Vísir - 19.09.1975, Blaðsíða 12
12
Visir. Föstudagur 19. september 1975.
Baróttan gegn
rauðum hundum
y
harðnar
— rœtt við
borgarlœkni
„Ætlunin er að gera prófun á öllum þunguðum
konum, sem koma á Mæðradeildina á þvi hvort þær
hafa fengið rauða hunda eða ekki,” sagði Skúli
Johnsen, borgarlæknir i viðtali við Visi i morgun.
Skúli sagði að i þessu fælist
visst öryggi og eru verðandi
njjerV sem sýna neikvæða próf-
un Jir hvattar til að koma hvergi
nærri, þar sem grunur leikur á að
rauðir hundar séu á ferðinni.
Hættulegasta tímabil með-
göngutimans eru fyrstu þrir mán-
uðirnir. Eru likur á að fram komi
á barninu meðfæddir kvillar. Al-
gengast er heyrnarleysi. Eftir
faraldurinn á rauðum hundum
1964 þjást um 100 börn af heyrn-
arleysi. Þá er lika hætta á hjarta-
göllum.
Komið hefur til tals að bólu-
setja konur gegn rauðum hund-
um. Yrði það þá gert við konur
eftir að þær hafa fætt barn. Yrði
komið i veg fyrir þungun á með-
an, þvi aðhættan við bólusetningu
er svipuð þvi og konan fengi
rauða hunda.
—EVI
Nei takk sko. Það þýðir ekkert að horfa á pel-
ann minn. Hann er ekki falur. Mynd ÓT
Júdas slœr í
gegn ó Spáni
Hljómsveitin Júdas sem
nú dvelst á Spáni og
skemmtir gestum
Klúbbs 32 á hóteli unga
fólksins Hotel Club 33,
hefur vakið feikna at-
hygli á Mallorca.
Ekki voru þeir búnir að leika
þar nema einu sinni þegar að til-
boð streymdu til hljómsveitarinn-
ar um að leika á ýmsum diskótek-
um eyjunnar. Ber þar hæst tilboð
diskóteksins Barbarella en það
diskótek mun vera eitt hið stærsta
og fullkomnasta i Evrópu og ýms-
um íslendingum að góðu kunnugt.
Þar mun hljómsveitin koma
fram i þessari viku, auk diskótek-
anna Barrabas og Sgt. Peppers.
Það má teljast mikill heiður
fyrir Júdas að komast á sviðið i
Barbarella þvi þar ku yfirleitt
vera mjög erfitt að komast að
bókað langt fram I tlmann og
yfirleitt um þekktar hljómsveitir
að ræða. Þeir spila þrisvar I viku
á Hotel Club 33 en þar dveljast
ungmenni á aldrinum 18-33 frá
niu löndum Evrópu, þar af 66 frá
íslandi. —örp.
Dansskóli Heiðars er einnig starfræktur I þvl fjölmenna hverfi
Breiðholti.
Dansmenntin
eínhver
vinsœlasta
Nú eru dömurnar ekki lengur i
piisum..
dœgradvölin
hér ó landi
— rœtt við Heiðar
r
Astvaldsson
danskennara í
tilefni af 20 ára
afmœli dansskóla
hans
„Ég tel það vera almennan
þátt i uppeldi hvers og eins, að
hann læri að dansa. Dans-
menntin er ein vinsælasta
dægradvöl bæði hér á landi og
erlendis,” sagði Heiðar Ast-
valdsson, danskennari, sem nú
heldur upp á 20 ára afmæli
dansskóla sins.
Fékk einn nemanda fyrsta inn-
ri tunardaginn.
,,Nú kenni ég bæði hér á Stór-
Reykjavikursvæðinu og i helztu
kaupstöðum út á landi. Upphaf-
lega byrjaði ég með dans-
kennslu á Siglufirði. Fyrsta inn-
ritunardaginn fékk ég einn
nemanda, en siðan hefur nú
nemendafjöldinn aukizt stöðugt
og skiptir nú þúsundum á hverj-
um vetri. Ég hef þrettán kenn-
ara við skólann.
