Tíminn - 28.10.1966, Side 3
FOSTUDABUR 28. október 1966
TÍMINN
ÍSPEGLI TfMANS
Myndin er tekin á 25 ára
hjúskaparafmæli Rosalindu Ru
ssel og Freddj Brissom talið frá
'Nancy Sinatra hefur nýlega
sungið inn á nýja LP.
plötu, sem ber nafnið Nancy
í London. Nancy varð heirns-
fræg fyrir lagið Thgse boots are
made for Walking, en þessi
plata þykir því miður ekki eins
góð.
Eins og skýrt var frá í spegl
inum um daginn, eru The Who
á hljómleikaferð í Danmörku
um þessar mundir. Fyrstu
hljómleikana héldu þeir í sam-
komuhúsi í Óðinsvéum þar sem
saman voru komin 1500 ung-
menni. Hljömleikarnir end-
uðu með því að • „hljómlistar
mennirnir“ mölbrutu hljóð-
færi sín auk þess sem fyrir-
liði hljómsveitarinnar reif
niður sviðstjald hússins. Þeg
ar hreinsað var til í húsipu,
iágu 250 stólar mölbrotnir í
valnum en forráðamaður húss-
ins gerði sér lítið fyrir og
lét piltana sjálfa sópa saman
brotunum, og dró 24000 krón
ur frá launum þeirra. Þeir fá
víst ekki að halda fleiri hljóm
lejka á þeim staðnum.
Danny Kaye hefur verið boð
ið til Kaupmannahafnar í til—
efni 800 ára ártíðar borgar-
innar. Á hann að syngja Wond-
erful Copenhagen fyrir borgar
búa. Eitt skilyrði hefur verið
sett um komu hans, en það er
að hann beri Copenhagen fram
með dönskum hreim.
Gina Lollobrigida sést hér
ganga út úr réttarsal i Lat-
ina á Ítalíu, þar sem hennt,
var veittur skilnaður frá eigin
manni sínum, Miiko Skofic
hægri á myndinni eftir J7
ára hjúskap.
vinstri sjáum við: Frú Gary
Grant, Brissom, Frú Russel,
Gary Grant, Frank Sinatra,
42 ára gömul frönsk kona
hefur af dómstólum í borg-
inni Lyon verið dæmd sökum
margendurtekinna þjófnaða,
sem hún hefur framið þar í
borg. Dómsorðin voru sú, að
henni er bannað að heimsækja
Lyon næstu 205 ár. Dómarinn
sagði einnig, að hann óskaði
henni alls hins bezta á lífs-
leiðinni, og vonaði, fastlega, að
hún myndi lifa 205 ár til þess
að hún gæti afplánað dóm
og frú Frank Sinatra. Mynd-
in er tekin í Las Vegas.
Hópur bandarískra vís-
indamanna tilkynnnti fyrir
nokkru, að þeim hefði tek-
izt að bora 1390 metra
í 'gegnum ís á Norður-Græn-
landi, áður en þeir hittu und
irstöðubergið fyrir.
Til að halda upp á atburð
þennan, var skálað en veigarn
ar voru kældar með 2000 ára
gömlum ís, eða ís, sem mun
hafa fallið til jarðar 10 arum
eftir dauða Cesars. ísinn mynd
ar árhringi á sama hátt og tré
og er ísinn neðst. niðri við
bergið ca 10 000 ára gamall.
Scotland Yard álítur, að et
til vill hafi samfangar Blakes
njósnarans, sem slapp út ur
fangelsi á dögunum, hjálpað
honum til þess að
komast undan, en vafasamt er
talið, að eitthvert erlent stór
veldi standi að baki flóttan-
um. Blake kvað hafa vcr-
ið samföngum sínum mjög
hjálplegur með ýmsa hluti, og
að þeir hafi fengið samúð með
honum, þar sem dómurinn,
sem hann fékk eða 42 ár, er
þyngsti fangelsisdómur, sem
felldur hefur verið yfir nokkr
um manni í Englandi fyrr og
síðar.
★
24 ára gömul kabarettsöng
kona, Melanie Marthin, til-
kynnti í Jóhannesarborg í dag,
að hún væri vanfær. Frú Mart-
in, en hennar rétta nafn er
frú Murial Amsby var karl-
maður þangað til fyrir tveimur
árum, en þá lét hún (hann)
breyta sér í konu. Ef tilkynn
, ingin er á rökum reist, er þessi
suður-afríkanska söngkona
fyrsta persónan, sem verður
vanfær eftir sláka aðgerð.
*
32 ára gömul móðir myrti 12
ára son sinn, þar sem hann lá
þá rúmi sínu einn morgun.
