Vísir - 18.09.1975, Blaðsíða 17

Vísir - 18.09.1975, Blaðsíða 17
Vísir. Fimmtudagur 18. september 1975. 17 DAG | IKVÖLD | í DAG | | ^-☆★☆★☆★☆★☆★☆★☆★☆★☆★☆★☆★☆★☆★☆★☆★☆★☆★☆★☆★☆★☆■' * ** » /■ a r—n-------- Útvarpsleikrit kl. 20.25: // Tvö ó saltinu /# — eftir William Gibson Leikritiö „Tvö á saitinu” eftir William Gibson veröur flutt i kvöld. Þjóðieikhúsiö sýndi þetta leikrit á sviöi áriö 1961. Þá hafði það slegið i gegn á Broadway áriö 1958. Þaö var einnig meö þessu ieikriti sem William Gib- , son varö fyrst þekkt nafn i ieik- ritahöfundaheiminum. Einnig hefur annað leikrit verið sýnt eftir hann i Þjóðleik- húsinu, árið 1964, en það fjallaði um ævi Hellen Keller. Kvik- mynd var gerð eftir þvi leikriti. Áður en Gibson varð þekktur sem leikritahöfundur hafði hann gefið út nokkrar bækur, en hann fæddist árið 1914. Leikurinn gerist í New York. Hann fjallar um einmanaleik- ann. Segir frá manni, sem býr i skýjakljúf, byggðum úr stáli, gleri og steypu. Þótt hann eigi nóga peninga þá er ekki allt fengið með þvi. Leikendur eru aðeins tveir, þau Hrönn Steingrimsdóttir og Erlingur Gislason. Þýðandi er Indriði G. Þor- steinsson, leikstjóri Baldvin Halldórsson. —HE. Útvarp kl. 19.35: // TVEIRATALI // „Tveir á tali viöræöuþætti f.t': n ' í þessum geir Sigurðsson, blaöa- mun Val- maður á Tímanum ræða Eirikur J. Eiriksson. við Eirík J. Eiríksson prest og þjóðgarðsvörð á Þingvöllum. Er ekki að efa að þetta viðtal veröur hið skemmtilegasta, þvl Valgeir hefur margra ára reynslu i að rabba við fólk, sem blaöamaður og sýnishorn blaöa- viðtala kom út i fyrra hjá bóka- útgáfunni Skuggsjá, þar sem hann ræðir við ýmsa ágæta menn. Bókin heitir ,,Ef liösinnt ég gæti” og segir höfundur i for- mála að hann hefði valið bókinni þetta nafn, þvi að allir þeir menn, sem hann ræöir við eiga það sameiginlegt að hafa gert samtið sinni margvislegt gagn. Aö undanförnu hefur Valgeir tekiö nokkur viðtöl, sem flutt hafa verið i útvarpinu. M.a. ræddi hann við Þorkel Björns- son frá Hnefilsdal og séra Jó- hannes Pálmason i Reykholti. Þessi viðtöl vöktu verðskuldaöa athygli. Útvarpshlustendur mega þvi búast við skemmtilegum sam- ræðum i kvöld ef að likum lætur. HE. Útvarp kl. 20.00: Erlingur Vigfússon syngur einsong — undirleikari er Ragnar Björnsson Erlingur Vigfússon, óperusöngvari, er okkur islendingum góðkunnur þótt hann starfi nú er- lendis. Hann mun syngja nokkur lög í útvarpið við undirleik Ragnars Björnssonar. Þessi ágæti óperusöngvari kom fyrst fram opinberlega með Karlakór Fóstbræðra kringum 1960. Siðan fór hann i einkasöng- tima til Demetz, sem nú er söngkennari á Akureyri. Erlingur kom fyrst fram á sviði, er hann lék og söng i ,,My fair lady” i Þjóðleikhúsinu Einnig muna menn ef til vill eftir honum þegar hann fór með aðalkarlhlutverkið i „Zardas- furstanum”. Hann söng einnig einsöng við hin ýmsu tækifæri þangað til hann fór til frekara söngnáms til Kölnar árið 1966. Þá hafði reyndar verið á Italiu i átta mánuði tveimur árum áður til að læra söng. I Köln fór Erlingur i óperuskólann þar, jafnframt sótti hann einkatima. Fljótlega var hann fengin n til að syngja við óperuna og komst hann á þannig samning, að hann fékk ýmis hlutverk en var jafn- framt nemandi. Nú er Erlingur fastráðinn viö Kölnaróperuna og hefur veriö það i nokkur ár