Tíminn - 28.10.1966, Blaðsíða 13
FÖSTUDAGUR 28. október 196G
TÍMINN
Chelsea hefur tek-
iB forystuna aftur
— sigraði Tottenham með 3:0
Sýning OEIerup-flokksins vakti hrifningu
Darsski fimleikaflokkurinn frá Ollerup hélt sýningu i' Laugardalshöllinni i fyrrakvöld við mikla hrifningu áhorf
enda, sem munu hafa verið um eitt þúsunci talsins. Sýndi flokkurinn ýmsar hliðar fimleikaíþróttarinnar, en
mesta hrifningu vöktu stökkin á dýnu. Voru Ollerup-mennirnir hreinir listamenn á því sviði. — Á mynd
inni hér að ofan sjást Ollerup-menn sýna eitt atriði. Myndina tók l|ósmyndari Tímans, Róbert.
Hsím—fimmtudag.
Chelsea hefur aftur tekiS
forustu í 1. deild, en liðiS sigr
aði Tottenham á miðvikudag
3:0. Þessar tölur líta vel út
á pappírnum, en gefa þó al-
ranga hugmynd um leikinn.
Tottenham hafði mikla yfir
burSi í fyrri hálfleik og hefSi
þá átt að skora 4—5 mörk,
en Bonetti, markvörður Chel-
sea> sýndi frábæran leik og
bjargaði öllu.
Tony Hateley, sem undirritaði
! samning við Chelsea þremur
Jdu(k3outímum fyrir -ieikinn, átti
i mikinn þátt í, að Chelsea lék bet
' ur í síðari hálfleik. Tampling skor
aði fyrsta markið úr vítaspyrnu
eftir að Hateley var brugðið i-nn
an ' vítateigs, en hin tvö skoraði
Baldwin, sem kom inn sem vara
maður fyrir Housemann. Chelsea
hefur nú 19 stig, einu meira en
Stoke.
West Ham sigraöi í fyrsta skipti
á heimavelli í haust, þegar liðið
Vann Nottm. Forest 3:0 á miðviku
dag. Hurst skoraði tvö af mörkun
um. Þá fóru fram nokkrir leikir
í bikarkeppnini deildarliða og urðu
Úrslit þessi-
Davies til
Newcastle
fyrir 80 þús
und pund
Newcastle keypti í gær mið-
herja Wales, Wynn Davies frá
Bolton fyrir 80 þúsund pund, og
kom sú sala mjög á óvart, þar
sem Davies vildi ekki fara til
Newcastle í fyrra. Hann hefur
leikið mjög vel í haust, skorað
12 mörk í 13 leikjum. Bolton
keypti hann frá Wrexham — 4-
deildarliðinu frá Wales — fyrir
fjórum árum og borgaði 20 þús-
und pund, og lét auk þess af
hendi einn leikmann. Wynn Dav
ies er talinn einn bezti skalli á
Bretlandseyjum, stór og sterkur
leikmaður.
~hsím-
Penarol ssgr-
Fréttir frá
Olympíu-
skákmótinu
i fyrstu umferð á Ólympíuskák
mótinu átti íslenzka skáksveitin
frí, en úrslit í riðli íslands urðu
þessi: Júgóslavía hlaut 2 vinninga
gegn y2 hjá Tyrklandi, en ein
skák fór í bið. Mongólía og Mexi-
có hafa sinn vinning hvort land
og tvær biðskákir, Austurríki hef-
ur einn og hálfan vinning gegn
hálfum vinningi Indónesíu, tvær
skákir í bið. f annarri umferð tefl
ir ísland við Austurríki — síðan
Tyrkland, Mongólíu, Mexicó, Júgó
slavíu og Indónesíu.
Fi-mmtíu og tvær þjóðir taka
þátt í mótinu og er teflt í sjö
riðlum — í fjóru-m riðtam tefla
sjö þjóðir, í þremur átta. Tvær
efstu þjóðirnar í hverjum riðli
tefla síðan í A-riðli, tvær þær
næstu í B-riðli og svo framvegis.
Þær þjóðir, sem komast í A-riðil,
skipa efstu 14 sætin í mótinu.
Langt er síðan ísland hefur
teflt í A-riðli — eða 1954 — og
var íslenzka sveiti-n þá í 12. sæti,
neðst i riðlinum. Beztu skákmenn
Islands þá skipuðu sveitina, þ.e.
Friðrik, Ingi og fjórir Guðmund-
ar — Pálmason, S. Guðmundsson,
Agústsson og Arnlaugsson. Júgó-
slavneska sveitjn nú, sem skipuð
er eingöngu stórmeisturum,' hef-
ur mesta sigurmöguleika í riðl-
inum, og ef íslenzku skákmönn-
un-um tekst sæmilega upp, ætti
annað sætið að verða þeirra.
Mongólar og Austurríkismenn
gætu þó orðið hættulegir keppni-
nautar. -hsím.
