Vísir - 18.09.1975, Síða 13

Vísir - 18.09.1975, Síða 13
Vísir. Fimmtudagur 18. september 1975. 13 Deilur um land- búnaðarmál hafa risið hátt siðustu vikur og mánuði. Upphaf þess- ara deilna má rekja til þessa blaðs, Visis, og fyrrverandi ritstjóra þess, Jónasar Kristjánssonar. I leiðurum blaðsins vakti hann athygli á máli, sem legið hefur i þagnargildi um árabil. Ekki er vafi á þvi, að með þessu hefur Jónas Kristjánsson gert þarf- an hlut, þótt deila megi um aðferð hans og kenningar. — Gylfi Þ. Gíslason og stefna hans. En þessi mál hafa áður verið reifuð á svipaðan hátt og Jónas hefur gert.Gylfi Þ.Gislason, Al- þingismaður, sætti harðri gagn- rýni fyrir nokkrum árpm, er hann gerði grein fyrir skoðun- um sinum á islenskum land- búnaðarmálum.Þá, eins og nú, átaldi Gylfi harðlega stefnu þá, sem tekin hefur verið i styrkja- og fjárfestingarmálum land- búnaðarins. 1 Alþýðublaðinu á sunnudag tekur hann þráðinn upp á ný, telur landbúnaðar- framleiðsluna dýra og óþarf- lega fábreytta. Hann bendir á, að útflutningsverð á kindakjöti sé tveir þriðju hlutar af inn- lendu kostnaðarverði.Hann seg- ir, að á þessu ári muni niður- greiðslur á innlendum land- búnaðarvörum liklega nema 5,2 milljörðum króna. Hann tekur þó fram, að hér sé ekki um aö ræða styrk til bænda, heldur hagstjórnartæki, sem rikisvald- ið hafi lengi beitt i misjafnlega rikum mæli i baráttu sinni við verðbólgu.Gylfi segir, að nú sé svo komið að stefnan i þessum málum sé orðin rikissjóði og þar með islenskum skattgreiðend- um algjörlega ofviða. „Hvernig er hægt að tala um „fjandskap við bændur”, þegar bent er á nauðsyn þess, að breyta hér um til batnaðar”, spyr Gylfi Þ. Gislason. Viðbrögð bænda. Viðbrögð bænda við gagnrýn- inni hafa yfirleitt verið á einn veg.Þeir hafa reiðst ákaflega og talið, að hér væru á ferðinni níðingslegartilraunir til að gera litið úr bændastéttinni og störf- um hennar. Svo stóryrtir hafa þeir verið.Þeir hafa einnig lagt fram býsn af tölum, sem eiga að sanna, að rangt sé með farið. Ekki er fyrir að synja, að ein- hverjum hafi dottið i hug fila- beinsturninn frægi, og þeir, sem i honum búa.Hver sem ástæðan kann að vera hafa mótmæli þeirra-litinn hljómgrunn fengið meðal almennings, þeirra er neyta afurða frá bændum.Þessi viðbrögð bænda, eða bænda- samtakanna, verður að flokka undir helberan klaufaskap.Þeir, eins og aðrir, verða að vera við- búnir gagnrýni og kunna að taka henni. Málið tekur nýja stefnu. Ljóst er, að um árabil hefur verið grunnt á þvi góða á milli verkalýðshreyfingarinnar og bændasamtakanna.Mál þetta er nú orðið mjög alvarlegt, eins og yfirlýsingar verkalýðssamtak- anna bera með sér. Það kann ekki góðri lukku að stýra, þegar þessar öflugu og mikilvægu stéttir byrja að deila. Hvorug getur án hinnar verið, ekki fremur en maður án vatns.Hér er i raun höggvið nærri rótum þess þjóðskipulags, sem við bú- um við.Stétt gegn stétt, og sök verður að lýsa á hendur ein- hverjum.En hverjum? Sinnuleysi bændasamtakanna. <. Bændur hafa verið furðu sinnulausir við alla kynningu á störfum sinum, aðstöðu og þró- un landbúnaðar. Það er óhugs- andi að þeir viti i hve góðan jarðveg gagnrýni á land- búnaðarmálum fellur.Það er of- ar minum skilningi hve seint þeir hafa áttað sig á allri þróun borgar- og bæjarsamfélaga.Það er nú svo komið, að tengsl þau, sem áður voru á milli sveitanna og þorpanna og bæjanna, eru að rofna Jýýjar kynslóðir hafa tekið við, fólk, sem ekkert ættar- eða vináttusamband hefur lengur við sveitirnar.Það komast ekki lengur allir í sveit, og það er orðið breiðara bilið á milli sveit- ar- og borgarfólksins. Þvi miður! Meðal annars af þessum sökum á gagnrýni sú, sem áður var nefnd, greiðan aðgang að huga fjöldans.