Vísir - 05.09.1975, Blaðsíða 2
Vísir. Föstudagur 5. september 1975.
VÍSIRSm:
Hvar i heiminum vild-
irðu helzt búa ef ekki á
íslandi?
Elin Sigurðardóttir, 7 ára: — Veit
ekki. Ég hef aldrei komiö til út-
landa. Jú, ég vildi eiga heima I
London af þvi aö pabbi og
mamma hafa farið þangaö.
Siguröur Bjarni Gunnarsson,
nemi: — Astraliu. Þar eru allt
önnur dýr en hér á Islandi og ég
hef mjög gaman af dýrum.
Birgir Henningsson, nemi: —
Noregi. Ég er þar yfirleitt á
sumrin hjá fólki sem ég þekki.
Mér finnst mjög fallegt þar enda
mikið af trjám.
Sigmundur Sigmundsson, nemi:
— A Spáni. Af hverju? Vegna þess
að þar er svo hlýtt. Ég fór þangað
I fyrrasumar og var þar i hálfan
mánuð með mömmu og pabba.
Stefán Þorvaldsson, nemi: — t
Sviþjóð. Ég held þaö sé svo fallegt
þar. Ég hef aldrei komið þangað
en séð myndir þaðan og lesið
margt um Sviþjóð. Jú, auðvitað
langar mig mikið til þess að fara
þangað.
tvar Harðarson.nemi: Ja, nú veit
ég ekki. A einhverju Norðurland-
anna þó. Já, annaö hvort i Sviþjóð
eða Noregi.
LESENDUR HAFA ORÐIÐ
Heito vatnið fyrir
okkur sjólf fyrst
— síðan fyrir Svía
Lesandi hringdi:
„Allt er gott um þá
frétt að segja að heita
vatnið okkar sé nú orðið
svo mikils virði í oliu-
skortinum að nú eigi
bara að fara að f lytja það
út. Enginn hefur svo sem
á móti dýrmætum gjald-
eyri.
í framhaldi af þessu
dettur mér samt í hug
gjaldeyrissparnaður.
Hvernig væri að lands-
menn nytu heita vatnsins
sjálfir? Fyrst tæknilega
er mögulegt að flytja það
til Svíþjóðar, er þá ekki
þjóðráð að flytja það
vestur, norður og aust-
ur?"
Fékk 325 krónur
endurgreiddar
Simnotandi i Ilafnarfirði
hringdi:
„Ég vakti máls á þvi i les-
endadálknum fyrir nokkru að ég
hefði óréttilega borgað kr. 325
kr. fyrir að fá opnaðan sima
minn.
Nú vil ég upplýsa það að eftir
fjölmörg samtöl við ráðamenn
þá fékk ég endurgreiddar þess-
ar krónur. Vona ég að svo sé um
alla þá sem orðið hafa fyrir
þessum vandræðum sem virð-
ast stafa af þvi hversu giró-
greiðslurnar til Pósts og sima
eru lengi að komast i þeirra
hendur. Allt er gott þá endirinn
er góður. Það má kennski segja
að ég hafi eytt miklu meira af
dýrmætum tima og fyrirhöfn
helduren þessar 325 krónur eru.
Aðalatriðið er það að réttlætið
hefur náð fram að ganga.”
Sjónvarpið einhœft
Knattspyrna góð
— en það eru til fleiri íþróttir
Iþróttaunnandi á Akur-
eyri hringdi:
,,Við vorum tveir félag-
ar að horfa á íþróttirnar í
sjónvarpinu á laugar-
daginn var og svo aftur á
mánudaginn. Það er ekki
af því að við höfum neitt
á móti knattspyrnu en við
hefðum samt haldið að
það væru til aðrar
íþróttagreinar.
Sjónvarpið virðist ekki
vera þessu sammála því
að ekkert nema knatt-
spyrna var sýnd þessi tvö
kvöld. Væri ekki ráð að
hafa meiri tilbreytingu í
þessu svo að fleiri sjón-
varpsáhorfendur gætu
vel við unað?"
„Krossgótu-unnanda" svarað:
,M AUTOCUJB
2529 AUTOCt tl
OU OBANO-OUCHE
OE luxembouro
7,t . „ a. u k’“"“
i Toumn** * *'
,3 ,.ol. «• U»»*» 10 2'
HQ/SV
u'T«-vovn,
•CtUÍT^,
1 *UTocLua
'L\ J) u
AUfiUs t
ICLL..