Ástæðan var sú, að allt frá
fæðingu sonarins hafði konan
byrjað að fitna, og þar sem
hún hélt að ást eiginmanns
hennar mundi þverra við það,
þá kenndi hún syni sínum um.
Reiði hennar náði síðan há
marki umræddan dag. Gekk
hún síðan með byssu í hönd
inn í svefnherbergi drengs-
ins og skaut í brjóst hans.
Síðan sneri hún sér að eigin-
manni sínum og ætlaði að
drepa hann líka, en hann 'gat
snúið byssuna úr höndum henn
ar. Var hún síðan færð á spítala
til rannsóknar.
Svo er hér ein færeysk frétt.
Tveir bílar urðu hafinu að bráð
þegar stóreflís bylgja gekk yí
ir hafnargarðinn í Lervig
á Austurey. Bílstjórarnir voru
í bílum sínum þegar atburð-
urinn skeði. Öðrum þeirra
tókst að stökkva út í tæka táð,
en hinum var bjargað af- ferju
eftir að hafa verið nokkrar
minútur á sundi.
Á VlÐAVANGI
Rjúkandi ráð
Dagur á Akureyri segir ný-
lega:
„Greiðargerð ráðherra fyrir
nýja fjárlagafrumvarpinu þyk
ir hvorki skýr né sköruleg eða
a.m.k. ekki sá kafli hennar, sem
fjallar um „meginstefnu fjár-
lagafrumvarpsins“. Þar er m.a.
rætt um samband fjármálaráðu
neytisins við einstakar ríkis-
stofnanir og segir þar orðrétt:
„Með þessum hætti fæst oft
ekkert mat á því, hversu vel
eða illa stofnunin hefir sinntsín
um viðfangsefnum, þar eð fjár
veiting til stofnunarinnar miðast
ekki við ákveðið viðfangsefni
heldur við rekstur stofnunarinn
ar.“ — Á öðrum stað segir:
„Þessar hækkanir (þ. e. ca.
850 millj. kr. hækkun niður-
stöðutalna á einu ári) undir-
strika hin 'tæknilegu vandkvæði
sem eru á gerð fjárhagsáætlana
við verðbólgu ástæður. Áætlun
in hefir þá þegar misst gildi
sitt, þegar hafið er að fram
kvæma hana og er þannig ekki
lengur neitt fast markmið að
kcppa að fyrir hvern þann, sem
ber ábyrgð á verki eða starf-
semi, sem unnin er á vegum rík
isins.“
„Ekki lengur neitt fast mark
mið að keppa að“ segir sjálfur
fjármálaráðherrann oS veit
ekki sitt „rjúkandi ráð“- —
Ekkert að marka áætlanir eða
upplýsingar stofnana. — Þann
ig er stjórnleysið.
Erlendu skuidirnar
Á fyrstu síðu er tölulega
greint frá erlendum skuldum
og gjaldeyrissjóðum. Nú er út
af fyrir sig ekki neinn voði á
ferðum, þó að Iánin erlendis
hafi aukizt um nálega 2000
millj. kr. síðan í árslok 1958
til ársloka 1965. En þaðan af
síður geta það talizt stórtíð-
indi, þó að gjaldeyrisinneign
bankanna hafi aukizt um tæpl.
1700 millj. í samfelldu márgra
ára aflagóðæri. En eins og hér
kemur fram vantar þó nokkuð
á, að hægt væri að greiða upp
skuldaaukningunar með aukn
ingu gjaldeyrisvarasjóðsins, þó
að henni væri allri til þess var-
ið. Þetta eru þá öll ósköpin,
sem gumað er af, eftir margra
ára aflamet og hækkandi verð
á útflutningsvörum.
Hvað var sagt 1960?
En í sambandi við þessar
opinberu skýrslur rifjast það
upp fyrir mönnum, sem oddvit
ar viðreisnar ræddu um þessi
mál á sínum tíma, þegar þeir
voru að taka við yfirstjóm þjóð
arbúsins. Þá áttu skuldimar við
útlönd að vera svo hættulegar,
að ckki yrði við unað. Þá var
látið í veðri vaka, að þjóðin
væri komin á heljarþröm af
þessum sökum. Og enn er reynt
að telja fólki trú um, að svo
hafi verið. En hér tala þær
tölur, sem ekki verða rengdar.
Þeir, sem við tóku, fóra með ’
blekkingar, og hafa sjálfir tal
ið fært að auka erlendu skuld
irnar í stað þess að minnka
þær.“
RULOFUNAB
^IBINOIR
amtmannsstig 2
Halldór Kristinsson,
gullsmiður — Sfmi 16979