Vísir - 05.09.1975, Blaðsíða 6

Vísir - 05.09.1975, Blaðsíða 6
6 Vlsir. Föstudagur 5. september 1975. vísm tJtgefandi: Reykjaprent hf. Hitstjóri og ábm: Þorsteinn Pálsson Ritstjóri frétta: Arni Gunnarsson Fréttastjóri erl. frétta: Guömundur Pétursson Auglýsingastjóri: Skúli G. Jóhannesson ^ Auglýsingar: Hverfisgötu 44. Slmar 11660 86611 Afgreiðsla: Hverfisgötu 44. Slmi 86611 Ritstjórn: Slöumúla 14. Slmi 86611. 7 linur Askriftargjald 800 kr. á mánuöi innanlands. t lausasölu 40 kr. eintakið. Biaöaprent hf. Verkmenntun og rannsóknir Nú er kominn sá árstimi er skólar landsins eru al- mennt að taka til starfa. Menntun hefur smám sam- an orðið æ rikari þáttur i þjóðfélaginu. Hér höfum við æði oft deilt um markmið og leiðir i skólamál- um. En framhjá þeirri staðreynd verður þó ekki lit- ið að við höfum á undanförnum árum byggt upp all gott skólakerfi. Sakir smæðar þjóðarinnar hljótum við að eiga langt i land með að koma upp skólum er standast samanburð við það sem bezt er meðal annarra þjóða. Við verðum i öllum aðalatriðum að sækja hugmyndir um nýjungar og breytta kennsluhætti til annarra þjóða sem hafa efni og aðstöðu til að stunda umfangsmiklar rannsóknir og tilraunir á þessu sviði. Enginn getur borið brigður á að á siðustu árum hefur átt sér stað mikil skólauppbygging. Til skamms tima voru svo til allar deildir Háskólans innan veggja gömlu aðalbyggingar skólans. Nú á siðustu árum hafa risið upp umhverfis Háskólann nýjar byggingar sem hafa gjörbreytt kennslu- og rannsóknaraðstöðu. Mikið verk er þó óunnið og ber þar hæst byggingar fyrir læknakennslu. öllum má ljóst vera að það veltur á miklu að leggja rækt við uppbyggingu skólakerfisins og rannsóknarstarfseminnar i landinu. Við verðum einnig að vera vakandi fyrir þvi að taka upp kennslu og rannsóknir i nýjum greinum er snerta atvinnulif- ið. 1 þvi sambandi má nefna þær hugmyndir sem uppi hafa verið um matvælafræðikennslu. Rétt er að leggja áherzlu á að hraða undirbúningi þess verkefnis. Hér bíða viða stórkostlegir möguleikar sem litt hafa verið kannaðir fram til þessa. 1 Visi var t.a.m. fyrir skömmu greint frá athugunum ungs visinda- manns á möguleikum þess að hagnýta fiskslóg og sláturhúsaúrgang til lyfjaframleiðslu. Ýmislegt bendir til þess að grundvöllur sé fyrir umfangsmik- illi starfsemi af þessu tagi hér á landi. Að slikum málum þarf að hyggja gaumgæfilega og veita þeim visindamönnum, er hlut eiga að máli, þá aðstöðu sem kostur er. Fram til þessa hafa menn einblint á svokallað æðra nám en hirt minna um uppbyggingu hvers kyns verknáms. Á siðustu árum hafa augu manna þó opnazt æ meir fyrir mikilvægi og gildi verknáms fyrir þjóðfélagið. Verkmenntun hlýtur að vera einn af hornsteinum i menningu hverrar þjóðar. 1 þessum efnum er brýnt að breyta viðhorfi manna til menntunar almennt. Segja má að nokkur þáttaskil hafi orðið að þessu leyti þegar Vilhjálmur Hjálmarsson tók við embætti menntamálaráð- herra. Hann lýsti þegar yfir þvi að lögð yrði meiri á- herzla á verkmenntun en verið hefur fram til þessa. Hér var um að ræða þýðingarmikla stefnumótun og nú skiptir mestu máli að henni verði fylgt eftir. Fræðslumálin eru ein af undirstöðum framfara og hagsældar i nútimaþjóðfélagi. Með þeirri kerfis- breytingu, sem ákveðin hefur verið i skólamálum, hefur verið lagður grundvöllur að nýrri sókn að betra menntakerfi. Umsjón: GP ■■■■■■■■■■■■■■■■•■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■i —MÐ MfM UTU UM OXL OG SÁU EYÐI- LEGGINGU SÍNA Wilson, forsætisráðherra: Stjórn hans neyddist til að gripa til ámóta launafrystiaðgerða og hún ásakaði stjórn Heaths hvað harðast fyrir. ! 5 ■ : fi « 1 Það er engu likara en leiðtogar verkalýðsfé- laganna i Bretlandi hafi staldrað við, horft um öxl yfir farinn veg siðustu fimm ára, og fyllzt skelfingu yfir eyðileggingunni, sem blasti við. Slík ktlvending hefur orðið á afstöðu þeirra til ráðstafana rikisstjórnarinnar til að hamla gegn veröbólgunni. Núna I vikunni samþykktu stærstu samtök verkalýðsfélag- anna I Bretlandi tillögur stjórn- arinnar um takmörkun á launa- hækkunum. Verða þær ekki nema sex pund á mánuði og koma til framkvæmda I áföng- um. Mikill munur er á en þegar Edward Heath, forsætisráð- herra stjórnar íhaldsflokksins, reyndi aö framfylgja launa- frystingarlögum