Vísir - 19.09.1975, Blaðsíða 1
OG ENN ER KLIPPT...
Klippt var á togvira vestur-
þýzka togarans Gluckstadt i
gær, þar sem hann var aö
veiðum i landhelgi. Togarinn
var staöinn aö meintum ólög-
legum veiðum þrjár milur
fyrir innan landhelgislinuna
suð-austur af Hvalbak.
Bætist þvi enn viö klippufer-
il Landhelgisgæzlunnar, sem
verið hefur nokkuð litrikur
upp á siðkastið. __ hv.
65. árg. — Föstudagur 19. september 1975 — 213. tbl.
;
útaf hafnbanninu,
sem enginn vissi um
— sjó bls. 13
húsmœðra
með börn
sjá bls. 7
„RINGULREIÐIN
ER í KOLLIN-
UM Á KNÚTI"
— segir orkumálaráðherra um
virkjunarmál á Norðurlandi
— sjá bls. 3
Borgarstjóri frá Spáni
— Þið gætuð notað dálitið af
sólskininu okkar, en ég vildi hins
vegar gjarnan hafa jafn rólegt og
hreint umhverfi og Reykjavik,
einhvers staðar i grennd við mig,
sagði varaborgarstjori Palma á
Mallorca við Visi I morgun.
Borgarstjórinn, Pedro Cabrer
Rodrigues kom hingað i gær á
vegum Club Mallorca, ásamt
konu sinni og Antonio Pomar
Gual, sem er forseti upplýsinga-
deildar og ritari ferðamálaráðs á
Mallorca.
Þau heimsóttu skrifstofu
borgarstjóra i morgun, þar sem
Albert Guðmundsson-tók á móti
þeim i fjarveru Birgis Isleifs
Gunnarssonar, og var skiptzt á
skjaldarmerkjum borganna.
Á myndinni er
Albert að afhenda spönsku gest-
unum minnispening frá Reykja-
vikurborg. Rodrigues er lengst til
vinstri, þá Gual en milli þeirra er
Axel Retana, formaður CÍub
Mallorca. — ÓT. Mynd Loftur.
Alþingi keypti
Þórshamar fyrir
70 milljónir kr.
Alþingi hefur keypt
húseignina Þórshamar
fyrir tæplega 70 milljónir
króna. Kaupverðið á að
greiða að mestu leyti á
einu ári. — Eigen.dur
Þórshamars voru Gunnar
Þorsteinsson, iög-
f ræðingur, og tvö systkini
hans, en faðir þeirra átti
húsið.
Þórshamar er mikil bygging,
aðeins steinsnar frá þinghúsinu.
Alþingi hefur haft húsið á leigu i
nokkur ár og gert á þvi miklar
breytingar. — Það hefur verið
stefna Alþingis og rikissjóðs, að
Alþingi eignist flestar þær
byggingar, sem það hefur á
leigu. A það nú alla torfuna i
kringum Alþingishúsið, nema
Oddfellow-húsið.
• Þórshamar er vafalaust dýr-
asta húsið, sem Alþingi hefur
fest kaup á.
— AG