Þessi gagnrýni er á stundum óeðlilega einhæf og tekur ekki mið af öðru en hug- myndum um hagstjórnartæki, eða hagfræðilegum reglum, sem hafa átt og eiga það til að standast hvergi. Gætt hefur ósanngirni, en allt er gleypt hrátt og ómelt af þeirri einni sök, að bændur og samtök þeirra hafa snúist við meira af hörku og reiði en liðlegum til- burðum til útskýringa og upp- lýsir ga. r Arni Gunnarsson skrifar FYRRI GREIN Bilið heldur áfram að breikka. Verði ekki fljótlega spyrnt við fótum verður brátt óbrúanlegt bil, þar sem áður var greiður samgangur.Borgarbúinn heyrir það eitt, að bóndinn lifi á styrkj- um, hann þurfi litið annað en að ganga út i haga og ná þar i kjöt mjólk og smjör.Hann sé i raun og veru afæta á þjóðfélaginu. Bændur hafa gefið á sér högg- stað og standa illa að vigi.Mál- svarar þeirra á fjölbýlis- svæðunum verða æ færri og þeim fækkar i réttu hlutfalli við minnkandi samband sveitar og borgar. Skilningur borgarbúans vex heldur ekki á samdráttar- árum eins og nú.Þegar kaupget- an minnkar og landbúnaðar- afurðir hækka i verði fjölgar i þeim hópi, er heilshugar tekur undir gagnrýnina. Verkalýðs- hreyfingin er þá engin undan- tekning. Kröfurnar um meiri hagræðingu i landbúnaði, færri og stærri jarðir og framleiðslu- aukningu verða æ háværari. Menn rifja upp sögurnar um landbúnaðartækin, sem liggja eins og hráviði kringum bæina og ryðga.Menn tala um kotbýl- in, sem engan arð veita, gera litið meira en að halda lifinu i búendum. Menn benda á kostnaðinn við lagningu sima, rafmagns og vega að hverjum afdalabæ og tugþúsunda króna styrkir verða að hundruðum þúsunda og siðan milljónum,— Bændasamtökin svara gagn- rýninni með litt skiljanlegum tölum, sem falla i grýttan jarð- veg. Bilið hefur breikkað og skilning á grundvallar þáttum landbúnaðar skortir.Bilið hefur breikkað, borgarsamfélag hefur tekið við af bændasamfélagi. „Bóndi er bústólpi” er inni- haldslaust slagorð i hugum fólks, sem aldrei hefur i sveit dvalist, en verður á hverjum degi að greiða hundruð króna fyrir lifsnauðsynjar, land- búnaðarafurðir. Hvað er til ráða? Þegar hagspekingar og „for- múlu” menn leggja á ráðin um hagræðingu i landbúnaði hljóma kenningar þeirra ósjaldan eins og argasta grin.Þeir búa til lög- mál, sem eru jafn mikilvirk og eilifðarvélin. Stundum virðist svo, að taka eigi bændur og býli þeirra, raða þeim eftir kerfis- bundnum reglum. án tillits til þróunar eða mannlegra tilfinn- inga.Slikt minnir óneitanlega á fimm ára áætlanir þjóða, sem byggja austurhluta Evrópu. Þarna kemur skilningsleysið úr hinni áttinni. Slikar hugmyndir hljóta að koma frá mönnum, sem aldrei hafa komið nálægt búskap og vart kynnst öðru en malbiki og þjónustustörfum. Kenningar slikra manna verða ekki bornar á borð fyrir fólk, sem kynslóð fram af kynslóð hefur búið á sömu jörðinni, háð harða baráttu og oft gert litið meira en að draga fram lifið.— Sé þessi hlið málsins hugleidd og jákvæð afstaða tekin, vaknar spurningin um það hvað sé til ráða,— Þegar þessi spurning er hugleidd sakar ekki að hafa á bak við eyrað, að bændur gera ekki það eitt að framleiða mat- vöru. Þeir skapa þúsundum mann atvinnu, meðal annars i ullar- og skinnaiðnaði og við mjólkuriðnað. A hinn bóginn verður að hafa i huga þá mynd, sem Gylfi Þ. Gislason dregur upp af landbúnaðinum, og greint var frá hér að framan. Þar eru tölur, sem tala sinu máli, en hvar eru mótrökin.- Allt ber að sama brunni. Með einhverjum ráðum verður að auka á gagnkvæman skilning framleiðenda og neytenda, bænda og borgarbúa.Það verður ekki gert með gifuryrðum.Allir viöurkenna að stefnan i land- búnaðarmálum þarfnast endur- skoðunar, en sú endurskoðun verður að byggjast á skilningi og virðingu fyrir skoðunum beggja deiluaðila. Hér verða bændasamtökin að stiga fyrsta skrefið i átt til friðsamlegri sambúðar, og á móti verður að koma vilji til að skilja.

x

Vísir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.