,,Ég er nú að láta fullgera 230
fm húsnæði upp I Breiðholti að
Drafnarfelli 4. Þar mun ég
kenna börnum alla daga vik-
unnar, en hjónaflokkum á
kvöldin. Dansskólinn mun
brydda upp á þeirri nýjung i
vetur að halda dansleiki á
sunnudögum fyrir nemendur
skólans.
Hér eru nemendur með mikla
danskunnáttu.
„Þegar ég byrjaði að kenna
dans komst maður af með litla
þekkingu i þessari grein. En nú
höfum við nemendur, sem hafa
mikla danskunnáttu, þvi nokkr-
ir nemendanna hafa verið hjá
okkur i 11 ár.
„Til þess að auka danskunn-
áttuna förum við kennararnir til
útlanda á hVerju ári oftast til
Danmerkur og lærum nýja
dansa eða ný dansspor i ákveðn-
um dansi. Einnig höfum við
fengið erlenda kennara hingað
til að kenna okkur.”
Litil dansgólf standa dans-
menntinni fyrir þrifum
„Það sem stendur dans-
menntinni fyrir þrifum hér á
landi er hve fáir skemmtistaðir
hafa stór dansgólf. Auk þess er
hér enginn aðstaða til að sýna
svonefnda bolrúmdansa, sem
krefjast stórs dansgólfs. Til
dæmis hef ég aldrei getað sýnt
uppáhalds dansinn minn, sem
er foxtrott,” sagði Heiðar hálf
dapurlega. Þess vegna sýnum
við svo oft spánska dansa, þvi
þeir krefjast minna rýmis.
„Þegar ég byrjaði að kenna
dans, þá komu nemendurnir oft-
ast I danstimana I sinu finasta
pússi., Dömurnar voru allar i
pilsum en herrarnir i jakkaföt-
um. Nú heyrir slikt frekar til
undantekninga, þvi flestar
stúlkur hvort sem þær eru eldri
eða yngri mæta yfirleitt i sið-
buxum, sem er eðlilegt, þvi hér
getur verið svo kalt á beturna.”
Er á móti þykkbotnuðu skótizk-
unni.
„Það má koma skýrt fram,”
sagði Heiðar, „að ég er á móti
þykkbotnuðu skótizkunni, þvi
hún skemmir göngulagið bæði
hjá karlmönnum og kvenfólki.
Auk þess er illmögulegt að
dansa i þessum skóm. Þó gerir
minna til þegar um. unglinga-
dansa er að ræða.
Að lokum
„Þegar ég lit yfir 20 ára starf i
þessari grein, þá er mér efst i
huga sú staðreynd að fólki er
orðið það ljóst, að það hefur
raunverulegt gagn af þvi að
læra að dansa, auk þess sem
hinir ýmsu aldursflokkar hafa
mikla skemmtan af dansmennt-
inni. HE.
Börn í Reykjavík
geta ekki farið
til hvaða tannlœknis
sem er — ókeypis
Misskilnings gætti I frétt i VIsi skólum. Þar var sagt að börn úr
i gær um ókeypis tannviðgerðir i þeim skólum i Reykjavik, þar
sem skólatannlæknar eru ekki
starfandi gætu farið til hvaða
tannlæknis sem er og fengið
reikninginn endurgreiddan.
Þetta á ekki við börn á aldrinum
6-12 ára I Reykjavik, til dæmis
þarf barn úr Fellaskóla að fara
annað hvort niður á Heilsu-
verndarstöð eða I Breiðholts-
skóla til tannviðgerða. Börn úr
Fossvogsskóla eru oftast send I
Breiðagerðisskóla.
Börn úti á landi, þar sem ekki
er skólatannlæknir geta hins
vegar farið til hvaða tannlæknis
sem er og tekið nótu, sem siðan
er endurgreidd af Sjúkrasam-
laginu. —EVI