Vísir - 05.09.1975, Side 1

Vísir - 05.09.1975, Side 1
65. árg. — Föstudagur 5. september 1975 — 201. tbl. Grófleg móðgun Rússa — œpti Sodat í sjónvarpi í gœr — Sjó bls. 4 og 5 3 Reech- craft og 2 þyrlur mœtti fó fyrir 1 Fokker — Og spara samt nokkur hundruð milljónir — Sjó bls. 3 Hvað lœra sex óra börn i skóla? - sjó INN-síðu bls. 7 Ríkiskassinn borgar tjón togara vegna þorskastríðs Þjóðviljinn birtir vestur-þýzk leyniskjöl Vestur-þýzkir togar- ar, sem lenda i klippum ilenzkra varðskipa, eða lenda i árekstrum við þau, fá tjónið greitt úr vesturþýzka rikiskass- annum. Þetta kemur fram i Þjóðviljan- um imorgun. Blaðið birtir útdrátt úr leyndarskjöldum, sem það kveðst hafa afrit af. Skjöl þessi eru sögð úr búi Samands þýzkra togaraeigenda i Bremerhaven. 1 skjölunum kemur m.a. fram, segir Þjóðviljinn, að útgerðar- menn, togaraskipstjórar og skipstjórinn á eftirlitsskipinu Meerkatze hafi allir verið sam- mála um að beina ætti vestur- þýzka sjóhernum gegn islenzku varðskipunum. ,,Við -segjum ekki frá þvi, hvemig við höfum komizt yfir þessi leyndarskjöl, en það er full ástæða til að ætla að þau séu ósvikin. Skjölin komu til okkar i einu lagi og þau komu ekki frá Is lendingi,” sagði Einar Karl Haraldsson, fréttastjóri Þjóðviljans i samtali við Visi i morgun. „Þessi skjöl eru góð heimild um það, hvað Þjóðverjar lita á þetta mál sem mikið strið. Við eigum ekki i höggi við einstaka útgerðarfélag eða skipstj.heldur Vestur-Þjóðverja,” sagði Einar. 1 skjölunum kemur fram, að rikisstjórnin ábyrgist greiðslur á allt að 1.250 milljón króna tjóni árlega, sem vestur-þýzku togararnir kunni að verða fyrir vegna aðgerða Islendinga við að verja lögsögu sina. Rikisstjórnin þýzka samþykkti þetta i mai 1973. -OH. Veiðiþjófnaður vestur-þýskra togara hér við land ríkisstyrktur Sambandsríkiö í ábyrgð fyrir öllutjóni af landhelgisbrotum Bœndur reiðir — vegna Vísisskrifa um landbúnað, segir formaður stjórnar Stéttarsambands bœnda „Ef bændur hafa einhvern timann verið reiðir, þá er það núna,” sagði Gunnar G uð b j a r t s s on , formaður stjórnar Stéttarsambands bænda, i viðtali við Visi, að- spurður um hug bænda vegna leiðaraskrifa blaðsins undan- farna mánuði um landbúnaðar- mál. Flest þau skrif hefur fyrr- verandi ritstjóri blaðsins, Jónas Kristjánsson annazt. ,,Við teljum alltaf hamrað á röngum upplýsingum varðandi landbúnaðarmálin. Við höfum margoft reynt að leiðrétta ýmislegt af þvi, sem haldið hef- ur verið fram. Sumum þeim leiðréttingum hefur verið hafnað og öðrum tekið með hangandi hendi. 1 nóvember og desember i fyrra sendum við leiöréttingar til Visis. Eitthvað var birt, en ekki allt,” sagði Gunnar einnig/’ Visir á ekki aðild að rikis- stjórninni né er vitað til þess, að blaðið hafi bein áhrif á stjórnar- samstarfið, þótt ráðherrar lesi væntanlega blaðiðeins og aðrir. En Gunnar Guðbjartsson sagði: „Ef skrifin halda áfram i þessum dúr, er hætta á slitum stjórnarsamstarfs.” Visir spurði Gunnar, hvort honum fyndizt ekki full mikill æsingur hafa verið i mönnum við þessar umræður og skrif um landbúnaðarmál. „Jú, ég er sammála þvi. En bændur eru alltaf tilbúnir til að ræða þessi mál i rólegheitum”, sagöi hann. -ÓH. Björn ólafsson, framkvæmda- gesturinn. Raunar er það bróöir stjóri kaupstefnunnar I Laugar- hennar Frosti, sem heldur á þvi, dalnum, afhenti Hólmfriöi Mel- en synir hennar, Hrólfur og dal Roventahraðgrill frá Vöru- Loftur Sigurössynir, komu lika markaðnum. Hún fékk þaö f til- til aö sjá sýninguna. efni þess, aö hún var 50 þús. milljón? Milljón eða ekki — Umrœður ó flokksstjórnarfundi Sjálfstœðisflokksins Alþýðublaðið segir i frétt I dag, aö miklar deilur hafi oröið á fundi borgarfulltrúa Sjálfstæöisflokks- ins eftir að Davíö Oddsson sagöi, aö sér væri kunnugt um, að byggingafélagið Armannsfell heföi greitt eina milljón króna i húsbyggingarsjóö Sjálfstæöis- flokksins. t staðinn hafi Armannsfell svo fengið hina umdeildu byggingalóö á horninu á Bústaðavegi og Grensásvegi. Að sögn Alþýðu- blaðsins sakaði Davið Albert Guðmundsson um að hafa haft forgang f þessu máli. Visir hafði samband við Davið Oddsson. Davið neitaði þvi ekki, að umræður hefðu farið fram um þetta mál en kvaðst ekki hafa hugmynd um, hvort bygginga- félagið hafi borgað milljón i byggingasjóð Sjálfstæðisflokks- ins. Hann vildi aðeins segja eftir- farandi: „Fréttin i Alþýðublaðinu er i veigamiklum atriðum alröng og mér gerðar upp fullyrðingar, sem ég hef ekki viðhaft á flokksfundi eða annars staðar. En vegna þagnarskyldu minnar um það, sem gerist á slikum fundum sem samkvæmt samþykktum, hefð og reyndar lögum landsins binda trúnað við það, sem þar er rætt, get ég ekkert frekar sagt um mál- ið á þessu stigi. En þegar dagblað setur manni i munn slikar yfir- lýsingar, hlýtur það að vera skyldugt að greina frá heimildar- manni sínum, vilji það að menn taki mark á þvi.” — ÓT TÆKNISKÓLINN ENN LOKAÐUR — Við erum enn i verkfalli, og það er ekkert farið aö tala aftur við okkur, sagði Ólafur J. Pétursson kennari við Tækni- skólann, i morgun. Þetta mál verður ekki leyst með neinni til- skipun, en við erum fúsir til samningaviðræðna. — Það er nokkuð rétt sem Höskuldur Jónsson, ráðuneytis- stjóri fjármálaráðuneytisins segir i einu blaðanna i morgun. Eitt helzta deiluatriðið er launa- flokkur stundakennara viðskól- ann. Og enn biða nemendurnir 250 eftir þvi að málið leysist svo að skólaár þeirra geti hafizt. — ÓT.

x

Vísir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.