft að breyta um umhverfi og reyndu að komast eitt- hvað i burtu um helgina. Hringdu snemma i fólk sem þú þarft að hafa samband við. Steingeitin,22. des. —20. jan. Farðu i ferðalag á einhverja afskekkta staði og reyndu að finna friö. Gættu hófs i mat og drykk, og farðu varlega I umferðinni. Vatnsberinn,21. jan. — 19. feb. Það er allt útlit fyrir að þú hittir skemmtilegt og áhrifamikið fólk á vegi þinum i dag. Bættu við vinahóp þinn. Fiskarnir, 20. feb. — 20. marz. Þetta er góður dagur til að afla sér álits og vinsælda. Þú færð tækifæri til að láta ljós þitt skina. Farðu i heim- sókn til vina þinna i kvöld. <t -K -Ct -k -» -k ■ýt -K -K -K <t -K tt -K -K ■H -K ■Ct -K ■íx -K •tt -K K <t -K -» -K <t -K <t -K -Ct -K <t -K -Ct K -K -Ct -K -Ct -K -Ct -K <t -S -K -Ct -K -Ct -K -Ct -K -Cf -K ■Ct -K ■Ct -K -Ct -K * -K •Ct -K -Ct -K -Ct -K -Ct -K -Ct -K -» -K -Ct -K -Ct ■K n □AG 1 D KVÖLD | Q □AG | Li KVÖLD | Q □AG | Útvarp kl. 19,40 - Frá sjónarhóli neytendans: Fólk er að rífast út af beinu sköttunum Hvi ið seg ir 1 )að þj í um óbeinu s IIU • Að þessu sinni ætlar Árni Bergur Eiriksson, að fjalla tim hlutdeild rikisins i verðmyndun innfluttra vara og þjón- ustu i þættinum Frá sjónarhóli neytandans. Sagði Arni Bergur i viðtali við Visi, að menn áttuðu sig ekki á hve mikið menn borguðu til rikisins i formi óbeinna skatta, sem eru aðflutningsgjöld, vöru- gjöld og leyfisgjöld og sölu- skattur af innfluttri vöru og þjónustu. Fólk héldi að mestur hluti söluverðsins færi i vasa kaupmannanna, innflytjend- anna eða framleiðendanna. Á siðast liðnu ári voru óbeinir skattar um 38 milljarðar en beinir skattar rúmir 8 milljarð- ar, svo eru menn alltaf að kvarta undan beinu sköttunum, sagöi Árni Bergur að lokum. 1 þættinum verður rætt við ögmund GuðmundSson tollfull- trúa, sem sér um innfluttar vör- ur til landsins. — HE SJÚNVARP • Föstudagur 15. ágúst 20.00 Fréttir og veður 20.30 Dagskrá og auglýsingar 20.35 Þorskveiðar við Lófót Fræðslumynd um fiskveið- ar við Lófót i Norður-Noregi og lif sjómanna þar. Þýð- andi og þulur Jón O. Ed- wáld. (Nordvision — Norska sjónvarpið) 21.00 Hér gala gaukar.A fyrstu árum Sjónvarpsins voru fluttir nokkrir skemmti- þættir eftir Ólaf Gauk undir þessu nafni. Sá þeirra, sem hér er endursýndur er i söngleiksformi og nefnist Skrallið i Skötuvik. Persón- ur og leikendur: Lina kokk- ur: Svanhildur Jakobsdótt- ir. Kapteinninn: Ólafur Gaukur. Steini stýrimaður: Rúnar Gunnarsson. Gussi grallari: Karl Möller. Halli háseti: Andrés Ingólfsson. Lubbi langi: Páll Valgeirs- son. Áður á dagskrá á annan dag páska, 1968. 21.30 Skálkarnir Breskur sakamálamyndaflokkur. Foringinn Þýðandi Krist- mann Eiðsson. 22.25 Dagskrárlok ÚTVARP # Föstudagur 15. ágúst 13.00 Við vinnuna: Tónleikar. 14.30 Miðdegissagan: „1 Rauðárdalnum’’ eftir Jóhann Magnús Bjarnason örn Eiðsson les (13). 15.00 Miðdegistónleikar Eber- hard Wachter og fleiri syngja lög úr óperum eftir Rossini og Mascagni. Sinfóniuhljómsveit ung- verska útvarpsins leikur „Kossuth”, sinfóniskt ljóð eftir Béla Bartók: György Lehel stjórnar. 15.45 Lesin dagskrá næstu viku 16.00 Fréttir. Tilkynningar. (16.15 Veðurfregnir). 16.25 Popphorn 17.10 Tónleikar 17.30 „Lifsmyndir frá liðnum tima” eftir Þórunni Elfu Magnúsdóttur Höfundur les (2). 18.00 „Mig hendir aldrei neitt” stuttur umferðar- þáttur i umsjá Kára Jónas- sonar. Tónleikar. Tilkynn- ingar. 18.45 Veðurfregnir Dagskrá kvöldsins. 19.00 Fréttir. Fréttaauki. Tilkynningar. 19.35 Daglegt mál Helgi J. Halldórsson flytur þáttinn. 19.40 Frá sjónarhóli neyt- enda. 20.00 Tónleikar frá útvarpinu I Frankfurt „Hinir himnesku bústaðir”, kaniata fyrir einsöngvara, kór, hljómsveit og orgel eft- ir Charles Ives. Einsöngv- arar og Westfalen-kórinn syngja með Sinfóniuhljóm- sveitinni I Frankfurt. Peter Schwarg leikur á orgel: Klaus Ziegler stjórnar. 20.40 Vakningin á Egilsey. Séra Kolbeinn Þorleifsson flytur annað erindi sitt. 21.15 Pianósónata nr. 28. i A- dúr op. 101 eftir Beethoven Wilhelm Backhaus leikur. 21.30 útvarpssagan: „Og hann sagði ekki eitt einasta orð” eftir Heinrich Böll Böðvar Guðmundsson þýddi og les ásamt Kristinu Ólafs- dóttur (2). 22.00 Fréttir 22.15 Veöurfregnir. tþróttir Uj^sjón: Jón Asgeirsson. 22.40 Afangar Tónlistarþáttur i umsjá Ásmundar Jónsson- ar og Guðna Rúnars Agnarssonar. 23.30 Fréttir i stuttu máli. Dagskrárlok.

x

Vísir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.