Ariauli
*< -Yi:.f
•ufOMOuiLi;
1íSL,V.>)it |
■<TlOS
tor d,‘toU tho
, I-nov th«t
Licenc,
ior> 'Intou t :e -
loJ.n00 'ith ‘I-
8th Aucust, we
ln Spuin are
f tssueU in _
1 th A-.rii 1927
Convention da
Óþarfi
að ðrvœnta
Alþjóðlegt öku-
skírteini gildir
„Vegna fyrirspurnar
„Krossgátuunnanda” i „Les-
endur hafa orðið” f dagbi. Vísi 2.
sept. sl. vildum við koma eftir-
farandi á framfæri:
„Krossgátuunnandi” undrar
sig á þvi að ekki skuli þurfa að
leysa eina einustu krossgátu til
þess að verða þátttakandi i
samkeppninni. Þetta er gert i
þeim tilgangi að þeir sem óvan-
ir eru að leysa krossgátur kaupi
blaðið vegna verðlaunanna og
freistist þá ef til vill til þess að
ráða krossgáturnar og komist
þannig á bragðið og verði þá á
eftir krossgátuunnendur eins og
fyrirspyrjandi. Þetta er algengt
i nágrannalöndum okkar.
Rétt er að skilafrestur átti
upphaflega að vera til 1. júni, en
vegna tafa á 4. tbl. þótti rétt að
fresta honum til 1. júli 5. tbl. átti
siðan að koma út i ágústlok og
er reyndar á stokkunum en það
mun þvi miður dragast i nokkra
daga enn að það komi út vegna
annrikis i prentsmiðju og
sumarleyfa.
Siðan segir „Krossgátuunn-
andi” að hann hafi þurft að
kaupa tvö hefti nr. 3 og 4, til þess
að fá að taka þátt i „verðlauna-
keppni aldarinnar”. Við þökk-
um, en er það nú ekki full djúpt i
árinni tekið? Það er rétt að
verðlaunin eru ekki af verri
endanum eins og hann segir.
Það er alveg óþarfi fyrir
„Krossgátuunnanda” að ör-
vænta um að vinningaskrá
hinna heppnu verði ekki birt. Að
þvi verður staðið með heiðar-
legum hætti og vinningaskráin
birt i næsta tbl. og vonandi verð-
ur þá fyrirspyrjandi og allir hin-
ir fjölmörgu unnendur Verð-
launakrossgáturitsins glaðir en
þó sérstaklega þeir sem hafa
hlotið vinningana.
Með beztu kveðju og árnaðar-
óskum til „Krossgátuunnanda,,,
Ctgefendur.”
Sveinn Oddgeirsson frkvstj.
F.Í.B. svarar:
„Vegna greinar i Visi i „Les-
endur hafa orðið” og fullyrt er
að alþjóðlegt ökuskirteini, sem
F.f.B. selur sé ekki tekið gilt,
heldur aðeins það islenzka, vil
ég taka fram eftirfarandi:
Segir i greininni að það eina
sem bilaleigur og landamæra-
verðir bæði i Evrópu og
Ameriku taki gilt sé það is-
lenzka.
Það er rik ástæða til að minna
á þaö, að Visir birtir ekki hér i
lesendadálkunum bréf, sem
berast án nafns og hcimilis-
fangs bréfritara. Það er ekki
nauðsynlegt að birta nafn bréf-
ritara á prenti í öllum tilvikum,
en það fer ekkert bréf á prent án
F.I.B. hefur skrifað Norður-
löndunum, Luxembourg og
Spáni og alls staðar fengið stað-
festaðalþjóðlegtökuskirteini sé
tekið gilt. Hins vegar segjum
við okkar viðskiptavinum að
taka islenzka ökuskirteinið með
lika.
Raunar eru tvær samþykktir
um alþjóðlegt ökuskirteini i
gangi. Við erum aðeins með
aðra þeirra frá 1926. Hin er
siðan 1949. Báðar eru fullgild-
ar.”
þess að umsjónarmanni þess-
arar siðu sé kunnugt um það,
hver bréfritari sé. Nafnlausu
bréfin fara beina leið i rusla-
körfuna. Slík hafa orðið endalok
annars margra góðra bréfa af
þessum sökum.
Nafnlaus í fötuna