Tíminn - 05.11.1966, Side 2
LAUGARDAGUR 5. nóvember 1966
TÍMINJNL
Laxaess ræðir viíhort sín tii
leiklistarinnar í lceland Review
Komið er út nýtt hefti tíma-
sins Iceland Review og er það
olbreytt og vandað sem fyrr. Að
ikkru er það helgað Halldóri
ixness og leikritum hans, hefst
hreinskilnislegu viðtali, sem
att'hías Jolhannessen hefur átt
ð Laxness, en síðan skrifar Sig
ður A. Magnússon um tvö s''ð-
ustu leikrit Skáldsins, sem sýnd
/oru hér á árinu. Fjölmargar
iviðsmyndir úr Prjónastofunni Sól
inni og Dúfnaveizlunni birtast
með iþeirri grein.
Halldór Laxness var sem kunn-
ugt er kjörinn formaður samtaka
leikritalhöfunda á þingi þeirra í
París nýverið og má segja, að efi-
ir það sé ekki síður en fyrr
ástæða til að kynna leikritagerð
skáldsins og viðhorf hans til leik-
ritunar meðal annarra þjóða.
Prófessor Þórhallur Vilmundar-
son hefur valið kafla úr Heims-
kringlu Snorra Sturlusonar þar
sem segir frá orrustunum miklu
á Englandi árið 1066. Þess hefur
mjög verið minnst á Bretlandi á
þessu ári, að níu hundruð ár eru
liðin frá þessum miklu átökum,
en færri vita þar í landi, að frá-
sögn Snorra er með gleggstu
heimildum um atburðina. Kaf'inn
úr Heimskringlu er í enskri þýð-
ingu, Samuel Laing, myndskreytt
ur af Wilhelm Wetlesen. Prófess-
or Þórhallur skrifar inngang að
þessari kynningu íslenzkra forn-
rita og birtist ennfremur ná-
kvæmt kort, sem Halldór Péturs-
son hefur gert yfir vettvang átak-
anna.
ítarlegt viðtal er við Dr. Jó-
hannes Nordal, Seðlabankastjóra
um þjóðlega hagsmuni og erlent
fjármagn, viðhorf íslendinga og
stefnu í þeim málum. Jónas
Kristjánsson, ritstjóri, skrifaði
þetta viðtal og er þar m.a. vikið
að stórframkvæmdum þeim, sem
hefjast með byggingu álverksmiðj
unnar í Straumsvík.
Þá birtir Iceland Rwview í
fyrsta sinn ítarlega ferðalýsingu
útlendings, sem heimsótti landið
í fyrna. Mönnum kemur ekki
alltaf saman um það hve gloggt
gestsaugað sé, en Bandaríkjamað-
urinn Tom Bross, segir hér hisp-
urslaust frá því hvemig ísland nú-
tímans kemur útlendingum fyrir
sjónir. Baltasar hefur myndskreytt
frásögnina.
Myndskreytt grein er um þotu-
kaup Flugfélagsins og lengingu
Loftleiðavélanna- Jónas Kristjáns
son, ritstjóri, skrifar langt viðtal
við dr. Jón Vestdal þar sem segir
frá starfsemi Sementsverksmiðj-
unnar og framtíðarmálum. Mats
Wibe Lund jr. skrifar stutt við-
tal við skreiðarkaupmann frá
Nígeríu, sem hér var á ferð fyrir
skömmu og af öðru efni mætti
nefna íslandsfréttir í samþjöpp-
uðu formi, fréttir af útvegnum,
frímerkjaþátt Jónasar Hallgríms-
sonar, fróðleik fyrir erlenda ferða
menn, stutt „Reykjavikurhréf" um
hið endalausa Suríseyjargos, les-
endabréf o.fl.
Kápumynd er eftir Gísla B.
Björnsson og Barböru Stasch og
er hún í tengslum við kynningu
ritsins á Heimskringlu.
Verbúðarbruni
AS-Ólafsvík, fimmtudag.
Eldur kom upp í verbúð Hall-
dórs Jónssonar og Kirkjusands h.
f-, um hádegið í dag. Kom eldur-
inn upp í íbúðarherbergi á efri
hæð og brann þar allt sem brunn
ið gat. Eldurinn komst ekki á neðri
hæðina, og slökkviliðinu tókst að
verja gömlu kirkjuna og spenni-
stöð sem standa rétt við verbúð-
ina.
Frank Edwards
eitt stórktsokostlegasta fréttaefni
allrá tíma. Við lesum um manninn,
með radaraugun, óþekkta veru ut
an úr geimnum, Shanti Davi stúlk
una, sem lifaði tvisvar, krafta
verk á sjó og landi o.s.frv.
Bókin Hulinn heimur hefur ver
ið gefin út í flestum enskumæl-
andi löndum og t.d. verið prentuð
í fimm útgáfum í Bandaríkjunum.