stjórnar sinnar til að hamla gegn verðbólgu- skrúfunni. Með samtök náma- manna I broddi fylkingar var efnt til verkfalla sem slðan;með stuðningi orkukreppunnai> knúði stjórn íhaldsflokksins frá. Fyrst eftir að Verkamanna- flokkurinn komst I stjórn horfði ekki um of friðlega á vinnu- markaönum og mátti þó búast við því aö verkalýössamtökin myndu styðja hana dyggilega og flest til vinna að hún héldi velli. Þaö hefur þó kostað lang- ar og strangar viðræöur þar sem menn á borð við Len Murray, framkvæmdastjóra Alþýðusambands þeirra i Bret- landi, og Jack Jones, leiðtoga stærsta verkalýðsfélagsins, hafa þurft að beita allri sinni málsnilld til aö sannfæra með- stjórnendur slna um nauösyn þess að samþykkja tillögur Wil- sons-stjórnarinnar. A meðan dregist hefur að fá lausn á þessu mikilvægu málum hefur Wilson notið þess að athyglin hefur mest beinzt aö málum eins og spurningunni um hvort Bretar yrðu áfram aðilar aö EBE. Fyrir þjóðaratkvæöa- greiðsluna um EBE-aðildina fyrr á þessu ári snerust umræö- ur einvörðungu um þau mál og aukin rlkisafskipti og þjóönýt- ingu stórfyrirtækja iönaðarins. Kjaramalin hafa legið niðri á meðan. Þegar þau loks voru sett á oddinn fyrir nokkrum vikum var svo komið aö tala atvinnu- lausra I Bretlandi var komin upp I 1 1/4 milljón og fór hækk- andi. Atvinnuleysisaukningin er talin nema um 26% á ársgrund- velli. Slíkur hefur samdráttur- inn verið og gætir um leið I minnkandi vinnu og tekjum þeirra sem halda þó áfram starfi sinu. Þetta er dapurleg þróun og skulu menn hafa I huga um leið aö verðlag fer jafnframt hækkandi svo að framfærslan hefur sjaldan verið þyngri hjá mörgum fjölskyldum þar sem fyrirvinnan stendur nú uppi at- vinnulaus. Það kom þvl ekki til af góðu að verkalýðsforysta Breta virð- ist nú allt I einu hafa séð sig um hönd I kröfum slnum á hendur atvinnuvegunum. Síðustu fimm árin hafa hún gerzt æ vinstrisinnaðri, herská- ari og stöðugt neikvæðari gagn- vart atvinnurekendum, sem ekki þurfa að koma neinum á óvart, er kynnti sér stefnuskrár sumra þessara félaga eins og Landssamtaka námamanna. Þar er skýrt tekið fram aö stefnt skuli aö þvl aö taka höndum saman við önnur samtök um aö útrýma með öllu kapltalisman- um. En núna,þegar neyðarástand rikir á vinnumarkaönum, hefur verkalýðsforustan séð þann kost vænstan að lækka ögn háværar raddir þeirra róttækustu til aö styðja við launastefnu stjórnar Verkamannaflokksins. En 'sú stefna miðar ekki einungis aö þvi að reyna að afstýra þvl aö fleiri missi atvinnu sina heldur beita við það blönduðum hag- stjórnaraðferðum kapítalista og talsmanna rlkisrekstrar. Slíkur er óttinn viö algert hrun á vinnumarkaðnum aö for- ráðamenn verkalýðsfélaganna láta sér ekki nægja einungis að stilla kröfum slnum I meira hóf en nokkur heföi þorað að vona heldur hafa þeir beinllnis hvatt til löggjafar sem heimilar launagreiðendum að greiða lægri laun en þeir höfðu lofað. Mætti þvi halda að atvinnu- rekendur horfi bjartsýnum aug- um fram á veginn þegar þeir þurfa ekki lengur að óttast verkföll og aðrar ámóta rekstr- artafir sem verið hafa brezkum atvinnuvegum til stórtjóns i gegnum árin. Glataðir vinnu- dagar vegna verkfalla slöustu sex mánuði eru ekki nema helmingur á móts við verkfalls- dagana á sama tímabili I fyrra. En atvinnurekendur eru dauf- ir I dálkinn þrátt fyrir þessi við- brögð verkalýðsforystunnar. Þeir segja að launatakmörk- unartillögur stjórnarinnar hafi verið alger forsenda fyrir þvl að ekki yrði algert hrun á vinnu- markaðnum. Þar með sé þó ekki alveg tryggt aö þeir nái að rétta úr kútnum. Sumir þeirra telja reyndar aö þessar ráð- stafanir kunni að vera full seint á ferðinni. Og það eru ekki bara þeir sem þegar hafa oröið að loka fyrirtækjum sínum og segja upp starfsfólki. Hinir, sem enn berjast I bökkum, en hafa með samdrætti og fækkun starfsliðs dregið fram lífiö, taka I svipaöan streng. Jack Jones, leiðtogi eins stærsta verkalýðs- félags Breta: ,,Sumt fólk verður nú að fara að neita sér um hluti, sem það leyfiii sér áður.” . Len Murray, fram- kvæmdastjóri lands- samtaka verkalýðsfé- laga, varð að leggja sig allan fram til þess að sannfæra þá herská- ustu um nauðsyn þess að halda verkamanna- flokknum áfram við völd.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.