Blackpool — Fulham 4:2
Brighton — Nortihampton 1:1
Cariisle — Blackburn 4:0
Grimsby — Birmingha-m 2:4
Sheff. Utd. — Walsall 2:1
Þetta er fjórði sigurleikur Black
pool í röð (16:4 mör'k) og í bik
arkeppninni hefur liðið slegið
út ManOh. Utd. (5:1) og Chelsea
(3:1). Aðeins tvö önnur lið úr
1. deild komast í undanúrslit,
Sheff. Utd. og WBA. í borgar-
keppni Evrópu sigraði Leeds
DWS Amsterdam með 5:1, Dun-
fermline vann Dynamo, Zagrep
4:2 og Spartak og Bologna gerðu
jafntefli 2:2.
aði Real
IVIadrid aftur
Penarol frá Urugay sigraði
Real Madrid í síðari leik félag-
anna um heimsmeistaratitil fé-
lagsliða á miðvikudaginn með
2-0, og er þar með heimsmeist-
ari. Leikurinn var háður í Mad-
rid, en Penarol sigraði einnig í
fyrri leiknum með sömu marka-
tölu- Margir leikmenn liðsins léku
með Uruguay á HM í sumar m.a.
innherjinn Rocka, sem talinn var
einn bezti leikmaðuriun á HM-
-hsím.
þróttafélög skálkaskjdl skattsvikara?
Tvö íþróttafélög borgarinnar
hafa verið ásökuð í blaðagrein
fyrir að vera skálkaskjól skatt-
svikara. Hér er um svo alvar-
lega ásökun að ræða, að óverj-
andi er annað en viðkomandi
íþróttafélög hreinsi sig af
áburðinum, enda er hann til
stórskaða fyrir íþróttahreyfing
una í heild. Félögin eru ásök-
uð um að lána einkaaðilum
nafn sitt í sambandi við
skemmtanahald, en viðkom-
andi aðilar sleppa við að borga
skatt af tekjunum. íþróttafé-
lögin eiga svo, samkvæmt blaða
greininni, sem birtist í Vísi sl-
miðvikudag, að fá smáþóknun
fyrir vikið-
Enginn dómur skal lagður á
það hér, hvort nokkuð er hæft
í þessari ásökun, en ef svo
vildi til, sýnir það glögglega í
hve miklum fjárhagsörðugleik-
um íþróttafélögin eru. Sá, sem
þessar línur ritar, telur sig
þekkja nokkuð til íþróttafé-
laga borgarinnar og hvemig
rekstri þeirra er hagað. f sí-
aukinni1 dýrtíð verður dýrara
að reka íþróttafélögin. Og
hvaðan eiga þau að fá rekstr-
arfé? Félagsgjjöld hrökkva
hvergi nærri til að greiða
hinn mikla kostnað, sem er
við íþróttastarfið. Þess vegna
verða félögin að hafa allar
klær úti til að verða sér úti
um rekstrarfé. Skyldi ekki
fyrirtækin í borginni vera far-
in að kannast við sömu and-
litin, sem birtast í hverjum
mánuði sníkjandi auglýsingar
í félagsblöð og' leikskrár? Eða
eigum við að néfna happdrætt-
isfarganið?
Fjárhagsörðugleikar íþrótta-
hreyfingarinnar eru alvörumál,
og enn alvarlegra Iilýtur það
að teljast, ef íþróttafélögin
leiðast út á þá braut — í
vandræðum sínum — að verða
skálkaskjól skattsvikara- Ef
það reyndist rétt, sem ég vona
að sé ckki, þá cr slíkt athæfi
til vansæmdar íþróttahreyfing-
unni — og um lcið alvarlcg
áminning til þcirra háu herra,
PUNKTAR
sem afskipti hafa af íþróttamál-
efnum Reykjavíkurborgar, því
víst er að íþróttafélögin
myndu ekki leiðast út á svo
hála braut, ef ekki væru fjár-
hagsörðugleikar með í spilinu.
Og í framhaldi af þessu, lang
ar mig að spyrja: Telja for-
ystumenn borgarinnar íþrótta
starfið það gagnlegt, að það
eigi rétt á sér? Eflaust svara
þeir spurningunni játandi, en
gera þeir sér grein fyrir, að
íþróttafélögin eru að vissu
marki — og að miklu leyti —
uppeldisstofnanir? Borgaryfir
völdunum, þykir sjálfsagt að
byggja barnaleikvclli víðs veg-
ar um borgina og hafa launað
starfsfólk við þá. Á barnaleik-
völlunum mega börn á aldrin-
uin 2ja til sex ára vera, en
þegar þau eru orðin eldri en
sex ára, er þeiin — í flestum
tilfellum — meinaður aðgang-
ur að þeim. Og hvert eiga börn
in þá að fara? Kannski á göt-
una? Gatan verður leikvöllur
margra, því miður, cn sem bet
ur fcr, þá taka íþróttafélögin
við stórum hóp barna, allt frá
7 ára aldri, og veita þeim til-
sögn. Með öðrum orðum,
íþróttavellir borgarinnar verða
athvarf stórs hóps barna og
íþróttafélögunum er ætlað að
veita þeim ókeypis uppeldi, þvi
ekki eru starfsmenn íþróttafe-
laganna á launum hjá Rvíkur-
borg. Sjálfa íþróttavellina og
íþróttahús þurfa félögin að
reisa að miklu leyti, en þó
skal það tekið fram, að upp á
síðkastið virðist stefna borgar-
yfirvaldanna hafa breytzt til
batnaðar í þeim efnum.
Kostnaðurinn við íþrótta-
starfið er margvíslegur, og
miklu meiri en margur hygg-
ur, sem ekki þekkir til þessara
mála- Við skulum ekki vera of
fljót á okkur að ásaka íþrótta-
félögin, þegar þau eru bendl-
uð við hluti eins og fyrst eru
nefndir í þcssari grein, því
neyðin gæti rekið þau út á hál
an ís- En eins og fyrr segir, þá
er vonandi lítið til í því, að
viðkomandi íþróttafélög séu
skálkaskjól skattsvikara. - alf.