Lesendurnir skipta milljónum. Hul
inn heimur er bók um furðuleg
fyrirbæri, sem vísindin geta ekki
skýrt. 1
Höfundurinn, Frank Edwards
er talinn meðal beztu frétta-
; mann í útvarps- og sjónvarps-
heiminum. Frásagnir hans af furðu
legum fyrirbærum eru með vin
1 sælasta útvarps- og sjónvarpsefni
' í Bandaríkjunum í dag.
HULINN HEIMUR
Hörpuútgáfan hefur sent frá
sér bókina Hulinn heiinur, eftir
bandaríska útvarps- og sjón-
varpsfréttamanninn Frank Ed-
wards. — í þessari bók eru fjöru
tíu og fjórar frásagnir af furðu
legum fyrirbærum, sem enn hefur
ekki tekizt að upplýsa með nokkru
móti. Við lesum hér um mann, sem
hvarf á heimili sínu fyrir augum
eiginkonu sinnar og barna , og
enginn hefur getað upplýst,
hvað um hann varð. Við lesum
um draum blaðamannsins, sem
vakti hroll um heim allan og var
Þjóðmálanámskeið
Annar fundur þjóðmálanám-
skeiðsins verður á sunnudag ki. 34
í Tjarnargötu 26. Efni: Ræðu-
mennska. Þátttakendur eru hvatt
ir til að mæta stundvíslega.
Bókin er prentuð í Prentverki
Akraness h.f. Þýðandi er Jóna
Sigurjónsdóttir.
Frá vinstri eru: R. Hawnam verzlunarfulltrúi vlð Brezka sendiráðið, Douglas Law, C. Spearman 1. sendiráðsritari, R. H. Wood, og J. Wagstaff.
(Tímamynd G.E.)
HEYBRUNI
DEILDARDAL
NH-Hofsósi, föstudag.
Þegar heimilisfólkið að
Eyrarlandi í Deiidardal kom
á fætur í morgun varð það
þess vart, að eldur var kom
inn upp í fjárhúshlöðunm.
Slökkviliðið á Hofsósi var
fcvatt á staðinn og einnig
var safnað mönnum af
næstu bæjum til þess að
reyna að ráða niðurlögum
aldsins. Nokkuð af heyi var
rifið út úr hlöðunni og
slökkt í því, en slökkvistarf
ið gekk fremur erfiðlega,
þar sem norðaustan hvass-
viðri var og sniókoma. Mun
meginhluti heyfengs bónd-
ans að Eyrarlandi, Þorgils
Pálssonar, sem hann hafði
ætlað fyrir fénað sinn, hafa
orunnið. eða skemmzt mik-
ið, og var heyið ótryggt.
Talið er að um sjálfs-
íkveikju hafi verið að ræða.
Fulltrúar brezka útflutningsráðsins heimsækja ísland
KJ—Ryekj a vík, föstudag.
Einn af meðlimum brezka út-
flutningsráðsins fyrir Evrópu R.
H. Wood, sem hefur með útflutn
ing til íslands að gera, dvaldi
í Reykjavík, ásamt aðstoðarmönn
um sínum dagana 1. — 3. nóvem
ber og átti viðræður við ýmsa að-
BLIND ÁST
Út er komin hjá Ilörpuútgáf-
unni ný læknaskáldsaga, Blind ást
sem er fyrsta bókin í íslenzkri
þýðingu eftir áströlsku skáldkon-
una Shane Douglas, en bækur
hennar hafa verið gefnar út í
flestum enskumælandi löndum,
og eru einnig gefnar út á öllum
hinum Norðurlöndunum. —
Þetta er stórbrotin saga um
ást ungrar stúlku, á lækni henn-
ar, en stúlkan þjáist af ólæknandi
hjartasjúkdómi. Þetta er saga um
baráttu læknanna við þýðingar-
mikil störf á sjúkrahúsi, ástir
þeirra og undarlega örlagavegi.
Bókin er prentuð í Prentverki
Akraness h.f.
Þýðandi er Ásgeir Jakobsson.
ila, bankastjóra, ráðherra og for-
svarsmenn fyrirtækja um útflutn-
ing Breta til íslands.
Brezka útflutningsráðið fyrir
Evrópu var stofnað árið 1961 í
þeim tilgangi að auka og skipu
leggja útflutning frá Bretlandi á
Evrópumarkað. Margir aðilar
standa að baki ráðsins svo sem
bredka verzlunarráðið iðnrekend
ur, bankar og fleiri aðilar í City
í London — miðstöð brezka við
skiptalífsins.
Wood sagðist vilja taka það
sérstaklega fram að útflutnings-
ráðið væri ekki ríkisstofnun, þó
að í því eigi fulltrúar ríkisins sæti.