og er hann i miklum metum þar ytra. Hefur Erlingi verið boöið að koma fram sem gestasöngvari viða um heim m.a. Afriku, ttaliu, Englandi og viðar. Erlingur kom snöggvast heim i sumar og söng hann þá fyrir landsbyggðina. —IIE. Erlingur Vigfússon, óperu- söngvari, sem nú starfar við Kölnaróperuna syngur í út- varpssal i kvöld. «• 4- «■ 4- «■ ♦ «■ 4- «■ «■ «- 4- «• 4- «■ «■ «■ «- ' «■ 4- «- 4- «• 4- «■ 4- «• 4- «■ 4- «■ 4- «■ 4- «- 4- . «- 4- «■ 4- «■ 4- «■ 4- «■ 4- «■ 4- «■ 4- «- 4- «■ 4- 4- «• 4- «- 4- «■ 4- «- 4- «■ 4- «- 4- «■ 4- «- 4- «- 4- «■ 4 * W\ Tö * * * spe *. s C . m & 3* Spáin gildir fyrir föstudaginn 19. september. Hrúturinn 21. marz—20. april: Ogætilegt orö- bragð I dag gæti komið þér i vandræði. Taktu gagnrýni annarra með stillingu. Óvinur sem þú átt gæti reynt aö ná sér niðri á þér I dag, svo vertu á verði. Nautið 21. april—21. mai: Fjárhagserfiöleikar eru óhjákvæmilegir. Varaöu þig á þeim sem ætla sér of langt i viöskiptum við þig. Réttu vini hjálparhönd. Tviburarnir22. mai—21. júni: Þú gætir komizt I kast við yfirvöldin i dag. Þér hættir til aö vera of sjálfstæður eða jafnvel ósvifinn. Vanræktu ekki foreldra þina. Krabbinn 22. júni—23. júli: Faröu þér ekki of hratt I dag. Þú heyrir óvænta skoöun einhvers sem þú leitar ráða hjá. Ljónið24. júli—23. ágúst: Einhver gæti sagt þér til syndanna i dag, en reyndu að láta það ekki á þig fá. Reyndu að þroska meöfædda hæfileika þina og láttu ekki bilbug á þér finna. Meyjan24. ágúst—23. sept. Vertu reiðubúinn til að láta undan i deilumáli. Félagi þinn gæti verið I slæmu skapi. Þú skalt ekki skrifa undir samn- inga I dag. Vogin 24. sept,—23. okt. Vandræði á vinnustað eða I skóla gætu komið fyrir I dag. Reyndu að sigla milli skers og báru. Góður dagur til aö efla tæknimenntun. Drekinn 24. okt,—22. nóv. Reyndu aö vera ekki svona eigingjarn og sý n du umhverfi þinu meiri áhuga. Þú verður trúlega fyrir einhverjum skaöa i dag eða þá að þú gerir slæm kaup. Forö- astu rifrildi um peninga. Bogmaðurinn 23. nóv,—21. des. Athugaðu vel öryggismál I dag, bæði heima og á vinnustað. Gættu vel að þér i umferðinni. Festu öryggis- beltin vel. Steingeitin22. des,—20. jan. Þetta er ekki heppi- legur dagur til feröalaga. Gerðu ekkert fram yfir hið vanalega og hafðu fulla gát á hlutunum. Keyptu þér sárabindi. Vatnsberinn21. jan,—19. febr. Geröu enga bind- andi fjármálasamninga I dag. Ekki spilla börn- unum þlnum með eftirlæti, það gæti veriö nauð- synlegt að gripa I taumana. Vertu samt i góðu skapi. Fiskarnir 20. febr.—20. marz. Reyndu að fara gætilega bæði heima fyrir og á vinnustaö. Forð- astu ónauðsynlegar fjölskylduerjur. «• ¥-9-¥■#•¥•!?"¥ 9-¥-J?'¥J?+J?'VJ?-¥J?¥"ít¥-í?~¥-J?¥"!?-¥J?¥"!?¥-J?¥"!?V-J?'¥J?'¥J?+J? + Viltu lóta þér líða vel allan sólarhringinn? Undirstaða fyrir góðri líðan er að sofa vel. Hjá okkur getur þú fengið springdynur í stífleika sem hentar þér best. Og ef þú ert í vandræðum með að f inna hjóna- eða einstaklings rúm, þá ertu viss um að f inna það hjá okkur. VERTU VELKOMINN! 'MHMZ Spvingdýnur Helluhrauni 20, Sími 53044. Hafnarfirði Sportvöruverzlun Óskar að ráða góðan starfsmann til starfa við rekstur fyrirtækisins. Uppl. um menntun og fyrri störf sendist Visi merkt „Skortvöruverzlun 1610”.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.