Sagði hann að þeir væru hingað
komnir til að reyna að auka út-
flutning frá Bretlandi til íslands,
en íslendingar flytja meira til
Bretlands en innflutningur þaðan
nemur í krónutölu eða árið 1965
1141 milljón króna virði sem út-
flutningurinn héðan riam á móti
821 milljón sem innflutningurinn
nam.
Af einstökum vörutegundum er
mest flutt inn af vélum og tækjum
frá Bretlandi, og þannig mun 96
% af öllum dráttarvélainnflutr.ingi
íslendinga vera þaðan, Massey
Ferguson, International Harvester
og Ford eru þær tegundir sem
mest er flutt inn af aþðan.
Wood sagði að þessi heimsókn
hefði verið mjög gagnleg, oð hefðu
Framhald á bls. 14
YFIRLYSING
Vér leyfum oss hér með að vífa
harðlega þær ærumeiðandi að-
dróttanir að sænsku skáldkonunni
Söru Lídman, sem birtust í Morg-
unblaðinu sunnudaginn 31. sept-
ember og vöktu réttláta reiði og
fyrirlitningu á blaðinu hjá íslenzk-
um lesendum. Vér álítum að orð
eins og „kvensnift” og „frænka
Göbbels" sé svo langt fyrir neð-
an almennt velsæmi í blaða-
mennsku að engu tali taki. Þá
yiljum vér krefja blaðið skýringar
á hvað við sé átt þegar spurt er
hvort skáld'konan hafi verið und-
ir annarlegum áhrifum í Hanoi
og hvort hún hafi e.t.v. heimsótt
lyfjaverksmiðjur þar. Allt þetta
lítum vér á sem freklegar móðg-
anir og ærumeiðingu og auk þess
hreina sorþblaðamennsku, og sam
tök vor harma það að gestir sem
heimsækja land vort skuli geta átt
von á svona svívirðingum í út-
breiddasta dagblaði landsins. Vér
teljum munnlega afsökunarbeiðni
af hálfu blaðsins, eins og átt hefur
sér stað í þessu tilfelli, hreina
markleysu, ef hún kemur ekki
fram í blaðinu. Vér höfum rök-
studda ástæðu til að vænta slíkr-
ar afsökunarbeiðni í Morgunblað-
inu, þar sem ritstjórn reyndi að
sýna lit á því að þvo svívirðu þessa
af blaðinu. Sú yfirlýsing hefur enn
ekki komið. Vér verðum því að
líta svo á að ritstjórn Morgun-
blaðsins sé í einu og öllu sam-
þykk og samábyrg höfundi um-
ræddra aðdróttana og hafi þar með
stimplað blað sitt sem eitt af örg
ustu sorpblöðum þessa lands.
Tilkynning frá Menningar- 0g frið
arsamtökum íslenzkra kvenna.
ATHUGASEMD
Undanfarna daga hefur gefið
að líta fregnir af skiptum Stúdenta
félags Háskóla fslands (S. F.H.Í.)
við vararektor Háskóla íslands í
dagblöðum bæjaríns. Þar sem und
irritaður hefur verið milligöngu-
maður um þau mál, óskast eft
irfarandi tekið fram:
Stjórn S.F-H.Í. ákvað að leita
til rithöfundarins Söru Lidman
um fyrirlestur á vegum féligs
ins, og fól fundanefnd fram-
kvæmdir.
Fundanefnd ákvað í samráði við
rithöfundinn fyrirlestur um Viet-
nam í H.í- kl. 5 sd- þrd. 1. nov
og fékk til þess þau leyfi, er hún
taldi nauðsynleg og hefðbundin
Halldór Halldórsson vararekt
or kvaddi undirrit.aðan á sinn fund
á mánudag áður en fyrirlesturinn
eða efni hans var auglýst. Sagði
hann, að ekki hefði verið leitað
til réttra aðila, enda réði rektor
einn með Háskólaráði skólans,
og synjaði slíkri málaleitan, þeg
ar þeim sýndist svo. Væru og eng
ar reglur til um rétt stúdenta af
húsnæði skólans. Var það ósk
vararektors, að félagið leitaði ann
að, ef það sæi sér fært. Lauk svo
þeim fundi. Skömmu síðar var
óskað úrskurðar Háskólaráðs og
fékkst hann um kvöldið á þá leið,
að félaginu væru óheimil afnot
af húsum skólans i greindum til-
gangi. Var þá fyrirlestrinum
frestað og hlutaðeigandi tilkynnt
það og ástæður. Var ekkert frek
ar aðhafzt í málinu á mánudag.
Daginn eftir og þá næstu tóku
að birtast fréttir af þessari synj
un ásamt með ummælum vararekt
ors í einu blaði a.m.k. Skal eng-
inn dómur lagður á þau ummæli
Framhald á hls. 14.